Morgunblaðið - 03.06.1998, Page 1
140 SIÐUR B/C/D/E/F
STOFNAÐ 1913
122. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hörmungar
í Afganistan
Faizabad. Reuters.
SAMEINUÐU þjóðirnar fóru í gær
fram á aðstoð vegna afleiðinga jarð-
skjálftans í Afganistan á laugardag
og bað Alfredo Witschi-Cestari, full-
trúi SÞ í Afganistan, alla þá sem séð
gætu af þyrlum að láta þær þegar í
té. Jafnframt vantaði sárlega elds-
neyti, að sögn Witschis-Cestaris.
„Erfíðleikar í leitarstarfinu felast
ekki í vistum heldur flutningum. Ef
okkur hlotnast ekki fleiri þyriur til
flutninga þá er engin leið til að
hjálpa þessu fólki.“
í yfirlýsingu SÞ kom fram að tafir
yrðu á flutningi matvæla og húsa-
skjóls handa bágstöddum þar sem
þyrlurnar þrjár, sem SÞ hefði yfir að
ráða, væru í stöðugum flutningum
með særða frá fjarlægum þorpum í
læknishendur. Witschi-Cestari
óskaði sérstaklega eftir aðstoð nær-
liggjandi landa en Afganistan á
landamæri að íran, Tadjíkistan, Uz-
bekistan, Túrkmenístan, Kína og
Pakistan.
Vonast hafði verið til, að hjálpar-
starf gengi betur nú en í febrúar
þegar annar jarðskjálfti reið yfir en
læknai- telja mikla hættu á, að sjúk-
dómsfaraldrar komi upp, kólera,
malaría og blóðki-eppusótt. Er talin
mest þörf fyrir tjöld og matvæli en
um 45.000 manns misstu heimili sín og
vegna eftirskjálfta þorir fólk ekki inn í
þau hús, sem enn standa uppi. Evr-
ópusambandið og ríkisstjómir víða
um heim hafa ákveðið að leggja sitt af
mörkum vegna hjálparstarfsins.
Ekki endanlega Ijóst
hversu margir dóu
Jarðskjálfinn á laugardag mældist
7,1 stig á Richter-kvarða og lagði allt
að 80 þorp og bæi í rúst á stóru
svæði í norðausturhluta landsins.
Áætla sumir, að um 4.000 manns hafi
farist, álíka margir og í skjálftanum í
febrúar á líkum slóðum, en ekki er
enn búið að kanna ástandið alls stað-
ar. Allt bendir nú til að eyðilegging
af völdum jarðskjálftans nái til um
40% stærra svæðis en var áður talið.
■ Eyðileggingin/24
Reuters
AFGANSKUR drengur hughreystir stúlku, sem slasaðist í jarðskjálftanum á laugardag í norðurhluta
Afganistan. Þetta er í annað sinn á nokkrum mánuðum sem risaskjálfti ríður yfir landið með voveiflegum
afleiðingum en talið er að 3000-4000 manns hafí farist á laugardag.
Frakkland
Fjöldi fólks
fær land-
vistarleyfi
París. Reuters.
FRÖNSK stjórnvöld ákváðu í gær
að veita 70.000 manns heimild til bú-
setu í Frakklandi þrátt fyrir að fólk-
ið hefði ekki til þess tilskilin leyfi. Je-
an-Pierre Chevenement, innanríkis-
ráðherra Frakklands, sagði í franska
þinginu að leyfin væra veitt af mann-
úðarástæðum og til að gera fjöl-
skyldum kleift að halda saman.
Eftir að sósíalistar komust til
valda í júní á síðasta ári hafa sérfróð-
ir menn gert athugasemdir við
framkvæmd innflytjendalaga og hafa
m.a. bent á að flestir þeirra, sem vís-
að var úr landi, voru einhleypir.
Stjómvöld ákváðu í framhaldi að
skoða ofan í kjölinn mál þeirra, sem
telja sig eiga rétt á búsetu í Frakk-
landi, og gengu 150.000 manns að til-
boði stjórnvalda sem rann út í lok
maí. Af þeim hefur tæplega helming-
ur nú fengið fullgilt landvistarleyfi.
--------------------
Lewinsky rek-
ur Ginsburg
Washington. Reuters.
MONICA Lewinsky, unga konan
sem Bill Clinton Bandaríkjaforseti
er sakaður um að hafa átt í ástar-
sambandi við og síðan beðið um að
bera Ijúgvitni fyrir sig, rak í gær
William Ginsburg sem lögmann sinn
og réð þess í stað tvo þekkta lög-
fræðinga, Plato Cacheris og Jacob
Stein, til að sjá um vörn sína en
Kenneth Starr, sjálfstæður saksókn-
ari í málinu gegn Clinton, hefur
ítrekað gert atlögu að henni. Gins-
burg er fjölskylduvinur Lewinskys
en hefur sérhæft sig í málum sem
tengjast læknamistökum og hafa
margir gagnrýnt harðlega hvernig
hann hagaði vörn Lewinskys.
Aðgerðir dönsku stjórnarinnar gegn þenslu
Eigendur húsa og1
bfla bera þungann
Auk breytinga á tekjutengdum
sköttum og gjöldum, m.a. lækkun
vaxtafrádráttar, er ætlun stjórnar-
innar að hækka skatta á húshitunar-
olíu og jarðgasi, og á benzíni frá
næstu áramótum. Þannig munu fast-
eigna- og bíleigendur bera þyngstu
byrðina af áformuðum aðgerðum
stjórnarinnar.
Fulltrúar allra flokka annarra en
Framfaraflokksins og Danska þjóðar-
flokksins, sem era yzt á hægri vængn-
um, eru í dag boðnir til viðræðna í for-
sætisráðuneytinu í því skyni að
tryggja tillögunum brautargengi.
--------------------
Sprenging í
Teheran
Teheran. Reuters.
Jeltsín ráðfærir sig við rússneska fjármálamenn
Reuters
Discovery til fundar við Mír
MEÐLIMIR Discovery veifa til
ljósmyndara í þann mund sem
þeir gengu um borð í geimskutl-
una í gærkvöld en Discovery
heldur nú til fundar við geim-
stöðina Mír í hinsta sinn.
■ Geimferja á leið/24
FASTEIGNA- og bíleigendur í Dan-
mörku eru þeir sem mest fá að finna
fyrir aðgerðum ríkisstjómar Pouls
Nyi'ups Rasmussens gegn þenslu,
sem hún kynnti á mánudag.
Aðgerðirnai- munu að sögn
JyUandsposten hafa verulega letj-
andi áhrif á þenslu í efnahagslífinu.
Reiknað er með því að þær muni
meðal annars leiða til 10-14% verð-
lækkunar á húsnæði og verulegs
samdráttar í byggingariðnaði. Aftur
á móti er reiknað með því að raun-
launastig haldizt að mestu óbreytt
og að viðskiptajöfnuður við útlönd
batni um sem nemur um 10 milljörð-
um ísl. kr. í ár og í kring um 60 millj-
arða ísl. kr. 1999.
Boðar aðgerðir til að
rétta efnahaginn við
Moskvu. Reuters.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
ræddi í gær við helstu bankastjóra
og kaupsýslumenn landsins, sem lof-
uðu aðstoð við að binda enda á fjár-
málakreppuna í landinu, og skýrt var
frá því að forsetinn hygðist grípa til
aðgerða í lok mánaðarins til að rétta
efnahaginn við.
Ýmislegt benti ennfremur til þess
að sjö helstu iðnríki heims og lánar-
drottnar Rússa væru að búa sig undir
að veita Rússlandi fjárhagsaðstoð,
jafnvel áður en Jeltsín grípur til efna-
hagsaðgerðanna. Allt þetta vai'ð til
þess að rússneska verðbréfavísitalan
RTS hækkaði um 12,25% í gær eftir
að hafa lækkað um 10% daginn áður.
Josef Tosovsky, forsætisráðherra
Tékklands, sagði við fréttamenn að
of mikið væri gert úr hættunni á að
fjármálaumrótið í Rússlandi hefði al-
varleg áhrif í Austur- og Mið-Evr-
ópu. Talið er þó að fjármálavandi
Rússa geti haft slæmar afleiðingar
fyrir mörg fyrrverandi sovétlýðveldi.
Jeltsín sat fund með tíu helstu
bankastjórum og kaupsýslumönnum
landsins í Kreml, ásamt rússneskum
embættismönnum og Sergej Kíríj-
enko forsætisráðherra. „Við hitt-
umst ekki oft - þegar það er óhjá-
kvæmilegt, þegar ríkið lendir í
vanda, efnahagurinn tekur að versna
og þegar erlendir fjárfestar byrja að
flýja,“ sagði forsetinn við fjármála-
mennina.
Sergej Jastrzhembskí, talsmaður
Jeltsíns, sagði síðai- að forsetinn
myndi bjóða þingmönnum til fundar
í Kreml 30. júní og búist væri við að
hann tilkynnti þá aðgerðir til að
binda enda á kreppuna.
TVEIR menn féllu og sex særðust í
sprengingu sem varð í íslamska bylt-
ingardómstólnum í Teheran í gær og
lýstu vígbúnir, íranskir stjórnarand-
stæðingar, sem hafa aðsetur í írak,
ábyrgð á sprengingunni á hendur
sér. Talsmaður samtakanna sagði að
í henni hefðu „tugir böðla“ látið lífið
og að tilræðið hefði verið framið til
þess að hefna átta liðsmanna þeirra
sem fallið hafi í átökum við íranska
stjórnarliða í nóvember.
Opinber fréttastofa Irans, IRNA,
sagði áður að sprengingin væri rakin
til aðgæsluleysis við meðhöndlun
sprengiefna sem notuð hafi verið
sem sönnunargögn í réttinum.
Iranska ríkissjónvarpið sagði að
tveir hefðu „dáið píslarvættisdauða“
í sprengingunni og sögðu frétta-
skýrendur að það benti til þess að
um tilræði hafl verið að ræða. Sjón-
varpið greindi ekki frá því hver or-
sök sprengingarinnar hafi verið.