Morgunblaðið - 03.06.1998, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
I
-
Undirbúningsfundur nýrra stjórnmálasamtaka á morgun
Yiðbrögð með ólíkindum
segir Sverrir Hermannsson
SVERRIR Hermannsson, fyrrver-
andi bankastjóri Landsbankans, og
nokkrir aðrir áhugamenn um stofn-
un nýrra stjórnmálasamtaka, sem
hafa það að meginmarkmiði að af-
nema núverandi kvótakerfí, munu
halda ófoi-mlegan undirbúningsfund
á morgun.
Sverrir segir að viðbrögð fólks
við hugmyndinni séu með ólíkindum
góð, síminn byrji að hringja klukk-
an sjö á morgnana og stoppi ekki
eftir það. „Það er bæði almenningur
og ýmsir liðsoddar í félagsmálum og
verkalýðsmálum og víðar að sem
gefa sig fram. Þetta sýnir að fólk er
að átta sig, sérílagi á þessu endem-
islega hervirki sem unnið hefur ver-
ið á fískveiðilagastjórnuninni.
Hvernig má annað vera en að hún
sé með þessum hætti þegar liðsoddi
og aðalforystumaður sjávarútvegs-
íyrirtækjanna hefur verið svo til
einráða í sjávarútvegsmálum okkar
um langt árabil? Auðvitað á ekkert
að fara að ráðast á eða rústa sjávar-
útveginn, auðvitað verður höfuð-
málefni slíks flokks, ef hann rís á
laggirnar, að styðja og styrkja sjáv-
arútveginn. En það á ekki að gera
með því að ræna þjóðina lífseign
sinni og færa hana í hendur örfáum
mönnum. Það getur aldrei gengið."
Fijálshyggjustefna Hannesar
Hólmsteins með undirtökin
Sverrir nefnir fleiri mál sem sam-
einast á um, meðal annars andstaða
gegn nýjum lögum um eignarhald á
landi og stjómsýslu hálendisins sem
hann segir vera af sömu rót runnin
og kvótakei’fíð. „Það er verið að
mala þetta undir örfáa menn. Þetta
er frjálshyggjustefnan eins og hún
getur orðið hroðalegust. Þetta er
stefna Hannesar Hólmsteins sem
hefur náð undirtökum hjá þessari
ríkisstjórn, enda ekki óeðlilegt þar
sem hann er inni í hlust á forsætis-
ráðherranum og af Guðlaugsstaða-
kyninu sem ræður hinumegin," seg-
ir Sverrir.
Sverrir segist ekki stefna að
tímabundnu óánægjuframboði. Ef
hin nýju stjórnmálasamtök nái
skriði sé engin ástæða til að tjalda
til einnar nætur. „Ég held að svo sé
komið að fólk sé tilbúið að losa um
gömul flokksbönd og viðjar sem
lagðar hafa verið á fólk,“ segir
hann.
Klíka í þjóðfélaginu
sem lítur niður á fólk
Nöfn á nokkrum meintum stuðn-
ingsmönnum flokkstofnunarinnar
hafa verið nefnd í fjölmiðlum.
Matthías Bjarnason, fyrrverandi
þingmaður og ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, staðfestir það að hann
fylgi Sverri að málum. „Ég ætla að
styðja þá sem eru á móti þessari
fiskveiðistefnu og ég er á móti ein-
strengingshætti eins og þeim að
leyfa ekki fólkinu í landinu að hugsa
sig betur um út af hálendinu, að ég
tali nú ekki um að það er verið að
eyðileggja margar byggðir landsins.
Það eru ótal dæmi þess að það er
ákveðin klíka í þessu þjóðfélagi sem
lítur niður á fólk.“
Matthías segist ekki stefna á þing
að nýju, en vonast til að nýjum
stjórnmálasamtökum takist að fella
ríkisstjórnina.
Morgunblaðið náði ekki tali af
Davíð Oddssyni forsætisráðherra í
gær þegar leita átti álits hans á fyr-
irhugaðri stofnun nýrra stjórnmála-
samtaka.
Nærri drukkn-
aður í Reykja-
dalslaug
ÁTJÁN ára piltur var nærri drukkn-
aður í Reykjadalslaug í Dalasýslu að-
faranótt annars i hvitasunnu en betur
fór en á horfðist. Ferðafélagar hans
urðu þess varir að ekki var allt með
felldu, náðu honum upp úr lauginni og
| kölluðu til lækni. Pilturinn var fluttur
i með þyrlu Landhelgisgæslunnar á
slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
I og er nú á batavegi.
i Sundlaugin í Reykjadal er afskekkt
’ og þar er engin gæsla en nokkuð er
um að fólk fari í hana og þá á eigin
ábyrgð, að sögn Sigvalda Guðmunds-
sonar, lögregluvarðstjóra í Búðardal.
; Hann segir það ennfremur undarlegt
að lögreglu hafí ekki verið tilkynnt
um slysið en hann hafí ekki frétt af
í þvi fyrr en hringt var í hann frá
fréttastofu útvarps morguninn eftir.
„Það eru í raun iimm aðilar sem
bregðast í því að tilkynna lögreglu
um slysið; sá sem hringdi í lækni,
læknirinn, sjúkrabflstjórinn, Neyðar-
línan og þyrluáhöfnin,“ segir Sigvaldi.
-----------------------
Ríkissaksóknari
rannsakar Lind
BEIÐNI bankaráðs Landsbanka Is-
lands um sakamálarannsókn á fjár-
mögnunarfyrirtækinu Lind hefur
borist embætti ríkissaksóknara.
í beiðninni er farið fram á að tekið
verði til opinberrar rannsóknar hvort
stjórnendur fjármögnunarleigufyrir-
tækisins Lindar hf. hafi, eftir að
Landsbankinn eignaðist meirihluta í
fyrirtækinu, framið eða tekið þátt í
refsiverðri háttsemi með athöfnum
sínum við stjórn fyrirtækisins eða at-
hafnaleysi.
Ríkissaksóknari hefur fallist á
rannsóknina en hann tjáir sig ekki
um önnur atriði málsins að svo
stöddu, svo sem hver málsmeðferðin
verði eða hvort fjölga þurfi starfs-
fólki við embættið til að hægt verði
! að sinna rannsókninni.
Ljósmynd/Jóhannes Long
SVEINN Hákon Harðarson tekur við viðurkenningum úr hendi Kristínar Arnalds skólameistara.
DÚX Fjölbrautaskólans í Breið-
holti, Sveinn Hákon Harðarson,
útskrifaðist með meðaleinkunn-
ina 9,78 sem er hæsta einkunn á
stúdentsprófi sem hefur verið
gefin fyrir stúdentspróf þaðan.
Sveinn sópaði til sín verðlaunum
við útskriftina en hann hlaut m.a.
verðlaun fyrir stærðfræði, eðlis-
fræði, efnafræði og náttúrfræði-
greinar. „Mér er frekar illa við
að vera illa lesinn og leiðist það
viðhorf að ætla bara að skríða,“
segir Sveinn. „Ég er þó stundum
á siðustu stundu með lærdóminn
en þetta hefur alltaf reddast."
Sveinn segir að árangurinn í
náminu megi skýra með því að
hann hefur unnið vel síðustu ár-
Líkar ekki
að vera illa
lesinn
in. „Ég er a.m.k. enginn snilling-
ur.“
Til að hvfla sig frá lærdómnum
fer Sveinn stundum út að hlaupa
eða í göngur. „Ég hef reyndar
gert allt of lítið af því að ganga
og stefni á að bæta úr því.“
Sveinn hélt einmitt strax út úr
bænum að lokinni útskrift í ferð
með Ferðafélaginu. „Það var
enginn þrýstingur heima fyrir að
halda veislu þannig að ég slapp
út úr bænum.“
Nú í sumar verður Sveinn Há-
kon að vinna hjá Skógræktarfé-
lagi Reykjavikur í Hvammsvík í
Hvalfirði. „Mér líst bara vel á
þetta. Þetta byijar vel í góða
veðrinu.“ I haust tekur svo há-
skólanámið við. Sveinn Hákon
hefur ekki tekið endanlega
ákvörðun um hvaða grein verður
fyrir valinu en býst við að það
verði eitthvað sem tengist efna-
eða líffræði. „Ég sé til, kannski
fæ ég köllun í suraar og kemst að
hvað ég vil gera í framtíðinni."
■ Fjölbrautarskólanum/11
Hrafnhildur
Brynja Flosadóttir
Banaslys
á Hólmavík-
urvegi
UNG kona lést í umferðarslysi á
Hólmavíkurvegi við Borgarholt í
Hrútafirði aðfaranótt annars í
hvítasunnu. Hún hét Hrafnhildur
Brynja Flosadóttir, var fædd árið
1974 og búsett í Reykjavík. Systir
konunnar og ungur sonur systur-
innar, sem voru farþegar í bflnum,
sluppu að mestu án meiðsla.
Áð sögn lögreglu á Hólmavík
virðist sem Hrafnhildur hafi misst
stjórn á bil sinum í beygju og lausa-
möl með þeim afleiðingum að bíllinn
valt út af veginum. Hún kastaðist út
úr bílnum og hefur, að sögn lög-
reglu, að öllum líkindum látist sam-
stundis.
Hrafnhildur lætur eftir sig sex
ára gamlan son.
------♦-*-*.---
Hækkun úr-
skurðuð
ólögmæt
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur úrskurðað 25% lækkun hol-
ræsagjalds í Hafnarfirði ólögmæta.
Um sl. áramót var holræsagjald í
Hafnarfirði hækkað um 50%, eða úr
0,10% í 0,15% af fasteignamati.
Hækkunin var kærð til félagsmála-
ráðuneytisins sem úrskurðað hefur
eftirfarandi: „Ákvörðun bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðarkaupstaðar
um að hækka holræsagjald fyrir ár-
ið 1998 í 0,15% af „heildarfasteigna-
mati“ er ólögmæt. Bæjarstjórn er
ekki heimilt að innheimta hærra
gjald en sem nemur 0,12% af gjald-
stofni samkvæmt gildandi reglu-
gerð.“
Með vísun til úrskurðar félags-
málaráðuneytisins ber Hafnarfjarð-
arkaupstað að lækka álagt holræsa-
gjald um 25,34% sem þýðir að af
hverri milljón í heildarfasteignamati
lækkar holræsagjaldið um 380 krón-
ur. Gjaldandi sem er með heildar-
fasteignamat að upphæð 10 milljónir
króna á því að fá lækkun sem nemur
3.800 krónum. Leiðréttingin verður
væntanlega gerð á síðasta gíróseðli,
sem sendur verður út í júní, segir í
fréttatilkynningu frá kæranda, Gísla
Jónssyni, prófessor emeritus.
1
Sérblöð í dag
jaorcunbCaÍJilí
Fímm nýfiðar
Vala endur-
heimti
www.mbi.is