Morgunblaðið - 03.06.1998, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 15
Lýsti eftir
stefnu heilbrig'ð-
isráðherra
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra sagði í utandag-
skrárumræðu um heilbrigðismál
að unnið væri að framgangi val-
frjáls stýrikerfis innan heilsu-
gæslukerfisins. Sighvatur Björg-
vinsson, formaður Alþýðuflokks-
ins, sem var málshefjandi, hafði
lýst eftir stefnu heilbrigðisráð-
herra í málefnum sérfræðilækna.
Hann sagði að ráðherra hefði
talað fyrir valfrjálsu stýrikerfi en
ekkert hefði gerst í málinu. Sakaði
hann ráðherra um að hafa farið út
á aðrar brautir í kjölfar síðustu
samninga við sérfræðilækna með
því að flytja meira af aðgerðum út
af sjúkrahúsum og inn á einkastof-
ur. „Valfrjálst stýrikerfi verður
aldrei sett á laggirnar nema al-
menn sátt verði um það meðal
lækna,“ sagði heilbrigðisráðherra.
Heilbrigðisráðherra sagði að á
Vestfjörðum hefðu verið sameinað-
ar sex stofnanir undir eina stjórn
og hið sama væri í undirbúningi á
Austfjörðum. í Reykjavík væri bú-
ið að sameina heilsugæslustöðv-
arnar undir eina stjórn.
Sighvatur spurði um niðurstöð-
ur nefndar um forgangsröðun í
heilbrigðisþjónustu sem lokið hef-
ur störfum. Heilbrigðisráðherra
sagði að nú væri til stefna varð-
andi forgangsröðun sem ekki hefði
verið til áður. Náðst hefði sam-
komulag við stjórnarandstöðuna
um forgangsröðun og unnið væri
eftir því samkomulagi. Meginnið-
urstaða nefndarinnar hefði verið
sú að greitt yrði fyrir þá þjónustu
sem er vísindalega sannað að hef-
ur gildi.
Sighvatur lýsti eftir stefnu ráð-
herra í sameiningu sjúkrahúsanna
í Reykjavík. Heilbrigðisráðherra
sagði að samþætting ýmissar þjón-
ustu milli sjúkrahúsanna væri í
sameiningarátt.
Heilbrigðisráðherra sagði að
sérstakar úrskurða- og aðlögunar-
nefndir væri að vinnu vegna kjara-
deilu hjúkrunarfræðinga. „Það er
von okkar að við náum lendingu
þannig að við þurfum ekki á neyð-
aráætlun að halda. Við höfum
mánuð til stefnu að finna lausn á
málinu en við verðum samtímis að
undirbúa að allt fari á verstan
veg,“ sagði heilbrigðisráðherra.
Morgunblaðið/Ásdís
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst
kl. 10.30 í dag. Þá verða um-
ræður um þingmal frá efna-
hags- og viðskiptanefnd Al-
þingis, en einnig um mál frá
landbúnaðarnefnd Alþingis.
Hlé verður gert á þingfundi kl.
15 í dag en hefst hann að nýju
kl. 20.30. Þá hefjast eldliús-
dagsumræður, sem standa í
um tvo til þijá tíma.
A annasömu
þingi
MIKIÐ annríki hefur verið á síð-
ustu dögum Alþingis og í gær
voru afgreidd 26 þingmál. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
og þriðji þingmaður Reykvfldnga
er hér f þungum þönkum. Yfir
honum vakir Jón Sigurðsson for-
seti, forvígismaður sjálfstæðis-
baráttu íslendinga.
FRÉTTIR
Ljósmynd/Benedikt Bragason
VÉLSLEÐAMENNIRNIR komu eins og kallaðir, bjuggu um fótinn og komu piltinum til byggða.
Ohapp á Hvanna
dalshnjúki
SAUTJÁN ára piltur sem var í
gönguferð á Hvannadalshnjúk á
sunnudag brotnaði á fótlegg þegar
lína sem hann var festur í ásamt fé-
lögum sínum flæktist fyrir fótunum
á honum og hann hrasaði.
Betur fór en á horfðist og brotið
var ekki slæmt, að sögn Önnu Láru
Friðriksdóttur, sem var fararstjóri í
UNG kona slasaðist alvarlega þegar
hún varð undir jeppa við félags-
heimilið Lýsuhól á Snæfellsnesi að-
faranótt sunnudags.
Að sögn lögreglu í Stykkishólmi
virðist sem konan og karlmaður hafi
setið uppi á þaki jeppans með fæt-
urna niður um sóllúgu, þegar bíl-
stjórinn missti stjóm á bflnum með
þeim afleiðingum að hann snerist
þversum og valt og konan lenti und-
ir bílnum.
Bíll með spilbúnaði var nær-
staddur og með honum var hægt að
lyfta bflnum og ná konunni undan
ferðinni. Henni tókst að gera
vélsleðamönnum sem voru á ferð á
svæðinu viðvart og þeir komu til
hjálpar, bjuggu um fótinn og fluttu
piltinn niður í Jöklasel við Skála-
fellsjökul. Þaðan var honum ekið á
sjúkrahúsið á Höfn, þar sem gert
var að meiðslum hans.
honum. Hún var flutt með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á slysadeild
Sjúki-ahúss Reykjavíkur. Hún er
enn á gjörgæslu og er ástand henn-
ar stöðugt, en hún mjaðmagrindar-
brotnaði og hlaut brjóstholsáverka,
að sögn Páls Ammendrup, sérfræð-
ings á gjörgæslu.
Karlmaðurinn, sem einnig var
uppi á þaki jeppans þegar hann
valt, meiddist mun minna en hann
var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akranesi. Ökumaðurinn slapp án
meiðsla en hann er grunaður um
ölvun við akstur, að sögn lögreglu.
Gunnarsholt
Flugvélar-
hjól rakst
í höfuð
manns
MAÐUR slasaðist alvarlega á
höfði þegar lendingarhjól flug-
vélar rakst í hann á flugvellin-
um í Gunnarsholti á laugardag.
Að sögn lögreglu á Hvols-
velli voru fjórir menn að æfa
sig í lendingum og flugtaki á
fjögun-a sæta flugvél sem þeir
keyptu nýlega í félagi. Þegar
óhappið varð var einn þeirra á
vélinni og var að taka sig upp
og búinn að beygja eftir flug-
takið. Félagar hans þrír voru á
jörðu niðri og ætluðu að taka
myndir þegar hlífin á lending-
arhjóli vélarinnar rakst í höfuð
eins þeirra. Hann var fluttur
með sjúkrabfl á Selfoss, þar
sem þyrla Landhelgisgæslunn-
ar tók við honum og flutti á
slysadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur.
Maðurinn reyndist vera höf-
uðkúpubrotinn og fór í aðgerð
en er nú á batavegi og útskrif-
aður af gjörgæslu, að sögn Páls
Ammendrup, sérfræðings þar.
Lýsuhóll á Snæfellsnesi
Ung kona lenti
undir jeppa
sem nytur þér
Bókin er 96 bls. meö alvörugefnum fyrirheitum um björt og hagsæl eftirlaunaár.
Allt sem þú vilt vita um þær breytingar sem nýju lögin hafa í för með sér,
viðbótartryggingar sem enginn nema ALVÍB býður, lágmarkstryggingu og hin
frábæru Ævisöfn sem eru sniðin að þínum aldri og þeim tímamótum
er þú kýst að setjast í helgan stein.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • Sími 560 89 00
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is
Litla bókin um lífeyrismál
bíður þín hjá VÍB
Kirkjusandi. Hún fæst án
endurgjalds á meðan
birgðir endast.