Morgunblaðið - 03.06.1998, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Samningar um Landsmót
UMFÍ árið 2001 undirritaðir
Egilsstöðum - Ungmenna- og
íþróttasamband Austurlands og
Egilsstaðabær undirrituðu nýlega
samning þess efnis að Landsmót
UMFÍ verði haidið á Egilsstöðum
árið 2001.1 samningnum er kveðið á
um að Egilsstaðabær leggi til þau
mannvirki sem til þarf, komi upp
tjaldstæðum, hreinlætisaðstöðu,
bflastæðum og öðru sem til þarf.
Samningurinn er undirritaður
með fyrii-vara um að lögð verði
gerviefni á hlaupabraut, en til þess
að það verði þurfa að koma til veru-
leg fjárframlög frá_ öðrum aðilum.
Landsmótsnefnd UÍA er þegar far-
in að vinna að þessu verkefni, en
UÍA hefur tvisvar áður haldið
Landsmót, árin 1952 og 1968 og
voru þau bæði haldin á Eiðum.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
SAMNINGAR undirritaðir um Landsmót UMFI á Egilsstöðum árið
2001. Sveinn Jónsson formaður landsmótsnefndar, Helgi Halldórsson
bæjarstjóri Egilsstaða og Einar Már Sigurðarson formaður UÍA.
Ferðum Nor-
rænu fjölgar
- einnig siglt
til Leirvíkur
FARÞEGAFERJAN Norræna
kom í fyrstu ferð sumarsins til
Seyðisíjarðar sl. fimmtudag. í
þessari ferð flutti Norræna 200
ferðamenn á 60 farartækjum til
landsins og 300 farþegar á 80
farartækjum fóru af landi brott.
A þessu ári fer feijan 15 ferðir
til og frá íslandi sem er einni
ferð fleiri en farnar voru í fyrra,
og að þessu sinni er fyrsta ferðin
viku fyrr en vanalega hefur ver-
ið. Breyting hafa verið gerðar á
ferðaáætlun ferjunnar og bætist
nú Leirvík á Hjaltlandi við sem
viðkomustaður og í stað viðkomu
í Esbjerg verður Hanstholm
ferjuhöfnin í Danmörku. Nor-
ræna fer því frá Seyðisfjarðar til
Færeyjar og þaðan til Leirvíkur.
síðan áfram til Bergen, aftur til
Leirvíkur og Færeyjar og ís-
iands.
Að sögn Ágústs H. Friðriks-
sonar hjá Austfar hf. á Seyðis-
firði eru bókanir mjög góðar
með feijunni í sumar og betri en
undanfarin ár.
SUN
reisir 6
mjölturna
Neskaupstað - Framkvæmdir eru
nú í fullum gangi við smíði á
mjölturnum við loðnuverksmiðju
Sfldarvinnslunnar.
Turnarnir, sem eru 6, verða 34
metra háir með húsi ofan á svo
alls verður mannvirkið um 40
metra hátt. Um 6.000 þúsund
tonn af mjöli munu rúmast í
turninum og verður útskipun úr
þeim nánast sjálfvirk. Áætlað er
að verkinu verði lokið 1. nóvem-
ber í haust og að þeir verði af-
hentir Sfldarvinnslunni mánuði
síðar eftir að prufukeyrslu á
tækjabúnaði lýkur.
Það er Héðinn Smiðja í Garða-
bæ sem sér um verkið. Áætlaður
kostnaður við turnana er um 250
milljónir króna.
Breskra
sjómanna
minnst
Ey rarbakka - Síðastliðinn föstu-
dag fór fram minningarathöfn í
Eyrarbakkakirkju. Minnst var
sjómanna sem fórust með togar-
anum Lock Morar frá Aberdeen
aðfaranótt 1. apríl 1937.
Prófasturinn í Ámesþingum,
séra Úlfar Guðmundsson, ann-
aðist athöfnina og kór kirkj-
unnar söng sálmana Líknar-
gjafinn þjáðra þjóða, Let the
tower lights be burning, Jesus
saviour pilot me og sjómanna-
sálm eftir Pálmar Eyjólfsson.
Athöfnin fór fram á ensku,
enda viðstaddir margir ættingj-
ar sjómannanna sem fórust,
ásamt fulltrúa borgarstjórans í
Aberdeen, auk heimamanna.
Eftir athöfnina var farið í
kirkjugarðinn, en þar eru graf-
ir sex manna af áhöfn togarans.
Hvítir, nafnlausir krossar eru á
gröfunum, enda enginn nöfn
þekkt er mennirnir voru grafn-
ir. Háöldruð kona, ekkja stýri-
mannsins á Lock Morar, af-
hjúpaði kross sem Skotarnir
komu með. Á krossinum er
skjöldur með áletruðum nöfn-
um allra skipverjanna.
Allt fór þetta hátíðlega fram
og þótti gestunum vel tekið á
móti sér og virtust mjög
snortnir af athöfninni. Að lok-
um var boðið til kaffisamkvæm-
is að Stað og gafst þá gestunum
færi á að hitta nokkra þeirra
sem tóku þátt í leit og ýmisleg-
um störfum vegna slyssins á
símum tíma.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
FUNDARMENN á fundi rekstrarstjóra skíðasvæða á íslandi.
Seyðisfirði - Nýlega héldu rekstrar-
stjórar skíðasvæða fund á Seyðis-
firði. Aðalumræðuefni fundarins var
öryggi á skíðasvæðum.
Mörg alvarleg slys hafa orðið í
áranna rás og allir voru sammála
um nauðsyn þess að bæta þyrfti ör-
yggið á skíðasvæðum landsins. Full-
trúi Seyðisfjarðar kynnti fundar-
mönnum útbúnað sem heimamenn
fundu upp til þess að draga úr
hættu á slysum þegar menn verða
fyrir því óláni að rekast á lyftu-
staura. Búnaðurinn er þannig að
Rekstrarstjór-
ar skíðasvæða
funda um
öryggismál
búin eru til nokkurs konar kodda-
ver úr yfirbreiðsludúk og þau síðan
fyllt með höggdeyfandi efnum eins
og t.d. frauðkúlum. Efnið er auð-
fengið og ódýrt. Koddarnir eru síð-
an festir í kringum lyftustaurinn og
draga úr höggum ef árekstur verð-
ur. Þetta er talið dæmi um hvernig
draga megi úr slysahættu auðveld-
lega og án mikils tilkostnaðar.
Rekstrarstjórarnir ákváðu að
stofna með sér landssamband til
þess að sinna þessum öi’yggismál-
um og öðrum málum sem gætu ver-
ið sameiginleg á skíðasvæðunum.
Valið var í undirbúningsnefnd sem
skilar af sér í haust þegar komið
verður saman aftur til þess að
stofna samtök.