Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ
ro Qniu TTyfi'rr r. an'i/ (Iir.rnjnm
20 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
VIÐSKIPTI
Hugur, Tæknival og Þróun stofna félag um dreifingu á Concorde viðskiptahugbúnaði
Nýtt fyrirtæki
á hugbúnaðar-
markaði
FYRIRTÆKIN Hugur-forritaþróun, Tæknival og Próun hafa ákveðið að
stofna sameiginlega fyrirtækið Concorde Axapta ehf. um dreifmgu á
Concorde Axapta, nýrri kynslóð viðskiptahugbúnaðar frá danska fyrirtæk-
inu Damgaard Intemational. Auk fyrirtækjanna þriggja mun Einar Úlfs-
son iðnaðarverkfræðingur eiga hlut í fyrirtækinu. I samtali við Morgun-
blaðið segist hann vera ánægður með stofnun þessa nýja fyrirtækis. „Eg
held að þarna séu samankomin þrjú sterkustu hugbúnaðarfyrirtæki lands-
ins og við hlökkum til að bjóða upp á góða þjónustu með góðum hugbúnaði,"
segir Einar.
Frá árinu 1991 hefur viðskipta-
hugbúnaðurinn Concorde XAL frá
Damgaard International verið á ís-
lenska markaðnum og náð mikilli
útbreiðslu líkt og annars staðar í
Evrópu. Meðal notenda Concorde
XAL hér á landi má nefna Húsa-
smiðjuna hf., Kaupfélag Eyfirðinga
og Skeljung hf. Hugur-forritaþró-
un hefur séð um dreifingu Concor-
de XAL hér á landi og verður svo
áfram.
Dýrasta hugbúnaðarverkefni
Damgaard Intemational
Concorde Axapta er metnaðar-
fyllsta og um leið dýrasta hugbún-
aðarverkefni sem Damgaard
International hefur ráðist í. Axapta
byggist á algrafísku, hlutbundnu
þróunarumhverfi sem skapar kerf-
inu algera sérstöðu á sínu sviði. Þá
er einnig innbyggð í kerfið svo-
nefnd þriggja laga miðlara/biðlara-
högun sem skapar áður óþekkta
möguleika í gagnavinnslu einkum
yfir hvers kyns víðnet en notkun
slíkra neta hefur sem kunnugt er
stóraukist á undanfömum árum.
Axapta notar alla nýjustu tækni
við hugbúnaðargerð og byggist á
forritunarmáli sem tekur mið af
Java sem mjög hefur rutt sér til
rúms á undanförnum misserum.
Markhópurinn fyrir Axapta er í
fyrstunni meðalstór og stæn-i fyr-
irtæki en fljótlega verður einnig
boðin útgáfa af Axapta fyrir minni
fyrirtæki.
Þýtt og aðlagað að íslenska
markaðnum
Hlutverk hins nýja fyrirtækis er
annars vegar að vinna að þýðingu
og aðlögun Axapta að þörfum ís-
lenska markaðarins og hins vegar
að markaðssetja hugbúnaðinn í
samvinnu við söluaðila. Vinna við
þýðingu og aðlögun er þegar komin
í fullan gang og Hugur-forritaþró-
un, Tæknival og Þróun hafa þegar
hafist handa við að flytja ýmsar
sérlausnir sínar yfir í Axapta.
Stefnt er að því að allar sérlausnir
sem unnar hafa verið í Concorde
XAL á undanförnum árum verði
fluttar yfir í Axapta á næstu miss-
erum.
Einar Úlfsson iðnaðai-verkfræð-
ingur er forstjóri hugbúnaðar- og
ráðgjafarfyrirtækisins Caliber
Solutions í Stamford, Connecticut.
Caliber sérhæfir sig í sölu á Axapta
á Bandaríkjamarkaði í samvinnu
við IBM og Damgaard. Einar seg-
ist eiga von á mikilli velgengni
Axapta á íslandi, í ljósi þess hve vel
hafi gengið í Bandaríkjunum.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
AÐSTANDENDUR hins nýja hugbúnaðarfyrirtækis; Halldór Frið-
geirsson, Gunnar Ingimundarson, Rúnar Sigurðsson, Jens Höjgard,
Ulfur Sigurmundsson og Einar Ulfsson.
Vöruskiptajöfnuður
16,6 milljörðum
lakari en í fyrra
FYRSTU fjóra mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 40 milljarða
króna, en inn fyrir 52,3 milljarða fob.
Því var halli á vöruskiptum við út-
lönd sem nam 12,3 milljörðum króna,
en á sama tíma í fyrra voru þau hag-
stæð um 4,3 milljarða. Af því leiðir
að viðskiptajöfnuðurinn var 16,6
milljörðum lakari fyrstu fjóra mán-
uði ársins en á sama tíma árið áður.
í aprílmánuði voru fluttar út vörur
fyrir tæpan 11,1 milljarð og inn fyrir
12,6 milljarða króna fob, segir í frétt
frá Hagstofu Islands. Vöruskiptin í
apríl voru því óhagstæð um 1,6 millj-
arða, en í apn'l 1997 voru þau óhag-
stæð um 600 milljónir á föstu gengi.
Verðmæti vöruútflutnings 8%
minna en í fyrra
„Fyrstu fjóra mánuði þessa árs var
heildarverðmæti vöruútflutnings 8%
minna á fóstu gengi en á sama tíma
árið áður. Samdráttinn má rekja til
minni útflutnings sjávarafurða en
jafnframt munar um að í fyrra var
seld úr landi flugvél fyrir 2,6 millj-
arða kr. en engin slík sala hefur átt
sér stað á þessu ári. A móti kom að
útflutningur á áli jókst. Útfluttar
sjávarafurðir voru 72% alls útflutn-
ings og var verðmæti þeirra 9%
minna en á sama tíma árið áður.
Verðmæti útfluttrar iðnaðarvöru var
18% meira en í fyrra; þar af var verð-
mæti útflutts áls 46% meira en verð-
mæti kísiljárns dróst saman um 33%.
Heildarverðmæti vöruinnílutnings
fyrstu fjóra mánuði þessa árs var
33% meira á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Mestan þátt í aukn-
um vöruinnflutningi eiga flugvéla-
kaup Flugleiða hf. í janúar sl. en inn-
flutningur á hrávöru og rekstrar-
vöru, fjárfestingarvöru og neyslu-
vöru jókst einnig til muna m.v. sama
tíma í fyrra,“ segir í frétt frá Hag-
stofunni.
Hádegisveröarfundur
Amerísk-íslenska verslunarráðsins
Fimmtudaginn 4. júní 1998, kl. 12:00 - 13:30 í Víkingasal Hótels Loftleiða
MINNESOTA - ISLAND
NÝ TÆKIFÆRI
• Ný tækifæri í menningar- og viðskiptatengslum Minnesota og Islands.
Fylkisstjóri Minnesota er hér á ferð ásamt ráðherrum í stjóm sinni og íylgdarliði í tilefni af opnun nýrrar
flugleiðar Flugleiða hf. milli Keflavíkur og Minnesota. í Minneapolis eru höfuðstöðvar fleiri Fortune 400
íyrirtækja en í nokkurri annarri stórborg Bandaríkjanna og er efnahagslíf fylkisins með því besta sem gerist
í Bandarikjunum. Minnesota er einnig það fylki sem hefúr mest viðskiptaleg og menningarleg tengsl við
Norðurlöndin og mun þetta beina flug bjóða uppá marga möguleika í auknum samskiptum. Amerísk-íslenska
verslunarráðiö hvetur alla þá sem hafa verið í námi í Minnesota eða í viðskiptatengslum við Bandaríkin
að nýta sér þetta tækifæri.
FRAMSOGUMAÐUR:_
Ame Carlsson, íylkisstjóri Minnesota
Að loknum framsöguerindum geta fundarmenn borið fram íyrirspumir eða komiö með innlegg
í umræðuna.
Fundargjald (hádegisverður innifalinn) kr. 3.000,-
Fundurinn er opinn en nauðsynlegt er
að tilkynna þátttöku fyrirfram i síma 510 7100
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS
Amerísk-íslenska verslunarráðið
4
Hraðfrystihús
Eskifjarðar
Hlutafé
aukið um
30 milljónir
STJÓRN Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar hf. hefur ákveðið að nýta sér
heimild aðalfundar til að auka hluta-
fé félagsins um 30 milljónir á nafn-
verði með útgáfu nýrra hlutabréfa.
Hluthafar hafa forkaupsrétt að
aukningunni og verður þeim boðið að
nýta hann með sérkjörum. Gengi
hlutabréfa félagsins á Verðbréfa-
þingi íslands var 9,32 á fimmtudag
og samkvæmt því er söluverðmæti
aukningarinnar á markaði um 280
milljónir kr.
Að sögn Magnúsar Bjamasonar,
stjórnarformanns Hraðfrystihúss
Eskifjarðar, verður hlutaféð boðið
hluthöfum í þessum mánuði. Við-
skiptastofa Landsbanka Islands ann-
ast útboðið.
Notað til fjárfestinga
Fjármunirnir eru notaðir til fjár-
festinga. Þannig er lokið gagngerum
endurbótum á nótarskipinu Jóni
Kjartanssyni og kom skipið heim frá
Póllandi um helgina. Jafnframt
stendur yfir uppbygging nýrrar
rækjuverksmiðju félagsins og er
áætlað að hún hefji starfsemi síðla
hausts.
----------------
Burðarás kaupir
hlutíHB
BURÐARÁS hf., fjárfestingarfélag
Eimskips hf., keypti í gær hlutabréf í
Haraldi Böðvarssyni hf. að nafnverði
15 milljónir ki-óna, sem jafngildir um
1,4% eignarhlut í félaginu. Hluta-
bréfin voru keypt á genginu 5,8, eða
87 milljónir króna. Eignarhlutur
Burðaráss hf. I Haraldi Böðvai-ssyni
hf. eftir kaup þessi er 10,2%.
------♦-♦-♦----
Byggðastofn un
auglýsir hluta-
bréf til sölu
BYGGÐASTOFNUN auglýsti hluta-
bréf í eigu sinni til sölu í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins. Guðmundur
Rafn Bjarnason hjá Byggðastofnun
segir stofnuninni skylt að auglýsa
bréfin árlega, samkvæmt reglugerð.
Hann segir að á síðustu misserum
hafi heimildir Byggðastofnunar til að
taka þátt í fjármögnun fyrirtækja
með hlutabréfakaupum komið og
farið, en nú sé verið að ganga frá
reglugerð, þar sem gert sé ráð fyrir
að fjármögnun fari fram með beinni
hætti í gegnum eignarhaldsfélög.
Aðspurður hvort Byggðastofnun
fái mörg tilboð í kjölfar þessarar ár-
vissu auglýsingar segir hann það
vera upp og ofan. Mörg bréfanna séu
orðin gömul og vart eftirsóknarverð.
-----------♦-♦-♦-----
Hætta
með OTM
VERÐBRÉFAÞING íslands hætti
reglubundinni dreifingu upplýsinga
um viðskipti og tilboð á Opna tilboðs-
markaðnum frá og með 1. júní síð-
astliðinn. Yfirlitið er því hætt að
birtast á peningamarkaðssíðu Morg-
unblaðsins.
IÐNSKÓLINN f REYKJAVfK
vekur athygli á nýrri náms-
skipan í bókbandi.
Námstími 3 ár, þar af
2 ár í skóla. Námið er
ekki samningsbundið.
Megináhersla er á handband.
Samfellt skólanám.