Morgunblaðið - 03.06.1998, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Seðlabankinn sækist ekki eftir framlengingu fjárvörslusamninga
Breytt fyrirgreiðsla
við viðskiptavaka
SEÐLABANKI ÍSLANDS mun
ekki sækjast eftir framlengingu
þeirra fjárvörslusamninga sem
verið hafa í gildi milli bankans og
nokkurra aðila að Verðbréfaþingi
Islands undanfarin tvö ár en samn-
ingarnir renna út í lok þessa mán-
aðar.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Seðlabankanum má rekja
ástæðu þessarar stefnubreytingar
til yfirlýsingar nokkuiTa aðila að
Verðbréfaþingi, þess efnis að þeir
hyggist taka að sér hlutverk við-
skiptavaka fyrir markflokka ríkis-
skuldabréfa með eigi lakari hætti
en fjárvörslusamningamir fólu í
sér.
Gildandi reglur um fyrirgreiðslu
endurskoðaðar
Samhliða þessu hefur Seðla-
bankinn endurskoðað gildandi
reglur um fyrirgreiðslu sína við
viðskiptavaka ríkisskuldabréfa og
eru meginbreytingarnar fjórþætt-
ar: í fyrsta lagi er hlutverk við-
skiptavaka skilgreint betur en áð-
ur og samræmt því sem gilti í
fjárvörslusamningum bankans. I
öðru lagi er aðgangur að fyrir-
greiðslu bankans bundinn því að
viðkomandi fyrirtæki sé við-
skiptavaki í öllum markflokkum
ríkisskuldabréfa. I þriðja lagi er
aðgangur að fyrirgreiðslu háður
því að eiginfjárstaða viðkomandi
sé yfir tilteknu lágmarki og í
fjórða lagi er viðskiptavökum sem
uppfylla ofangreind skilyrði veitt-
ur aðgangur að vikulegum upp-
boðum Seðlabankans á endur-
hverfum samningum með sama
hætti og bindiskyldum lánastofn-
unum.
3 milljarða skuldabréfaútboð
Sparisjóðs Hafnarfjarðar
SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar hef-
ur gefið út flokk skuldabréfa að nafn-
virði þriggja milljarða króna. Skulda-
bréfin eru verðtryggð til 15 ára með
árlegum vaxtagjalddögum og geiðslu
höfuðstóls í lok lánstíma. Nafnvextir
bréfanna eru 4,75% en ávöxtunar-
krafa á íyrsta söludegi var 5%. Ráð-
gert er að sölu bréfanna verði lokið á
næstu tveimur árum. Samið hefur
verið við Kaupþing um sölu í fyrstu
lotu að upphæð 300 milljóna króna.
Sótt verður um skráningu bréf-
anna á Verðbréfaþingi Islands og
mun Kaupþing og viðskiptastofa
Sparisjóðs Hafnarfjarðar annast
viðskiptavakt á skuldabréfunum.
Viðskiptastofa Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar var sett á stofn á síðasta ári
en hún annast viðskipti með mark-
aðsverðbréf og erlendan gjaldeyri.
Viðskiptavaktin felur í sér að dag-
lega eru sett fram kauptilboð í
skuldabréfin, að lágmarki 20 m.kr. á
Verðbréfaþingi íslands og leitast er
um leið við að setja fram sölutilboð.
Petta er gert til að eigendur bréf-
anna hafi ávallt möguleika á því að
selja þau á eftirmarkaði. Sé tilboði
tekið skuldbinda viðskiptavakar sig
til að endurnýja tilboð sín á þinginu
innan tíu mínútna. Viðskiptavakar
skuldbinda sig til að setja fram til-
boð þar til viðskipti hafa náð 200
m.kr. yfir daginn.
Tilgangurinn með útgáfu bréf-
anna er, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu, að skapa Spari-
sjóðnum svigrúm og aukna mögu-
leika til útlána en þetta er stærsta
skuldabréfaútboð Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar til þessa.
Hvl
Morgunblaðið/Kristinn
NÚ STENDUR yfir sýning á Darex-vélum í nýjum sýningarsal GJ
Fossberg, Skúlagötu 63.
Nýr sýningarsalur
hjá GJ Fossberg
GJ FOSSBERG vélaverzlun ehf.
tók nýverið í notkun nýjan sýn-
ingarsal í Fossberghúsinu,
Skúlagötu 63. Bætist hann við
þá 300 fermetra verslun sem
Fossberg hefur rekið á Skúla-
götunni í rúma þijá áratugi og
er hann staðsettur í vesturenda
Fossberghússins á jarðhæð, seg-
ir í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu.
Þessi nýi salur er u.þ.b. 75
fermetrar að stærð, með mikilli
lofthæð og góðri sýningarað-
stöðu fyrir þær málmiðnaðar-
vélar og verkfæri sem fyrirtæk-
ið býður. Salurinn nýtist enn
fremur sem móttökusalur fyrir
viðskiptavini, en einnig hafa
verið haldin þar sölumannanám-
skeið fyrir starfsfólk og kynn-
ingar á nýjum vörum, bæði fyrir
starfsfólk og viðskiptavini.
Nýlega fékk Fossberg umboð
fyrir Darex-borbrýningarvélar
sem eru framleiddar í Banda-
rikjunum og fluttar inn beint
þaðan. Fossberg hefur þegar
sent starfsmann á námskeið hjá
Darex í Bandaríkjunum og von
er á fulltrúa Darex til landsins í
júníbyijun. Þessa dagana
stendur yfir sýning á Darex-
vélum í sýningarsal GJ Foss-
berg og eru áhugasamir boðnir
velkomnir.
Tæknival
www.taeknival.is
AKRANES - Tólvuþjónustan - 431 4311 • AKUREYRI - Tölvutæki - 462 6100 • HORNAFJÖRÐUR - Tölvuþjónusta Austurlands - 478 1111
HÚSAVlK - Tölvuþj. Húsavlk - 464 2169 • ISAFJÖRÐUR - Tölvuþj. Snerpa - 456 5470 • REYKJANESBÆR -Tölvuvæöing - 421 4040
SAUÐÁRKRÓKUR - Skagfiröingabúö - 45S 4537 • SELFOSS - Tölvu- og rafeindaþj. - 482 3184 • VESTMANNAEYJAR - Tölvun - 481 1122
kynslóð
Compaq EP tölvukynslóðin byggir frá grunni
á nýrri hönnun sem miðar sérstaklega að því
að auðvelda fyrirtækjum og einstaklingum að
aðlaga tölvukerfið að margvíslegri og flókinni
starfsemi.
COMPACL
-slcer öllum viö
Pentium II 266MHz með skjá
á verði frá
139.000,-
með vsk.
Öflugasta lausnin er alltaf sú einfaldasta.
Með það að markmiði býður Compaq fyrir-
tækjum upp á heildarlausn sem ekki aðeins
einfaldar uppsetningu og vinnslu heldur
tryggir hámarks áreiðanleika og rekstraröryggi.
Compaq - fremstir meðal jafningja.