Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 23
Námskeið
um ferða-
manna-
verslun
SAMTÖK verslunarinnar munu
standa fyrir nokkrum námskeiðum
á næstu vikum þar sem fjallað
verður um verslun og sölu til er-
lendra ferðamanna.
Stefán S. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, sagði í
samtali við Morgunblaðið að sams-
konar námskeið sem félagið stóð að
í fyrra, hafi mælst vel fyrir og því
hafi verið ákveðið að endurtaka
leikinn í ár.
Áhersla á kauphegðan kvenna
Að sögn Stefáns, verður að
þessu sinni lögð sérstök áhersla á
að kynna kauphegðun kvenna en
samkvæmt nýlegum rannsóknum í
Bandaríkjunum, eru 80-90%
kaupákvarðanna á neysluvörum
heimila teknar af konum. Meðal
annara atriða sem tekin verða fyrir
eru aðferðir og leiðir sem almennt
er talið að geti aukið viðskipti, frá-
gangur og uppgjör á endurgreiðslu
virðisaukaskatts til erlendra ferða-
manna og framkoma starfsfólks í
verslunum.
Pyrirlesarar verða bandaríski
rekstrarráðgjafinn John P. O’Neill,
Anna Margrét Pétursdóttir, mark-
aðsfulltrúi Global Refund á íslandi,
og Haukur Birgisson, markaðs-
stjóri hjá Ferðamálaráði íslands.
Fyrsta námskeiðið verður haldið
í dag og á morgun í Reykjavík en
stefnt er að því að næsta námskeið
fari fram á Akureyri viku síðar.
---------------------
Fundur með
ríkisstjóra,
Minnesota
AMERISK-íslenska verslunarráðið
efnir til hádegisverðarfundar um ný
tækifæri í menningar- og viðskipta-
tengslum Minnesota og íslands í
Víkingasal Hótels Loftleiða á morg-
un, fimmtudag, kl. 12 til 13.30.
Framsögumaður verður Arne
Carlsson, ríkisstjóri Minnesota.
Ríkisstjóri Minnesota er hér á
ferð ásamt ráðherrum úr stjórn
sinni og fylgdarliði í tilefni af opnun
nýrrar flugleiðar Flugleiða hf. milli
Keflavíkur og Minneapolis.
Fundurinn er öllum opinn. Fund-
argjald er 3.000 kr.
fienu
GARÐURINN
-klæðirþigvel
KRINGLUNNI OG LAUGAVEGI
www.mbl.is
Stora og Enso
mynda helzta papp-
írsrisa í Evrópu
Helsinki. Reuters.
NORRÆNU papírsrisarnir Stora í
Svíþjóð og Enso í Finnlandi ráðgera
samruna, sem mun leiða til mynd-
unar stærsta trjávörufyrirtækis
Evrópu.
Finnska ríkisstjómin, sem á 44%
í Enso, hefur samþykkt samrunann
og mun fara fram á samþykki
þingsins, að sögn Ole Norrback
Evrópumálaráðherra.
Viðskipti með bréf í Enso og
Stora voru stöðvuð, en gengi hluta-
bréfa í öðrum norrænum pappírs-
vinnslum hækkaði vegna líkinda á
meh-i samþjöppun í greininni.
Markaðsvirði Stora er um 5 millj-
arðar dala og Ensos um 3 milljarð-
ar.
Með samrunanum verður komið
á fót stærra pappírsfyrirtæki en
UPM-Kymmene í Finnlandi, sem
hefur verið stærst á sínu sviði í Evr-
ópu til þessa, og það verður annað
stærsta trj ávörufyrirtæki heims á
eftir Intemational Paper í Banda-
ríkjunum.
Norrænu fyrirtækin seldu fyrir
um 1,5 milljarða dollara á fyrsta
ársfjórðungi í ár. Sala þeirra allt ár-
ið í fyrra nam 11 milljörðum Banda-
ríkjadala.
Séifræðingar fógnuðu samningn-
um og kváðu hann marka tímamót í
viðleitni til að hrista upp í greininni.
Þeir áætla að starfsmögnun muni
nema um einum miiljarði finnski’a
marka á ári.
„Fækkun aðila á markaðnum
verður til góðs, því að þá verður
hægt að halda fjárfestingu og fram-
leiðslu í skefjum," sagði sérfræðing-
ur Aros Secu.
Að hans sögn leikur markaðnum
fovitni á að vita hve mikill hlutur
finnsku ríkisstjórnarinnar verður í
nýja fyrirtækinu og hvort Wallen-
berg, sem ræður Stora með tilstyrk
Investor félagsins, muni halda
áfram að gegna mikilvægu hlut-
verki.
Sérfræðingurinn kvaðst telja já-
kvætt að Wallenberg-fjölskyldan
héldi áfram rekstri fyrirtækisins,
þvi að hún yrði sterkur eigandi, sem
mundi einbeita sér að þvi að auka
verðmæti hlutabréfa í fyrirtækinu.
Sérfræðingar segja að markaður-
inn viiji ekki að Investor dragi sig í
hlé og að finnska ríldð gegni lykil-
hlutverki.
Investor hefur látið í ljós áhuga á
að auka verðmæti hlutabréfa í fyrir-
tækinu eða selja allan hlut sinn í því
að sögn sérfræðinganna.
HM-verð: 59.800 kr.
stgr.
Dantax FUTURA 4400
• 28" Black Line S myndlampi • Nicam Stereo
magnari • Allar aðgerðir á skjá • islenskt textavarp
• 2 Scart-tengi • 100 stöðva minni • CTI-litakerfi
• Tímarofi • Fjarstýring.
Stórglæsilegt
sérstaklega sk<
tæki með
ega skarpri mynd.
HM-verð: 70,800 kr.
stgr.
Og nú er engin ástæða til að
niissa af einum einasta leik.
Myndbandstæki frá Dantax á klassaverði.
SMITH &
NORLAND
M
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími: 520 3000
www.tv.is/sminor
Munið umboðsmenn okkar um land allt.
Dantax TLD 30
• 28" Black Matrix myndlampi • Nicam Stereo
magnari • Allar aðgerðir á skjá • (slenskt textavarp
• Scart-tengi • 100 stöðva minni • CTI-litakerfi
• Tímarofi • Fjarstýring
Ótrúlega góð kaup.
Misstu ekki af tækifærinu.
Loksins, loksins á íslandi:
100 riða þýsk sjónvarpstæki frá Metz sem skipa sér i flokk þeirra allra
bestu f heiminum.
110 ár samfellt hefur Metz verið valið besti framleiðandinn í könnun
þýska fagtímaritsins „markt intern" meðal fagverslana á þessu sviði í
Þýskalandi þar sem allir þekktustu sjónvarpstækjaframleiðendur heims
keppa um nafnbótina. Segir þetta ekki allt sem segja þarf?
Komdu til okkar og láttu sannfærast.
Við bjóðum nú þessi hágæða sjónvarpstæki á
sérstökum HM-afsláttarkjörum.
Dantax FUTURA 7300
• 28" Black Matrix myndlampi • 2 x 50 W Nicam Stereo
magnari • Dolby Surround Pro-Logic • Innbyggður
bassahátalari • Allar aðgerðir á skjá • íslenskt textavarp
• 16:9-breiðtjaldsstilling • Scart-tengi • 100stöðva minni
• CTI-litakerfi • Timarofi • Barnalæsing • Fjarstýring
Frábær ítölsk hönnun. Dúndurhljómur.
Dantax
HM-sparktilboð
á sjónvarpstækjum
frá danska fyrirtækinu
Dantax.