Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 30
AUK k826-41 sia.is
MORGUNBLAÐIÐ
30 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
LISTIR
KONUR ERRÓS
í NÝJU SAFNI
MYmiST
Listasafn Keykjavfk-
ur / Hafnarhús
MÁLVERK
ERRÓ
Opið 10-18. Aðgangseyrir er kr.
300. Sýningin stendur til 23. ágúst.
SALURINN sem myndir En--
ós eru nú sýndar í í Hafnarhúsinu
er aðeins brot af því rými sem
Listasafn Reykjavíkur mun hafa
til afnota í húsinu og má af því sjá
hvílík viðbót það verður við sýn-
ingarrýmið í höfuðborginni. Sýn-
ing þessi á verkum Errós er stór
og jafnframt fjölbreytt í sal sem
er á tveimur hæðum. Þegar allt
húsið verður komið í notkun verð-
ur loksins hægt að ganga að verk-
um helstu listamanna okkar á ein-
um stað. Nokkuð af rýminu mun
verða tekið sérstaklega undir sýn-
ingar á myndum úr gjöf Errós til
Reykjavíkur, en megnið af rým-
inu stendur til að nota til að hafa
til sýnis úrval af því mikla safni
listaverka sem borgin á en alltof
sjaldan hefur gefist tækifæri til að
sýna opinberlega í því takmark-
aða plássi sem verið hefur til
skiptanna.
Úppistaðan í sýningunni í
Hafnarhúsinu eru konumyndir
sem flestar eru byggðar á teikni-
myndapersónum, en þama er líka
að finna myndir frá ýmsum skeið-
um á ferli Errós svo í raun má
segja að hér sé á ferðinni yfirlits-
sýning. Ekki hefur verið gefin út
stór sýningarskrá fyrir þessa sýn-
ingu, heldur einungis lítill bæk-
lingur, en töluvert er nú til af út-
gefnu efni um myndir Errós á ís-
lensku svo það kemur ekki veru-
lega að sök. Þeir sem á annað
borð þekkja til verka Errós
þekkja líka stílinn á konumyndun-
um í Hafnarhúsinu. Hér byggir
Erró á persónum og myndmáli
teiknimyndasagna þar sem ofur-
hetjur og illmenni þjóta um í ei-
lífri baráttu. ímynd konunnar í
þessum sögum er nokkuð fast-
mótuð. Líkamsbygging þeirra er
sterkleg en ákaflega kvenleg um
leið, þær eru kynþokkafullar en
vægðarlausar valkyrjur. Erró
dregur fram styrkleika þeirra
með myndbyggingu þar sem
áherslan er á hraða og baráttu og
myndflöturinn iðar af lífi. Hins
vegar er ekki auðvelt að segja
hvaða gildi ímynd af þessu tagi
hefur í hversdagslegum veruleik-
anum... hvort við getum í ein-
hverjum skilningi sótt fyi-irmynd-
ir í þennan ímyndaða heim eða
EIN af konumyndum Errós á sýningunni í Ilafnarhúsinu.
hvort hann sýnir okkur fyrst og
fremst hve mikið ber á milli raun-
veruleika okkar og þess ímynd-
heims sem við erum gjörn á að
búa okkur til.
Þegar Erró notaði efni úr
teiknimyndablöðum snemma á átt-
unda áratugnum höfðu myndimar
oftast ótvítræða pólitíska skírskot-
un: Bandarískir teiknimyndaher-
menn þeysa þar fram með skot-
hríð og blóðsúthellingum. Strax
má þó sjá að þetta efni heillar
listamanninn og árið 1972 málar
hann „Teiknimyndaviðáttu“ þar
sem ægir saman ólíkum persónum
úr bandarískum teiknimyndaserí-
um. Smátt og smátt er síðan eins
og þetta myndmál verði fyrirferð-
armeira og sjálfstæðara í list hans
og blandast jafnvel saman við
flóknar tilvísanir í listasöguna.
Síðari myndirnar virðast vera
persónulegri en þær eldri - það er
að segja að framsetning þeirra er
flóknari og skilaboðin líka. Mynd-
irnar eru ekki lengur jafn afdrátt-
arlausar og áður þótt í þeim felist
engu minni umhugsun og gagn-
rýni. Sýningin í Hafnarhúsinu er
gott yfiriit yfir feril Errós, að
minnsta kosti yfir tæpa þrjá síð-
ustu áratugi, auk þess sem hér er
safnað saman í úrvinnslu á konu-
myndum hans. Sýningarrýmið er
enn ansi hrátt og ófrágengið en
verður eflaust glæsilegt þegar það
er orðið fullgert. Það er alltaf
gaman þegar myndir Errós eru
sýndar og tilhlökkunarefni að þær
verði bráðum komnar í varanlegt
sýningarrými.
Jón Proppé
Tónleikaferð til Tékklands
LUÐRASVEIT Tónlistarskóla
HafnarQarðar hélt í ferð til
Tékklands með viðkomu í Ung-
verjalandi laugardaginn 30.
maí. Markmið fararinnar
endurgjalda heimsókn tékkn-
eskrar lúðrasveitar er kom til
Hafnarfjarðar fyrir nokkrum
árum. Munu meðlimir lúðra-
sveitarinnar gista heima hjá
tékkneskum fjölskyldum í bæn-
um Oppava, nærri pólsku
landamærunum. í Oppava
verða haldnir þrennir tónleikar
á vegum fslendinga, en einnig
mun lúðrasveitin taka þátt í
dagskrá er heimamenn skipu-
leggja.
Starf hljómsveitarinnar hefur
verið með miklum blóma á Iiðn-
LÚÐRASVEIT Tónlistarskóla Hafnarfjarðar ásamt stjórnandanum
Stefáni Ómari Jakobssyni.
um vetri og hafa bömin safnað
fyrir ferðinni með aðstoð for-
eldrafélagsins. I Lúðrasveitinni
em um 25 börn. Hljómsveitar-
sljóri er Stefán Ómar Jakobs-
son.