Morgunblaðið - 03.06.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarssori
SÖNGUR þeirra áttmenninga í Voces Thules var allur hinn fágaðasti og virðulegasti, segir m.a. í dómnum.
HIRÐIR ÍSLANDS
SNÝR AFTUR
TONLIST
Kristskirkja
LISTAHÁTÍÐ
Aftansöngur úr Þorlákstíðnm. Söng-
hópurinn Voces Thules. Kristskirkju
í Landakoti, sunnudaginn
31. maí kl. 18.
SÁ merkisatburður gerðist í
kirkju Krists konungs á Landakots-
hæð, að í fyrsta skipti eftir siðbót
Marteins Lúthers var hafizt handa
við að flytja tíðasöngva þá sem
kenndir eru við heilagan Þorlák
biskup, „pastor Hyslandie, doctor
veritatis", eina dýrling íslands.
Flytjendur voru „kanúkaflokkur-
inn“ Voces Thules - þ.e. Sverrir
Guðjónsson, Eggert Pálsson, sr.
Kristján Valur Ingólfsson, Guðlaug-
ur Viktorsson, sr. Jakob Rolland,
Sigurður Halldórsson, Einar Jó-
hannesson og Eiríkur Hreinn
Helgason. Húsfyllir var og margt
fyrirmanna viðstatt að forsetahjón-
unum meðtöldum. Hófst söngva-
hringurinn hér með aftansöng
(Vesperae), en síðar um miðnætti
sama dags skyldi sunginn náttsöng-
ur (Matutinum) og seinni tíðirnar
lúkast næsta dag á viðeigandi tíma-
punktum.
Flutningur þessi átti sér langan
aðdraganda, því undirbúningur
hófst þegar í lok árs 1993 á átta
alda dánartíð dýrlingsins, en kemur
nú heim við jafnlangt afmæli beina-
upptöku hans sem átti sér stað að
kaþólskum sið 5 árum eftir andlát-
ið. Söngflokkurinn hefur lagt
ómælda vinnu í undirbúninginn,
enda kom fljótt í ljós, að nauðsyn-
legt væri að umrita nýnótun dr. Ró-
berts Abrahams Ottóssonar, er
samdi doktorsritgerð sína einmitt
um þetta verk, yfir á stöðluð
naumu-nótnatákn kaþólsku kirkj-
unnar. Þá hefur komið fram tilgáta
um, að 14. aldar handrit tíðanna sé
afrit af eldra en glötuðu handriti
með naumum. Fyi-rnefnt handrit
var meðal síðustu handrita frá
Árnasafni í Kaupmannahöfn sem
send voru heim nýlega, og því kom-
ið enn eitt tilefni til að endurvekja
þetta elzta og mesta kirkjutónverk
Islendinga - hvað svo sem líður
ætterni stefja, sem flest munu
fengin úr öðrum tíðagjörðum til
m.a. helgrar Sesselju, Nikuláss
(dýriings sjómanna), Maríu Magda-
lenu og Péturs píslai’votts.
Um verk þetta verður annað-
hvort að skrifa mjög stutt eða mjög
langt, enda form og uppbygging
margslungin og margt enn á huldu
sem bíður frekari rannsókna. Verð-
ur því hér að svo stöddu látið nægja
að segja, að söngur þeirra áttmenn-
inga var, að svo miklu leyti sem
heyrt varð án þess að hafa aðgang
að nótum, allur hinn fágaðasti og
virðulegasti, og vakti vissulega
áheyrendur til meðvitundar um að
hér kunni að leynast margt í hand-
ritasendingum úr landsuðri, sem og
víðar, sem eftir á að varpa ljósi á
hugsanlega mun blómlegra íslenzkt
kirkjutónlistarlíf fyrr á öldum en
nokkurn hefur órað fyrir hingað til.
Um það má e.t.v. deila, hvort
leggja hefði átt aðeins meiri tilfinn-
ingatúlkun út frá texta, en um slíkt
munu skiptar skoðanir, enda lítið
vitað um venjur í þeim efnum á ein-
stökum svæðum kaþólskrar trúar á
miðöldum, og allra sízt hér á landi.
Bagalegra var þó að ekki skyldi
§RjaA&W QuÚASJí
pallhúsin komin!
Við bjóðum raðgr. til allt að 36 mán.
Pallhús sf., Ármúla 34,
síml 553 7730 og 561 0450.
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 33
Utanborðsmótorar
©
1
I
■i
VELORKAHF.
Grandagarði 3, Reykjavík, LV
sími 562 1222 '
SJOÐUR
E I T T
gengið betur frá tónleikaskrá en
svo, að aðeins brot af latneska
söngtextanum birtist þar á prenti
og nánast allt óþýtt. Var það til
þess að áheyrendum var óhægara
en ella að átta sig á stórformi helg-
isöngsins.
Því er svo við að bæta, að til
stendur að festa þennan merkisá-
fanga á geisladisk í tilefni 1000 ára
kristni á Islandi, og verður sá flutn-
ingur væntanlega ekki verri en hér
gat að heyra.
Ríkarður Ö. Pálsson
Nafnávöxtun
síðastliðiö 1 ár
%
Nafnávöxtun
síðastliðna 6. mánuði
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • Sími 560 89 00 •
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is
Skúlptúrar úr málmi
í Kring’lunni
I KRINGLUNNI, við verslunina
Jens, stendur yfir sýning á skúlpt-
úrverkum úr málmi eftir Örn Þoi'-
steinsson.
Örn stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla Islands 1966-71 og
Listaháskólann í Stokkhólmi 1971.
Ennfremur hefur Örn farið í náms-
ferðir erlendis. Örn hefur stundað
kennslustörf. Hann hefur haldið
fjölda einkasýninga ásamt fjölmörg-
um samsýningum. Jafnframt hefur
hann hlotið margar viðurkenningar
fyrir verk sín.
í fréttatilkynningu segir að öll
formgerð Arnars Þorsteinssonar sé
lífræn og þrungin frjómagni,
stöðugri endurnýjun og sé um-
breytingum undirorpin. Stiklar
þrútna, klofna í tvennt eða þrennt,
fá á sig brodda eða fálmara, springa
út með hnúðum og hnöppum og
taka á endanum á sig myndir kynja-
jurta kynjadýra og hálfmennskra
fyrirbrigða.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
10-20, frá kl. 10-18 laugardaga og
kl. 13-17 sunnudaga.