Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Raðganga um Reykjavfk
ÖNNUR ferðin í raðgöngu Arkitektafélags íslands og byggirigalisdtadeildar Listasafns Reykjavíkur var farin á annan í hvítasunnu. Þá var gengið
um Skólavörðuholt og nágrenni með leiðsögn Péturs H. Ármannssonar arkitekts. Fyrsta ferðin var um miðborgina og önnur um Vesturbæinn.
Gróin hverfi, ný landamæri
og Reykjavík framtíðarinnar
ARKITEKTAFÉLAG íslands og
byggingarlistardeild á Kjarvalsstöð-
um standa að raðgöngu um Reykja-
víkurborg á Listahátíð. Þær fyi'stu
voru famar um hvítasunnuna og í
gær, en enn eru fjórar ferðir ófamar.
Raðgöngunni er ætlað að varpa
ljósi á helstu drætti í skipulags- og
húsagerðarsögu Reykjavíkur á 20.
öld, hugmyndafræði, vemleika og
framtíð íslenskrar byggðar. Pétur
H. Armannsson arkitekt er aðalleið-
sögumaðurinn en um undirbúning
sáu Anna Hjartardóttir, Pétur H.
Armannsson, Sigríður Sigþórsdóttir
og Steve Christer.
Ekkert þátttökugjald er í ferðun-
um.
Fjórði áfangi
Miðvikudaginn 3. júní, 1945-1960,
verður fjórði áfanginn farinn, Heim-
ar - Laugarás. Farið verður með
rútu frá Iðnó kl. 19.30 og gengið frá
Áskirkju við Vesturbrún kl. 20. Þá
verður fjallað um eftirstríðsárin í ís-
lenskri húsagerðar- og skipulags-
sögu og af hverju byggð tók að
myndast í þessum bæjarhluta strax
á stríðsáranum. Ferðin hefst við
vörðuna efst á Laugarásnum, austan
Áskirkju við Vesturbrún. Þaðan
verður gengið að húsi Gunnars
Gunnarssonar skálds við Dyngju-
veg, sem hann byggði eftir að hann
fluttist frá Skriðuklaustri. Fjallað
verður um helstu stíleinkenni í arki-
tektúr þessa tímabils eins og þau
birtast í byggðinni í Laugarásnum.
Því næst verður gengið eða ekið upp
í Sólheima og háhýsin þar skoðuð,
ásamt elstu raðhúsabyggðinni í Vog-
unum. Ferðinni lýkur við Vogaskóla.
Leiðsögumaður verður Pétur H. Ar-
mannsson arkitekt en gestur verður
Anna Hjartardóttir arkitekt.
Fimmti áfangi
Breiðholtshverfí, 1960-1985, er
fimmti áfanginn og hefst fímmtu-
daginn 4. júní með rútuferð frá Iðnó
kl. 19.30. Gengið verður frá Breið-
holtsskóla við Arnarbakka kl. 20.
Fjallað verður um breyttar áherslur
í skipulagi Reykjavíkur á áranum
eftir 1960. Greint frá nýrri hug-
myndafræði um aðgreiningu akandi
og gangandi umferðar og flokkað
gatnakei'fí, sem lögð var til grund-
vallar í skipulagi Neðra-Breiðholts.
Skoðuð verða fjölbýlishús Fram-
kvæmdanefndar byggingaráætlunar
og því næst haldið upp í Efra-Breið-
holt. Gengið verður um Vesturberg
að menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi. í lok göngunnar verður skoð-
uð íbúðaþyrping við Heiðnaberg.
Leiðsögumaður í ferðinni verður
Geirharður Þorsteinsson arkitekt,
annar tveggja höfunda að skipulagi
Efra-Breiðholts og gestur verður
Ásmundur Sturluson arkitekt.
Sjötti áfangi
I sjötta áfanga verður Borgar-
holtshvei’fí - nýjasti hluti Reykja-
víkur, 1985-1997, kannaður föstu-
daginn 5. júní. Farið verður með
rútu frá Iðnó kl. 19.30 og gengið frá
torgi við Rimaval kl. 20. Sjónum
verður beint að húsagerð og skipu-
lagshugmyndum samtímans eins og
þær birtast í nýjustu byggðahverf-
um Reykjavíkur í Borgarholti. Ferð-
in hefst hjá Rimavali við Langarima
í Rimahverfí, en þar mun skipulags-
höfundur hverfísins, Guðni Pálsson
arkitekt, gera grein fyrir þeim hug-
myndum sem skipulagið byggist á.
Gengið verður upp Langarima og
yfír í Engjahvei’fí, þar sem einnig
verður fjallað um hugmyndir í
skipulagi. Loks verður haldið að
nýjasta grunnskóla borgarinnar,
Engjaskóla, og hann skoðaður undir
leiðsögn arkitektanna Baldurs
Svavarssonar og Jóns Þórs Þor-
valdssonar. Leiðsögumaður verður
Ágústa Sveinbjörnsdóttir arkitekt,
Borgarskipulagi Reykjavíkur.
Sjöundi áfangi
Sjöundi og síðasti áfangi göngunn-
ar nefnist Reykjavík framtíðarinnar
og hefst með rútuferð frá Iðnó laug-
ardaginn 6. júní. kl. 14. Gengið verð-
ur frá Skólavörðuholti kl. 14.15. Þá
munu ungir arkitektar bjóða upp á
skoðunarferð um miðbæinn í
Reykjavík framtíðarinnar eins og
hann gæti orðið ef þein'a hugmyndir
fengju að ráða. Hópurinn fékk frjáls-
ar hendur um tilhögun ferðarinnar.
Ferðin verður eins konar „þversnið"
í gegnum miðbæinn. Gengið verður
frá Skólavörðuholti niður Frakkastíg
að Skúlagötu. Á leiðinni verður víða
staðnæmst, áhugaverðar byggingar
og staðir skoðaðir og möguleikar
borgarinnar til framtíðar kannaðir.
Eftir ferðina er þátttakendum
boðið niður í Iðnó á óformlegan
spjallfund yfir veitingum. Leiðsögu-
menn verða arkitektamir Anna
Hjartardóttir, Ásmundur Sturluson,
Gunnar Páll Kristinsson, Margrét
Leifsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir og
Illugi Eysteinsson myndlistarmaður.
Úthlutun
styrkja til
almennings-
bókasafna
Menntamálaráðherra hefur
úthlutað styrkjum af fé því
sem veitt er í fjárlögum 1998
vegna upplýsingatækni í al-
menningsbókasöfnum. Þrjá-
tíu umsóknir bárust um rúm-
ar 8 milljónir króna.
Að fengnum tillögum ráð-
gjafarnefndar um almenn-
ingsbókasöfn hlutu eftirtalin
söfn styrki sem hér segir:
Bæjar- og héraðsbóka-
safnið á Akranesi 250.000 kr.
til kaupa á tölvubúnaði,
nauðsynlegum búnaði til að
tengjast Neti og námskeiðs
fyrir starfsfólk. Amtsbóka-
safnið í Stykkishólmi 320.000
kr. til kaupa á tölvubúnaði,
nauðsynlegum búnaði til að
tengjast Neti og námskeiðs
fyrir starfsfólk. Bókasafn
Garðabæjar 250.000 kr. til
kaupa á tölvubúnaði. Bóka-
og byggðasafn Norður-Þing-
eyinga 200.000 kr. til kaupa á
tölvubúnaði og nauðsynleg-
um búnaði til að tengjast
Netinu. Lestrarfélag Gnúp-
verja 180.000 kr. til kaupa á
tölvubúnaði. Bókasafn
Hrunamannahrepps 300.000
kr. til kaupa á tölvubúnaði.
Bókasafn Höfðahrepps
300.000 kr. til kaupa á tölvu-
búnaði. Héraðsbókasafn
Austur-Skaftfellinga 200.000
kr. til kaupa á tölvubúnaði.
Hluta úthlutunar frestað
Styrkveiting er bundin
skilyrði um að bókasafn sé
opið almenningi a.m.k. 10
klukkustundir á viku. Að til-
lögu ráðgjafarnefndarinnar
var ákveðið að fresta úthlut-
un á hluta af styi’kfjárveit-
ingunni 1998 meðan beðið er
niðurstöðu af starfi nefndar
sem falið hefur verið að fjalla
um val á bókasafnskerfi sem
henti fyrir öll bókasöfn á
landinu. Er þess vænst að
tillögur hennar liggi fyrir á
fyrri hluta næsta árs.
Vortónleikar Tónlist-
arskóla Seyðisfjarðar
Sameinaður kór heimamanna
með hljómsveitinni
söng
Blönduósi. Morgunblaðið.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
hélt tónleika í íþróttahúsinu á
Blönduósi daginn fyrir kjördag. Á
efnsiskrá hljómsveitarinnar var sin-
fonía nr 7 í d-moll eftir Antonin
Dvorak. Einnig flutti sinfónían
nokkur þekkt lög með aðstoð sam-
eiuaðra kóra í A-Húnavatnssýslu.
Fjölmenni var á tónleikunum og
var gerður góður rómur að flutn-
ingi sinfóniuhljómsveitar og heima-
manna. Kórinn sem söng með Sin-
fóníuhljómsveit Islands var mynd-
aður úr fjölmörgum kórum sýsl-
unnar og höfðu margir gestir á
orði hvað þróttur kórsins væri mik-
ill þegar þeir koma fram sameinað-
ir og syngju saman einni röddu.
Kórinn söng lögin Hver á sér fegra
föðurland, Ó, blessuð vertu sumar-
sól og ísland ögrum skorið með
hljómsveitinni. Auk Sinfoníu Dvor-
áks flutti Sinfóníuhljómsveitin Vals
úr Masquerade og Dans trúðanna.
Tvö aukalög flutti hljómsveitin
vegna fjölda áskorana sem lýsti sér
í taktföstu lófataki. Illjómsveitar-
stjóri Sinfómuhljómsveitar íslands
á tónleikunum á Blönduósi var
Bernharður Wilkinson.
Seyðisfirði. Morgunblaðið.
VORTÓNLEIKAR Tónlistarskóla
Seyðisfjarðar vora haldnir í Seyðis-
fjarðarkirkju í liðinni viku. Tónleik-
ar skólans era jafnan einn af há-
punktum menningar- og skemmt-
analífs Seyðfirðinga á ári hverju.
Áheyrendur era ávallt fjölmennir og
þeir sem koma fram eru fólk á öllum
aldri. Að jafnaði er gert ráð fýrir því
að hver nemandi sé með atriði á tón-
leikum skólans.
Nemendur í vetur vora rúmlega
sextíu talsins. Yngsti nemandinn var
4ra ára, en sá elsti á fímmtugsaldri.
Á efnisskránni vora verk sem
spanna allt frá gömlu meisturunum
til nýjustu verka þungarokksveitar-
innar Metallica. Sá nemandi sem
lengst er kominn í námi við skólann
er Sigurður Jónsson, verkfræðing-
ur, sem iauk nú 6. stigs prófi í orgel-
leik. Tvær lúðrasveitir eru starfandi
við skólann. Kennarar era þrír, en
trálega bætist einn við í haust.
Skólastjóri er Einar Bragi Braga-
son.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
TÓNLEIKAR Tónlistarskóla Seyðisfjarðar eru einn af hápunktum
menningariífsins.
Sinfónían á Blönduósi
Morgunblaðið/Jon Sigurðsson
SAMEINAÐIR kórar úr A-Húnavatnssýslu sungu af þrótti með Sinfóníuhljómsveit fslands.