Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JIJNÍ 1998 37
LISTIR
Taugar til
upprunans
Sjónmenntavettvangur
íslendingar og menn af íslenzku bergi
brotnir, hafa komið víðar við í sjónlistum
í útlandinu en margan grunar; verið virkir
í framníngu listpólitíkur og listasafna í
Ameríku, auk þess að ná að vera nafn-
kenndir iðkendur á ýmsum sviðum mynd-
lista og listíða austan hafs og vestan.
Athygli Braga Ásgeirssonar var fyrir
skömmu vakin á verðlaunuðum sjálfmennt-
uðum tréskurðarmeistara í Kaliforníu,
Tryggva Þorleifí Larum, og víkur hér
nokkrum orðum að ætt hans og fremd.
í KALIFORNÍU, nánar tiltekið
Loleta fyrir norðan San Fransiskó
og í næsta nágrenni Eureka, býr
hagleikur sem sker drekahöfuð og
sitthvað fleira í tré til skreyti- og
hagnýtisgildis í stíl brons og járn-
aldar, einkum víkingatímabilsins.
Væri vart til frásagnar nema til
kæmi sérkennileg ættarblanda,
sem kemur okkur við. Faðir hans
er amerískur af norskum og skosk-
um ættum, móðirin hins vegar alís-
lenzk, Lára Gunnarsdóttir Larum,
dóttir Gunnars Salómonssonar, um
sína daga annálaður og margfræg-
ur kraftajötunn í stíl fornkappa og
berserkja, eins og margur veit.
Nafn mannsins er jafn norrænt
og athafnir hans og má til upphefð-
ar rekja til Tryggva Olafssonar (d.
968), undirkonungs Hákonar Aðal-
steinsfóstra í Vík, sonarsonar Har-
alds hárfagra. Tryggvi sá var faðir
hins nafnkennda konungs Ólafs
Tryggvasonar, sem féll í orrust-
unni við Svoldur árið 1000.
Athygli mín á þessum manni var
vakin fyrir nokkru, en hann hefur
orðið fréttamatur ýmissa blaða
vestur í Kaliforníu fyrir verðlaun-
aðar íðir sínar, og nokkrar úrklipp-
ur borið fyrir augu mín. Fullt nafn
hans er Tryggvi Porleifur Larum,
fæddur á Islandi 1957, og svo við
jarðtengjum skrifin og færum nær
okkur í tíma og rúmi, kemur for-
nafnið frá frænda í móðurætt en
millinafnið norskum föðurafa.
Hann fluttist tveggja ára að aldri
með foreldrum sínum til Banda-
ríkjanna og hefur búið þar allar
götur síðan utan örfárra ára er
hann fyrir áeggjan föður síns
minntist við ættmenni sín í gamla
landinu og söguslóðir Islendinga-
sagnanna sem hafði verið haldið að
honum í æsku; vann þá fyrir sér
með sjómennsku á íslenzkum tog-
ara við Grænlandsstrendur. Ahugi
Tryggva á list Rómverja, Galla,
kelta og germana vaknaði á ferða-
lögum með félögum sínum um Evr-
ópu, tímaskeiðið sem hann gegndi
OSEBERGSTRJÓNA í útgáfu
Tryggva Þorleifs.
herþjónustu á Norður-Ítalíu, fyrir
undarlega skikkan örlaganna á
sömu slóðum og faðir hans í lok
seinni heimstyrjaldarinnar. Kom-
inn aftur til Bandaríkjanna hófust
heimarannsóknir á lífi og uppruna
víkinganna og listíðum þeirra um
tveggja áratuga skeið, og er til frá-
sagnar að meðan hann var á togar-
anum við Grænland var hann á
landlegum og í fríum hér í borg tíð-
ur gestur á Listasafni Einars Jóns-
sonar, þar sem hann drakk í sig
túlkun myndhöggvarans á landa-
fundum víkinganna. Þá gerði hann
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir
TRYGGVI Þorleifur Lanim á vinnustofu sinni í Loleta.
SKÁPHURÐ með víkingaskreyti.
sér ferð til Noregs
fyrir fjórum árum og
skoðaði meðal ann-
ars Víkingasafnið í
Bygdöy við Ósló, og
hlutina frá Oseberg,
sem hann varð altek-
inn af.
Tryggvi Þorleifur
er sjálflærður tré-
skurðarmeistari,
þótt ekki verði annað
séð á vinnubrögðum
hans en að þar fari
þjálfuð hönd um egg-
jám, og heldur sig að
auk við hið sígilda
form víkingatíma-
bilsins. Eftirgerðir
með tilfærslum og
persónulegum blæ
mætti nefna þetta.
Annað og meira en
margslunginn og
fagur skurður, eins
konar útrétt hönd til
fortíðar, uppranans,
víkinganna og forfeðranna hugum-
stóru er höfðu að kjörorði; út vil
ek. Það er raunar stutt í nútímalist
í sumum gripanna sem byggjast á
frjálsu skreyti frístandandi fléttu-
vafninga ásamt lágmyndum. Svip-
að gerðist í módemismanum, sem
leitaði aftur í fortíðina hvoru-
tveggja lengst í austri og suðri. At-
hygli vekur látleysið og tilgerðar-
leysið sem einkennir útfærslu þess
sem gerandinn leggur hönd að.
Þótt Tryggvi sé hálfur Islend-
ingur og einungis einn fjórði Norð-
maður, er hann formaður eins
geira félagsskapar Norðmanna í
Eureka-sýslu og ein driffjöðurin í
árlegum hátíðahöldum Skandinava
í San Fransiskó. Norðmenn hafa
sýnt iðju hans áhuga og era þessar
upplýsingar í og með komnar frá
vikutíðindum Norðmanna gefnum
út í Seattle og forsíðu menningar-
kálfs dagblaðsins Times Standard,
væntanlega gefið út í Eureka.
Skondið og þó varla tilviljun, að í
gegnum sonarson Gunnars
Salómonssonar, sem einmitt var
svo uppnuminn af forfeðram sín-
um, líkt og aðrir bræður, fleiri
rammir samtíðarmenn og ofurhug-
ar, hafa norrænir víkingar numið
land á vesturströnd Ameríku, þótt í
óeiginlegri merkingu sé. A ókenni-
legum slóðum þar sem sér yfir
endalausar víðáttur Kyrrahafsins,
yggla ógnvekjandi, opinmynntar
drekatrjónur ásjónur sínar mót
hafi, himintunglum og gróandi.
Hafa hér skipt um hlutverk er þær
fyrrum vora goðlegir vegvísar til
allra átta, framandi landa langt í
suðri og austri og fjarst í norðri og
vestri. Segir okkur, að minningin
um þá er niðjunum enn í minni, í
blóðið borin og sinnið ofin, hvar
sem þeir eru búsettir á jarðkringl-
unni, að ekki fyrnist fyrir hinar
fornu íðir þótt ofurtækni og hrá
hugmyndafræði hafi ýtt þeim til
hliðar um stund. Steinhöggi og eld-
smíði vex einnig fiskur um hrygg,
þótt torfundnir séu þeir listaskólar
sem hafa þau safaríku og árþús-
undagömlu fóg á námskrá sinni er
svo er komið.
Hið náttúrulega og uppranalega
er þannig enn við lýði þrátt fyrir
allt, og ber að nálgast þá frjósprota
lífsins með opnum huga, ljósi og
virkt, líkt og öllu sem sækir vaxtar-
mögn djúpt í ómengaða gróður-
mold.
Bragi Ásgeirsson.
|NV« Meö álstelli kr. 56.850,-
Graco
cHj-ír.
Hvergi
meíra úrval!
úLmjX*. gIXmza,
BARNAVÖTUVERSLUN GLÆSIBÆ
SÍMI 553 3366
HEILSUSETUR
ÞÓRGUNNU
Bak- Punkta- og slökunarnudd
HELGARNÁMSKEIÐ 6.-7. JÚNÍ
Vinsælt og lærdómsríkt námskeið.
Andlits-, punkta- og sjálfsnudd
Fegrandi, orkugefandi og goð hjálp við
ýmsum einkennum og verkjum.
2ja kvölda námskeiö 4. og 11. júní
Svæðameðferðarnám
Viðurkennt af Svæðameðferðarfélaginu.
Byrjar 3. sept. 98.
Innritun nemenda hafin. Vel
menntaður og viðurkenndur kennari.
Uppl. og innritun í síma 896 9653 og
562 4745 á milli 12 og 14 virka daga.
AUGLÝSING ÞESSIER EINGÖNGU BIRTIUPPLÝSINGASKYNI
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
ISLANDSBANKA HF.
Verðbréfasjóðir VÍB hf.
á Verðbréfaþing íslands
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að taka
hlutdeildarskírteini eftirfarandi sjóðsdeilda verðbréfasjóða VÍB hf.
á skrá þingsins.
Sjóður 2, ríkisskuldabréf - tekjusjóður
Sjóður 5, ríkisskuldabréf
Sjóður 6, innlend hlutabréf
Sjóður 7, húsbréf
Sjóður 8, löng spariskírteini
Sjóður 9, skammtíma skuldabréf
Hlutdeildarskírteinin verða skráð þann 8. júní næstkomandi. Skráningarlýsingu
og önnur gögn er hægt að nálgast hjá umsjónaraðila skráningarinnar,
viðskiptastofu íslandsbanka hf., Kirkjusandi, 155 Reykjavík.
ISLANDSBANKI