Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 39
„Popperu“-
konung-
urinn
Pavarotti
/
Ahugamenn um klassíska tónlist hrylla
sig en almenningur hyllir hann sem hetju.
Luciano Pavarotti lýkur 9. júní tónleikaröð
þar sem popptónlist og ópera renna sam-
an í eitt. Peter Bennett ræddi við meistar-
ann um „popperuna“ í Modena.
PAVAROTTI og kærastan og framkværadasljórinn Nicoletta.
Reuters
Brátt rennur upp sá árstími
í baðstrandarbænum Pes-
aro á Ítalíu að krökkt
verður af ferðamönnum og
skammt frá er Rimini. Það er röð
hjá íssalanum. Sjóþoturnar tæta í
sig öldumar. Og ef maður leggur
virkilega vel við hlustir má heyra
barnsgrát og brak í talstöðvum.
En það er ekki auðhlaupið að því
að greina öll hljóðin sem rjúfa
kyrrðina, því við erum nokkur
hundruð metra yíír gauragangin-
um í ferðamönnunum. Við endann
á huggulegri aðalgötu bæjarins er
hlið sem myndavélai- hafa vökult
auga með. Brattur og mjór stígur
liggur upp fjallshlíð og við enda
hans er Villa Giulia, rúmlega 100
ára gamall bóndabær sem mikið
hefur verið lagt í. Það er talað um
bílastæði fullt af eðalvögnum,
keppnissundlaug, 300 fermetra
íbúð með Bang & Olufsen-kerfí í
hverju herbergi og stórkostlegu út-
sýni yfír Pesaro og alla túristana.
Heimstenórinn Luciano Pa-
varotti tekur á móti fréttaritara
Morgunblaðsins úti á stórri verönd
sólríkt síðdegi. En viðtalinu er
frestað um klukkustund. Móðir
meistarans er í heimsókn og hún
fær allan þann tíma sem ítalskri
móður sæmir. Því næst lítur bæj-
arstjórinn inn, móður og másandi,
og þarf að ræða væntanlega hátíð
til heiðurs öðru stórmenni ítalskrar
óperu, tónskáldinu Gioacchino
Rossini (sem samdi m.a. Rakarann
í Sevilla), sem var fæddur í Pesaro.
Svo er loksins röðin komin að okk-
Erfið fæðing
„Eg hlakka til þessa sumars eins
og lítið barn. Fyrst eru það
popptónleikarnir í fæðingarbæ
mínum, Modena, og þvínæst stóri
konsertinn í París með vinum mín-
um Placido Domingo og José Car-
reras. Tilhlökkunin er öllu meiri
vegna þess að báðir tónleikarnir
hafa verið erfiðir í fæðingu," segir
meistarinn brosandi.
Hann heldur áfram. „Þegar ég
hélt fyrstu „Pavarotti og vinir
hans“ tónleikana 1992 með stærstu
poppstjörnum samtímans komu
margir í klassíska heiminum í bak-
ið á mér. Þeim fannst ég hafa farið
yfir strikið milli hámenningar og
popptónlistar. En við alla þessa
gagm-ýnendur vil ég segja, að ég
held að þetta sé rétta leiðin til að
koma klassískri tónlist til stærri
áhorfendahóps. Eg geri einskonar
samning við tónlistarunnendur,
sem ekki þekkja óperuna; ég syng
dálítið af ykkar tónlist ef þið hlust-
ið á dálítið af minni.“
Pavarotti finnst þar að auki
gaman að syngja popptónlist.
„Tenór syngur yfirleitt söngva sem
voru skrifaðir fyrir mörgum árum,
en sannleikurinn er sá, að margar
af melódíum nútímans eru eins og
þær hafi verið skrifaðar fyrir ten-
órrödd. Mér hefur alltaf þótt mest
um Caruso, en þegar ég er í baði
syng ég alltaf popplög, ég raula
aldrei aríur, alclrei," undirstrikar
hann.
Brosandi og
ástfanginn
Pavarotti er 63 ára. Hann skildi
við konu sína, Adu, fyrir tveim ár-
um. Þau höfðu verið gift í 35 ár.
Svo hóf hann búskap með núver-
andi kærustu og framkvæmda-
stjóra undanfarin fimm ár,
Micolettu Mantovani. Hún er 29
ára.
„Nicoletta hefur átt þátt í því að
opna augu mín fyrir tónlist nútím-
ans og það er hún sem hefur stutt
mig og hvatt til að breikka sviðið út
fyrir óperuna. Nicoletta sér um
konsertana í Modena og það gerir
hún ótrúlega vel,“ segir Pavarotti
og sýpur á stóra glasi af Pellegi’ini.
„Þegar ég hitti Nicolettu fyrst
óraði mig ekki fyrir því að hún ætti
eftir að hafa svona mikil áhrif á
bæði einkalíf mitt og feril. Sam-
starf okkar hefur alltaf virkað full-
komlega og í dag stýrir hún ferli
mínum algerlega og ég ber mikla
virðingu fyrir þeim árangri sem
hún hefur náð hingað til. Nicoletta
hefur líka breytt einkalífi mínu. Ég
er mjög hamingjusamur núna.
Hamingjusamur og innilega ást-
fanginn," segir Pavarotti og brosir
svo breitt að ferðamennirnir niðri á
ströndinni sjá það.
Þrír tenórar
halda áfram
„Fyrstu tónleikar Þriggja tenóra
í Carcalla-rústunum í Róm 1990
vora skipulagðir i skyndilegri gleði
yfir því að José Carreras slapp
naumlega úr klóm dauðans. Hann
hafði verið veikur í tvö ár og staðið
við dauðans dyr. Það var meiningin
að slíkir tónleikar yrðu aðeins
haldnir einu sinni vegna þess að við
vora allir þrír fullir efasemda um
að við gætum nokkurntíma náð
sömu innilegheitum aftur. Þess
vegna sagði ég blátt nei við því að
gera aðra tilraun 1994.
En mér var talið hughvarf og
tónleikamir í Los Angeles, í
tengslum við HM í knattspyrnu,
tókust sem kunnugt er mjög vel.
Við héldum í heimsreisu 1996-1997
og söfnuðum meðal annars pening-
um til endurbyggingar 18. aldar
leikhússins La Fenice í Feneyjum
og Gran Teatre del Liceu í
Barcelona.
Ég hlakka óumræðilega til tón-
leikanna í París 20. júlí í París. Við
höfum æft mikið og það hefur verið
gaman að vinna aftur með Dom-
ingo og Carreras. Við höfum alltaf
verið góðir vinir og verðum það
áreiðanlega það sem við eigum ólif-
að og ég held að þessir tónleikar
verði ekki þeir síðustu. En við sjá-
um til.“
Með Jacko
á næstunni
Það hlaut að koma að því fyrr
eða síðar að „Konungur háa C-
sins“ eins og unnendur sígildrar
tónlistar kalla Pavarotti, og „Kon-
ungur poppsins," eins og Michael
Jackson er nefndur, myndu hittast
og skiptast á nafnspjöldum.
„Ég hitti Michael Jackson á há-
tíð og bauð honum á konsert Ten-
óranna þriggja í Modena í fyrra og
fór á tónleika hans í Mflanó, og síð-
an höfum við haldið sambandi. Mér
fmnst hann vera einstaklega hæfi-
leikaríkur einstaklingur og hann
virðist vex-a mjög tilfinningaríkur
maður. Við eigum áhuga á með-
bræðrum okkar og dýrum sameig-
inlegan.
Okkar bíður sameiginlegt verk-
efni við plötu, og þótt ég geti ekki
sagt neitt um það í smáatriðum
núna þá er alveg áreiðanlegt að við
munum vinna eitthvað saman.
Vandinn er að finna tíma þegar við
erum báðir lausir og getum hist,“
segir Pavarotti og er ennþá argur
yfir því að uppáhalds knattspyrnu-
liðið hans, Juventus, skyldi tapa
úrslitaleiknum í Evi’ópukeppni
meistaraliða.
„Nú vona ég að ítalska landsliðið
nái árangri,“ segir hann og gjóar
augunum upp til æðri máttarvalda.
Pavarotti var duglegur sóknar-'
maður í knattspyrnuliði Lepano á
sínum yngri og grennri árum. Nú
einbeitir hann sér að popperanni
og hestaíþróttum. Hann heldur ár-
lega hestamót fyrir bestu knapana
í stón’i höll sinni fyrir utan
Modena.
Brátt lokið
„Tenórar fara venjulega á eftir-
laun við 65 ára aldurinn. Ég er
reyndar ekki alveg tilbúinn til þess
að samþykkja að hætta eftir tvö ár,
en með hverjum deginum sem líður
rennur það betur og betur upp fyr-
ir mér. Ég vildi gjarnan hætta þá
hæst ber og nota tímann til að
sinna öðrum áhugamálum mínum.
Ég mála og vildi gjarnan eyða
meiri tíma með hestunum mínum
og fjölskyldunni. Kannski vill
Nicoletta eignast eitt eða tvö
börn,“ segir Pavarotti og glottir
við. Svo spyi’ hann hvernig gangi
hjá Björk. „Einstök rödd. Ég vona
að við getum komið fram saman
einn góðan veðurdag."
Pavarotti hefur stutt hátt í 100
efnilega söngvara og eru flestir nú
á sviðum stærstu óperahúsa í
heiminum. Tónlistarnemar í Most-
ar í Herzegovinu eru einnig þakk-
látir, því fyrir tveim árum opnaði
Pavarotti tónlistarmiðstöð í bæn-
um.
Velgengni ungra söngvaraefna
er tekin fram yfir viðtöl og því
mega þýskir sjónvarpsmenn bíða á
meðan Pavarotti sinnir efnilegum
söngvara, sem er þegar sestur við
flygilinn í stofunni. Það era tveir
tímar þangað til Pavarotti verður
aftur reiðubúinn til að ræða um
„popperu“.
A tónleikunuiji í Modena 9. júní
kemur Pavarotti fram ásamt Jon
Bon Jovi, Natalie Cole, Vanessu
Williams, The Corrs, Stevie Wond-
er, Pino Daniele, Trisha Yearwood,
Celine Dion, Zucchero, Florent
Pagny, Eros Ramazotti og The
Spice Girls. Agóði af tónleikunum
rennur óskertur til byggingar
barnaheimilis skammt frá Mon-
roviu í Afríkuríkinu Líberíu, þar
sem borgarastríð geisar. Heimilið
á að hýsa munaðarlaus börn og
börn sem hafa beðið skaða af völd-
um stríðsins.
Dagana 11.-14. júní er leyfður
aðgangur að heimili Pavarottis í
Modena, en þá verður haldin mikil
hestasýning, Pavarotti Inter-
national 1998. Sýningin er þekkt
fyrir reiðkeppnina, sem haldin er,
og telst með þeim mikilvægustu í
heimi reiðlistarinnar.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Verð 2.495
Litur: Hvítur m/ljósbláu
Stærðir: 24-30
Verð 2.495
Verð 3.495
Litur: Rauttlakk, hvítt og svart lakk Litur: Svart/silfur, hvítt/ljós
Stærðir: 25—32 blátt. Stærðir 29—35
5% staðgreiðsluafsláttur - Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Sími 551 8519
T
oppskórinn
Veltusundi v/lngólfstorg,
sími 552 1212
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN
Sími 568 9212