Morgunblaðið - 03.06.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 45
FIDE HM í Las
Vegas í desember
SKAK
Las Vegas, Banda-
ríkjunuin,
d e s e m b e r 1 íl 9 8
MEISTARAMÓT
ALÞJÓÐASKÁK-
SAMBANDSINS; FIDE
Forseti FIDE, Kirsan Ilumsjínov
og framkvæmdastjórn sambands-
ins hafa tilkynnt að heimsmeist-
arakeppni FIDE verði haldin ár-
lega héðan í frá.
FYRSTA heimsmeistarakeppnin
með útsláttar-
fyrirkomulagi
var haldin í
Hollandi og
Sviss í desem-
ber og janúar
og lauk með
heimsmeist-
araeinvígi An-
ands og Kar-
povs á Olymp-
íusafninu í
Lausanne.
Verðlaunin voru fimm milljónir
Bandaríkjadala og þótti það mik-
ið afrek af hálfu Ilumsjínovs að
koma keppninni á laggirnar.
Nú ætlar hann að endurtaka
þetta strax á þessu ári í spila-
borginni miklu, Las Vegas í
Nevada í Bandaríkjunum. Verð-
launin verða lægri en síðast, eða
þrjár milljónir dala. Næsta ár á
hins vegar að bæta um betur, því
þá er stefnt að því að verðlaunin
verði sex milljónir!
FIDE var mjög gagnrýnt fyrir
að hleypa Kai-pov beint í heims-
meistaraeinvígið í janúar sem
heimsmeistara, á meðan Anand
þurfti að slá út sjö öfluga stór-
meistara og orðinn mjög þreyttur
þegar í úrslitin kom. En þess er
að vænta að í Las Vegas byrji all-
ir jafnt í fyrstu umferð, þ. á m.
sjálfur heimsmeistarinn!
Þá verður þeim Kaspai'ov og
Kramnik boðið til leiks, þrátt fyr-
ir að þeir hafi ekki verið með í
fyrstu keppninni.
Svæðamót Norðurlanda
Þegar fréttir bárust frá FIDE
um nýja heimsmeistarakeppni
strax á þessu ári voru góð ráð dýr
hjá skáksamböndum víða um
heim, því halda þarf undankeppn-
ir snarlega til að ákvarða hverjir
komist til Las Vegas.
Hér á Norðurlöndum er ætlun-
in að danska skáksambandið
haldi svæðamótið og á það að
hefjast 29. ágúst. Það verður með
útsláttarfyrirkomulagi eins og
heimsmeistarakeppnin sjálf. Þar
verður keppt um þrjú sæti og
eiga Islendingar fimm keppendur
af 24.
Shirov enn með forystu
Tvær skákir voru tefldar um
helgina í einvígi Kramniks og
Shirovs um áskorunarréttinn á
Kasparov í haust. Þeim lauk báð-
um með jafntefli og er staðan því
3lÁ-2Vz Shirov í vil. Alls verða
tefldar tíu skákir og verða síðustu
fjórar líklega afar spennandi.
Jón Viktor skákskólameistari
Jón Viktor Gunnarsson sigi'aði
á meistaramóti Skákskóla Is-
lands sem fram fór um hvíta-
sunnuhelgina. Jón Viktor hlaut
sex vinninga af sjö mögulegum,
gerði jafntefli við þá Braga
Þorfínnsson og Arnar Gunnars-
son, en vann aðra andstæðinga
sína. Fyrir síðustu umferð voru
þeir Jón Viktor, Bragi og Einar
Hjalti Jensson jafnir og efstir. I
síðustu umferð vann Jón Viktor
snaggaralega skák af Einari
Hjalta, en Bragi tapaði fyrir
Bergsteini Einarssyni.
Fyrir sigurinn fær Jón Viktor
ferð á skákmót erlendis í sumar
og ekki er að efa að það kemur
sér vel fyrir þennan unga og efni-
lega skákmeistara.
Úrslit mótsins:
1. Jón Viktor Gunnarsson 6 v.
2.-7. Bragi Þorfinnsson, Davíð Kjart-
ansson, Einar Hjalti Jensson, Berg-
steinn Einarsson, Stefán Kristjánsson
og Dagur Arngrímsson 5 v.
8.-9. Arnar Gunnarsson og Matthías
Kormáksson 4V4 v.
10.-17. Hjalti Rúnar Ómarsson, Guðni
Stefán Pétursson, Davíð Guðnason,
Guðmundur Kjartansson, Helgi Egils-
son, Birkrir Orn Hreinsson, Hjörtur
Þór Daðason, og Emil Petersen 4 v.
18.-19. Víðir Petersen og Sveinn Þór
Wilhelmsson 3Vz v.
o.s.frv.
Keppendur voru 36.
Við skulum líta á líflega skák
frá mótinu:
Hvítt: Bragi Þorfinnsson
Svart: Davíð Kjartansson
Slavnesk vörn
1. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rc3 - Rf6 4.
Rf3 - e6 5. e3 - Rbd7 6. Bd3 -
dxc4 7. Bxc4 - b5 8. Bd3 - a6 9.
a3 - c5 10. 0-0 - Dc7 11. Hel -
Bb7 12. e4 - h6?!
Þetta hefur líklega átt að vera
varúðarráðstöfun, en felur í raun
í sér veikingu á kóngsvæng
svarts og gerir honum erfitt að
hróka í framhaldinu.
13. De2 - Hc8 14. h3 - Be7 15.
Bd2 - cxd4 16. Rxd4 - Rc5
Betra var 16. - Re5 og reyna að
ná uppskiptum á öðrum hvorum
biskupi hvíts.
17. Bc2 - Rfd7 18. Hacl - Rb6 19.
b4 - Rcd7 20. Bb3 - Db8 21. Dg4 -
Rc4
Nú vonast svartur eftir 22.
Dxg7?? - Bf6 og hvítur tapar
manni, en hvítur lumar á afar
sterkri leið:
22. Bf4! - Da8
23. Rdxb5! - axb5 24. Rxb5 -
Rde5?
Tapar strax. Til greina kom 24.
- Rf6 25. De2 - Rxa3 26. Hxc8+ -
Dxc8 27. Hcl - Dd8 28. Rxa3 - 0-0
og svartur hefur a.m.k. náð að
hróka þótt staðan sé döpur.
25. Bxe5 - Rxe5 26. Dxg7 - Rg6
27. Bxe6! - fxe6 28. Dxg6+ - Kf8
29. Rc7 - Hxc7 30. Hxc7 - Db8
31. Hecl og svartur gafst upp.
Minningarmót
um Freystein
Skákþing Hafnarfjarðar 1998
verður haldið í húsnæði Skákfé-
lags Hafnarfjarðar dagana 5.-7.
júní 1998. Mótið er helgað minn-
ingu Freysteins Þorbergssonar.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Föstud. 5. júní kl. 20 1.-3. umf.,
atskákir
Laugard. 6. júní kl. 11-15 4. umf.
Laugard. 6. júní kl. 16-20 5. umf.
Sunnud. 7. júní kl. 11-15 6. umf.
Sunnud. 7. júní kl 16-20 7. umf.
Tímamörk í atskákunum eru
30 mínútur á skákina, en í kapp-
skákunum er einn og hálfur tími
á 30 leiki og hálftími til að ljúka
skákinni.
Þátttökugjald: Fullorðnir kr.
1.500. Börn (fædd 1982 og síðar)
kr. 800. Verðlaun: Ki'. 20.000, kr.
12.000 og kr. 8.000 fyrir þrjú
efstu sætin. Þrír efstu skákmenn-
irnir sem fæddir eru 1982 og síð-
ar fá bókaverðlaun.
Skráning fer fram á mótstað á
milli kl. 19 og 19.55 föstudaginn
5. júní. Mótið fer fram í húsnæði
Skákfélags Hafnarfjarðar,
Dverg, á horni Suðurgötu og
Lækjargötu. Öllum er velkomið
að taka þátt í mótinu.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
AÐSENDAR GREINAR
Svar við sögu
úr sveitinni
RITFRELSI er dýr-
mæt gjöf en það er mik-
ill skaði þegar lítilsiglt
fólk kemur með skítkast
og tilraun til mannorðs-
þjófnaðar í stærsta og
virtasta blað landsins.
Ég hef fylgst með
vinafólki mínu í
Hvammi 2 í Vatnsdal
allan þann tíma sem þau
hafa barist fyrir að
standa af sér erfið mála-
ferli vegna kaupa á
Hvammi 2 í Vatnsdal.
Hallgrímur Guðjóns-
son virðist ekki skilja
hvað er rétt og rangt í
viðskiptum sínum við
þessi hjón. Það voi'U meint svik í tafli
en það tók mörg ár að undirbúa og
athuga þetta mál og lyktaði því með
að Þuríður og Gunnar unnu málið í
Hæstarétti. Hvað varðar undirrétt
tókst ekki að koma málinu af ein-
hverjum ástæðum á nógu skilmerki-
legan hátt til skila.
Við kaupsamning var sett fram
veðbókarvottorð sem sýndi að jörðin
var veðbandalaus. Veðbókarvottorð-
ið var tveggja daga gamalt frá sýslu-
mannsembættinu á Blönduósi.
Seinna kom fram að þetta vottorð
var ranglega fært því ekki hafði ver-
ið gengið frá riðusamningi sem var
þinglýst á Hvamm 2. Mátti ekki
selja jörðina nema láta vita um
þennan samning þar sem hreinsun á
jörðinni væri skilyrði. Tníir einhver
að Hallgrímur væri búinn að gleyma
þessu? Sýslumaður bar fyi-h' rétti að
það hefðu verið mannleg mistök á
sýsluskrifstofunni að þessi ákvæði
voru strikuð út án þess að skilyrðum
væri fylgt. I undin'étti var sagt að
hjónin hefðu átt að athuga betur
veðbókarvottorðið. Ég spyr hvernig
á að athuga betur veðbókarvottorð
en að fá það hjá löglegu embætti
sveitarfélags. Allur kostnaður og
óþægindi komu á hjónin í Hvammi 2
vegna þessa máls en sýsluskrifstof-
an var látin komast óátalið frá
þessu. Yfirdýralæknisembættið kom
til móts við þennan kostnað nýverið
að hluta.
í Hæstarétti var dæmt og að mín-
um dómi er þá búið að fara þær leið-
ir sem við höfum til að fá leiðrétt-
ingu mála. Hallgrímur Guðjónsson
var dæmdur sekur en ekki Þuríður
og Gunnar. Því miður
ætlar Hallgrímur ekki
að láta þar við sitja en
er nú að ráðast á þeirra
einkalíf og starfsframa.
Fjóluhvammur er
hugsjón þeirra hjóna
og hafa þau unnið mjög
vel að því máli. Þau
hafa sjálf gengið í
gegnum þau hörðu ör-
lög að missa barn sitt
úr krabbameini í höfði.
Einnig varð annað
barn þeiira fyrir mjög
alvarlegu brunaslysi og
var ekki hugað líf en
sem betur fer tókst að
bjarga því. Smyrslin
góðu komu þar mjög til hjálpar. Þau
hafa mikinn skilning á líðan foreldra
og barna í langveikindum eða dauða.
Þau hafa tekið langveik börn í sum-
ardvöl og hafa mjög góð samskipti
við félög sem standa að þessum
Fjóluhvammur er
hugsjón þeirra hjóna,
segir Selma Júlíusdótt-
ir, og hafa þau unnið
mjög vel að því máli.
börnum. í nokkur sumur hafa for-
eldrar og börn hist eina helgi í
Hvammi og sett upp tjaldbúðir.
Margir hafa lagt sig fram til að
gleðja, þar á meðal flugmenn sem
komið hafa með flugvélar sínar og
leyft börnum og foreldrum að fara í
útsýnisflug. Sum þessara barna hafa
ekki lifað að komast annað sumar.
Áætlað er að Fjóluhvammur verði
hressingarheimili þar sem langveik
börn og foreldrar þeh-ra fái hvíld,
hjálp og gleði. Fjóluhvammur er
sjálfseignarstofnun. Eigendur eru
Þuríðui' og Gunnar í Hvammi 2 og
Umhyggja, félag til stuðnings lang-
veikum börnum. Vonandi munu
margir leggja þessari stofnun lið til
að hún verði að veruleika sem fyrst.
Hefur þessi hugsjón og teikningar
verið kynnt stofnun Pauls
Newmans, leikara í Bandaríkjunum,
og hefur verið gefið gult ljós á þessa
framkvæmd. Það má leggja fram
beiðni um styrk þegar þetta er vel á
veg komið.
Hvað varðar „kremgerð frúarinn-
ar í Hvammi 2“ er þetta að segja.
Þau hjónin hafa sett upp fyrirtæki
sem nefnist Móa. I þessu fyrirtæki
hafa verið þróuð smyrsl og næring-
arkrem unnin úr íslenskum jurtum.
Land þeirra hefur fengið viðurkenn-
ingu sem lífrænt ræktað. Þessar af-
urðir hafa verið kynntar innanlands
og utan. Ég sjálf fór í fyrrasumar
með þær og samstæðuspil með ís-
lensku læknajurtunum á heimsráð-
stefnu í Englandi um læknajurtir og
ilmolíumeðferð. Ég var afar stolt af
því að geta kynnt íslensku lækna-
jurtimar á svo fagran og vandaðan
hátt með íslenskum og latneskum
heitum. Einnig vöktu mikla athygli
góð vinnubrögð á framleiðslunni.
Hallgrími Guðjónssyni kemur á
engan hátt við Fjóluhvammur eða
Móa. Fólk ætti að snúa sér allt ann-
að með fyrirspumir sínar um þeirra
mál.
í Hvammi 2 hafa komið upp Ijót
mál þar sem dýrum þeirra hjóna hef-
ur verið misþyrmt. Ékki hefur verið
hægt að upplýsa hver hefm' gert
þetta.
Þegar svo svona rætin grein kem-
ur í svo virt blað er spurt. Hvað ligg-
m' á bak við þessa gjöminga?
Vonum við öll að Hallgrímur Guð-
jónsson láti þessa fjölskyldu í friði.
Þegar ég var 14 ára var ég í sveit
hjá afar góðu fólki. Ég varð fyrir
leiðindahnýtingum frá leiðindakjóa í
sveitinni sem ég tók nærri mér en þá
kenndi mér góð vinkona þessa vísu
sem hefur verið mér leiðarljós síðan.
Því miður veit ég ekki um höfund.
Taktu ekki níðróginn nærri þér
það næsta er gömul saga
að lakasti viðurinn alls ekki er
sem ormarnir helst vilja naga.
Þuríður og Gunnar, ég bið guð um
að blessa verk ykkar öll og gefa ykk-
ur gæfu til að fá hugsjón ykkar
byggða á traustum gmnni.
Höfundur er ilmolíufræðingur og
bamabókahöfundur
r n
BIQDROGA
snyrtivörur
Magnús Qskarsson
Snýr týndi
sonurinn aftur?
EINS og sakir standa hefur R-
listinn í Reykjavík týnt einum
syni sínum og óvíst hvort hann
snýr aftur. Þessa óvissu er ástæða
til að skoða nánar.
Það er ekkert einkamál Ingi-
bjargar Sólrúnar borgarstjóra og
Hrannars B. Arnarssonar að
ákveða fyrir borgarbúa á hvaða
forsendum Hrannar gæti endur-
heimt sæti sitt í borgarstjórn. Mat
þeirra er auk þess marklaust sak-
ir hlutdrægni. Samt eru þau búin
að smíða sér mælistiku til að
leggja á þetta mál, sem þau með
yfirlæti ætlast til að allir aðrh- taki
gilda. Þau ætla að skammta borg-
arbúum þann mælikvarða einan,
að slampist Hrannar í gegnum
skattamál, án þess að vera dæmd-
ur í fangelsi eða sektir, sé hann
hvítþveginn.
Kosningaumræðan um mál
Hrannars B. Arnarssonar og fé-
laga hans Helga Hjörvars snerist
ekki fyrst og fremst um skatta.
Hún snerist ekki um eitt mál eða
tvö heldur mörg. Hún snerist um
langan fjármálaferil, gjaldþrot,
nauðasamninga, kennitöluskipti á
vandræðafyrirtækjum, verktaka-
greiðslur fordæmdar árum saman
af verkalýðshreyfingunni og ofan
á allt saman vanskil á vörsluskött-
um, sem enn eru ógreiddir að fjór-
um fimmtu hlutum.
Þegar umræða um allt þetta
var komin á fleygiferð bætti Ingi-
björg Sólrún við upplýsingum um
skattrannsókn Hrannars. Hún
leyndi að vísu fyrir kjósendum
skýrslu um rannsóknina, og gerir
enn, en hún og Hrannar ákveða
ekki upp á sitt eindæmi, að þetta
skattamál eitt og sér ráði úrslit-
um. Er því lýkur munu hin málin
öll óhögguð standa, í dómabókum,
yfirvaldsúrskurðum, Lögbirtinga-
blaðinu og vitund almennings,
sem óhrekjanleg sönnun um fjár-
málasiðferði þeirra er í hlut eiga.
Hvað gerir Sólrún þá?
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Selma Júlíusdóttir