Morgunblaðið - 03.06.1998, Page 52

Morgunblaðið - 03.06.1998, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Fangar frelsisins, Halla og Eyvindur SÚ HUGMYND að reisa þessum frægustu útlögum seinni alda minn- isvarða á Hveravöllum hefur fengið góðai' undirtektir á meðal almenn- ings ef marka má áheit og peninga- gjafír sem Eyvindarfélaginu hefur borist. Félagið setti sér strax í upp- hafi þau markmið að reikningar fé- lagsins yrðu endurskoðaðir af tveimur sýslumönnum, svo enginn þurfí að tortryggja þá. Reikningur Eyvindar og Höllu er ávísanareikn- ingur nr. 99 í Búnaðarbanka ís- lands á Selfossi og allir þeir sem leggja inn í sjóðinn stórt eða smátt eru skráðir félagsmenn eða styrkt- araðilar verksins. Ogmundur á hugmyndina Hvers vegna réðust menn í þetta verkefni? Astæðan er sú að aldrað- ur bóndi, níræður að aldri, Ög- mundur Jónsson í Vorsabæ í Ölfusi hermdi það loforð upp á greinarhöf- und að fyrir alllöngu hefði undirrit- aður játast undir að beita sér í mál- inu. Hann sagði „Þú lofaðir að gera þetta þegar þú værir orðinn alþing- ismaður og áður en ég er allur.“ Ekki þarf að kvarta undan við- brögðum eins og áður sagði og nú er fyrirhugað að halda hátíð á Hveravöllum laugardaginn 8. ágúst í sumar. Auðvitað verða menn að standa við fyrirheit sín. Þjóðhetjur eins og Halla og Eyvindur eiga sér svo merka sögu. Þau fóru í gröfina án dóms en líf þeirra var ævintýra- legt og átök við forhert embættis- mannavald. Halla var ekki síður hetja, án hennar hefði saga Eyvind- ar ekki gengið svona fram. Örlög Eyvindar hefðu trúlega orðið eins og mai'gra annarra brennimerking Brimarhólmans og aldrei átt aftur- kvæmt. Halla var uppreisnarkona og glöggt má sjá á gögnum sýslu- manna fordóma gegn henni. Enda þekktu Austfirðingar hana ekki af lýsingunni sem út var gefin. Hún var hvorki ljót né forað í fram- göngu. Halla þorði að berjast og ✓ Eg sá hvorki búr né fangelsi í þessu verki, --------------;------------ segir Guðni Agústsson, miklu fremur íverustað þeirra útlaganna sem var hreysi eða hellis- skúti. rísa gegn valdi og tíðaranda síns tíma. Höllu og Eyvindarstofa Þetta verkefni hefur verið að stækka í höndum nefndarinnar. Hugmyndin er ef vel gengur í fjár- söfnuninni að gera fleira en reisa minnisvarða á Hveravöllum. Ætlun- Mss® flísar /i-kiii- ili 4 Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844 Parqcolor býður uppá nýja vídd í klæðningu á stigum ^ÝTTÁÍSLANDl ABETGROUP HPL PARKET VALHNOTA HPL PARKET BEIKI HPL PARKET EIK HPL TRÖPPUNEF VALHNOTA HPL TRÖPPUNEF BEIKI HPL TRÖPPUNEF EIK 1200X190X6,5mm 1200X190X6,5mm 1200X190X6,5mm 400X3650X6,5mm 400X3650X6,5mm 400X3650X6,5mm BYGGINGAVÖRUR Þ. ÞORGRÍMSSON & CO I ÁRMÚLA 29 - SÍMI 553 8640 - 568 6100 Viðskiptaháskólinn í Reykjavík (Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands) Umsóknarfrestur er til 15. júní V VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN í REYKJAVÍK Innritun í Viðskiptadeild og Tölvufræðideild Viðskiptahá- skóians í Reykjavík er hafin og lýkur 15. júní nk. Umsókn- areyðublöð fást á skrifstofú Verzlunarskóla íslands, Of- anleiti i alla virka daga kl. 8-16. Þeir sem búa úti á landi geta fengið umsóknargögn send í pósti, en beiðni um það má leggja fram í síma 568 8400. Ekki er krafist innritunargjalds, en þeir sem fá inngöngu í skólann greiða skólagjöld fyrstu annar í byrjun ágúst. Nemendafjöldi Viðskiptaháskólans verður takmarkaður, en nemendur af öllum brautum framhaldsskóla eru hvattir til þess að sækja um skólavist. I Tölvufræðideild er boðið upp á tveggja ára kerfisfræði- nám og þriggja ára BS. nám í tölvuffæði. í Viðskiptadeild er boðið upp á þriggja ára BS. nám í viðskiptafræði, en einnig er hægt að Ijúka námi með prófvottorði (diploma) eftir tveggja ára nám. Þá er gert ráð fyrir margvíslegri samþættingu náms f Tölvuffæðideild og Viðskiptadeild Viðskiptaháskólans. Nemendur þurfa ekki að ákveða í upphafi hvort þeir fara í tveggja eða þriggja ára nám. Tölvufræðideild Viðskiptaháskólans í Reykjavíker framhald á Tölvuháskóla Verzlunarskóla fslands. Krafist er stúdentsprófs í báðar deildir Viðskiptaháskól- ans í Reykjavfk, en umsóknir þeirra sem hafa verulega tölvureynslu eða reynslu úr viðskiptalífinu verða einnig teknar til greina. Kappkostað verður að velja þá nem- endur í Viðskiptaháskólann sem búast má við að nái bestum árangri í náminu. Stefnt er að því að afgreiða umsóknir fyrir lok júní. Kennsla við Viðskiptaháskólann í Reykjavík hefst í nýju húsi að Ofanleiti 2 í september í haust. in er að sinna æsku- byggð beggja, opna Ey- vindarstofu á Flúðum og sýna legstað eða kirkju þeirra fyrir vest- an heiður, því alltaf var trúin sterk og biblían til staðar þar sem þau settust að. Ennfremur um leið og minnisvarð- inn verður afhjúpaður verður opnuð Höllu og Eyvindarstofa í gamla gangnamannakofanum á Hveravöllum. Þar verða allar upplýsingar um útlagana og dvalar- staði þeirra á hálendinu, ennfremur sagt frá Magnúsi sálarháska sem lagðist út á Hveravöllum og þoldi við í þrjár vikur sem ft'ægt er. Ennfremur ör- lögum Reynistaðabræðra. Sagt verður frá hverunum og gróðri á hálendinu, ennfi'emur foi'nri menn- ingu bænda, nýtingu afrétta, smöl- un sauðfjár og réttastemmningunni á haustin. Gamli gangnamannakof- inn verður upplýstur með sólarraf- hlöðu. Að öllu þessu verki kemur Náttúruvernd ríkisins og gengur til liðs við Eyvindarfélagið. Að túlka listaverk Vegna nokkurrar umræðu um hugmyndina að listaverki Magnús- ar Tómassonar vill undirritaður túlka sína skoðun á hugmyndinni. Magnús er þekktur sem mjög snjall listamaður og mætti nefna mörg þeirra listaverka sem hann hefur unnið, flest bera þau glæsileg nöfn sem segja oft mikla sögu ekk- ert síður en verkin sjálf. Fangar frelsisins er gi'ípandi nafn og mikill sannleikm' um örlög útlaganna. Listaverk eiga að segja og minna á sögu. Það sem einn sér, sér annar allt öðruvísi. Lista- menn verða að hafa fullt frelsi til að túlka og segja sögu, því fékk Magnús Tómasson frjálsar hendur hjá nefndinni. Þegar ég sá hina snjöllu hugmynd Magnúsai' um minnis- varða um Fjalla-Ey- vind og Höllu fannst mér að allt færi saman; frumlegheit, fegurð en fyrst og íremst tákn- rænn minnisvarði sem gefur ímyndunaraflinu lausan taum. Eg sá hvorki búr né fangelsi í þessu verki, miklu fremur íverustað þeirra útlaganna sem var hreysi eða hellisskúti. Steinninn minnir á hálendið þar sem þau vörðu mörgum árum ævi sinnar og börðust fyrir lífi sínu. Stáisúlurnar minna mig á valdið, sýslumenn kóngsins sem ofsóttu þau Eyvind og Höllu, súlurnar jafn- margar þeim sýslumönnum sem héldu þeim sem föngum frelsis á fjöllum. Svo kemur þessi bráð- skemmtilega sjónhending, tvö hjörtu í hellisskúta annað sótt til Súðavíkur í fæðingarsveit Höllu, hitt að Hlíð í Hrunamannahreppi á fæðingarstað Eyvindar umkringd stálinu eða valdinu og minnir enn og aftur á baráttu sem þau háðu, áttu aðeins hvort annað og sigi'uðu saman. Hugur minn rifjar upp fal- legt ljóð og söng Bubba Morthens: Er það glæpur að elska er það glæpur að þrá er það glæpur að hafa hjörtu sem hrifnæm slá? Höfundur er alþingismaður og for- maður Fjalla-Eyvindarfélagsins. Guðni Ágústsson Styrktarfélag Sjúkrahúss Þingeyinga biður STYRKTARFÉLAG Sjúkrahúss Þingeyinga hefur nú starfað í rúm tvö ár og komið miklu í verk eins og ritari fé- lagsins Sara Hólm hef- ur skrifað um í dagblöð að undanfórnu. Ég hef verið formaður félags- ins frá upphafi og hef starfað með frábæru fólki. Ég tei að við höf- um náð miklum árangri í að styðja varnarbar- áttu landsbyggðar- sjúkrahúss á erfiðum tímum. Nú hefur varn- arbaráttan snúist upp í sóknarbaráttu sem gæti orðið til þess að sjúkra- húsið yrði hátt skrifað og virt. Á meðan læknar þyrpast á suðvestur- hornið erum við líklega að fá hingað 2 virta sérfræðinga sem munu starfa með okkar góðu læknum og ÞAK-0G VEGGKLÆÐNINGAR ÍSVAL-ÖORGA crlF. HÖFOABAKKA 9. 112 REYKJAVÍK SiMI 587 8750 - FAX 587 8751 mynda þannig mikla breidd þekkingar og reynslu. Ég tel að það sé hollt fyrir Styrktarfélagið að fá sem flesta til starfa, fólk með nýjar og ferskar hugmyndir og alls ekki gott að for- maður verði mosavax- inn í sæti sínu. Ég, ásamt heiðursmannin- um Böðvari Jónssyni frá Gautlöndum, hef nú ákveðið að draga mig í hlé og hleypa að fólki sem tilbúið er að ljá þessu góða málefni lið. Nú hefur Svala Her- mannsdóttir á Húsavík sem flestir þekkja fallist á að taka við formennsku og þar tel ég að fé- lagið sé einstaklega heppið. Eg tel hollt fyrir styrktarfélagið, segir Guðni Kristinsson, að fá sem flesta til starfa. Ég skora á alla Þingeyinga að mæta fimmtudaginn 4. júní á aðal- fund félagsins sem haldinn verður á veitingahúsinu Bakkanum, og styðja kjör hennar og sýna um leið í verki að þetta félag skipti máli. Það hefur verið mér mikil ánægja að starfa fyrir félagið og vil ég nota tækifærið og þakka samstarfs- mönnum mínum í stjóm frábært starf og eins þakka ég þeim ótal ein- staklingum og félögum sem stutt hafa starfsemina innilega fyrir. um styrk Guðni Kristinsson Höfundur er lyfsali á Húsavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.