Morgunblaðið - 03.06.1998, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 5<V
AÐSENDAR GREINAR
Yið unnum
stórsigur
Það var mikill og
sætur sigur fyrir ís-
lenska jafnaðarmenn að
Reykjavíkurlistinn hélt
borginni. Sigurinn var
sætari en ella fyrir það,
eins og Ingibjörg Sól-
rún borgarstjóri sagði,
að nú mætti þakka
hann verkum en ekki
væntingum einum sam-
an. Úrslitin gulltryggðu
sameiningarferli jafn-
aðarmanna í höfúðborg-
inni. Allir vita að fram á
okkar tíma gegndi vald
Sjálfstæðisflokksins á
stjórnkerfi borgarinnar
lykilhlutverki í valda-
uppbyggingu flokksins.
Áhyggjur Sjálfstæðisflokksins
Þjóðin hefur ekki farið varhluta
af gremju sjálfstæðismanna eftir
kosningarnar, sem virðist ætla að
vera viðvarandi enda ástæða fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að hafa frekari
áhyggjur af þeirri þróun sem hefur
átt sér stað um land allt. Þegar nið-
urstöður sveitarstjómarkosning-
anna eru skoðaðar út rnn landið
kemur í ljós merkileg niðurstaða.
Nýsköpun í íslenskri pólitík
Landslagið er að breytast í ís-
lenskum stjómmálum. Vinstri
menn mynduðu nær alls staðar
sameiginleg framboð undir merkj-
um jafhaðar, félagshyggju og kven-
frelsis. Menn vom með mismiklar
væntingar til þessa nýgræðings í
stjórnmálum en óhætt
er að fullyrða að árang-
ur þeirra gefur tilefni
til mikillar bjartsýni.
Hin nýju framboð unnu
víða góða sigra og unnu
á ef miðað er við sam-
anlagt fylgi þeiira í síð-
ustu kosingum.
Góður byr um
allt land
Útkoma jafnaðar-
manna var góð á
Reykjanesi þvert ofan í
glæstar spár um vænt-
anlega meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins í bæjar-
félögum eins og
Reykjanesbæ og Kópavogi. Á báð-
um stöðum er orðinn til stór jafnað-
armannaflokkur við hlið Sjálfstæð-
isflokksins þar sem er í stakk búinn
Vinstri menn hafa sýnt
í þessum kosningum,
segir Katrín Theodórs-
dóttir, að þeir geta
unnið saman og vilja
vinna saman.
til að etja kappi við hann á jafnræð-
isgrundvelli. I Sandgerði er hreinn
kratameirihluti með 52% og Grinda-
víkurlistinn fékk tæplega 41%.
Á Vesturlandi geta jaftiaðarmenn
unað glaðir við sitt, á Akranesi urð-
Katrín
Theodórsdóttir
um við sigurvegarar kosninganna
með 43% greiddra atkvæða og
flesta menn kjöma, í Borgarbyggð
40% og flesta menn kjörna og í
Stykkishólmi, í vígi stjálfstæðis-
manna til margra ára unnum við
varnarsigur. Á Vestfjörðum vannst
sigur þar sem sameinaðir jafnaðar-
menn fóru saman, t.d. í Vestur-
byggð 39% sem var mest fylgi allra
framboða. Á Isafírði fengu samein-
aðir jafnaðarmenn 40%, á Bolung-
arvík 46%. Þetta hefði nú einhvern
tíma þótt þokkaleg útkoma!
Viðunandi staða á Norðurlandi
í hinum hefðbundnu héruðum
þar sem Sjálfstæðismenn og Fram-
sóknarmenn hafa skipt með sér
völdum um langan aldur var niður-
staða kosninganna viðunandi. í V-
Húnavatnssýslu og Skagafirði þar
sem útkoman var lökust fengu jafn-
aðarmenn um 20%. Á Blönduósi
fengum við hins vegar tæplega 41%
og á Siglufirði varð Siglufjarðarlist-
inn hlutskarpastur með tæplega
45% og flesta menn kjöma. Á Dal-
vík var fylgið þokkalegt eða um
25%, á Akureyri minna eða tæplega
23% en á Húsvík fengum við meiri-
hluta eða 52%. Það eru mikil og góð
tíðindi fyrii' sameininguna.
Austurland í sólskini
Sigur jafnaðarmanna í hinu nýja
sameinaða sveitarfélagi á Fjörðum
(Austurríki; Neskaupstaður, Eski-
fjörður, Reyðarfjörður) var ótví-
ræður, en þar náðist meirihluti 53%
og í Homarfjarðarbæ náði Krían
31%. Það merkilega við niðurstöður
sveitai'stjómarkosninganna er að í
hinum hefðbundnu landbúnaðarhér-
uðum á Norður- og Austurlandi
reynist fólk einnig vera hallt undir
sameiginlegt framboð.
Sókn á Suðurlandi
f Árborg komu sameinaðir jafn-
aðarmenn út með 46% úr kosning-
unum og í Vestmannaeyjum vom
menn ánægðir með niðurstöðuna
enda bættu menn þar verulega sinn
hlut miðað við árangur A-flokkanna
síðast. Þar hefm- nú tekist að
mynda öflugt mótvægi við Sjálf-
stæðisflokkinn sem bauð nú fram
heill og sameinaður, en fór klofinn
fram fyrir fjórum árum.
Og hvað svo?
Við sem viljum móta framtíðar-
þjóðfélag okkar á gildum hugsjóna
jafnaðar, kvenfrelsis og félagshyggju
emm auðvitað ánægð með þessa nið-
urstöðu. Geta má nærri að meðal út-
koma sameiginlegra framboða um
allt land hafi verið um 37%. Það verð-
ur að teljast mjög gott þar sem víða
er litáð á þessi framboð sem byi-jun á
frekara samstarfi þessara flokka. Sa-
meinaðir jafnaðarmenn era þannig
orðnir næststærsti flokkurinn.
Vinstri menn hafa sýnt í þessum
kosningum að þeir geta unnið saman
og vilja vinna saman. Það var alls
staðar góður andi og bjart yfir sam-
vinnunni. Við emm orðin vön að
vinna saman, hönd í hönd. Víða kom
fram í viðtölum við heimamenn að
ekki væri aftur snúið, menn vildu
ekki fara að berjast innbyrðis aftur,
enda eigum við sameiginlegar megin-
hugsjónir og hagsmuni. Stefnt verð-
ur að því að samhæfa stjómmálaöfl
okkai- enn betur fyrir næstu kosning-
ar, vinna áfram saman um allt land
og bjóða fram undh' sama listastaf.
Eg tel þó að megin ávinningur
samstarfsins sé sá að þar sem boðið
var fram saman tókst okkur að
mynda stóran flokk, flokk sem er
öflugt mótvægi við Sjálfstæðisflokk-
inn. Það skýrir hina óhömdu gremju
leiðtoga Sjálfstæðisflokksins við úr-
slitum kosninganna. Ég óska Ingi-
björgu Sólrúnu og öðrum samein-
ingarsinnum um land allt til hamn-
ingju með kosningamar.
Höfundur er lögfræðingvr og fram-
kvæmdastjóri þingflokks jafnaðar-
manna.
Hágæða sánaklefar
Finnolme sánaklefarnir koma í
27 stöðluðum stærðum eða
smíðaöir ettir þínum óskum.
Minna mál umboðið, s. 557 4244
Glugginn
Laugavegi 60 ♦ Simi 551 2854
Gul blóm
ö
AUtaf fertkt... Select
verð 1.495.000
WAG0N
Hyundai Elantra Wagon er öflugur fjölskyldu- og ferðabíll með 116 hestafla 1600 vél og fæst
bæði sjálfskiptur og beinskiptur. Aktu af stað á nýjum Hyundai Elantra með fullan tank í
kaupbæti eða allt að 450 l! Gríptu gott tækifæri til að komast áfram.
Ármúla 13
Sími 575 1220
HYunoni Skiptiborö 575 1200
- til framtíðar Fax 568 3818