Morgunblaðið - 03.06.1998, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Fá hross í gegnum nálar-
auga landsmótslágmarka
_________Hestar_____________
Víðidalur
Héraðssýning kynbótahrossa
SÝNENDUR kynbótahrossa rak í
rogastans þegar dómar fóru að
birtast og töldu að ný gildi væru
við lýði í mati á hæfileikum hross-
’ anna. Sérstaklega þótti þeim að
hart væri tekið á töltinu. Einkunnir
á bilinu 6,0 til 7,0 voru ekki óal-
gengar og voru dómarar ósparir á
að draga hross niður væru ein-
hverjir hnökrar á töltinu. Oft kom
fyrir að knapar töldu sig vera að
ríða hrossum í 8,0 fyrir en fengu
svo 7,0. Dómararnir, þeir Kristinn
Hugason, Víkingur Gunnarsson og
Hallgrímur Sveinsson, töldu sig
ekki vera að taka harðar á málum
en verið hefur og færu nákvæm-
lega eftir stigunarkvarðanum.
Benti Kristinn á máli þeirra til
stuðnings að meðaleinkunnir væru
á svipuðu róli og til dæmis í fyrra á
héraðssýningu kynbótahrossa á
' þessum stað. Örlítið lægri nú í
heildina en breytilegt eftir flokk-
um, í sumum tilvika hærri en öðr-
um lægri.
Alls var komið með 155 hross til
dóms að þessu sinni, 23 stóðhesta,
2 geldinga og 130 hryssur. Fá
hross náðu inn á landsmót enda
lágmarkseinkunnir mjög háar að
þessu sinni. Kristinn Hugason
hrossaræktarráðunautur kvaðst þó
bjartsýnn á að vel myndi ganga að
fá hæfilegan fjölda góðra hrossa á
'landsmótið.
Aðeins einn stóðhestur í flokki
FLÍSASKERAR
OG FLÍSASAGIR
: :: - -- VI
-3 'i C tt ti H
mj IIÉ 5 w
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sfmi 567 4844
sex vetra og eldri, Skorri frá
Blönduósi, náði inn á mótið en
hann hlaut 8,32 í aðaleinkunn þar
af 9,5 íyrir tölt og 9,0 fyrir háls og
herðar og fegurð í reið. Með þess-
um árangri skipar Skorri sér í hóp
bestu sona hins kunna Orra frá
Þúfu. Af einkunnum að dæma eru
engar slæmar veilur í klámum og
sópar nokkuð að honum í fram-
göngu, hágengur, framtaksgóður
og fasmikill. Skorri er að heita má
skeiðlaus þótt hann fái 6,5 en það
er svona rétt til að hressa aðeins
við hæfíleikaeinkunn.
Næstir komu jafnir með 8,04
Geysir frá Keldudal og Geisli frá
Reykjavík vantar 0,06 til komast á
landsmót. Báðir eru þeir geðslegir
hestar og lægri fyrir sköpulag en
hæfíleika. Geisli fær eina 9 fyrir
stökk en Geysir fær fjórum sinnum
8,5, fyi-ir háls, samræmi, tölt, skeið
og Stirnir frá Fjalli varð fjórði með
8,03, myndarlegur klárhestur en
lækkaði nú fyrir tölt fyrir klár-
gengissakir að sögn dómaranna
hafði fengið 9,0 en hlaut nú 8,5.
Hann fær hinsvegar hæst fyrir
hófa 9,5 og 9,0 fyrir stökk.
Af fimm vetra hestum stóð efst-
ur Seifur frá Efra-Apavatni, ein-
staklega vel gerður hestur en virð-
ist ekki kominn með fulla getu
hvað hæfíleika varðar. Hann hlýtur
9,5 fyrir höfuð og 9,0 fyrir háls, bak
og lend, samræmi og stökk. Mun
hann annar stóðhesturinn sem fær
9,0 fyrir háls, bak og samræmi en
undir undirvagninn er á bilinu 7,5
til 8,0. Annar varð Markús frá
Langholtsparti sem nú tryggði sér
farseðilinn á Melgerðismela í
annarri atrennu. Hlaut 8,06 sem er
0,01 yfir lágmarkinu. Hann er með
eina níu fyrir hófa. f þriðja sæti
varð Kormákur frá Kjamholtum
sem er með 8,40 fyrir sköpulag en
fær afar lágt fyrir hæfileika. Kor-
mákur hlýtur 9,0 fyrir háls, sam-
ræmi og skeið. Tveir efstu hestam-
ir em með einkunn inn á landsmót.
Fjögurra vetra hestamir vöktu
verðskuldaða athygli og sér í lagi
sá efsti, Orrasonurinn Hrafn frá
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SKORRI frá Blönduósi er um margt líkur föður sfnum, Orra frá
Þúfu, og að ýmsu leyti föðurbetrungur. Knapi er Gunnar Arnarsson.
II®
SEIFUR frá Efra-Apavatni hefur skipað sér á bekk með fegurstu
stóðhestum landsins, fær 8,48 fyrir sköpulag; knapi er Sigurður
Matthíasson.
Garðabæ, sem hlaut 8,09 í einkunn,
sem er frábær árangur hjá svo
ungum hesti í fyrstu sýningu.
Flestar einkunnir em á bilinu 8,0
til 8,5 en hann fær þó eina níu fyrir
fegurð í reið. Spennandi hestur
sem fróðlegt verður að fylgjast
með. En næstur honum kom al-
bróðir skeiðdrottningarinnar Ósk-
ar frá Litladal, en sá heitir Óskar
og hlaut hann 8,50 fyrir sköpulag
sem er hæsta sköpulagseinkunn
sýningarinnar. Óskar fær 9,0 fyi'ir
bak og lend, fótagerð og hófa. I að-
aleinkunn hlýtur hann 7,94 og
vantar 0,01 til að komast á lands-
mót. Snerrir frá Bæ varð þriðji
með 7,86 og eina níu fyrir stökk.
Hylling frá Korpúlfsstöðum og
Gnótt frá Dallandi börðust um
efsta sætið í flokki hryssna sex
vetra og eldri en Filma frá Arbæ,
sem varð þriðja, átti ekki mögu-
leika að skáka þeim enda með mun
lægri sköpulagseinkunn. Af fimm
vetra hryssum varð efst Játning
frá Steindórsstöðum með 8,09,
Hrund frá Torfunesi önnur með
8,00 og Drottning frá Bjarnarhöfn
þriðja með 7,73.
Heldur var sýning fjögurra
vetra hryssna fátækleg, aðeins
þrjár mættu í fullnaðardóm og ein-
kunnir að sama skapi lágar. Hafliði
Halldórsson bjargaði þó því sem
bjargað varð á yfirlitssýningu á
hi-yssunni Von frá Bakkakoti og
hækkaði hryssan um heila 0,40 í
hæfileikum sem dugði henni þó
ekki inn á landsmót því hún fékk
ekki nema 7,78 í aðaleinkunn og
vantar því 0,05.
Röð efstu hrossa varð sem hér
segir:
Stóðhestar sex vetra og eldri
1. Skorri frá Blönduósi, f.: Orri,
Þúfu, m.: Skikkja, Sauðanesi, eig-
andi Eyjólfur Guðmundsson, knapi
Gunnar Amarsson, sköpulag: 8,23,
hæfileikar: 8,41, aðaleinkunn 8,32.
2. Geysir frá Keldudal, f.: Ófeigur,
Flugumýri, m.: Dáð, Keldudal, eig-
andi Sigurður Sigurðarson, knapi,
eigandi, s.: 7,95, h.: 8,13, a.: 8,04.
3. Geisli frá Reykjavík, f.: Toppur,
Eyjólfsst., m.: Mánadís, Reykjavík,
eigandi Guðmundur Ólafsson,
knapi Atli Guðmundsson, s.: 7,85,
h.: 8,23, a.: 8,04.
Stóðhestar 5 vetra
1. Seifur frá Efra-Apavatni, f.:
Stígur, Kjartansst., m.: Freyja, E-
Apav., eigandi Guðmundur Harð-
arson, knapi Sigurður Matthías-
son, s.: 8,48, h.: 7,71, a.: 8,09.
Á Fótboltavef Morgunblaðsins
finnur þú
alla réttu
takkana
Titlar og afrek
Leikmenn og
frammistaða þeirra
Liðsstjórinn,
gagnvirkur Netleikur
Dagbók, yfirlit yfir leiki
www.mbl.is/boltinn
Fótboltavefur mbl
Þar sem þú getur fylgst með boltanum í sumar.