Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Formleg afhending styrkja til 48 húsa úr Húsverndarsjóði Reykjavfkur f gær
Morgunblaðið/Arni Sæberg
GRJÓTAGATA 12 ber nú aldurinn vel eftir endurbæturnar. Húsið var byggt 1890 af Bjarna Jónssyni snikk-
ara, hann lengdi það svo 1895 og byggði geymsluskúr sem stendur við hlið hússins.
MIÐSTRÆTI 10 er glæsilegt eftir endurbæturnar. Húsið var byggt af
Einari Jóni Pálssyni smiði árið 1904 og hafa litlar sem engar breyting-
ar verið gerðar á því síðan. Við endurnýjunina hafa skraut og útskurð-
ur fengið að halda sér.
Uppgerðum húsum
fj ölgar í gamla bænum
INGÓLFSSTRÆTI 7b var byggt 1923 en
segja má að byggingu þess verði fyrst lokið
þegar Róbert Glad hefur bætt á það hæð og
risi sem upprunalegu teikningarnar gerðu
ráð fyrir.
KJALLARINN á Gijótagötu 12 er uppgerð-
ur að hluta, Paul lét endurbyggja reykháf
og fékk svo þennan ofn frá Noregi.
Með viðhaldi gamalla húsa í Reykjavík
er byggingarsaga borgarinnar varð-
veitt. Formleg afhending styrkja úr
Húsverndarsjóði fór fram í gær.
STERKIR litir á Þingholtsstræti 13 draga athyglina að fallega upp-
gerðu húsinu. Húsið er byggt 1876 en lengt 1881, síðan hafa engar
meiri háttar breytingar verið gerðar á húsinu.
ALMENNINGUR í Reykjavík
hefur í auknum mæli látið sig
varðveislu gamalla húsa
varða. Fjölmörg gömul fallega
uppgerð hús, þar sem einstak-
lingar hafa lagt út í ómælt erf-
iði og kostnað við að gera upp,
eru sönnun þessa. Lán eru
veitt fyrir endurnýjun gamalla
húsa en auk þess hafa verið
veittir styrkir frá Húsfriðun-
arsjóði ríkisins í rúman áratug
og frá Húsvemdarsjóði
Reykjavíkur í tvö ár. í gær fór
fram formleg afhending 48
styrkja úr Húsverndarsjóði
fyrir árið 1998 en ákvarðanir
um styrkveitingar vom teknar
í maí og tilkynnt um þær þá.
Magnús Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Húsfriðunar-
nefndar rikisins, segir mjög
vel hafa tekist til við endur-
nýjun margra húsa en stund-
um skorti á að leitað sé til fag-
aðila eftir upplýsingum. Hann
segir að Húsfriðunarnefnd
veiti ráðgjöf, á Árbæjarsafni
sé einnig hægt að leita aðstoð-
ar og ýmsir arkitektar séu
sérhæfðir í endurnýjun gam-
alla húsa. Á Árbæjarsafni er
einnig hægt að fá upplýsingar
um sögu og aldur húsanna og
em upplýsingar í myndatext-
um þaðan komnar.
Teikningar frá 1923
vísa veginn
Ingólfstræti 7b er óðum að
taka á sig upprunalega mynd
en Róbert Glad keypti húsið
1988 og hefur sjálfur unnið að
því að gera það upp. Húsið er
tvflyft frá árinu 1923 en aldrei
hefur verið lokið við byggingu
þess útfrá uppmnalegum
teikningum. Róbert hafði upp
á teikningunum og hefur þær
til fyrirmyndar við verkið.
Hann hyggst meðal annars
setja í það glugga af uppmna-
legri gerð.
Kjallari og neðri hæð húss-
ins era úr steypu en efri hæð-
ina og risið er Róbert að
byggja úr timbri og ætlar svo
að bárajárnsklæða það. Hann
gerir sér vonir um að það
verði tilbúið að utan í haust.
Þegar verkinu verður lokið
verða þrjár íbúðir í húsinu og
það orðið tvflyft eins og upp-
haflega var stefnt að.
Gott hús með góða sál
„Það er yndislegt að búa í
þessu húsi, það er gott, með
góða sál,“ segir Anna Kristín
Newton um Gijótagötu 12,
öðra nafni Hól, sem er frá
1895. Foreldrar hennar
keyptu húsið ‘96 en hófu end-
urnýjun ‘97 og hefur Anna bú-
ið í því í tvö ár. Anna segir
föður sinn, Paul Newton, hafa
unnið mest í endurnýjunni og
hafi byrjað á að gera mikinn
skurk í garðinum, sem var í
algerri órækt.
Húsið var svo tekið í gegn
að utan í fyrrasumar. Paul er
aðeins byijaður innandyra og
segist Anna flytja út þegar
tekið verði til við það af al-
vöru. Paul segist hafa gaman
af að vinna að þessu sjálfur,
hann leiti svo aðstoðar til fag-
manna, m.a. á Árbæjarsafni
og svo arkitekts og smiðir hafí
RÓBERT Glad sinnir sjálfur
smíðum í Ingólfsstræti 7b.
gert gluggana. Paul fann
gamlar myndir af húsinu á
Þjóðminjasafninu sem Magnús
Gislason, sem átti húsið um
aldamótin, hafði tekið. Þessar
myndir hefur hann svo haft til
hliðsjónar við endurbygging-
una. Hann stefnir að því að
endurappbyggingunni verði
lokið næsta vor.
fslensk og norsk yfírvöld hafa áhyggjur af nýrri tilskipun ESB um magn bætiefna í barnamat
Getur leitt til hættulegr-
ar ofneyslu D-vítamíns
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur gefið
út tilskipun um magn bætiefna í
bamamat sem seldur er í löndum
sambandsins. Manneldisráð Noregs
segir að norsk yfírvöld verði að grípa
í taumana áður en tilskipunin verður
að lögum samkvæmt samningnum
um Evrópskt efnahagssvæði vegna
þess að leyfilegt magn D-vítamíns
samkvæmt tilskipuninni, auk ann-
arra bætiefna, sé beinlínis hættulegt
ungbömum þar í landi þar sem þau
fái efnin nú þegar annarsstaðar frá.
Islensk stjómvöld hafa sömu
áhyggjur af málinu og bíða nú grein-
argerðar um tilskipunina sem Norð-
menn hafa í smíðum.
Ofneysla getur orsakað
nýrnasjúkdóma
Þegar Hollustuvemd ríkisins hef-
ur fengið greinargerðina í hendur
verður skoðað hvort nauðsynlegt sé
að gera fyrirvara við hana vegna sér-
aðstæðna hér á landi, að sögn Jóns
Gíslasonar, forstöðumanns á mat-
væla- og heilbrigðissviði hjá Holl-
ustuvemd. Greinargerðin verður svo
tekin til umfjöllunar hjá EFTA og
ræðst þá hvort hún verður hluti af
EES-samningnum eða ekki.
„Það eina sem við getum gert, ef
þetta yrði niðurstaðan, er að við
myndum óska eftir því að taka til-
skipunina inn í EES-samninginn
með því að hámarksákvæði, fyrir
þau vítamín sem teldust í of miklu
magni, yrðu lækkuð. Síðan yrðu
EFTA og ESB að fjalla um hvort
það yrði lögmætur fyrirvari," sagði
Jón í samtali við Morgunblaðið.
Norðmenn hafa áður gert greinar-
gerð um tilskipunina, sem manneld-
isráð Islands studdi á sínum tíma,
þar sem bent var á að magn D-
vítamíns og annarra vítamína væri
hærra en Islendingar og Norðmenn
teldu æskilegt. Manneldisráð Nor-
egs segir að taki reglugerðin gildi
þar í landi óbreytt þýði það stórslys
sem geti stefnt heilsu bama í voða.
Ástæðan er sú að í löndunum tveim-
ur eru foreldrar hvattir til að gefa
bömum sínum svokallaða AD-dropa,
sem innihalda A- og D-vítamín, og
lýsi, sem er auðugt af D-vítamínum,
vegna ónógs magns af D-vítamíni í
brjóstamjólk og kúamjólk.
Skortur á D-vítamíni getur valdið
beinkröm. Ofneysla D-vítamíns get-
ur á hinn bóginn skapað nýrnasjúk-
dóma og leitt til of mikils magns
kalks í blóði.
Þýðir aukið ungbarnaeftirlit
Laufey Steingrímsdóttir, forstöðu-
maður Manneldisráðs íslands, segir
að hingað til hafi menn frekar haft
áhyggjur af D-vítamínskorti en
ofgnótt. Að hennar sögn er ljóst að
ef tilskipunin verður samþykkt
óbreytt hjá EFTA þýði það aukið
ungbarnaeftirlit hér á landi og fólk
verði að vera betur á verði um
hversu mikið af bætiefnum börnin
fái úr fæðunni.
Hún segii- að í tilskipun ESB sé
gengið of langt enda sé magn bæti-
efna, eins og D-vítamíns, of mikið
fyrir aðstæður á Norðurlöndunum.
„Ef þessi tilskipun gengur í gildi
þarf að fara að fylgjast nánar með
hversu mikið af D-vítamíni bamið
fær úr matnum. Með tilskipuninni
verður aukning sem ekki allir nýta
og því verður flóknara að segja for-
eldrum til, þetta er nógu flókið fyrir,“
sagði Laufey. Hún segir þó að for-
eldrar megi alls ekki hætta að gefa
börnum AD dropana, enda tilskipun-
in ekki gengin í gildi, og nýleg rann-
sókn hafi leitt í ljós að ung börn fái
almennt ekki nóg D-vítamín.