Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 19
Nelson Mandela kvænist Gröcu Machel, þekktri baráttukonu frá Mósambík
Frelsishetjur
saman í
eina sæng
HJÓNABAND Gröcu Machel,
ekkju forseta Mósambík og Nelson
Mandela, forseta Suður-Afríku,
sem giftu sig með leynd á laugar-
dag, er sögulegt fyrir margi-a hluta
sakir. Nöfn beggja eru tengd frels-
isbaráttu svartra Afríkubúa órofa
böndum. Mandela hefur helgað líf
sitt baráttunni gegn aðskilnaðar-
stefnunni í Suður-Afríku og að
sama skapi hefur líf Machel snúist
um réttindabaráttu í heimalandi
hennar. Setti Machel ýmis skilyrði
fyrir giftingunni, m.a. því að hún
héldi eftirnafni sínu og ynni áfram
að mannréttindamálum. Mikil
leynd hvíldi yfír vígslunni sem fór
fram á heimili þeirra í Jóhannesar-
borg að viðstöddum nánustu ætt-
ingjum og vinum, þ.á m. Desmond
Tutu biskup.
Sinnir áfram störfum í
Mósambík
Graca Machel er ekkja fyrsta
forseta Mósambík, Samora Machel,
sem fórst í flugslysi árið 1986.
Machel er þekkt baráttukona og
fyrrverandi ráðherra í heimalandi
sínu. Hún ákvað að taka ekki eftir-
nafn hins nýja eiginmanns að eigin
sögn af virðingu við mósambísku
þjóðina og minningu Samora
Machel.
Haft er eftir vinum Machel að
hún hafí ekki viljað rasa um ráð
fram og helst ekki viljað giftast
Mandela fyrr en hann léti af emb-
ætti forseta Suður-AfiTku á næsta
ári. Henni er umhugað um að Mó-
sambíkar telji hana ekki hafa yfir-
gefið þá og að halda áfram starfi
sínu til hjálpar mósambískum börn-
um.
Graca Machel setti því þau skil-
yrði fyrir hjónabandinu að hún
myndi áfram sinna störfum sínum í
Mósambík og eyða tveimur vikum í
mánuði í Maputo, höfuðborg lands-
ins. Machel er erindreki Barna-
hjálpar SÞ og forseti landssamtaka
sem berjast fyrir réttindum mós-
ambískra barna.
Barðist fyrir sjálfstæði
Mósambík
Graca Machel er 52 ára að aldri,
reynd baráttukona og fyrrverandi
menntamálaráðherra í landi sínu.
Hún var félagi í Frelimo-hreyfing-
unni, sem barðist fyrir sjálfstæði
frá Portúgal. Þegar hún var rekin
úr háskólanum í Lissabon vegna
pólitískra afskipta hélt hún til
Tansaníu, en þaðan var aðgerðum
Frelimo í Mósambík stjórnað. Þar
kynntist Graca Machel eiginmanni
sínum Samora Machel, sjálfstæðis-
hetju og fyrsta forseta landsins.
Hún varð menntamálaráðherra í
stjórn hans aðeins þrítug að aldri.
Samora Machel fórst í flugslysi
árið 1986 en því hefur verið haldið
fram að ekki hafi verið um slys að
mSM
Reuters
BRÚÐHJÓNIN Nelson Mandela, forseti Suður-Afríku, og Graca
Machel mæta til kvöldverðar til heiðurs forsetanum, sem hélt upp á
áttræðisafmæli sitt með því að kvænast heitkonu sinni.
ræða, heldur skemmdarverk runn-
ið undan rifjum stjórnvalda í Suð-
ur-Afríku, sem reyndu leynt og
ljóst að grafa undan stjórnvöldum í
Mósambík í þessum tíma.
Machel og Mandela hafa átt í
ástarsambandi í nokkur ár en
reyndu að halda því leyndu þar til
Mandela fékk lögskilnað frá
Winnie Mandela árið 1996. Upp frá
því hafa þau oft sést saman opin-
berlega og hún m.a. fylgt honum í
opinberar heimsóknir til útlanda.
Heimildir: The Daily Telegraph,
AP, Mail & Guardian, BBC.
STOPP!
Láttu ekki innbrotsþjófa
valsa um eigur þínar.
ELFA - GRIPO
innbrots-, öryggis- og
brunakerfin eru ódýr
SUMARTILBOÐ
á standard kerfum.
Þráðkerfi frá kr. 13.410 stgr.
Þráðlaus kerfi frá kr. 19.890 stgr.
ÚRVAL AUKAHLUTA:
Sírenur, reykskynjarar,
hreyfiskynjarar, fjarstýringar,
hringibúnaður og fl.
Veitum tækniráðgjöf og önn-
umst uppsetningu ef óskað er.
Einar
Farestveit&Co.hf
Borgartúni 28 - Sími 562 2901 og 562 2900
Umdeild áætlun
um „ofurkennara“
London. The Daily Telegraph.
LAUNÞEGASAMTÖK kennara í
Bretlandi hafa hótað verkfallsað-
gerðum láti stjórnvöld verða af
hugmyndum um að tengja launa-
greiðslur til kennara við frammi-
stöðu þeirra. Doug McAvoy, ritari
breska kennarasambandsins,
sagði að hugmyndir stjórnarinnar
myndu leiða til sundrungar.
David Blunkett menntamála-
ráðherra varaði kennara við því
að laun þeirra yrðu lækkuð ef
þeir létu ekki af andstöðu við
hugmyndirnar. Hann sagði að
stjórnvöld myndu ekki hika við að
standa uppi í hárinu á launþega-
samtökunum til þess að koma í
framkvæmd áætlunum um nýja
tegund „ofurkennara“.
Líklegt er talið að hugmyndirn-
ar um tengingu launa og frammi-
stöðu kennara líti dagsins Ijós
sem frumvarp í haust og verði að
veruleika 2000. Blunkett sagði
þetta „Iykilatriði“ í baráttu
sijórnvalda fyrir „hærri“ viðmið-
um. Ráðamenn segjast sannfærðir
um að núverandi launakerfi hvefji
bestu kennarana til að snúa sér að
stjórnunarstörfum í stað kennslu
og geri þar að auki erfitt um vik
að fá þá hæfileikaríkustu til
starfa.
Sagði Blunkett að gert væri ráð
fyrir að allir kennarar myndu
áfram fá kjarabætur árlega, en
nýtt matskerfi myndi færa þeim
kennurum meiri hækkun sem
hefðu komið til leiðar mestum
framförum hjá nemendum sínum.
Milljónum lítra af
áfengi smyglað í Noregi
KOMIST hefur upp um smyglhring,
sem talið er að hafi smyglað allt að
1,8 milljónum flaskná af áfengi til
Noregs á ári. Bendir flest til þess að
smygl þetta hafi staðið yfir í hálfan
annan áratug en málið er hið
stærsta sem komið hefur upp þar í
landi.
Umfang smyglsins er gríðarlegt
en til samanburðar má nefna að ár-
leg sala í norsku áfengisútsölunni er
um tvær milljónir flaskna á ári, að
því er segir í Aftenposten. Giskar
blaðið á að þeir sem standi að baki
smyglinu hafi þénað um og yfir einn
milljarð ísl. kr. Þá er talið að sömu
menn hafi einnig smyglað eiturlyfj-
um til Noregs. Ekki hefur verið lagt
hald á eiturlyf í tengslum við málið
en í febrúar sl. náði lögreglan þrem-
ur félögum í smyglhringnum er þeir
reyndu að smygla um 25.000 flösk-
um af áfengi frá Svíþjóð.
I síðustu viku lét lögreglustjórinn
í Romerike, sem hefur rannsakað
málið, stöðva frekari rannsókn og
bar við fjárskorti. Hart hefur verið
deilt um þessa ákvörðun lögreglu-
stjórans, vegna þess að honum hefði
mátt véra ljóst hversu víða málið
teygði anga sína og hversu umfangs-
mikið það væri. Lögreglustjórinn
sagði hins vegar embætti sitt þurfa
á um 2,5 milljónum ísl. kr. til að
halda rannsóknini áfram en dóms-
málaráðuneytið hafnaði kröfu hans.
ICEGUARD öndunarfilma
tryggir góða öndun og mikla
vatnsheldni (20.000 ml/cm2).
Efnið er níðsterkt en jafnframt
ótrúlega létt og fyrirferðarlítið.
Stakkur
Verð 14.900
(Pyngd 460 gr.)
Buxur
Verð 9.900-
(Þyngd 440 gr.)
Útsölustaðir:
Skátabúðin
Útilíf Glæsibæ
Everest Skeifunni
Veiðimaöurinn
Veiðibúð Lalla Hafnaf.
Sportver Akureyri
KEA Lónsbakka Ak.
Sport og Útivist Húsavik
Cintamani hefur styrkt eftirtalda leiðangra: íslenska Everestleiðangurinn,
íslenska Suðurpólsleiðangurinn og íslenska kvennaleiðangurinn yfir Grænlandsjökul.
cintamani