Morgunblaðið - 21.07.1998, Page 23

Morgunblaðið - 21.07.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 23 LISTIR Páll heiðraður PÁLL Pampichler Pálsson tón- skáld fékk fyrir skemmstu af- hent verðlaun úr sjóði Ernst og Rosu Dombrowski í Graz í Austurríki fyrir að fara með sigur af hólmi í samkeppni um frumsamin tónverk. Nefnist verk Páls Expromtu og var Mynd um Bourgeois í „Fiskinum“ HEIMILDARMYND um frönsku myndlistarkonuna Louise Bourgeois verður sýnd í Galleríinu Piskinum að Skóla- vörðustíg 22 c í dag, þriðjudag- inn 21. júlí. Myndin verður sýnd á kiukkutíma fresti frá 14 til 18 í dag. Þar fjallar Louise Bour- geois um eigin verk, líf og list. Sýningartími er 40 mínútur. skrifað fyrir blásarakvintettinn Sereno sem flutti það við at- höfnina. Á meðfylgjandi mynd tekur Páll við verðlaununum og veg- legu heiðursskjali úr hendi Curts Schneckers, formanns sjóðsnefndar. Sýniiigu lýkur Listagallerí Smíðar og skart SÝNINGU Kristbjargar Guðmunds- dóttur leirlistakonu í listagalleríi Smíðum og skarti, Skólavörðustíg 16a, lýkur fimmtudaginn 23. júlí. Rristbjörg er listamaður júlimán- aðar í galleríinu. Á sýningunni eru leirmunir unnir á þessu ári. Skálar, staup og minjagripir. Sýningin er opin á verslunartima frá kl. 11-18 virka daga og 11-14 laugardaga. Teikningar MYM)LIST Listasafn ASÍ, Á s iii ii ud a rs a I við Freyjugötu BLÝANTSTEIKNINGAR GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR Til 2. ágúst. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. ÞAÐ er sjaldgæft að sjá liðtæka teiknara hér á landi enda lítið gert úr iðju þeirra líkt og flestra listamanna sem ekki einskorða sig við að festa myndir á striga með olíulitum. Síðust Evrópuþjóða þurfum við að búa við einhverja undarlega flokkun á list eftir tækni og virðist þá einu gilda hvernig þeirri tækni er beitt. 01- íumálverk eru alltaf sett ofar annarri list hversu léleg sem þau eru. Þessi tilhögun hefur löngum dregið íslenska nútímalist niður og gert hana snöggtum fátæklegri og slappari en efni standa til. Þá hefur grafíklist verið nær einráð á svartlistarsviðinu og gjarnan verið sett skör hærra en teikningar. Er nema von að inn- lendur listmarkaður sé í hönk þegar öll venjuleg og rökræn lög- mál eru fyrir borð borin? Það má vel vera að teikningar Guðnýjar séu langt frá því að vera stórvirki á sviði myndlistar. Þær eru engu að síður gerðar af miklu næmi fyrir línu og áferð. Bestu myndirnar í gryfju Ásmundarsal- ar bera vott um töluverða hæfi- leika, alúð og skilning á miðlinum. Að vísu hendir það Guðnýju að nota myndmál sem er of skreyti- kennt og úr sér gengið, en ef tekið er mið af einföldustu og einlæg- ustu verkunum á listakonan ekk- ert nema hrós skilið. Halldór Björn Runólfsson Auður sýnir í Staðarskála UM þessar mundir sýnir Auður Marinósdóttir vatns- litamyndir sínar í Staðar- skála í Hrútafirði. Myndirnar prýða veggi skálans og gisti- hússins. Auður teiknaði og málaði mikið á skólaárum sínum en lagði þá iðju að mestu niður til ársins 1990. Síðan þá hefur hún sótt námskeið í myndlist og málað fjöldann allan af myndum. Sýning hennar í Staðar- skála er sú fyrsta fyrir utan þær óformlegu sýningar sem hún hefur haldið við sölubás- inn á Garðatorgi í Garðabæ. Allar myndirnar á sýning- unni eru til sölu og stendur hún til sumarloka. Sýning helguð Arngrími Jónssyni lærða SÝNING helguð Arngrími Jónssyni lærða (1568-1648)^ stendur nú yfir í Landsbókasafni Islands, Háskóla- bókasafni, en nú í ár eru liðin 350 ár frá andláti Arngríms Jónssonar. Arngrímur var prestur og lær- dómsmaður og ólst upp hjá frænda sínum, Guðbrandi Þorlákssyni Hóla- biskupi. Hann stundaði nám á Hólum og við háskólann í Kaupmannahöfn og var skólameistari á Hólum 1589- 1595, aðstoðarmaður biskups og officialis og tilnefndur sem biskups- efni 1627 en skoraðist undan. Hann var lengi prestur á Mel í Miðfirði og skrifaði fimm varnarrit á latínu gegn ranghugmyndum erlendra manna um Island og þýddi trúarleg rit en merkilegastur er þáttur hans í að kynna erlendum fræðimönnum fornar íslenskar heimildir um sögu Norðurlanda. Sýningin stendur til 1. ágúst. Safnið er opið mánudaga til fóstu- daga frá kl. 9-17, laugardaga frá kl. 13-17. Kaffiterían er opin á sama tíma. AÐRIR BILAR Á STAÐNUM Nokkrir uppítökubílar á tilboðsverði Til sýnis hjá Fjölbrautaskóianum í Ármúla. Toyota Camry '92, 2200, ss., 4 d. V-rauður. Ekinn 170 þús. km. Verð kr. 1.060.000. Tilboð kr. 890.000. MMC Lancer '91,1500, ss', 5 d. Hvítur. Ekinn 109 þús. km. Verð kr. 690.000. Tilboð kr. 540.000. Honda Civic '91,1400, 5 g., 4 d. Grár. Ekinn 134 þús. km. Verð kr. 580.000. Tilboð kr. 430.000. Hyundai Pony GLsi '92,1500, 5 g., 4 d. Grár. Ekinn 116 þús. km. Verð kr. 450.000. Tilboð kr. 290.000. Toyota Hilux Diesel '84, 2400, 5 g., 3 d. Grár. Ekinn 180 þús. km. Verð kr. 350.000. Tilboð kr. 190.000. Nissan Terrano '90, 3000, ss., 5 d. Svartur. Ekinn 145 þús. km. Verð kr. 1.290.000. Tilboðkr. 990.000. Toyota Camry 4x4 GLi '88,2000, 5 g., 4 d. Hvítur. Ekinn 142 þús. km. Verð kr. 720.000. Tilboð kr. 490.000. Lada Samara '95,1300, 5 g. 5 d. Blár. Ekinn 43 þús. Verð kr. 380.000. Tilboð kr. 260.000 Hyundai Elantra '93,1600, ss„ 4 d. Rauður. Ekinn 89 þús. km. Verð kr. 770.000. Tilboð kr. 640.000. Nissan Sunny 4x4 '88, 1600, 5 g., 4 d. Brúnn. Ekinn 193 þús. km. Verð kr. 190.000. Tilboð kr. 90.000.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.