Morgunblaðið - 21.07.1998, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 21.07.1998, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Eigendur upplýsinga Á einstaklingurinn upplýsingar um sjálfan sig? Efsvo er getur meirihlut- inn pá ákveðið að ráðstafa peim að honum forspurðum? Það er líklega vand- fundin önnur eins umfjöllun um íslenskt fyrirtæki í erlendum fjölmiðlum og íslensk erfðagreining hefur fengið. I vís- indaheiminum þykja áform fyr- irtækisins spennandi og ekki verður annað séð en almennt sé litið á sérstöðu Islendinga vegna einangrunar og mikillar vit- neskju um ættir og uppruna sem raunverulega auðlind sem nýta megi vísindum og lyíjaiðn- aði til framdráttar. Byrjun fyrir- tækisins lofar það góðu að sjálf- sagt er fyrir stjórnvöld og al- menning að veita því sem mest- an stuðning, í þeirri trú að vel- gengni þess muni gagnast allri þjóðinni. VIÐHORF Þessar for- ----- sendur mega Eftir Pál samt ekki Þórhailsson verða til þess að menn loki augunum fyrir siðferðilegum vandamálum sem fylgja því að búa sem best í haginn fyrir fyr- irtæki í erfðarannsóknum. Vernd persónuupplýsinga og helgi mannsins era hvort tveggja einhver flóknustu sið- ferðislegu og lagalegu álitamál samtímans. Umræðan undanfarnar vikur og mánuði hefur orðið til að skýra margt sem var óljóst í upphafí. Þannig var það gagn- rýnt í öndverðu að gagna- grannsfrumvarpið, sem lagt var fram í vor, mætti skilja svo að takmarkað væri frelsi annarra vísindamanna en þeirra sem starfa hjá Islenskri erfðagrein- ingu til rannsókna. Enginn hef- ur mér vitanlega mælt slíku bót, hvorki talsmenn fyrirtækisins, né aðrir og því hlýtur að verða tekið af skarið um þetta í endur- skoðuðu framvarpi. Einnig væri þörf á nánari út- skýringum á því hvert sé stefnt með frumvarpinu? Svo dæmi sé tekið halda sumir því fram að ekki sé hægt að taka vitræna af- stöðu án þess að fyrir liggi hver stefnan eigi að vera varðandi lífssýni og geymslu þeirra. Æskilegt væri að fram kæmi hjá stjómvöldum hvert stefni í þess- um efnum. Nú þegar era ein- hverjir læknar byrjaðir að afla skriflegs samþykkis sjúkhnga við því að sýni úr þeim séu not- uð í tiltekna rannsókn og í síðari rannsóknir. Hversu langt nær slíkt samþykki? Þeir sem leggja mikið upp úr frelsi viljans vilja sjálfsagt meina að það sé ótak- markað en aðrir spyrja sig hvort fólk geti bundið sig um alla framtíð þegar í hlut eiga rann- sóknir sem enginn veit hverjar verða síðar meir. Víkjum þá að öðra vandamáli sem minna hefur farið íyrir í op- inberri umræðu. Frumvarpið sem lagt var fram í vor gerði ekki ráð fyrir að samþykki skráðra þyrfti til að upplýsingar um þá færa inn í gagnagrunn Is- lenskrar erfðagreiningar. Ástæðan fyrir því að ekki var talið nauðsynlegt að áskilja sam- þykki hefur væntanlega verið sú að þar sem upplýsingarnar yrðu dulkóðaðar teldust þær ekki lengur persónuupplýsingar. Af ýmsum ástæðum vakna spurn- ingar um hvort þetta fyrirkomu- lag sé ásættanlegt. í fyrsta lagi hefur Dögg Páls- dóttir hæstaréttarlögmaður bent á í viðtali í Læknablaðinu að nýleg lög um réttindi sjúk- linga verði að skilja þannig að sjúkraskrár séu eign sjúklings. Þannig hafi frumvarp til laga um réttindi sjúklinga fyrst gert ráð fyrir að sjúkraskrár væra eign sjúkrastofnana. Úr þessu hafí verið dregið í meðförum Al- þingis og ákvæðið orðað þannig að sjúkrastofnanirnar varðveittu skrárnar. Eins og framsögumað- ur heilbrigðis- og trygginga- nefndar Alþingis sagði í ræðu sinni væri siðferðilega ekki hægt að líta öðru vísi en svo á að sjúk- lingarnir sjálfir væru eigendur sjúkraskránna. Ef sá skilningur er réttur að upplýsingarnar séu eign í hefð- bundnum skilningi sem njóti stjómarskrárvemdar þá fer að verða spurning hvort hug- myndafræði framvarpsins gangi upp. Þessi skilningur er vissulega ekki ótvíræður en þarfnast skoðunar. I öðra lagi getur það verið nauðsynlegt til að viðhalda trún- aði sjúklinga til lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks að hinir fyrrnefndu eigi val um það hvort heilsuupplýsingarnar fara inn í einkarekinn gagnagrann sem er óviðkomandi þeirri starfsemi sem viðkomandi nýtur góðs af þá stundina. Askilnaður um persónulegt samþykki hvers og eins hefur þann kost að það er þá einstak- lingurinn sjálfur sem ákveður hvort hann vill taka þá áhættu sem því fylgir fyrir persónu- verndina. Það er nefnilega eitt- hvað bogið við að meirihluti þjóðarinnar eða fulltrúar meiri- hlutans ákveði svona lagað fyrir alla. Þetta er ákvörðun sem er það persónuleg að æskilegt er að hver taki hana fyrir sig. Mjög erfítt er að meta á þessu stigi hverjar hættur fylgi þessu nýja formi á skráningu heilsufars- upplýsinga. Sumir hafa kannski engar áhyggjur fyrir sitt leyti en aðrir eru tortryggnir. Það er hins vegar erfítt að kyngja því að aðrir en einstaklingurinn sjálfur ráðstafí upplýsingum um hann. Ef umstangið við þessa leið þykir of mikið mætti auðvitað hugsa sér að mælt yrði fyrir um það að ganga megi út frá sam- þykki en einstaklingarnir eigi þess kost að lýsa sig andvíga. Skoðanakannanir hafa sýnt mikið fylgi við áform Islenskrar erfðagreiningar þannig að eng- in ástæða er til að ætla að varnaglar af þessu tagi höml- uðu starfsemi fyrirtækisins. Réttindi þeirra „sérvitringa" sem ekki vilja fara í gagna- grunninn væru hins vegar bet- ur tryggð. Loks gæfi þetta færi á því að hver og einn ákvæði hvort hann afhenti persónuleg- ar upplýsingar um sjálfan sig endurgj aldslaust. + Örn Ingólfsson, fv. eigandi og framkvæmdastjóri Ingólfsbilliards, fæddist í Reykjavík 18. mars 1939. Hann lést á Land- spítalanum 11. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Ingólfur Tómasson frá Vík í Mýrdal, f. 14.5. 1905, d. 14.1. 1991, af skaftfellskum ættum, áður eig- andi og fram- kvæmdastjóri Ingólfsbilliards, og Herfríður Björg Tómasdótt- ir, f. 28.3. 1913, d. 21.1. 1998, af skagfírskum ættum, húsfreyja í Reykjavík. Bræður Arnar eru: 1) Vilhelm, f. 13.3. 1933, hár- skurðarmeistari í Rvík. Hans kona er Auður Kristjánsdóttir. Börn þeirra: Dóra, Ingólfur og Kristján Pétur. 2) Tómas, f. 30.1. 1949, trésmíðameistari, Þórisholti í Mýrdal. Börn hans: Ingólfur Þór og Björg. Móðir þeirra: Svanhildur Svavarsdótt- ir, fv. eiginkona Tómasar. Örn kvæntist 23.12. 1978 eft- irlifandi eiginkonu sinni, Maríu Kolbrúnu Thoroddsen, f. 26.6. 1939, fv. bankastarfsmanni. Foreldrar hennar eru Jónas Thoroddsen, f. 18.11. 1908, d. 11.11. 1982, fv. borgarfógeti í Rvík, og Björg Magnúsdóttir Thoroddsen, f. 26.5. 1912, hús- freyja í Rvík. Örn var þríkvænt- ur. Börn Arnar eru: 1) Ragn- heiður, ættleidd Júníusdóttir. Móðir: Guðrún Guðlaugsdóttir. 2) Ingunn Björg, f. 29.6. 1969, nemi í sálarfræði við HI. Unnusti hennar er Goði Gunn- arsson, nemi við Stýrimanna- Eg sit nú í fallegu stofunni þein'a Maríu og Arnar, tengdaforeldra minna, í Grundarlandinu, á ein- hverju alfegursta heimili er ég hef dvalið. Utan við gluggann blakta aspirnar í sumargolunni. Þær eru gróskumiklar í góðviðrinu, en samt lúta gi'einar þeirra tregafullar höfði. Líkt og við öll hin innan dyra gerum nú, eftir að sláttumaðurinn slyngi og sorgin knúðu dyra. Fyrir fimm nóttum barst harmafregnin til okk- ar hjónanna í sumarleyfi á Spánar- strönd, eins og eldingu væri á lostið á heiðskírri sumarnótt: Össi er dá- inn. Eins og dökkt þrumuský færð- ist sorgin yfir okkur og byrgði okk- ur sýn. Og þau voru óbærilega þung vængjatökin til íslands og sporin í Grundarlandið eftir sáran missi okkar allra. Þar sem ég sit nú í stofunni er skarð fyrir skildi. Sófinn gegnt mér er æði tómlegur, þar sem Össi sat oftast heima við. Þarna sat hann einmitt ógleymanlega jólanótt fyrir tæpum sex árum, nokkru eftir að mesta lánsemi mín í lífinu umvafði mig, er við Björg, dóttir Össa, kynntumst. Ég segi dóttir, því enda þótt hún hafi verið stjúpdóttir hans, vora þau hvort öðra sem faðir og dóttir í fegursta skilningi slíks sam- bands. Þessa jólahátíð kynntist ég Össa svo ótrúlega fljótt og svo vel, því svo var elskusemi hans fyrir að þakka, að fáum var auðveldara að kynnast en einmitt honum. Og þess vegna á ég honum svo mikið að þakka. Sem aðdáandi góðrar og göfugar tónlistar spilaði Össi fyrir mig uppáhaldsverkin sín. Er á leið nóttina, stóðst hann ekki að láta djassinn duna nokkuð, sem hvorug- um fannst síður en svo spilla helgi jólanna. Valið bar ekki einasta vott um einstaka smekkvísi hans, heldur einnig ágæta þekkingu hans á flytj- endunum, ekki síst djasskúltúrn- um. Talið barst víða, því Össi var heimsmaður í eðli sínu. Frásögn hans ljóslifandi og stórskemmtileg, og mikið var tekið í nefið þessa nótt. Sannkallað hátíðarskap ríkti. skólann. 3) Þórður Örn, f. 19.10. 1970, veitinganiaður í Rvík. Börn hans eru: Ólöf Edda, f. 13.9. 1988, og Ágúst Örn, f. 28.10. 1992. Móðir þeirra er Eva S. Ólafsdóttir, f. 26.2. 1970, B.A. í ís- Iensku. - Móðir Ing- unnar og Þórðar er Guðrún Helgadótt- ir. 4) Björg Rúnars- dóttir, f. 15.4. 1962, lögfræðingur í Rvík, stjúpdóttir Arnar, dóttir Maríu og Rúnars Georgssonar. Eiginmaður henn- ar er Sigurður Órn Hektorsson, læknir. Börn þeirra eru Árný Björk, f. 5.12. 1982, og María Kolbrún, f. 26.7. 1983. Faðir Maríu var Sigurður Sigurðsson. Hann er látinn. Örn ólst fyrst upp á Lokastíg í Reykjavík, en síðar í Hlíðun- um. Að loknum Gagnfræða- skóla Austurbæjar gekk hann í Verslunarskólann og lauk það- an verslunarprófi 1958. Hann stundaði síðan verslunarstörf, en eftir 1970 starfaði hann hjá föður sínum við Ingólfsbilliard, sem Örn keypti 1978 og rak síð- an ásamt Maríu, eiginkonu sinni, fyrst í Nóatúni, en síðan við Hverfisgötu allt til ársins 1997, er Orn hætti sjálfur rekstri stofunnar af heilsufarsá- stæðum. Örn var lengi forystu- maður og talsmaður snookerí- þróttarinnar, bæði sem stjórn- armaður Billiardsambandsins um árabil og formaður þess og fulltrúi á alþjóðavettvangi. Útfór Arnar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Báðir áttum við líka sameiginlegt að vera umvafðir umhyggju mæðgnanna, sem færðu okkur rjúkandi kaffi og góðgæti. Hvor naut sln betur, ástfanginn og hug- fanginn tilvonandi tengdasonur, eða hinn elskaði heimilisfaðir, mátti vart milli sjá. Ekki spillti umhverf- ið; fagurlega og listilega búið heim- ili hjónanna og Bjargar eldri, tengdamóður Össa, í Grundarland- inu. Allt sló í takt í dunandi sveiflu. Heimilisbragurinn bar líka ein- stæðan vott um ríka væntumþykju heimilisfólksins hvers í garð annars og allra þeirra gesta sem bar að garði, en þeir voru ófáir. Össi dró að sér fólk líkt og segull. Hann hafði sérlega hlýja nærveru, hvar sem hann fór, og þess nutum við, samferðamenn hans, fyrr og síðar. Það varð mér smám saman ljósara, er ég kynntist Össa betur á liðnum árum. Fljótlega kynntist ég þeirri hlið Össa, er laut að ævistarfi hans, billiardíþróttinni. Er við kynnt- umst, rak hann enn Ingólfsbilliard við Hverfisgötu. Auk þess að vera einn af forvígismönnum íþróttar- innar hérlendis, var hann fulltrúi hennar og talsmaður á alþjóðavett- vangi. Og þar sómdi hann sér snilldarlega. Einkum nutu sín ein- stakir hæfileikar hans í öllum mannlegum samskiptum. Enda naut hann virðingar innan lands sem utan fyrir fágaða framgöngu, hlýleika og drengskap. Auk þess að þekkja alla innviði íþróttarinnar, laðaði hann fram bestu þætti iðk- enda og keppenda, enda einstakur diplómat og séntilmaður að eðlis- fari. Á Ingólfsbilliard ríkti einstök stemmning. Þar naut Össi ekki síð- ur samstöðu Maríu, sem stóð hon- um þar æ við hlið, ekki síður en heima við. Saman höfðu þau búið Ingólfsbilliard við Hverfisgötu af einstakri kostgæfni. Utan þess, hve stofan var falleg, ríkulega búin listaverkum og húsmunum, allt f stíl, voru billiardborð og annar að- búnaður allur eftir kúnstarinnar reglum. Össi og María lögðu nefni- lega metnað sinn í að viðhalda þeim skemmtilega kúltúr sem fylgir snookernum, eins og best gerist í heimalandi íþróttarinnar. Þetta krafðist gríðarlegrar vinnu og yfir- legu. Þessi samhenta fjölskylda vann öll að því að gera viðskiptavin- unum iðkun íþróttar sinnar þægi- lega og skemmtilega. Þegar við Björg kynntumst, vann hún á stof- unni með námi sínu. Mér gafst því færi á að kynnast þessari veröld ei- lítið. Fljótlega komst ég að raun um, hve viðskiptavinirnir kunnu vel að meta umhverfí sitt og viður- gjörning. Þetta var ekki einasta billiardstofa, heldur líka áningar- staður fyrir hinar ólíkustu mann- gerðir, sem ýmist skutust á „bill- ann“ í hádeginu eða dvöldu fram eftir síðkvöldum. Enda skorti ekk- ert, því auk fullkominnar snooker- aðstöðu gafst kostur á að fá sér gómsæta smárétti í svanginn. En þar með var þjónustunni ekki lokið, því fljótlega varð ég þess áskynja, að spilararnir, „strákarnir", voru ekki einungis fastakúnnar til fjöl- margra ára fyrir þessar sakir. Það var vertinn, hann Össi, sem laðaði „strákana" að sér. Þeir voru orðnir heimilismenn, og leið ófárra þeirra lá einmitt oft á heimili Össa og Maríu. Össi var nefnilega leiðbein- andi á öllum sviðum mannlífsins. Þegar einhver „strákanna" átti um sárt að binda, tók við handleiðsla í lífsins raunum. Össi var sálusorgari af hjartans list. Ég leitaði oft til hans í ýmsum vanda mínum. Hvað Össi gat sett sig inn í vandamálin var með ólíkindum. Hann hafði óendanlegan áhuga á fólki og öllu mannlegu lífi og lét sér ekkert óvið- komandi, ef til hans var leitað. Og þótt hann manna síst vildi ota sér frarn, lá hann aldrei á liði sínu. Alltaf kom hann auga á einhverja nýja hlið á málunum og gaf jafnan góð ráð. Allir gengu frá smiðju hans ríkari af lífsþekkingu og um- hyggju. En lífsþekkingu sína hafði Össi ekki öðlast þrautalaust. Þótt við bergðum ekkert annað af bikar hans en góðvild, hjartahlýju og drengskap, var bikar lífs hans ósjaldan beiskur. Hann veiktist þegar á unglingsáram. Þrátt fyrir sjúkdómshlé þeirra meina fram yfir fertugt, krældu þau á sér í æ ríkari mæli síðustu tvo áratugina. Einu þeirra sigraðist hann þó á; friðleysi áfengissýkinnar, sem hafði sterk tök, þar til Össi hætti í eitt skipti fyrir öll 1978. Össi var með fyrstu Freeportfórunum. Þá för nýtti hann sér til fullnustu, því ekki einasta varð hann óvirkur eins og sagt er, hann varð algjör bindindismaður á áfengi æ síðan - og fyllilega sáttur við það hlutskipti. Eg veit ekki hve mörgum hann hefur miðlað af þeirri reynslu sinni, en sigur hans varð fjölmörgum til fyrirmyndar. Samt var hann gjörsamlega laus við alla fanatík. Þegar ég kynntist Össa fyrir sex árum blasti við mér bjartur maður yfirlitum, fagureygður, skarpleit- ur, nokkuð kíminn. „Sæll elskan mín,“ - voru þau orð, sem ég heyrði hann oftast heilsa okkur samferðarmönnunum með. Hann var rólegur og yfirvegaður í fasi. Fágaður í allri framkomu. Alúð, bros og gleði hressti okkur öll. Ánægðastur þegar öðrum var skemmt og leið vel í nærveru hans, og lét ánægju sína í ljós með breið- ara brosi, sem helst var sett fram með mátulegri skúffu. Snyrtimenni og reglufastur og reglusamur svo af bar. Gat vel notið slökunar, eink- um heima í sófa, með góðan reyfara, hvort sem var með Bach eða Brubeck á fóninum, eða þá góða kvikmynd á skjánum. Meðan heilsa og kraftar entust voru þó hvíldardagar fáir. Þessara tóm- stunda varð einatt að njóta um óttubil, eftir að hann var búinn að loka stofunni og ganga frá. Þá sak- aði ekki stór og góður kaffibolli. En best leið þó Össa í nærveru fjöl- skyldunnar og þeirra sem voru til- búnir að skrafa fram eftir nóttu, ef því var að skipta. En þrátt fyrir sterklegan skrokk og vörpulegan, hreiðruðu meinin um sig, fleiri en eitt og fleiri en tvö. ÖRN INGÓLFSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.