Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 38

Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HANNES ÞÓRÐUR HAFSTEIN *’anna. Þegar heim var komið voru þessar hugmyndir mikið ræddar. Var þá þegar hafist handa og Slysa- varnafélagið sóttist eftir að fá varð- skipið Þór til nota fyrir slysavarna- skóla sjómanna, en þá lá fyrir að leggja átti Þór. Það var svo um haustið 1984 að þingmannanefnd skilaði áfangaskýrslu um öryggismál sjómanna. Þar var lagt til að efnt skyldi til námskeiða í öryggismálum í öllum helstu verstöðvum landsins og Slysavarnafélaginu falin fram- kvæmdin. I öllu þessu máli vann 4« Hannes af miklum dugnaði og ósér- 'hlífni. Oryggismál sjómanna voru Hannesi alltaf mjög hugleikin. Allt frá stofnun Slysavarnafélags- ins fyrir 70 árum hefur það verið eitt aðaláhugamál félagsins að þjóðin ætti góð og traust skip til björgunar- starfa og aðstoðar við sæfarendur. Hannes var gagntekinn af þessu áhugamáli félagsins. Ég held ég halli á engan þegar ég segi að hann hafi lagt mest af mörkum nú í seinni tíð, til að kynna fyrir björgunarmönnum og félagsfólki hversu nauðsynleg góð björgunarskip væru, ekki síst vegna öryggis björgunarmanna. I þjálfun- arferðunum til Skotlands kynntust björgunarmenn nýjum gerðum af björgunarbátum og komu heim fullir Vaf áhuga og hugmyndum um björg- unarbáta. I kjölfarið voru svo keypt- ir björgunarbátar af ýmsum gerðum. I dag eiga björgunarsveitir félagsins fjölmarga harðbotna björgunarbáta og Björgunarbátasjóður Slysavarna- félagsins á níu stóra björgunarbáta sem staðsettir eru á þeim stöðum sem sjósókn er hörð og skipaumferð mikil. Það er því vel við hæfi að stærsta björgunarskip Slysavarnafé- lagsins ber nafn Hannesar Þ. Haf- stein og er það staðsett í Sandgerði. ~ Störfum Hannesar og áhugamál- *um verða ekki gert nein viðhlitandi skil í stuttri minningargrein. Til þess kom hann allt of víða við. Hannes hlaut margar viðurkenningar fyrir störf sín bæði innanlands og erlend- is, m.a. heiðurskross Slysavarnafé- lagsins, sem er æðsta viðurkenning, sem félagið veitir. Sigrún og öll fjöl- skyldan hefur stutt Hannes í um- fangsmiklum og tímafrekum störf- um. A landsþingi Slysavarnafélags- ins 1990 var Sigrún sæmd þjónustu- merki félagsins úr gulli fyrir ómet- anleg störf fyrir Slysavarnafélagið. Nú við fráfall Hannesar munu fé- lagsmenn Slysavarnafélagsins minn- ast hans með hlýhug og þakklæti. Við leiðarlok vil ég fyrir hönd félaga f£Í Slysavarnafélaginu þakka fyrir samstarf og samskipti, trúa og dygga þjónustu yfir langan starfs- tíma. Ég sendi Sigrúnu og fjöld- skyldunni innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Tómasson, forseti Slysavarnafélags Islands. Hvar værum við stödd ef við ætt- um ekki starfandi björgunarsveitir og Slysavarnafélag, hvar væri Slysa- varnafélag íslands statt ef það hefði ekki átt mann eins og Hannes Haf- stein? Um tvítugsaldur er áhugi hans á slysavarnamálum vakinn er hann sækir nám og starfsþjálfun í leitar- björgunarstörfum erlendis en kemur síðar til starfa hjá Slysa- varnafélagi Islands og efth- það voru fá slysavarna- og björgunarmálefni sem hann lét sig ekki varða og tók þátt í mótun þeirra og vann að þeim málum af áhuga og dugnaði. Ekki ætla ég að reyna að rekja þau mál enda verða aðrir mér fróðari ' að gera það. Hannes var einn af þeim mönnum sem við litum upp til, var sannkallað- ur foringi, glæsilegur á velli og rösk- ur í framsögu, stundum dálítið hast- ur í orði en ákveðinn og stóð fastur á ^sínu, alltaf reiðubúinn til aðstoðar og að veita okkur kvennadeildarkonum sinn stuðning. Við viljum kveðja þig með orðum Tómasar Þorvaldssonar, orðum sem voru þér oft í huga og þú fluttir í ræðu á Landsþingi 1989. „Kyndill sá er kveiktur var með stofnun SVFI hefur logað og lýsir út til stranda, inn til dala og upp til heiða. Það er ósk okkar að á þessum kyndli slokkni ekki og hann megi ávallt lýsa því fólki, sem vill vinna að því að koma í veg fyrir óhöpp og slys og bjarga mönnum úr nauðum. Megi sú keðja deilda og björgunarsveita sem spannar landið allt ávallt verða þess megnug að vera raunverulegt björgunarbelti fyrii- alla þá sem í nauðir rata. Megi sá kyndill lýsa bjart um alla framtíð." Slysavai-nadeild kvenna í Reykja- vík þakkar fyrh- gott samstarf og vináttu í gegnum árin. Innilegar samúðarkveðjur til Sigrúnar og ann- arra aðstandenda. F.h. Slysavamadeildar kvenna í Reykjavík. Birna Björnsdóttir form. Á kveðjustund streyma að dýr- mætar minningar um vináttu og samstarf okkar Hannesar Þ. Haf- stein um árabil. Skýr mynd birtist af glæsilegum manni, sem sópaði að, höfðinglegum og glaðbeittum. Efst í huga á þessari stundu eru söknuður við hið skyndilega fráfall hans og innileg samúð með Sigrúnu, eigin- konu hans, bömum þeirra og fjöl- skyldu allri, en jafnframt þakklæti fyrir að hafa átt hann að vini. Kynni okkar Hannesar áttu rætur að rekja til starfs okkar beggja á vettvangi Slysavarnafélags Islands. Hannes hóf störf hjá félaginu sem erindreki á árinu 1964. Enda þótt hann væri fyrstu árin hjá Slysa- vamafélaginu samstarfsmaður fóður míns, sem þá var framkvæmdastjóri félagsins, kynntist ég honum ekki að ráði fyrr en eftir að ég kom í stjórn félagsins 1973, en þá var Hannes orðinn framkvæmdastjóri þess að föður mínum látnum. Kynni okkar urðu síðan enn meiri og nánari eftir að mér var falið forsæti í stjóm fé- lagsins 1982, sem ég gegndi til ársins 1990. Eðli máls samkvæmt áttum við því mikil samskipti og leið vart sá dagur á framangreindu tímabili að við hittumst ekki eða ræddum sam- an. Öll þessi samskipti mótuðust af hreinskiptni og einlægni og með tím- anum þróaðist vinátta, sem varð mér og fjölskyldu minni ákaflega mikils virði. Við geymum með okkar minn- ingar um margar bjartar stundir, er við áttum með þeim Sigrúnu og Hannesi og myndin af þessum glæsi- legu, samhentu hjónum mun lifa í hugum okkar. Þótt Hannes Þ. Hafstein hafi að forminu til verið starfsmaður Slysa- varnafélags íslands leit hann fyrst og fremst svo á að hann væri einn af félögunum. Af því mótuðust viðhorf hans til starfsins. Starfstími hans var ekki hinn hefðbundni skrifstofu- tími. Hann lagði allan sinn hug og hjarta í þetta starf og sinnti því jafnt að nóttu sem degi, helga daga sem virka. Áhugi hans og baráttuvilji voru óbilandi. Fyrir félagsheildina var þetta ómetanlegt. Eins og skipu- lagi björgunarmála var háttað hér á landi til skamms tíma hvfldu miklar skyldur og ábyrgð á þeim, er þessu starfi gegndi. Beiðnum um leit og að- stoð var í langflestum tilvikum beint til Slysavarnafélags íslands og það hvíldi á herðum þess starfsmanns, sem var á vakt, oftast framkvæmda- stjóra, að leysa úr þeim, hlutast til um aðgerðir og oft að samræma þær. Hér var ekki spurt um tíma sól- arhrings. Það duldist engum, sem þekkti til þessara mála, af hve mikilli hæfni og alúð Hannes leysti þessi verkefni af höndum. Naut hann í þessum störfum óskoraðs trausts stjórnar Slysavai’nafélagsins og varð hann af þeim kunnur meðal þjóðar- innar allrar. Má segja að um langa hríð hafi nafn hans og nafn félagsins verið samtvinnuð í hugum margra. I björgunarstörfunum kom sér vel menntun og reynsla Hannesar en ekki síður þau góðu tengsl, sem hann hafði myndað bæði innan félagsins við slysavarnadeildir og björgunar- sveitir um allt land og einnig við aðra, svo sem opinbera aðila, útgerð- ir, erlenda björgunaraðila o.fl. Ann- að, sem ég mat mikils við störf hans á þessu sviði, var sú mikla umhyggja og nærgætni, sem hann sýndi þeim, sem biðu í óvissu, en þrátt fyrir ann- ir og nauman tíma vanrækti hann ekki að sinna þeim, veita þeim upp- lýsingar, örvun eða huggun. Hér kom vel fram sú mikla manngæska og hlýja, sem Hannes hafði yfir að búa. Hann kunni að sýnast hranaleg- ur og óþjáll þeim, sem þekktu hann lítt, en við nánari kynni kom í ljós viðkvæmt þel og hjartahlýja. Hann- es taldi og miklu varða að hafa gott samstarf og samband við fjölmiðla, sem hann gerði sér sérstakt far um að rækta, þannig að gagnkvæmt traust og trúnaður myndaðist milli hans og þeirra. Störf Hannesar að björgunarmál- um vöktu oft mikla athygli, jafnt ut- an lands sem innan og vai' honum ýmis sómi sýndur vegna þeirra. Ég minnist t.d. sérstaklega þeirrar við- urkenningar, sem hann hlaut frá hendi þýskra yfirvalda vegna skipu- lagningar leitai’ og björgunar áhafn- ar þýska flutningaskipsins Kampen, er fórst út af Suðurlandi í nóvember 1983, sem vakti athygli viða. Ekki þarf að fara í grafgötur um það hversu lýjandi þessi störf gátu verið og hlutu að hafa áhrif á orku tfl dag- legra starfa. Það kom þó lítt fram hjá Hannesi og sýndi hann ótrúlegt starfsþrek, en grun hef ég um að hið mikla álag hafi haft áhrif á heilsu hans. Varð hann fyrir heilsufarsleg- um áföllum á síðari hluta níunda ára- tugarins, sem hann virtist þó hafa verið kominn yfir að mestu leyti. Þessi störf, sem bar að jafnt á nóttu sem degi, hlutu og að koma við heim- ili Hannesar, sem á svipstundu gat breyst í björgunarmiðstöð og allir aðrir meðlimir fjölskyldunnar urðu að taka tillit til. Hér sem og í öllu sínu starfi naut Hannes sinnar ein- stöku eiginkonu, Sigrúnar, sem var hans trausti bakhjarl alla tíð. Var hún virkur þátttakandi í starfinu og með lipurð sinni og traustri fram- komu ávann hún sér óskipta virðingu og aðdáun innan Slysavarnafélagsins og meðal allra þeirra, sem til þessara mála þekktu. I starfi félags eins og Slysavarna- félags Islands, sem sinnir bæði björgunaimálum og forvömum, eru margir þættir. Ekki er unnt í minn- ingargrein eins og þessari að lýsa störfum Hannesar að hverjum þeirra um sig, þótt fullt tilefni væri til. Áður en starfsemi höfuðstöðva félagsins var skipt í deildir, hvfldi framkvæmd allra þessara þátta mjög á herðum framkvæmdastjór- ans. Ég vil þó sérstaklega geta um tvennt. Annars vegar um þau tengsl, sem Hannes átti svo ríkan þátt í að mynda við erlenda aðila, er störfuðu á svipuðum vettvangi og Slysavama- félagið. Slík tengsl era mjög mikil- væg í starfi sem þessu því sífellt þarf að fylgjast með nýjungum í björgun- armálum og einnig komu þau sér oft vel við skipulagningu björgunar- og leitaraðgerða, sem náðu til víðtæks hafsvæðis. Hannes eignaðist marga vini meðal systurfélaga og -stofnana, ekki síst í Vestur-Evrópu. Á þeim fundum alþjóðasamtaka á sviði sjó- björgunarmála, sem ég sótti með honum, fann ég glöggt að hann naut þar mikillar virðingar og vinsemdar. Persónuleg kynni hans af forystu- mönnum á sviði björgunarmála í þessum löndum reyndust Slysa- varnafélaginu heilladrjúg og má þar meðal annars nefna að þau áttu sinn stóra þátt í að félaginu var kleift að eignast fullkomin björgunarskip, t.d. frá Bretlandi, Þýskalandi og Hollandi, sem hafa stuðlað að auknu öryggi sjómanna og sæfarenda á hafinu umhverfis landið. Eitt þess- ara skipa, sem staðsett er í Sand- gerði, ber reyndar nafnið Hannes Þ. Hafstein og er það sannarlega að verðleikum. í þessu sambandi skal einnig nefnt að Hannes stóð fyrir því um miðjan níunda áratuginn að koma á tengslum við skoska miðstöð, sem þjálfaði menn til björgunar- starfa á sjó og hafa tugir björgunar- sveitarmanna af öllu landinu sótt þangað dýrmæta þekkingu og þjálf- un. Fyrir hans tilstuðlan gerðist fé- lagið og aðili á árinu 1985 að alþjóð- legum samtökum um sjóbjörgunar- þjálfun. Hér ber einnig að geta þeirra tengsla, sem Hannes kom á við þyrlubjörgunarsveit varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, en laust fyrir 1970 hóf hann að leita þar eftir að- stoð, þegar mikið lá við, en sveitin hafði yfir að ráða öflugum björgun- arþyrlum, mönnuðum vel þjálfuðum áhöfnum, sem eftir þetta gegndu þýðingarmiklu hlutverki í leitar- og björgunarmálum og björguðu mörg- um mannslífum hér á landi og á haf- svæðinu umhverfis það. Notkun þyrlnanna af Keflavíkurflugvelli átti ekki síst þátt í að opna augu Islend- inga fyrir því hversu nauðsynlegt væri að þeir eignuðust öflugar björg- unarþyrlur, sem og síðar varð. Hinn þátturinn, sem ég kýs að nefna sérstaklega er Slysavarnaskóli sjómanna. Oft höfðum við um það rætt í stjóm Slysavarnafélagsins, hve brýnt væri að koma á fót kennslu- og þjálfunarmiðstöð fyi-h- sjómenn í því skyni að draga úr slysatíðni á sjó og gera sjómenn hæf- ari til að bregðast rétt við á hættu- stund. Á þessu hafði Hannes eldleg- an áhuga og ég hafði kynnst því vel sem formaður Rannsóknarnefndar sjóslysa í 10 ár hve brýn þörfin var á þessu sviði. Þegar ég lít til baka finnst mér bera hæst í samstarfi okkar þá vinnu, sem við lögðum í þetta mál. Með fundahöldum og samtölum tókst að stilla saman strengi samtaka sjómanna og út- gerðarmanna, þingmanna og ráðu- neyta, til að hrinda málinu af stað. Hér komu sér vel góð tengsl Hann- esar við framangreinda aðila og elja hans við að vinna málstaðnum fylgi. Það var okkur mikil ánægja að Slysavarnafélaginu skyldi trúað íýrir þvi mikilvæga verkefni að byggja upp þetta starf, sem ég tel að hafí orðið til mikilla heilla. Við Hannes áttum oft eftir að minnast þess með gleði er við greiddum sameiginlega eitt þúsund krónur og lögðum á borðið hjá þáverandi fjármálaráð- herra, Albert Guðmundssyni, en það var kaupverðið á varðskipinu Þór, sem lagt hafði verið í Straumsvík. Skipið varð miðstöð Slysavamaskóla sjómanna og var því gefið nafnið Sæ- björg. Þetta fannst okkur góð fjár- festing. Það voru hins vegar ekki all- ir bjartsýnir á þetta ævintýri og ótt- uðust að þetta yrði félaginu mikill baggi. Hannes var staðráðinn í að svo yrði ekki og vil ég fyrst og fremst þakka það dugnaði hans, seiglu og áræði, að svo vel tókst til um að ýta skólanum úr vör. Hann lagði á sig gífurlega vinnu, annars vegar til að fylkja félagsfólki saman um þessa framkvæmd og fá það til að leggja henni lið með vinnu og fjár- framlögum, og hins vegar út á við til að fá stuðning fyrirtækja til að gera kleift að sigla Sæbjörgu umhverfis landið, þar sem námskeið voru hald- in. Það var vissulega ástæða til að vera stoltur af þeim mikla samtaka- mætti, sem fi-am kom meðal félaga deilda og björgunarsveita félagsins á þessum tíma og þar átti Hannes sinn stóra þátt. Hér hafa aðeins verið nefnd nokk- ur dæmi um starf Hannesar á vett- vangi Slysavarnafélags íslands, en margt er ótalið. Má þar nefna hlut Hannesar við mótun Tilkynninga- skyldu íslenskra skipa, þátt hans í stofnun og uppbyggingu björgunar- sveita víðs vegar, störf hans að um- ferðarmálum, m.a. stofnun umferð- aröryggisnefnda vegna tilkomu hægri umferðar og ritstjórn hans á árbók félagsins. Þótt ekki sé tæki- færi til frekari umfjöllunar um þessa þætti og aðra nú, verða þeim von- andi síðar gerð rækilegri skil. Fallinn er í valinn stórbrotinn for- ystumaður, sem skilaði miklu og heilladrjúgu lífsstarfi. Fyrir það á hann skilda virðingu og þökk þjóðar- innar allrar. Um leið og ég kveð góð- an vin bið ég eiginkonu hans, börn- um og allri fjölskyldu blessunar 1 sorg þeirra. Haraldur Henrysson. Góður vinur og kær er fallinn frá langt um aldur fram. Stutt er síðan við unnum saman við undh-búning hátíðahalda sjómannadagsins, hann með þeirri elju og atorkusemi sem einkenndu störf hans alla tíð sama hvort um björgunarmál eða önnur áhugamál var að ræða. Vitað var að hann gekk ekki heill til skógar og beið eftir tíma til aðgerðar á sjúkra- húsi sem hann taldi smámuni eina og gerði ekki veður úr. Að afleiðingarn- ar yrðu á þennan veg hvarflaði ekki að neinum. Samstarf okkar Hannes- ar hófst fyi’ir alllöngu þegar hann hafði nýlega tekið við starfi fram- kvæmdastjóra Slysavarnafélags ís- lands og ég réðst um tíma til starfa sem aðstoðarmaður hans. Endurnýj- un á tækjabúnaði og fjölgun björg- unarsveita félagsins var þá hafin fyr- ir nokkru og Tilkynningaskylda ís- lenskra skipa orðin fóst í sessi ásamt því að björgunarstjórnstöðin hafði fengið húsnæði á Grandagarði fyrir nauðsynlega aðstöðu. Ég kynntist strax fádæma dugnaði hans og at- orkusemi þegar um björgunarmál var að ræða. Hann fór ekki úr Slysa- varnahúsinu meðan slík mál vora í gangi og við alvarlegri sjóslys fór hann ekki úr björgunarstjórnstöð svo dögum skipti, lagði sig til hvfldar þar sem það var hægt og var þannig til taks þegar á þm-fti að halda. Hannes hafði mikinn áhuga á að bæta aðstöðu björgunarsveita til leit- ar og björgunar á landi en á þessum tíma var framsæknum mönnum ljóst að umferð og ferðamennska myndi stóraukast og þá jafnframt þörf á velbúnum björgunarsveitum með búnað og þjálfun til landbjörgunar. Fljótlega eftir að Hannes kom til starfa hjá félaginu hóf hann fyrir þess hönd störf á alþjóðlegum vett- vangi fyi’st að umferðarmálum og síðar að sjóbjörgunarmálum. Á þess- um vettvangi ávann hann sér mikið traust og naut þar sjómannsreynslu sinnar, en áður en hann hóf störf hjá SVFI starfaði hann sem stýrimaður og skipstjóri hjá Eimskipafélagi ís- Iands. Hann varð fljótt þekktur með- al sjóbjörgunarmanna um allan heim fyrir skoðanir á gerð og búnaði björgunarbáta og hann tók virkan þátt í starfi alþjóðasamtaka sjó- björgunarfélaga ILF eftir að hann varð framkvæmdastjóri SVFÍ en fé- lagið hafði verið virkur aðili að þeim samtökum frá 1930. Það kom mér mjög á óvart eftir að ég hóf nefndar- setu hjá alþjóðasiglinga- málastofn- uninni IMO hve margir fulltrúar af ólíku þjóðerni spurðust fyrir um Hannes og báðu fyrir kveðjur til hans. Mér varð ljóst að nafn hans var vel þekkt og virðing borin fyrir störfum hans. Nafnið varð eins kon- ar lykill og undirskrift að vegabréfi til að heimsækja erlendar opinberar stofnanir eins og strandgæslu Bret- lands og Bandaríkjanna. Ólíklegustu menn komu til Hannesar til að fá slík leiðarbréf og er mér kunnugt um að á þeim mátti komast langt og jafnvel fá skólavist við virta skóla. Ungur hafði Hannes verið sjóliðsforingja- efni hjá bandarísku strandgæslunni og meðal félaga hans og vina var annað sjóliðsforingaefni sem síðar varð yfirmaður þeirrar ágætu stofn- unar. Þar stóðu allar hurðir upp á gátt þegar Hannes var nefndur. Samstarf okkar Hannesar stóð í ár að þessu sinni en ég hafði fengið frí frá störfum hjá Landhelgisgæslunni til að starfa hjá SVFÍ. Sambandi héldum við góðu alla tíð en það varð síðan 12 árum síðar að leiðir okkar lágu aftur saman við störf hjá SVFI. Hannes hafði á þeim áram átt við al- varleg veikindi að stríða en náð sér að fullu aftur og vinnuþrek hans vai’ð sem aldrei fyrr. Hann jók sam- starf við erlenda björgunaraðila og gerði samkomulag um þjálfun björg- unarsveitamanna við þekktan björg- unai-skóla Robert Gordons Institution í Aberdeen í Skotlandi. Hann var óþrjótandi við að afla styrkja hjá fyiTrtækjum og einstak- lingum í þjálfunarferðir sem tugir björgunarmanna sóttu. Fjárhag fé- lagsins var þröngur stakkur sniðinn og lítil efni til slíkra ferða. Það orð sem fór af honum sem stjórnanda SVFÍ skilaði sér til baka með mikl- um og góðum stuðningi frá fjölmörg- um aðilum. Það var á þessum tíma sem hugmyndir komu upp um stofn- un sérstaks Slysavarnaskóla sjó- manna. Hannes ásamt fleiram átti mestan þátt í því hversu vel tókst til. Varðskipið Þór var keypt til að hýsa skólann og Hannes ásamt félögum sínum stóð fyi’h’ mikilli sjálfboða- liðsvinnu við að rífa innréttingar úr skipinu og láta síðan innrétta það að nýju með þarfir skólans í huga. Þeir sem þátt tóku í þeirri vinnu munu seint gleyma því áræði og þori sem einkenndu það verk. Seint mun líða úr minni för á björgunarbátum til Straumsvíkur að draga Þór til Reykjavíkur til viðgerðar en þar hafði hann legið undir skemmdum. Skólinn varð að veruleika og Hannes

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.