Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 40

Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 40
#0 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, CÝRUS HJARTARSON, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar- daginn 18. júlí, verður jarðsunginn frá Lang- holtskirkju föstudaginn 24. júlí kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim, er vildu minnast hins látna, er bent á minningarkort Sjúkrahúss Reykjavíkur, gjörgæsludeild. Guðlaug Magnúsdóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir, Hjörtur Cýrusson, Ellen R. Jónsdóttir, Katrín Cýrusdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR KRISTMANNSSON, Mánavegi 7, Selfossi, lést fimmtudaginn 16. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Ester Hoffritz, Adam Guðmundsson, Hafdfs Björnsdóttir, Arndís Björg Smáradóttir, Gísii Georgsson og barnabörn. + Ástkær sambýlismaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, GESTUR KARL KARLSSON, Eyrargötu 28, Eyrarbakka, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn 19. júlí. Jónína Kjartansdóttir, Aðalheiður Gestsdóttir, Sigurður Þór Sigurðsson, Hafþór Gestsson, Emma G. Eiríksdóttir, Finnlaugur Pétur Gestsson, Ditte Poulsen, Marteinn Arnar Heimisson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, LÍNEY HULDA GESTSDÓTTIR, Skólatúni 2, Bessastaðahreppi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 19. júlí. Sigurður Karlsson, Guðni Óskar Jensen, Þorlákur Gestur Jensen. + öllum þeim sem sýndu okkur samúð vegna fráfalls AÐALSTEINS JÓHANNSSONAR tæknifræðings, viljum við þakka af hlýhug. Sérstakar þakkir til deildar A-1, Landakoti, sem hjúkruðu honum undanfarin ár. Hulda Óskarsdóttir og dætur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN GUÐMUNDSSON húsasmfðameistari, Urðargötu 11, Patreksfirði, sem lést þann 14. júlí sl., verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 25. júlí, kl. 14.00. Minningarathöfn verður haldin í Fossvogs- kapellu miðvikudaginn 22. júlí, kl. 15.00. Kristín Jóhanna Björnsdóttir, Kristján Skarphéðinsson, Ingveldur Birna Björnsdóttir, Guðjón Hallgrfmsson, María Dóra Björnsdóttir, Guðmundur Haukur Gunnarsson og barnabörn. KOLBRÚN MARÍA EINARSDÓTTIR + Kolbrún María Einarsdóttir, fæddist í Reykjavík 3. september 1980. Hún lést í Reykja- vík 11. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hennar eru: Hólm- fríður Gröndal og Hrafn Hákonarson. Uppeldisfaðir henn- ar er Einar Andrés- son. Systkini Kol- brúnar eru: sam- mæðra, Ingibergur Einarsson, sam- feðra: Atli Sigmar, Hrafnhildur Soffía, og Hákon Ólafur Hrafnsbörn. Kolbrún ólst upp í Kópavogi, Selfossi og Reykja- vík. Hún var valin efnilegasti borð- tennismaður Vík- ings 1995 og vann þrjá Islandsmeist- aratitla í borðtennis árið 1995 og fjóra íslandsmeistaratitla árið 1996. Hún var í Landsliði Islands í borðtennis frá 1995. Kolbrún var nem- andi í framhalds- skóla þegar hún veiktist í janúar 1997. títför Kolbrúnar Maríu fer fram frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson) Elsku Kolla vinkona okkar. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman. Þó það hafi geng- ið á ýmsu hjá okkur í gegnum tíðina voru góðu stundirnar miklu fleiri og það eru þær sem við munum minn- ast þegar við hugsum til þín. Við biðjum góðan Guð að geyma þig. Fjölskyldu Kollu sendum við okk- ar dýpstu og innilegustu samúðar- kveðjur á þessum sorgarstundum. Þínar vinkonur, Brynhildur og Eva. Þau ljós sem skærast lýsa en brenna líka hraðast þau ljós sem skína glaðast og fyrr en okkur uggir þau bera mesta birtu fer um þau harður bylur + Systir okkar, ÁSTHILDUR KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR, lést á Landspítalanum laugardaginn 18. júlí. Ólafur Björnsson, Þorbjörg Björnsdóttir. + Ástkær sambýlismaður minn og faðir okkar, SVEINN AUÐUNN JÓNSSON (BEISI) rafeindavirkjameistari, Selvogsgötu 8, Hafnarfirði, lést 19. júlí á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Fyrir hönd aðstandenda, Árdís Markúsdóttir, Arna Björk Sveinsdóttir, Gunnar Grétar Gunnarsson, Katrín Sveinsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐMUNDA AÐALHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Höfðagrund 23, Akranesi, lést laugardaginn 18. júlí á Sjúkrahúsi Akraness. Hún verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 24. júlí kl. 14.00. Vigfús Runólfsson, Margrét Vigfúsdóttir, Sigbergur Friðriksson, Aðalheiður Sigbergsdóttir, Auður Sigbergsdóttir. + Faðir okkar, GUNNAR JÓHANN GUÐMUNDSSON frá Másstöðum, dvalarheimilinu Jaðri Ólafsvík, lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 18. júlí. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 23. júlí kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Gunnarsdóttir, Baldur H. Baldursson, Guðjón B. Gunnarsson, María Magnúsdóttir og börn. + Elskuleg eiginkona mín, ÞÓRUNN STEINDÓRSDÓTTIR, Engimýri 9, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 18. júlí. Tryggvi Kristjánsson. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvflast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðist njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því þú ert hjá mér, sproti þinn og stafiir hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyrð höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð íylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Elsku Kolla, hafðu þökk fyrir allt sem þú gafst okkur. Ástvinum Kollu sendum við samúðarkveðjur og biðjum Guð að veita þeim styrk. Ég fel í forsjá þína Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Minningin um yndislega stúlku lifir. Vinir á Reykjalundi. Ég tók þátt í lífi þínu fyrstu mán- uði þess og einnig þá síðustu. Þú varst bara nokkurra vikna gömul þegar ég sá þig fyrst. Móðir þín sýndi mér skipulagið á fötunum og öðru sem til þurfti og spurði svo: „Heldurðu ekki að það verði bara gaman að passa svona lítið kríli?“ Svo sannarlega var það gaman. Ég lék við þig, heyrði þig hjala og sá þig brosa. Og þegar þú varst óróleg gekk ég með þig um gólf og huggaði þig með söng, þar til þú sofnaðir á öxlinni á mér og ég tímdi varla að leggja þig frá mér. Eins og ég sagði þér síðasta daginn okkar saman - ég elskaði þig. Frænkur þínar, Sig- rún og Berglind heitin vildu líka hjálpa til og komu með uppástungur sem gætu kannski komið að gagni til að hugga þig, eins og t.d. þegar Sigrún stakk upp á þvi að ég gæti bara gefið þér brjóstið eins og mamma þín gerði! En leiðir okkar skildu og ég týndi þér. Stundum hugsaði ég til þín og velti fyrir mér hvar þú værir niður- komin og hitti þig svo á Reykjalundi í vetur sem leið. Þá voru liðin u.þ.b. átján ár frá því ég sá þig síðast svo ég þekkti þig auðvitað ekki í sjón. Þú varst fyrst af vistfólkinu til að heilsa mér, spurðir mig blíðlega hvort ég væri nýkomin, tókst í hönd mína og kynntir þig. Kvöld eitt lent- um við svo á spjalli og þú sagðir mér aðeins frá þér og lífi þínu. Þegar þú svo sagðir mér frá skyldfólki þínu rann upp fyrir mér ljós. Ég breiddi út faðminn og nærri hrópaði: „Kol- brún - elskan mín, ert þetta þú?“ Síðan höfðum við frá mörgu að segja og margar voru spurningarnar sem við spurðum hvor aðra. I gamni okk- ar stungum við stundum upp á því

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.