Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 41

Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 41*1 að þú þyrftir endilega að koma og hvfla á öxlinni á mér um stund og ég gæti sungið aðeins fyrir þig, og reyndar fékk ég tækifæri til þess að halda utan um þig aftur og hugga þig eins og þegar þú varst lítil. Þá sýndir þú aðdáunarverða skynsemi og þroska þrátt fyrir sárindin. Við áttum margar góðar stundir saman, bæði með öðru vistfólki og tvær saman. M.a. fórum við í verslunar- leiðangur þar sem þú aðstoðaðir mig við að kaupa gjafir handa bömunum mínum fjórum. Þú hlakkaðir til að fá að hitta þau og er þau komu í heim- sókn varstu óspör á hrósyrðin í þeirra garð. Eftir stutt kynni varstu svo komin með yngstu dóttur mína í fangið, hún lagði höfuðið á öxl þína og undi sér þar á sama hátt og þú gerðir hjá mér sem bam. Þú hefðir orðið frábær fóstra, vomm við nokk- ur sem sögðum við þig og þú sagðist vel geta hugsað þér það starf. Eftir fjóra mánuði saman var komið að kveðjustund. Við tókum hvor utan um aðra og héldumst í hendur. Ég lét þig fá lítinn miða þar sem á stóð m.a. „ég vil ekki týna þér aftur“, og við voram ákveðnar í að halda sambandi. Þú ljómaðir, Kolla, og ég fann hvað mér þótti vænt um þig- Nú ert þú farin úr þessum heimi en ég hef alls ekki týnt þér fyrir því, og geri mér grein fyrir því núna, að ég hafði aldrei týnt þér, þó að ég hitti þig ekki þessi átján ár sem við voram aðskildar. Því þú varst alltaf til í hjarta mér og minningu og þar muntu koma til með að vera, elsku vina, alltaf. Börnin mín tala um þig og biðja um kveðju til þín. Sunniva söng lag um daginn og þegar ég þakkaði henni fyrir sönginn sagði hún: „Þetta var líka sungið fyrir Kollu af því að hún er dáin.“ Já, bömin era alltaf einlæg. Hólmfríður, Kolbrún og Sigrún, ég ber ykkur mína dýpstu samúð, hugur minn er hjá ykkur. Megi ykk- ur veitast Guðs máttur til að ganga áfram hina erfíðu þrautagöngu sem lögð hefur verið á ykkur. Ég bið al- góðan Guð að geyma Kolbrúnu Maríu og þakka fyrir þann tíma sem ég fékk með henni. Freyja Kristjánsdóttir. Aldrei mun ég gleyma henni Kollu. Hún var alltaf brosandi og grænu augun hennar glömpuðu sem andstæður við rauða hárið hennar sem átti sér enga hliðstæðu. Húðin hún var ferskjulit hárið rautt sem eldur. Ein ég núna eftir sit innri sorg mér veldur. Það var ekki bara þetta hár og þessi augu sem gerðu hana sérstaka heldur líka það að hún var alltaf til- búin að hjálpa öðram. Við kynnt- umst þannig að hún kom til mín einn daginn í skólanum, þar sem ég var grátandi, og huggaði mig. Eftir þetta urðum við bestu vinkonur og eyddum öllum stundum saman. Ég man eftir því að við voram alltaf úti í körfubolta, að verpa eggjum eða í snú snú. Jafnvel þó að ég ætti heima í öðram hluta borgarinnar geymdi ég hjólið mitt hjá henni og við hjóluðum allt sumarið. Við vor- um rétt að uppgötva andlitsmálingu og fóram í fjölskyldugarðinn „mál- aðar“ með grænan augnskugga, fjólubláan maskara og rauðan vara- lit. Þegar við komum heim úr skól- anum var ávallt vinsælt að fara út í 11 og kaupa sér hamborgara og kók, eða ef við áttum enga vasapen- inga eftir bjuggum við bara til brauð í eggi eins og Kollu var einni lagið. Það era svo margar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa um hana Kollu og því verð ég aðeins að nefna nokkur atriði. Ég er heppin að eiga hafsjó minninga um hana og þess vegna veit ég að ég mun aldrei gleyma henni. Sigríður Björk. • Fleirí minningargreinar um Kolbrtínu Maríu Einarsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. t Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, RAGNHILDUR GUÐRÚN EGILSDÓTTIR, Hlégerði 23, Kópavogi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt sunnudagsins 19. júlí. Kristján Jónsson, Ingvar Kristjánsson, Halla Ágústsdóttir, Ágústa Kristrún Ingvarsdóttir, Ragnildur Björk Ingvarsdóttir. t Bróðir okkar, GUÐMUNDUR LÚÐVÍK DAVÍÐSSON, Ásláksstöðum, Vatnsleysuströnd, andaðist laugardaginn 18. júlí. Helgi, Þórir og Marino Davíðssynir. t Þökkum vinarhug og samúð vegna andláts og útfarar HILDU ELÍSABETH GUTTORMSSONAR frá Síðu, Nestúni 6, Hvammstanga. Guð blessi ykkur. Sölvi Guttormsson, Arndís Helena Sölvadóttir, Guttormur Páll Sölvason, Kristbjörg Gunnarsdóttir, Sigurbjörg Berglind Sölvadóttir, Eðvald Daníelsson, barnabörn og fjölskyldur. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JENNÝAR ÁSMUNDSDÓTTUR, Akurgerði 7, Reykjavík. Anna Lára Axelsdóttir, Guðmundur Kr. Þórðarson, Ómar Axelsson, barnabörn og barnabarnabörn. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF FERDAFÉIAG # ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Spennandi helgarferðir 24.-26. júlí 1. Hveravellir — Þjófadalir. Brottför kl. 19.00. Gist á Hvera- völlum. Gengið í Jökulkrók við Langjökul. 2. Þórsmörk — Langidalur. Brottför kl. 20.00. Helgarferð á sérkjörum. Gönguferðir við allra hæfi. Þórsmerkurhelgi fjölskyld- unnar verður 7.-9. ágúst. 3. Fimmvörðuháls — Þórs- mörk. Brottför kl. 20.00. Gengið yfir hálsinn á laugardeginum. Ekki eru síður spennandi ferðir um verslunarmanna- helgina: 1. 31.7.—3.8. Nýidalur - Há- göngulón — Vonarskarð. Brottför kl. 18.00. 2. 31.7.-2.8. og 3.8. Þórs- mörk — Langidalur. Brottför kl. 20.00. Dvalið í hjarta Þórsmerkur meðð gönguleiðum til allra átta og góðri gistingu í Skagfjörðsskála. 3. 1.8.—3.8. Landmannalaug- ar — Eldgjá — Löðmundur. Brottför kl. 8.00. Stytt ferð. Minnum á sumarleyfisferð- irnar, m.a. á „Laugaveginn". Uppl. og farmiðar á skrifst. í Mörkinni 6. Sjáið textavarp bls. 619. FERÐAFELAG ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Miðvikudagur 22/7 Kl. 8.00 Þórsmörk. Dagsferð eða til lengri dvalar. Fimmtudagur 23/7 Kl. 18.00 Þórsmörk. Vinsamlegast bókið Þórs- merkurferðir fyrirfram. Miðvikudagur 22/7 kl. 20.00 Síðasta kvöldganga með Um- hverfis- og Útivistarfélagi Hafn- arfjarðar: Straumssel — Gjá- sel. Sjá nánar í miðviku- dagsblaði. ÝMISLEGT HPersónulýsing, Gudmundsson. Uppl. í síma 553 7075. Sendum í póstkröfu. + ( dag, þriðjudaginn 21. júlí kl. 13.30, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju EINAR AÐALSTEINSSON tæknifræðingur, Mosarima 9, Reykjavík. Anna S. Björnsdóttir, Sólveig Krista Einarsdóttir, Einar Hlér Einarsson, Kristín Erla Einarsdóttir, Aðalsteinn Ólafur Einarsson, Ásbjörn Sirnir Arnarson, Starkaður Örn Arnarson, fjölskyldur, systkini og aðrir ástvinir. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug í okkar garð vegna fráfalls AXELS CLAUSEN, Engjaseli 31, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans, deild 11-E, fyrir góða umönnun. Halldóra Svava Clausen, Axel Axelsson Clausen, Kristbjörg Magnúsdóttir, Kristrún Þóra Clausen, Svava Viktoría Clausen, Hermann Gunnarsson, Jenni Guðjón Axelsson Clausen, Ólöf Eir Halldórsdóttir, Svanfríður Clausen, Halldóra Jóhannsdóttir, afabörn og langafabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærrar móður minnar, ömmu og langömmu, KRISTJÖNU ÞORKELSDÓTTUR, Vesturgötu 7. Guð blessi ykkur öll. Skúli Einarsson, Ingifríður R. Skúladóttir, Guðmundur Gunnarsson, Ámi Einar Skúlason, Einar Jón Skúlason, Alexía Ýr Magnúsdóttir, Guðmundur Dór Guðmundsson, Einar Kristján Guðmundsson, Hrafnkell Skúli Guðmundsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRUNN GUÐMUNDA KRISTINSDÓTTIR, Grandavegi 47, Reykjavik, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 22. júlí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Jónína U. Bjarnadóttir, Björgvin Jónsson, Þórarinn Bjarnason, Guðrún Bjarnadóttir, Gfsli Ófeigsson og barnabörn. •4 + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, UNNAR GÍSLADÓTTUR BACHMANN, Eskihlíð 20, Reykjavík. Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun til starfsfólks á 7-A Borgarspítalanum. Sigurður Bachmann, Birgir Bachmann, Þórunn B. Jónsdóttir, Hörður Bachmann, Auður Kjartansdóttir, Gísli Bachmann og barnabörn. ________________________________________r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.