Morgunblaðið - 21.07.1998, Qupperneq 42
3*42 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998
MINNINGAR
MOBGUNBLADIÐ
EINAR
AÐALS TEINSSON
+ Einar Aðal-
steinsson fædd-
ist á Akureyri 19.
j'úní 1941. Hann lést
í Mílanó á Ítalíu 9.
júlí síðastliðinn.
Foreldrar hans
voni hjónin Ólöf
Aðalheiður Frið-
riksdóttir, hjúkrun-
arkona, f. 7. nóvem-
ber 1914 á Selabóli í
Önundarfírði, d.
1996, og Aðalsteinn
Ólafur Einarsson,
aðalgjaldkeri
K.E.A. á Akureyri,
f. 2. maí 1906 á Eyrarlandi í
Eyjafirði, d. 1985. Þau bjuggu í
Helgamagrastræti 24 á Akur-
eyri. Einar var elsta barn for-
eldra sinna en systkini hans eru
Margrét, f. 1946, Erlingur, f.
1946, Gunnar, f. 1947, d. 1977,
og Gylfi, f. 1950.
Árið 1964 kvæntist Einar
Höllu Ólafsdóttur, læknaritara,
f. 3. 2. 1945, d. 1994. Börn
þeirra eru Aðalsteinn Ólafur, f.
29. 9. 1965, óperusöngvari í
Bandaríkjunum, kvæntur Emi
^y-TTHa. og Kristfn Erla, f. 25.10
1969, nemi í Reykjavík, hún
var gift Elíasi Birgi Andrés-
syni, börn þeirra eru Elva
Katrín, f. 1990, og Heiðar Logi,
f. 1992. Einar og
Halla skildu. Seinni
kona Einars er
Anna S. Björnsdótt-
ir, ljóðskáld. Börn
þeirra eru Sólveig
Krista, f. 14.2.
1980, og Einar
Hlér, f. 23.6. 1982.
Synir Önnu af fyrra
hjónabandi eru Ás-
björn Sírnir, f. 19.9.
1970, og Starkaður
Örn, f. 16.8. 1972.
Ásbjörn er kvæntur
Kolbrúnu Júlíu Er-
lendsdóttur og eru
dætur þeirra Malena Sif, f.
1989, og Anna Lilja, f. 1992.
Einar lauk stúdentsprófí frá
M.A. 1961 og námi í rafeinda-
tæknifræði frá Norges
Tekniske Höjskole í Þránd-
heimi árið 1969. Hann starfaði
sem tæknifræðingur hjá Slipp-
stöðinni á Akureyri frá 1969 til
1976, og var framkvæmdastjóri
Örtækni, vinnustofu Öryrkja-
bandalags Islands frá 1976 þar
til hann lést. Hann var félagi í
Guðspekifélagi Islands og sat í
stjórn þess til dauðadags.
Utför Einars fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Sumrin í Helgamagrastrætinu
eru meðal fyrstu og dýrmætustu
bernskuminninga minna. I húsinu
hjá ömmu og afa sameinaðist stór-
fjölskyldan á sumrin og jólum,
systkinin fímm Einar, Magga, Elli,
Gunni og pabbi ásamt bömum sín-
^tim og mökum. Gunnar, afí og
amma era látin og nú Einar líka, að-
eins 57 ára gamall. Þegar ég hugsa
til þessa tíma minnist ég Einars
fyrst og fremst sem fóður Adda og
Kristínar, hægláts frænda sem lék
falleg tónverk á píanóið meðan við
elstu frændsystkinin sjö ærsluð-
umst í húsinu og garðinum. Eg
minnist þess ekki að hann hafi
nokkurn tímann ávítað okkur
krakkana eða reynt að hamla leik-
gleði okkar á nokkurn hátt. Þegar
Einar kom í Helgamagrastrætið fór
hann ávallt að gera við eitt og annað
sem aflaga hafði farið, einkum það
sem tengdist rafmagni. Ég frétti
síðar að hann hafi snemma fengið
sérstakan áhuga á tækni og raun-
*Hísindum. Sem dæmi má nefna að
aðeins átján ára gamall smíðaði
hann með félaga sínum tæki til að
mæla geislavirkni eftir teikningum
sem hann fékk sendar frá Samein-
uðu þjóðunum. En það var einmitt á
þeim árum sem kjamorkuvopn voru
að þróast og mikið um tilrauna-
sprengingar. Síðast þegar ég vissi
var þetta tæki enn til í húsi Mennta-
skólans á Akureyri. Um svipað leyti
hafði hann einnig tengt útvarpið í
stofunni við hátalara í flestum her-
bergjum hússins. Hann var einnig
radíóamatör og smíðaði mörg tæki
og tól til þess sjálfur. Áhugi Einars
á tækni og rafmagni varð til þess að
heimilið í Helgamagrastræti varð
fljótlega mjög tæknivætt, hann sá
til þess að keypt væru nýjustu seg-
ulbandstækin á markaðinum, raf-
magnspottar og fieira. Einar var
elstur systkinanna og þegar þau
yngri hafa rifjað upp endurminning-
ar frá bernskuárunum er þeim tíð-
rætt um hjálpsemi Einars. Öll hafa
þau notið leiðsagnar stóra bróður í
stærðfræði og eru sammála um að
hann hafi verið einstakur kennari.
Amma var mjög áhugasöm um
guðspeki og umræður um þau mál-
efni voru ailtaf ofarlega á baugi í
Helgamagrastrætinu. Seint á sjö-
unda áratugnum vaknaði áhugi Ein-
ars á guðspekinni og hefur æ síðan
á hug hans. Ég, eins og aðrir í fjöl-
LEGSTEINAR f Marmari
Islensk framleiðsla Granít
Vönduð vinna, gott verð Blágrýti
Sendum myndalista Gabbró
MOSAIK Líparít
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími 5871960, fax 5871986 1
LEGSTEINAR
I rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
Sg S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
skyldunni nutum þess að ræða við
Einar um hugðarefni hans, enda var
hann einstaklega víðlesinn og upp-
lýstur maður.
Það fór ekki mikið fyrir persónu
Einars, en verk hans, orð og at-
hugasemdir fengu mann oft til að
hugsa og munu lengi hafa áhrif.
Nú þegar ég kveð elskulegan
frænda minn vil ég þakka honum
samfylgdina, dýrmætar samræður
og tónlistina sem hann lék svo fal-
lega á píanóið. Ég veit að við mun-
um hittast aftur.
Einar var svo gæfusamur að
eignast fjögur börn og tvö baraa-
börn, sem hann var afar stoltur af.
Þau og Anna hafa nú misst mikið.
Ég votta þeim og öðrum aðstand-
endum samúð mína.
Elfa Ýr Gylfadóttir.
Kveðja frá Öryrkjabandalagi
Islands
Það hefur sannarlega syrt að í
ranni, sumarið hefur brugðið lit sín-
um og ljóma í harmi slegnum hug,
þegar við sjáum nú á bak okkar ein-
læga og trausta samstarfsmanni.
Sviplegt slys í fjarlægu landi hef-
ur svipt okkur ágætum vini, í andrá
snöggri er öll saga mikils sóma-
manns, sem átti svo ótalmargt ógert
á akri sinna mætu áhugamála, á
starfsvettvangi sínum við hlið okkar
einnig.
Eftir sitjum við hljóð og hugur
reikar til ljúfra, liðinna stunda með
hinum lyndisglaða og prúða félaga
sem Einar var. Hér átti hann hand-
tök mörg og mæt, mikla og fjöl-
þætta átti hann þekkinguna, hann
skildi manna best töfra tækninnar
og tileinkaði sér þá útsjónarsamur,
athugull og úrræðagóður. Til hans
var leitað ef eitthvað fór úr lagi,
fumlaust og af ágætu innsæi kom
hann öllu í samt iag á ný. Verkstjóm
hans á vinnustað var til fyrirmynd-
ar, samviskusamur og ákveðinn ef
því var að skipta og hlýja hans og
hjálpfýsi gerði það að verkum að
undir handleiðslu hans hlaut mönn-
um að þykja harla gott að starfa.
Einar var hugsandi maður og
leitandi, hann vildi laða fram hið
besta i mannssálinni, guðspekin átti
hug hans og var honum mikils virði
og engum kom á óvart þótt hann
veldist þar til forystu fremst.
Á vettvangi guðspekinnar átti
hann afar farsæla sögu, enda ágæt-
lega fróður um öll þau mál og víð-
lesinn vel, ritaði margar greinar og
var fær fyrirlesari. Guðspekin var
honum hjartans mál, og öfgaleysi
hennar í eilífri leit hennar að ein-
hverju æðra og sannara höfðaði
mjög til hans. Fyrir félag sitt var
hann verður fulltrúi á erlendum
vettvangi og jók þannig þjóðarhróð-
ur.
Einar var maður fremur dulur og
flíkaði ekki mjög innri hug né til-
finningum, en einlægni hans og
ágæta málafylgju mátum við mikils.
Og stutt var í streng góðrar gleði,
hann kunni þá list að henda góðlát-
legt gaman að hlutunum, frásögn
hans öll ljós og lifandi og leiftrandi
átti hann tilsvörin þegar við átti.
'4?
\
/
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
Smitandi hlátur hans ómar í eyrum
í eftirsjá okkar nú.
Við minnumst með söknuði sár-
um hins hjartahlýja drengskapar-
manns, ljúflyndis hans og heillynd-
is, hversu góður félagi hann var í
dagsins önn og amstri.
Fyrir vinnustað Öryrkjabanda-
lagsins er missirinn mikill og ekki
síður öllum þeim er fengu að eiga
hann að í stjrrkri handleiðslu í
starfi, þar munu menn sakna góðs
vinar og stjórnanda. En sárastur og
tilfinnanlegastur er missir eigin-
konu hans og barna sem og annarra
er áttu hann nánastan. Héðan eru
þeim sendar innilegustu samúðar-
kveðjur og þess einlæglega beðið að
mætar minningar um mannkosta-
mann megi létta þeim þeirra sáru
sorg. Örlögin í öllu sínu óræða víð-
feðmi vora Einari vini okkar hug-
leikin sem og lífsgátan öll í sínum
margbreytileik. Vakandi huga og
leitandi vildi hann fá þar sem sönn-
ust svör. Örlög grimm hafa nú
bundið enda á ævigöngu þessa önd-
vegisdrengs. Við lútum höfði í
hryggð er við þökkum frábæra
fylgd um árin öll, fylgd sem vörðuð
er merlandi minningum sem munu
varðveittar í huga okkar.
Blessuð sé björt minning,
Helgi Seljan
En minningin andar í okkar sál
sem ilmur frá dánum rósum.
Þau sorgartíðindi bárust okkur
10. þ.m. að vinur og starfsfélagi,
Einar Aðalsteinsson, hefði látist af
slysföram erlendis. Við slík tíðindi
setur mann hljóðan og maður neitar
að trúa, en síðan fara minningarnar
að streyma fram og raðast saman
eins og perlur á bandi.
Einar kom til starfa hjá vinnu-
stöðum ÖBÍ árið 1976. Þau voru því
orðin mörg árin sem við höfðum
unnið saman. Við fundum fljótt að
þar fór grandvar og góður drengur,
sem með sinni rólegu yfirvegun og
hlýju framkomu vann hugi sam-
starfsfólksins. Hann var yfirmaður
tæknideildar vinnustaða ÖBI frá
stofnun hennar til dauðadags. Á
vinnustöðum sem þessum reynir
mikið á samskiptahæfileika, skiln-
ing og þolinmæði og þá eiginleika
átti Einar í ríkum mæli. Hann
hlustaði á fólk og vildi hvers manns
vanda leysa.
Hann var að sjálfsögðu mikill
tölvumaður og óþreytandi að kenna
okkur á skrifstofunni og leiða okkur
um vandrataða vegu tækninnar.
Þegar ákveðið var að taka veraldar:
vefinn (internetið) í notkun hjá ÖBI
sá hann um það af mikilli piýði og
þekkingu.
Einar var hugsandi maður og
áhugamál hans lágu líka á andlega
sviðinu, því guðspekin skipaði háan
sess í huga hans. Var hann af þess-
um sökum oft dálítið annars hugar
og varð það okkur oft að hlát-
ursefni, ekki síst honum sjálfum.
Hann var góður vinur og starfsfé-
lagi og við áttum saman ótal
skemmtilegar stundir við góðar og
oft uppbyggilegar samræður, þar
sem hann miðlaði okkur af þekk-
ingu sinni og fróðleik um alls konar
efni. Einar var líka glaður og reifur
á góðum stundum og hló oft dátt að
skrítlum og skemmtisögum dag-
anna sem lífga upp á alla vinnustaði.
Nú söknum við vinar í stað. Þessi
hógværi vinur okkar er horfinn af
þessu sjónarsviði meira að starfa
guðs um geim. Söknuður fyllir hug
okkar og hjörtu og erfitt er að sætta
sig við orðinn hlut. En öll él birtir
upp um síðir og vor fylgir vetri. Við
H
H
H
Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
w j Jlllll JVt. KJt
niiiiiii
Simi 562 0200
III
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
yljum okkur við ljúfar minningar
um góðan vin og starfsfélaga og
samhryggjumst fólkinu á vinnu-
staðnum okkar, sem sér nú á bak
ljúfum og réttlátum yfirmanni.
Eiginkonu, böraum og öðrum að-
standendum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Guð launi honum lífsstundirnar.
Anna og Ásgerður.
í dag er jarðsunginn mætur heið-
ursmaður, Einar Aðalsteinsson
tæknifræðingur, fyrrverandi forseti
Guðspekifélags íslands. Fráfall
hans á miðjum aldri var óvænt og
sviplegt, en við guðspekifélagar höf-
um notið þróttmikils og skapandi
framlags hans í starfsemi félagsins,
nú síðast á sumarskóla félagsins á
Laugarvatni í lok júní sl. Einar hef-
ur undanfarna áratugi helgað
starfskrafta sína að stórum hluta
Guðspekifélaginu, og hann hefur
um langt árabil átt sæti í stjórn
þess. Hann var forseti félagsins á
áranum 1977 til 1979 og frá árinu
1989 þar til í fyrra er hann óskaði
eftir að láta af starfinu. Okkur fé-
lögum hans verður það mikili sjón-
arsviptir að sjá hann ekki lengur á
félagsfundum og í forystu félagsins,
en við áttum eins von á því að sjá
hann í framtíðinni á ný sem forseta
félagsins. Starf Einars fyrir Guð-
spekifélagið á undanförnum áratug-
um hefur verið ómælt með fyrir-
lestrum, leiðbeiningum, hugleið-
ingastundum og öðru hagnýtu starfi
fyrir félagið, en ósérplægni var rík-
ur þáttur í fari hans. Er mikið skarð
fyrir skildi við fráfall hans og hefur
Guðspekifélagið misst einn af ötul-
ustu forvígismönnum sínum.
Ég kynntist Einari fyrir um 15
árum og tókst þá með okkur góð
vinátta. Einar hafði mikið innsæi og
hafði aflað sér óvenju umfangsmik-
illar og djúprar þekkingar á þeim
viðfangsefnum, sem við fáumst við í
Guðspekifélaginu. Hafði hann mikil
áhrif á okkur félagsmenn með inn-
sýn sinni og mannskilningi. Einar
var hvers manns hugljúfí, góðviljað-
ur og bar hlýhug til alls. Hann tal-
aði jafnan blaðalaust og þurfti Iítinn
undirbúning, er hann ávarpaði okk-
ur. Heillaði hann okkur og snerti
hug okkar og hjarta með sjálf-
sprottnum athugasemdum og fram-
komu sem honum var eðlislæg.
Sterkur þáttur í skapgerð hans var
einmitt að fanga augnablikið. Gat
hann þá oft verið allt í senn andrík-
ur, orðheppinn og skemmtilegur.
Hefur hann á síðustu áratugum haft
mikil áhrif á viðhorf innan félagsins
til huglægra og heimspekilegra efna
og á þróun íslandsdeildar félagsins
almennt. Hins mikla framlags hans
til Guðspekifélagsins verður lengi
minnst.
Við guðspekifélagar vottum eig-
inkonu hans, Önnu Björnsdóttur,
börnum og barnabörnum, innilega
samúð okkar.
Jón L. Arnalds
Þann 10. júlí barst mér sú sorgar-
frétt að verkstjóri minn Einar Aðal-
steinsson hefði látist daginn áður.
Mig setti hljóðan. Árið 1994 hóf ég
störf hjá Örtækni. Strax þegar ég
kom í vinnu tók Einar á móti mér
og ég fann strax fyrir hlýju og um-
hyggju frá Einari. Einar var alveg
sérstakur maður. Hann vissi bók-
staflega ailt sem viðkom starflnu og
höfðu kúnnar okkar orð á því
hversu fær maður hann væri. Að
vera verkstjóri á stað sem er fyrir
öryrkja er vandasamt starf og Éin-
ar var alveg einstaklega laginn við
okkur starfsmennina. Það var sama
hvað kom upp á, alltaf tók Einar
öllu með stakri ró og lét okkur
aidrei fínna íyrir því að við höfðum
gert mistök. Einar var mikill vinur
okkar starfsmannanna og var sér-
staklega gott að tala við hann. Ein-
ar reyndist mér persónulega mjög
vel þegar ég átti í erfiðleikum og
fyrir það vil ég þakka honum.
Það verður mikill sjónarsviptir að
Einari sem var í senn mikill prýðis-
maður og góður vinur okkar allra.
Ég bið góðan guð að styrkja fjöl-
skyldu Einars.
Guðjón Sigurðsson.