Morgunblaðið - 21.08.1998, Page 10

Morgunblaðið - 21.08.1998, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Guðmundur Bjarnason þótti hæfastur umsækjenda um stöðu framkvæmdastjóra fbúðalánasjóðs Hyggst láta af embætti ráðherra um næstu áramót Allt stefnir í það að Guðmundur Bjarnason umhverfis- og landbún- aðarráðherra verði ráð- inn framkvæmdastjóri ~y....—--------------- Ibúðalánasjóðs á næst- unni og láti af embætti ráðherra um næstu áramót. Arna Schram komst að því að ekki er víst að framsóknar- Guðmundur Bjarnason Valgerður Sverrisdóttir Guðni Águstsson menn velji annan ráðherra í hans stað á þessu kjörtímabili, þótt ákveðnar vangaveltur séu uppi um hugsanlegan eftirmann. Undirbúinigsnefnd um stofnun íbúðalána- sjóðs ákvað á fundi sínum í gærmorgun að fela Gunnari S. Björnssyni formanni nefndarinnar og Árna Gunnarssyni, aðstoðar- manni félagsmálaráðherra, að ganga til viðræðna við Guðmund Bjarnason umhverfís- og landbún- aðarráðherra á grundvelli umsókn- ar hans um stöðu framkvæmda- stjóra Ibúðalánasjóðs. Sautján um- sóknir bárust um stöðuna og segir Gunnar S. Bjömsson formaður undirbúningsnefndarinnar að það hafi verið sameiginlegt álit nefnd- arinnar að ganga til viðræðna við Guðmund Bjarnason þar sem hann hafi þótt hæfastur af þeim sem sóttu um stöðuna. Undirbúningsnefnd Ibúðalána- sjóðs ræður í framkvæmdastjóra- stöðuna og að sögn Gunnars er stefnt að því að viðræðum við Guð- mund ljúki í næstu viku. I þeim viðræðum verður meðal annars rætt um það hvenær Guðmundur kemur til starfa, en Ibúðalána- sjóður tekur við verkefnum Hús- næðisstofnunar ríkisins í upphafi næsta árs. Guðmundur Bjarnason kveðst í samtali við Morgunblaðið vonast til þess að samningavið- ræðurnar gangi vel og að gengið verði frá ráðningunni fyrr en seinna. Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra og formaður Framsókn- arflokksins, segir að koma verði í ljós hvort og þá hvenær Guðmund- ur fái starfíð. „Eftir að það liggur ljóst fyrir munum við ákveða hvenær hann lætur af störfum og hvernig þau mál verða leyst innan flokksins," segir Halldór, sem staddur er í Suður-Afríku. „Ef Guðmundur fer í þetta starf mun hann ekki gefa kost á sér sem varaformaður flokksins og arftaki hans yi’ði þá kosinn á flokksþingi í nóvember." Spurður hvort hann styðji Guð- mund í þeirri ákvörðun að sækja um starf framkvæmdastjóra íbúðalánasjóðs, segir Halldór: „Ég tel að Guðmundur sé mjög hæfur til að gegna þessu starfí og hafí alla burði til þess. Ég hef mjög góða reynslu af samstarfí við Guðmund Bjarnason og gef honum mín bestu meðmæli.“ Ákvað nýlega að sækja um Aðspurður játar Guðmundur því að ákvörðun hans um að sækja um stöðu framkvæmdastjóra Ibúða- lánasjóðs hafí borið brátt að og segir að hann hafi ekki velt því fyr- ir sér að sækja um starfíð fyrr en staðan hafi verið auglýst í sumar. „Ég hafði ekki leitt hugann að þessu máli sérstaklega fyrr en þessi staða var auglýst," segir Guð- mundur og kveðst þá hafa farið að velta því fyrir sér hvort þetta væri ekki kjörið tækifæri til þess að skipta um starfsvettvang. Starfíð væri metnaðarfullt og honum fynd- ist hann fyllilega geta tekist á við það. „Ég ákvað að skoða þetta til hlít- ar og gera það þá upp við mig í leiðinni hvort ég ætlaði að vera í stjómmálunum það sem eftir er af minni starfsævi, hvoi’t sem það hefði verið eitt kjörtímabil í viðbót eða tvö,“ segir hann og heldur áfram. „Ég er búinn að vera í þing- inu í 19 ár og þar áður í sveitar- stjórnarpólitík í sjö ár, þannig að ég er búinn að eyða löngum tíma ævi minnar í stjómmálavafstrið, en er þó ekki enn á þeim aldri að ég sé tilbúinn til þess að fara að setjast í einhvern hægindastól eða helgan stein,“ segir hann og bætir við: „Þess vegna hlaut ég að hrökkva eða stökkva." Aðspurður segist hann gera ráð fyrir því að hætta þingmennsku og ráðherradómi um áramótin, en þá er gert ráð fyrir því að íbúðalána- sjóður taki til starfa, samkvæmt nýju húsnæðislögunum. Rætt um Valgerði og Guðna sem hugsanlega arftaka Umsókn Guðmundar um starf framkvæmdastjóra Ibúðalánsjóðs virðist hafa komið mörgum fram- sóknannönnum á óvart, þó lengi hefði verið orðrómur um að Guð- mundur væri á leið út úr stjórn- málum. Einn heimildarmaður Morgunblaðsins segir auk þess að þetta beri upp á heldur óheppileg- an tíma, þar sem formaður flokks- ins, Halldór Ásgrímsson, sé í opin- berri heimsókn í Afríku um þessar mundir og komi ekki til landsins fyrr en í næstu viku. Sami heimildarmaður bendir hins vegar á að í kjördæmunum væri fólk þegar farið að velta fyrir sér eftirmanni Guðmundur í ráð- herrastól og samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins virðast þrjú nöfn gjarnan vera nefnd í því sam- bandi, þ.e. nöfn þeirra Valgerðar Sverrisdóttur, Guðna Ágústssonar og Sivjar Friðleifsdóttur. Ekki hefur þó gefist tími til að ræða þessi mál formlega á þingflokks- fundi, en í samtölum blaðamanns við nokkra þingmenn virðast Val- gerður og Guðni helst koma til greina. Arftaki Guðmundar sem þing- maður ætti hins vegar að vera Jó- hannes Geir Sigurgeirsson for- maður stjórnar Landsvirkjunar, en hann er fyrsti varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norður- landskjördæmi eystra. Aðspurður hvort hann hyggist taka við þing- sætinu segist hann munu taka af- stöðu til þess þegar þar að komi, en þá þyrfti hann að meta það hvort það samræmdist sínum áætlunum. Samkvæmt heimildamönnum Morgunblaðsins þykir Valgerður koma nokkuð sterkt til greina sem arftaki Guðmundar, m.a. vegna þess að hún er formaður þing- flokks Framsóknai’flokksins og hefur verið lengi á þingi. Þá þyki það kostur að hún er kona, þar sem flokkurinn sé að reyna að bæta ásýnd sína í jafnréttismálum. Guðni þykir þó einnig koma sterk- lega til greina, m.a. vegna þess að hann hafí verið lengi á þingi og leiði lista framsóknarmanna í Suð- urlandskjördæmi, en auk þess er hann formaður landbúnaðarnefnd- ar Alþingis. Verði Valgerður fyrir valinu í ráðherrastólinn, losnar hins vegar embætti þingflokksfor- mannsins og þykir ljóst að hart verði sóst eftir því úr ýmsum átt- um. Þar á meðal verði Guðni Ágústsson, Siv Friðleifsdóttir og Olafur Örn Haraldsson sem nú er varaformaður þingflokksins. Ekki búið að ræða hvenær Guðmundur hættir Ekki hefur verið rætt um það formlega, hvorki hjá þingmönnum né hjá flokksforystunni, hvenær og með hvaða hætti Guðmundur láti af embætti ráðherra, en ýmsum hugmyndum hefur verið varpað fram manna í milli. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur í fyi-sta lagi verið rætt um það að Guðmundur láti af ráðherradómi um næstu áramót, eins og hann hefur reyndar sjálfur gert ráð fyr- ir, og þá verði nýr ráðherra skip- aður í hans stað, þann stutta tíma sem eftir verður af kjörtímabilinu. I öðru lagi hefur verið rætt um að Guðmundur láti af embætti mjög fljótlega, til þess að arftaki hans hafí tækifæri til að sinna embætt- inu af myndugleika. I þriðja lagi hefur verið rætt um að Guðmund- ur láti af embætti um næstu ára- mót, en að hugsanlega utanríkis- ráðherra og félagsmálaráðherra skipti með sér ráðuneytum hans út kjörtímabilið og í fjórða lagi hefur verið rætt um að Guðmundur haldi ráðherraembættinu eitthvað fram á næsta ár og taki þar með ekki við starfí framkvæmdastjóra Ibúðalánasjóðs fyrr en nokkru eft- ir áramót. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra nefndi síðastnefndu hug- myndina sem ákveðinn möguleika í samtali við blaðamann, en lagði áherslu á að ekkert hefði verið ákveðið í þeim efnum enda eðlilegt að formaður flokksins, Halldór Ás- grímsson, kæmi fyrst heim og gerði sínar tillögur. Páll fullyrti hins vegar að það yrði engin breyt- ing á ríkisstjórninni fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót. Eins og fyrr segir sóttu sautján manns um embætti framkvæmda- stjóra Ibúðalánasjóðs, en auk Guð- mundar eru umsækjendur eftir- taldir: Amgrímur Blöndahl, Dóra Stefánsdóttir, Elín Sigrún Jóns- dóttir, Guðmundur Gylfi Guð- mundsson, Guðlaugur Stefánsson, Kristín Sigurðardóttir, Hilmar Þórisson, Hjálmar Kjartansson, Ingi Valur Jóhannsson, Lárus Bjarnason, Magnús I. Erlingsson, Sigurður Geirsson og Vilhjálmur Bjarnason. Þrír umsækjendur sem óskuðu nafnleyndar drógu um- sóknir sínar til baka. Forstjóri Evrópuskrifstofu WHO gestur á fundi norrænna landlækna Stefnt að því að minnka ójafn- ræði í heilbrigðisþjónustu AÐGANGUR að heilbrigðisþjónustu og gæði þjónustunnar eru aðalumræðuefnin á árleg- um fundi norrænna landlækna sem nú stend- ur yfir í Reykjavík. Sérstakur gestur fundar- ins er dr. Jo E. Asvall, forstjóri Evrópuskrif- stofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, og í gær kynnti hann fyrir fundarmönnum helstu áherslur í starfi Evrópuskrifstofunnar á síðastliðnu ári. „Starfssvæði okkar nær allt frá Grænlandi í norðri, suður að Miðjarðarhafi og að Kyrra- hafí í austri. Þetta eru 50 lönd með um 870 milljónir íbúa og okkar hlutverk er m.a. að reyna að hjálpa til við að bæta heilsu og heil- brigðisþjónustu á svæðinu öllu,“ segir Asvall, sem hefur gegnt starfínu á annan tug ára, er norskur en býr í Kaupmannahöfn, þar sem Evrópuskrifstofan hefur aðsetur. „Á síðari árum hefur sjónum verið beint Morgunblaðið/Jim Smart DR. Jo E. Asvall, forstjóri Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofhunarinnar. sérstaklega að hinum ýmsu vandamálum í heilbrigðisþjónustunni í öllum Evrópulönd- unum, og víða hafa verið gerðar tilraunir til umbóta í skipulagi, stjómun og fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar. Evrópuskrifstofan hefur nýlega tekið frumkvæði að því að stofna nýjan hóp fræðimanna sem munu leit- ast við að fá yfírsýn yfir allar þessar umbóta- tih-aunir og athuganir og greina hver árang- urinn hefur verið af þeim, hvað hefur gefíst vel og hvað miður. Þannig ætti að vera hægt að læra af reynslunni, og hvert land mun þá hafa aðgang að þessum niðurstöðum, þannig að hægt verði á hverjum stað að taka afstöðu til þessara mála á hlutlausan hátt,“ segir Asvall. Markviss hjálp til þeirra landa þar sem ástandið er verst Þá nefnir hann sameiginlega heilbrigðis- stefnu, sem fyrst var samþykkt árið 1984, en yfírskrift hennar er „Heilsa fyrir alla“. Stefn- an er í reglulegri endurskoðun og að sögn Asvalls verður lögð fram tillaga að endurnýj- aðri stefnu á fundi svæðisráðsins, sem sam- anstendur af heilbrigðisráðherrum landanna allra, en næsti fundur verður haldinn í Kaup- mannahöfn í september nk. Stefnunni er skipt upp í 21 markmið sem öll löndin á svæðinu setja sér að ná á næstu tveimur ára- tugum. Þar er efst á blaði það markmið að dregið verði úr ójafnræði í heilbrigðismálum milli landanna um 25% fram til ársins 2020. „Ef við berum t.d. saman stöðuna á Islandi og í Tadsjikistan getum við sagt að barn sem fæðist á Islandi í dag hafi u.þ.b. sex sinnum meiri líkur á að ná eins árs aldri en barn sem fæðist í Tadsjikistan á sama tíma. Ætlunin nú er að auka mjög samstarf milli landanna og markvissa hjálp til þeirra landa þar sem ástandið er verst,“ segir hann. Þá skal á svip- aðan hátt stefnt að því að minnka það heilsu- farslega ójafnræði sem er milli ólíkra þjóðfé- lagshópa í hverju landi fyrir sig um 25% á sama tímabili. Þriðja markmiðið snýr að heilbrigðri meðgöngu og fæðingu, hið fjórða að heilsu barna og unglinga og hið fimmta að heilsu aldraðra. „Segja að má að fyrstu tvö mark- miðin fjalli um samstöðu og jafnræði og næstu þrjú um hin ólíku lífsskeið," segir hann og kveðst gera ráð fyrir að markmiðin verði samþykkt á fundi svæðisráðsins í haust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.