Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 16

Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI s 137 milljóna króna tap Islenskra sjávarafurða og dótturfélaga Gangsetning fiskrétta- verksmiðju höfuðástæða Unnið í því að ná betri tökum á rekstri verksmiðjunnar RÚMLEGA 137 milljóna króna tap varð á rekstri íslenskra sjávaraf- urða hf. og dótturfélaga þess á fyrstu sex mánuðum ársins samanbor- ið við 33 m.kr. tap í fyrra. Tap af reglulegri starfsemi var 141 m.kr. en á síðasta ári varð 78 m.kr. hagnaður. Eigið fé félagsins lækkaði úr 1.954 milljónum í 1.491 eða um 23,7%. Heildarvelta samstæðunnar jókst hins vegar úr 14,5 milljörðum í 17,3 milljarða eða um 19,3%. Samkvæmt fréttatilkynningu er höfuðástæðan fyrir tapi samstæð- unnar sú að gangsetning nýrrar fiskréttaverksmiðju Iceland Sea- food Coi'poration í Bandaríkjunum gekk verr en reiknað hafði verið með og hafði það mjög neikvæð áhrif á reksturinn. Þá er bent á að tap hafi orðið á rekstri Gelmer Iceland Seafood SA í Frakklandi, sem IS keyptu seint á síðasta ári, auk þess sem miklar hækkanir á hráefni til vinnslu og þá sérstak- lega fiskblokkum komu hart niður á rekstri dótturfélaganna í Banda- ríkjunum og Frakklandi. Benedikt Sveinsson, forstjóri IS, segir af- komuna mun lakari en búist hafi verið við en þó hafi samstæðan í heild komið nokkuð rétt út, að hans sögn, ef frá eru talin frávik sem urðu við gangsetningu fiskrétta- verksmiðjunnar í Bandaríkjunum. „Við lokuðum gömlu verksmiðj- unni og tókum nýja í notkun og samfara því komu upp vandamál sem ekki var reiknað með. Önnur stór skýring á lakri afkomu er hækkandi verð á hráefni, fisk- blokkum m.a., um tugi prósenta,“ sagði Benedikt. Aðspurður um það sem helst fór úrskeiðis við opnun nýju versk- miðjunnar sagði hann að m.a. hefði hún verið tímafrek og dýrt hefði verið að þjálfa fólk til starfa. Hann sagði að nú væri unnið í því að ná betri tökum á rekstri fyrirtækisins, sem væntanlega muni skila sér þegar frá líður. Upphaflega var gert ráð fyrir sölu gömlu fiskréttaverskmiðjunn- ar á þessu ári en reiknað var með 150 m.kr. tekjum af sölu hennar. Nú er hinsvegar ekki reiknað með að selja hana fyrr en á næsta ári, að sögn Benedikts. „Okkar vandamál er tiltölulega ljóst. Samstæðan er að koma nokkuð rétt út miðað við áætlanir, íslenskar sjávarafurðir hf Úr árshlutareikningi 30. júní 1998 Samstæða Jan.-júní Jan.-júní Rekstrarreikningur Muijónir kmna 1998 1997 Breyting Rekstrartekjur 17.338 14.515 +19,4% Hagnaður (tap) af reglulegri starfsemi Aðrar tekjur og (gjöld) (141) 3 78 (111) Hagnaður (tap) tímabilsins (138) (33) +318% Efnahagsreikningur Mnijónir króna 30/6 '98 31/12 '97 Breyting | Elgnir: I Eignir samtals 13.128 12.858 +2.1% I Skuldir oq eiQid fé: I Eigið fé 1.491 1.954 ■23,7% Skuldir samtals 11.637 10.904 +6,7% Skuldir og eigið fá samtals 13.128 12.858 +2,1% Búnaðarbanki Islands hf. Vaxtakjör víxla og skuldabréfa lækka BUNAÐARBANKI íslands hf. lækkar óverðtryggð vaxtakjör skuldabréfa og víxla um 0,5% frá og með deginum í dag og verða kjör- vextir óverðtryggðra skuldabréfa- lána 8,75% og kjörvextir víxla 8,95%. I fréttatilkynningu frá bankanum segir að í upphafi árs hafi verið væntingar um að vísitala neyslu- verðs til verðtryggingar myndi hækka um 3% á árinu. Þessi for- senda var í ágætu samræmi við verð- lagsþróun fyrrihluta ársins og mæld- ist hækkun vísitölu neysluverðs til verðtryggingar 2,9% á ársgrundvelli fyrstu 6 mánuði ársins. „Á síðustu tveimur mánuðum hafa verðbólgumælingar hins vegar sýnt verðhjöðnun. Ljóst er að styrking krónunnar um ríflega 2% frá ára- mótum hefur lækkað innflutnings- verð og haldið aftur af verðbólgu. Jafnframt hefur stóraukin sam- keppni skilað sér til neytenda í lækk- uðu vöruverði og þar með lægri verðbólgu,“ segir í tilkynningunni um ástæður lækkunarinnar. ef frá er talið þetta frávik í Amer- íku og til dæmis gekk rekstur móðurfélags ágætlega, auk þess sem sum dótturfélög voru mjög nálægt áætlunum," sagði Benedikt Sveinsson. Verð bréfa lækkaði Viðskipti með hlutabréf ÍS á Verðbréfaþingi í gær námu alls 19 mkr. en verð bréfa í félaginu lækk- aði um 18,7% í kjölfar birtingar milliuppgjörs félagsins. Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf. með 66 m.kr. hagnað Ofuitllbod í opnuudrufbu ", ' 3 ménudír án endurgjulds Allir sem gerast áskrifendur hjá Símanum Internet fyrir 22. ágúst fá þriggja mánaöa áskrift án endurgjalds. I J____j j 1 i I *- ■ fillt sem þn uilt uita um lntemetid HEILDARHAGNAÐUR Eignar- haldsfélagsins Alþýðubankinn hf., til hækkunar á eigin fé, er 66,2 mkr. fyrstu sex mánuði þessa árs og skiptist hann í 63,2 mkr. inn- leystan hagnað á árinu og 3 mkr. hækkun á óinnleystum hagnaði. Heildarhagnaður nam, til saman- burðar, 472,6 mkr. á sama tímabili á síðasta ári. Hreinar fjáiTnagnstekjur voru 89,3 mkr. í stað 223,5 mkr. á sama tímabili árið áður, en þá innleysti félagið verulegan söluhagnað af eign sinni í Islandsbanka hf., Tæknivali hf. og SR-mjöli hf., að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá félaginu. Rekstrarkostnaður nam 16,7 mkr. á fyrstu sex mánuðum árins í stað 11,4 mkr. árið áður. Bókfært eigið fé félagsins í árs- lok nam 2.304,7 mkr. að meðtöldu hlutafé að fjárhæð 1.185,7 mkr. Arðsemi eigin fjár var 5,4% fyrstu sex mánuði ársins og að teknu til- liti til greiðslu 7% arðs nam ávöxt- un hluthafa 13,3%. Pjómjbtuuei í nýja þjónustuverinu færöu alla tækniþjónustu, upplýsingar, ráögjöf, mótöld, síma, ISDN kort, GSM farsíma, ISDN síma, hugbúnaö, tímarit um Internetið og allt sem þarf á netinu! Verulegar fjárfestingar í óskráðum félögum I fréttatilkynningu frá félaginu segir að afkoma þess á tímabilinu endurspegli annars vegar þá deyfð sem var á hlutabréfamarkaði fyrri hluta ársins og hinsvegar að Vísi- tala hlutabréfasjóða og fjárfesting- arfélaga í VÞÍ hækkaði um 0,6% á sama tíma. Hins vegar hefur félag- ið fjárfest verulegar upphæðir í óskráðum félögum sem ekki eru enn farin að hafa áhrif á afkomu fé- lagsins, en leggja engu að síður grunn að framtíðarávöxtun þess, segir í fréttatilkynningunni. Einnig segir í tilkynningunni að á síðari helmingi ársins megi gera ráð fyrir betri afkomu félagsins vegna aukinna umsvifa á Verð- bréfaþingi Islands að undanfórnu. „Mismunurinn á hagnaði fyrstu sex mánaða síðasta árs og þessa árs er einkum vegna þess að á fyrri hluta ársins 1997 hækkaði mark- aðsvirði þó nokkurra af okkar fyrri óskráðum fjárfestingum sem voru komnar á Verðbréfaþing. Fjárfest- ar tóku almennt vel á móti félögun- um og við innleystum töluverðan söluhagnað með sölu bréfa. Jafn- framt hækkaði markaðsvirði hluta- bréfaeignar félagsins samtímis," sagði Gylfi Arnbjörnsson fram- kvæmdastjóri félagsins. Hann sagði að almennt séð hefðu fjárfestar verið frekar vonsviknir með uppjör fyrirtækja árið 1997 og það hefði komið fram í lækkandi gengi hlutabréfa á seinni hluta síð- asta árs og fyrri hluta þessa árs. „Þetta olli því að litlar hækkanir urðu á hlutafé á VÞÍ sem endur- speglast í markaðsvirði skráðra hlutabréfa félagsins frá því sem það var á síðasta ári. Á móti þessu hafa hreinar vaxtatekjur félagsins af skuldabréfaeign aukist nokkuð frá fyrra ári.“ Pjódtlu töluunm |)inm mnd. Þú kemur einfaldlega með tölvuna til okkar i nýja Þjónustuveriö og færö hana daginn eftir meö öllum internetforritum uppsettum. Shrádu þig í síma millfjitll 9-19 unha drtcjd ocj 1^-18 laiKjaidacja. Iliadi. I)acjstajit ucud ocj aldiet á tali. Verðbréfaþing íslands Mest viðskipti á langtíma- markaði skuldabréfa SÍMINNmternet VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi í gær námu 1.017 mkr. Mest voru viðskipti á langtímamarkaði skuldabréfa, alls 880 mkr., og lækkaði markaðsávöxtun um 3-14 punkta. Viðskipti með hlutabréf námu 58 mkr., mest með bréf Is- lenskra sjávarafurða, 19 mkr., og Flugleiða 12 mkr. en félögin birtu milliuppgjör sín í gær. Verð hluta- bréfa ÍS lækkaði um 18,7% og verð hlutabréfa Flugleiða lækkaði um 8,8%. Úrvalsvísitala Aðallista lækkaði um 0,80%. : » i Hagnaður minni vegna deyfðar á hlutabréfamarkaði l » I f » I I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.