Morgunblaðið - 21.08.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 21
ERLENT
Þjóðarat-
kvæði í
Lettlandi
TEKIST hefur að safna nægi-
lega mörgum atkvæðum til að
krefjast þjóðaratkvæðis í Lett-
landi um ríkisborgararétt. Mál-
ið varðar 650.000 Rússa sem
búa í landinu, flestir ríkisfangs-
lausir. Hart hefur verið deilt um
fyrirhugaðar breytingar lett-
nesku stjórnarinnar á ríkis-
fangsreglum, sem eiga að auð-
velda Rússum að fá ríkisborg-
ararétt.
Þrettán farast
í Alsír
ÞRETTÁN manns fórust í
sprengingu í bænum E1 Khemis
í Alsír í gær og 39 manns særð-
ust. Yfíivöld segja múslimska
skæruliða hafa verið að verki.
Alsírsk dagblöð greindu einnig
frá því í gær að 33 skæruliðar
hefðu verið drepnir í bardögum
við stjórnarhermenn.
Hyggst hætta
loftbelgsflugi
STEVE Fossett segist líklega
munu hætta tilraunum til þess
að verða fyrstur manna til að
fljúga á loft-
belg hring-
inn í kring-
um jörðina.
Fossett
slapp lifandi
þegar loft-
belgur hans
hrapaði með
ógnarhraða í
Kóralhaf á
mánudag.
Hann segist ekki tilbúinn að
hætta lífi sínu með sama hætti á
ný.
Þing N-Kóreu
kallað saman
ÞING Norður-Kóreu verður
kallað saman til fundar í fyrsta
sinn eftir átta ára hlé 5. septem-
ber nk. Talið er að Kim Jong-il,
leiðtogi landsins, verði þá foi-m-
lega kosinn forseti, auk þess
sem þingið muni afgreiða fjár-
lög.
50 deyja úr
hungri á dag
EMBÆTTISMAÐUR í stjórn
Súdans segir fímmtíu manns
deyja úr hungri dag hvern í
bænum Wau í Bahr el Ghazal-
héraði í Suður-Súdan. Hann
sagði ennfremur að tæplega 80
þúsund flóttamanna, sem halda
til í Wau, biði lítið annað en
hungurdauði.
Áfengi minnk-
ar líkur á
getnaði
NIÐURSTÖÐUR danskrar
rannsóknar sýna að áfengis-
neysla kvenna getur haft áhrif
á líkur þess að þær verði þung-
aðar. Þess er getið að konur
sem drekki sem nemur fimm
léttvínsglösum á viku séu helm-
ingi líklegri til þess að verða
þungaðar innan sex mánaða, ef
þær eru á annað borð að reyna
það, en kynsystur þeiina sem
drekki tíu léttvínsglös eða fleiri
á viku.
Fossett
Rannsókn á framferði hollenskra hermanna í Bosníustríðinu
Friðargæsluliðar
sakaðir um morð
HOLLENSKA ríkisstjórnin hefur
fyrirskipað formlega rannsókn á
fullyrðingum um að hollenskir her-
menn hafí orðið um þrjátíu
múslimum að bana í Bosníu árið
1995, að því er segir í frétt breska
ríkisútvarpsins, BBC. Hermenn-
imir, sem sinntu friðargæslu fyi-ir
Sameinuðu þjóðirnar, eru sakaðir
um að hafa vísvitandi ekið bryn-
varðri bifreið inn í hóp flóttafólks.
Málið hefur vakið mikla athygli í
Hollandi en hollensku hermenn-
irnir hafa lengi legið undir ámæli
fyrir að koma ekki í veg fyrir
fjöldamorð á múslimum í stríðinu.
Málið tengist einum hroðaleg-
asta atburði Bosníustríðsins, töku
Bosníu-Serba á borginni Srebren-
ica í júlí 1995, sem mannréttinda-
samtök hafa giskað á að hafi kost-
að um 7.000 manns lífið. Samein-
uðu þjóðirnar höfðu lýst borgina
gi-iðasvæði og voru þúsundir
múslimskra flóttamanna komnir
þangað er Serbar réðust til atlögu
og náðu henni á sitt vald.
Hollensku friðargæsluliðarnir hafa
verið sakaðir um að hafa setið að-
gerðarlausir hjá er Bosníu-Serbar
tóku borgina, en Hollendingamir
voru illa vopnum búnir og gátu lít-
ið að gert. Ollu alvarlegii eru ásak-
anir um að hollenskir hermenn
hafi aðstoðað Bosníu-Serba við að
skilja karla frá konum og börnum
úr flóttamannahópnum eftir fall
borgarinnar.
Asakanirnar um að heiTnennirn-
ir hafi vísvitandi orðið þrjátíu
mönnum að bana komu fram í hol-
lenskum sjónvarpsþætti fyrir
skemmstu. Þar er fullyrt að hópur
vopnaðra múslimskra flóttamanna
hafi reynt að stöðva hermennina
við þorpið Jaglici, norður af Srebr-
enica. Er fólkið hafi neitað að víkja
fyrir brynvörðum bfl hollensku
hermannanna hafi yfirmaður
þeirra fyrirskipað að ekið yrði inn í
þvöguna.
Yfirmenn hollenska hersins
hafa vísað öllum þessu ásökunum
á bug.
da
v&nfar
Opnunarhatið
a a
fjölSkpjld
nr
v/Kia
v\? ttolfagarZa, gegfl't \KfaA,
bf?w ^jfafajr a7 faoma ftggj3
ajómSazfar v'e-ífmgsr og_ <;fa)7a
bílana a píaniKU/ Jhja ofafajrfrá fal. 15~-18 j>ar <Zom
á bo^tólm Vor7a pyfeyir frá SS, Cooa Co\at
Sval'i frá Sól Vífamg^ og_ {<; frá fammo^
mo2aY\ b'trg^'ir ov\da^t.
ttljómwoif'm Cand $ Cpila frá 17-18
og_ CnvlW? vor7w \ bo'im'i frá P/anínv
\kxi? velfaaníu