Morgunblaðið - 21.08.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998 23
GRAFFÍTÍLISTAMENN munu setja svip sinn á Menningarnótt í miðbænum. Meðal þess sem aðstandendur dagskrárinnar vekja athygli á er að und-
anfarið hefur ungt fólk í Vinnuskóla Reykjavíkur unnið stórar veggmyndir í frítíma sínum við Austurbæjarskóla.
og breitt um miðborgina; m.a. í
Listasafni íslands, Bókabúð Máls
og menningar, bókabúð Eymunds-
son, Norræna húsinu, Iðnó, Lista-
safni Reykjavíkur Hafnarhúsi,
Hallgi-ímskirkju, Dómkirkju, Frí-
kirkju, Listasafni Einars Jónsson-
ar, Fataverslun Kormáks og
Skjaldar, Spútnik, hjá Sævai’i
Karli, 38 þrepum, Sólon Islandus,
Jómfrúnni og víðar.
Söfn
Listasafn Reykjavíkur Kjarvals-
stöðum verður opið kl. 10-18. Kl.
16 verður sérstök leiðsögn um sýn-
inguna Stiklað í straumnum sem er
sumarsýning safnsins á verkum ís-
lenskra myndlistarmanna frá Kjar-
val til dagsins í dag.
Kl. 15.30 verður farið í göngu-
ferð frá Hallgrímskirkju um Skóla-
vörðuholt á vegum byggingarlist-
ardeildar safnsins. Skoðaðar verða
byggingar Guðjóns Samúelssonar
en jafnframt hefur byggingarlist-
ardeildin sett upp sýningu á
nokkrum teikningum Guðjóns í
suðursal Hallgrímskirkju og lýkur
göngunni með því að þær verða
skoðaðar. Umsjón Pétur H. Ár-
mannsson, arkitekt.
Errósýningin Konur í Hafnar-
húsinu verður opin kl. 10-24.
Kl. 20 býður Listasafn Reykja-
víkur upp á sérstaka umfjöllun um
konurnar í verkum Errós. Kolbnin
Bergþórsdóttir og Rósa Ingólfs-
dóttir mæta hvor annarri og kvení-
myndum Eirós.
Kl. 22 verður tónlistarflutningur
í boði Reykjavíkurhafnar: Andrea
Gylfadóttir syngur nokkur lög.
Konur eru líka menn - allir menn
eru hinsegin er yfirskrift gjörnings
sem hefst kl. 23. Sara Björnsdóttir
myndlistarmaður flytur.
Listasafn íslands verður opið kl.
11-17 og kl. 20-24. Kl. 20 og 22
verður leiðsögn undir yfirskriftinni
Inn í sumarnóttina um sumarsýn-
ingu safnsins Islensk myndlist á
20. öld. Á sýningunni er úrval
verka úr eigu safnsins, er veitir
innsýn í þróun íslenskrar myndlist-
ar á þessari öld. Leiðsögnin er
jafnt fyrir börn og fullorðna. Um-
sjón Rakel Pétursdóttir.
Ástin og sumarið, tónleikar Da-
víðs Olafssonar, bassbarítonsöngv-
ara, við undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar, píanóleikara hefjast kl.
21. Blönduð dagskrá; ópei’uaríur,
íslensk sönglög o.fl.
Listasafn Einars Jónssonar
verður opið frá kl. 13.30-23. Sýning
á höggmyndum og málverkum
Einars Jónssonar og einnig verður
heimili hans í turni safnsins opið.
Kl. 18.30 leikur Kristinn H. Árna-
son á klassískan gítar í safninu og
kl. 21.00 leikur Guðmundur Haf-
steinsson á trompet í garðinum
með sérstakri þátttöku Zirkus
Ziemsen.
Listasafn ASI, Ásmundarsal,
verður opið frá kl. 14-24. Heima-
hagar, ljósmyndasýning Wayne
Guðmundsson og Guðmundar Ing-
ólfssonar. Kl. 20.30 leikm- Margrét
Ámadóttir, sellóleikari, 3 kafla úr
svítu nr. 6 í D-dúr eftir Bach. Kl.
22.30 leika félagar úr Harmónikku-
félagi Reykjavíkur nokkur lög.
Nýlistasafnið verður opið frá kl.
20 og fram á nótt. Kl. 20 verða opn-
aðar þrjár sýningar með myndlist-
arverkum eftir Daníel Magnússon,
Hrafnhildi Amardóttur og Finn
Arnar Arnarson. Kl. 21 treður
hljómsveitin P.P.Pönk upp.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Þingholtsstræti 29 a, verður opið
frá kl 17-22. KI. 17.30, 19.30 og 21
verður boðið upp á dagskrána
Draugagangur í bókasafninu! Guð-
rún Þ. Stephensen, leikkona, segir
sögur í draugahomi safnsins. Kl.
19 og 21 verður kynning á safninu.
Þá geta gestir bætt ljóðlínu við ljóð
sem endast á allt kvöldið. Einnig
geta þeir skoðað Netið, spilað, litið
á margmiðlunarefni, tekið þátt í
getraun sem dregið verður í á
klukkutíma fresti og skoðað safnið
og allt það efni sem þar er til.
Ái’bæjarsafn verður opið frá kl.
10 og fram eftir kvöldi. Dagskrá er
miðuð við fjölskyldufólk. Leik-
fangasýning í Kornhúsinu verður
opin og þar fyrir utan verða leik-
tæki, m.a. kassabílar, sippubönd,
húlahringir, stultur, þeytispjöld og
kassi með leggjum og skeljum og
gefst þar tækifæri á að fara í al-
vöra búleik með bömum sinum.
Árbæjarsafn býður upp á sérstaka
leiðsögn um leikfangasýninguna og
börnin geta útbúið sitt eigið þeyti-
spjald og skreytt það að vild.
Gallerí
Gallerí Fold verður opið kl.
17-01. Sýndar verða nokkrar nýjar
olíumyndir eftir Harald Bilson í
baksalnum. Sýnir er nýtt tölvu-
kerfi sem veitir upplýsingar um
listamenn og listaverk sem era til
sölu í Gallerí Fold. Hægt er að
kalla fram myndir og texta á skjá
Sýnis og fá þannig upplýsingar um
listafólkið og verk þeirra. Sem fyrr
verða ýmsir listamenn við vinnu í
galleríinu á Menningamótt. Má
þar kynnast hinum ýmsu vinnslu-
aðferðum myndlistar, hitta lista-
fólkið og spjalla við það. Þrykkt
verður á grafíkpressu Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal, sem hann
flutti til landsins árið 1925. Guð-
mundur var framherji á sviði graf-
íklistar á Islandi og grafíkpressan
er sú fyrsta sem flutt var til lands-
ins, en hún er nú í eigu Gallerís
Foldar. Listamenn munu sýna
notkun pressunnar á Menning-
arnótt. Haldin verður teiknisam-
keppni fyrir börn, 12 ára og yngri.
Verðlaun verða veitt fyrir
skemmtilegustu teikninguna í
hverjum aldurshópi. Auk þessa eru
að venju mörg hundrað myndverk
til sýnis og sölu í galleríinu.
Gallerí Listakot verður opið frá
kl. 10-24. Listakot er gallerí og
sýningarsalur rekið af 15 listakon-
um. Munu nokkrar þeirra verða á
staðnum og gera grein fyrir vinnu-
ferli sinnar listgreinar. Boðið verð-
ur upp á tónlistaratriði um kvöldið.
Enska listakonan Elenor Symms
sýnir verk sín.
Fiskurinn verður opinn kl.
14-24. Sýnd verður heimildarmynd
um Elvis Presley; Elvis, The Great
Performances eftir Andrew Solt og
Greg Vines. Myndin verður sýnd 5
sinnum frá kl. 14-24. Kl. 22 munu
Sólrún Trausta Auðunsdóttir og
Annu Wilenius flytja orður.
Gallerí Ófeigs verður opið kl.
10-23. Síðasti sýningardagur á
verkum sænsku listakonunnar Isa
Öhman. Hún sýnir skúlptúrverk
unnin með blandaðri tækni.
Gallerí Mokka vei'ður opið kl.
12-23.30. Sýning Valgerðar Guð-
laugsdóttur.
Gallerí Ingólfsstræti 8 verður
opið kl. 14-24. Ragna Róbertsdótt-
ir sýnir nýtt verk sem ber heitið
Strönd, Bryndís Snæbjörnsdóttir
sýnir ljósmyndir og Sólveig Aðal-
steinsdóttir sýnir verk í glugga
gallerísins.
Gallerí Sævars Kai'ls verður opið
kl. 10-24. I verslun Sævars Karls
verður kynnt ný vetrai’lína. í gall-
eríi á neðri hæð er sýningin End-
ui'sköpun þar sem myndlistarmað-
urinn Rristján Steingi'ímur Jóns-
son sýnir sandblásin verk eftir
sjálfan sig og listamennina Krist-
ján Davíðsson og Berad Koberling.
Um kvöldið verður ný heimildar-
mynd um hljómsveitina Ótukt sýnd
á neðri hæð. Kl. 22.30 flytur
strengjakvartettinn Anima klass-
íska tónlist. ►