Morgunblaðið - 21.08.1998, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
I rífandi
framför
TÓIVLIST
Listasafn Kópavogs
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Sönglög eftir innlenda og erlenda
höfunda. Sigríður Aðalsteinsdóttir
mezzosópran, Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópran og Kristinn Örn
Kristinsson, píanó. Listasafni
Kópavogs, þriðjudaginn 18. ágúst
kl. 20.30.
SÖNGÁHUGA landsmanna
ætlar seint að linna, eins og sást
af góðri aðsókn á tónleika þeirra
Huldu Bjarkar Garðarsdóttur og
Sigríðar Aðalsteinsdóttur í Gerð-
arsafni á þriðjudagskvöldið var,
þrátt fyrir rigningarsudda. Verð-
ugt rannsóknarefni félagsfræð-
ingum, sem láta sig fádæma tón-
listargrósku þessa lands furðu-
litlu varða.
Hér var fylgt tvímenningsfor-
dæmi frá tónleikaröð íslenzku óp-
erunnar, sem hefur ýmsa kosti,
ekki bara fyrir unga söngvara á
uppleið sem geta þannig einbeitt
sér að smærri dagskrá, heldur
veitir það líka áheyrendum meiri
tilbreytingu. Að aukalagi frátöldu
(bátsöngnum úr Ævintýri Hoff-
manns) sungu stöllurnar aðeins
einn dúett, Ave María eftir Eyþór
Stefánsson, og hefðu að ósekju
mátt syngja fleiri, því að raddirn-
ar pössuðu auðheyrilega vel sam-
an.
í Sigríði heyrði undirritaður
síðast nokkru fyrir jól, þar sem
hún m.a. söng þjóðlagaútsetning-
ar eftir Snorra Sigfús Birgisson.
Nú virtist röddin - eða a.m.k.
meðferðin á henni - hafa dökknað
nokkuð, enda kom ekki á óvart að
lesa að hún hefði verið undir
handleiðslu Helenu Karusso í
Vín. Fylgifiskur dvalarstaðarins
virtist svolítið þýzkuskotinn aft-
urstæður framburður, sem hent-
aði íslenzku lögunum miður en
öðru efni, eins og heyrðist þegar í
fyrsta laginu, perlu Páls Isólfs-
sonar, í dag skein sól. Túlkun
Sigríðar á Minningu Markúsar
Kristjánssonar var hlýleg og við-
eigandi dökkleit í Betlikerlingu
Kaldalóns, þó að maður saknaði
meiri fjölbreytni og dulúðar með
t.d. beitingu á sléttum söng, sem
var svo til alfjarverandi í litareg-
istri Sigríðar þetta kvöld að und-
anskilinni Maínótt Brahms, enda
kom hann einkar fallega út þar. I
heild var raddbeiting Sigríðar
nokkru einsleitari en hjá Huldu
Björk, sem hafði t.a.m. mjög gott
vald á víbratótemprun, en von-
andi á fjölbreytnin eftir að færast
í aukana, því mezzo-rödd Sigríðar
er afar falleg og hlý.
í þótt form þín hjúpi eftir Jón
Ásgeirssson brá fyrir smá radd-
gliðnun á einum háum stað, en
annars var fátt að finna að tækni
Sigríðar, sem til allrar lukku birti
yfir í glaðlegri úttekt á Það kom
söngfugl að sunnan (AHS) og
Med en primula veris eftir Ed-
ward [sic] Grieg. Þýzku ljóða-
sönglögin síðar um kvöldið komu
ljómandi vel út hjá Sigríði með
yndislegri kjTrð í andstæðu við
dramatískt lokaris í Du bist die
Ruh (þrátt fyrir vott af afturreig-
ingi og óþarfa radddekkingu) og
bjartri kankvísi í Heidenröslein
Schuberts. Brahmslögin -
Heimweh II og sérstaklega áður-
nefnt Die Mainacht - voru sér-
lega fallega sungin. Nokkru síðar
söng Sigríður Cherubino-aríuna
úr Figaro, Voi che sapete, sem
var full-“blómleg“ fyrir sakleysis-
legt buxnahlutverkið, og aríu
Angelinu úr Öskubusku Rossinis,
Naqui all’affanno, sem hreif
áheyrendur með kraftmikilli út-
færslu á kverkbrjótandi radda-
króbatík, þar sem litaandstæð-
urnar milli málmklingjandi hæð-
ar og „chalumeau“-fyllingar
neðsta sviðs gátu minnt á Maríu
Callas, þó að tæknileg útfærsla
væri ekki með öllu lýtalaus.
Hulda Björk Garðarsdóttir
virtist í rífandi framför frá því er
undirr. heyrði hana í vargefnu
hlutverki Ado-Anniear í Okla-
homal-uppfærslu Söngskólans
fyrir hálfu öðru ári. Fyllingin á
neðra sviði hafði aukizt, hæðin
var enn glæsilegri en áður, og
textaskýrleiki með því albezta
sem maður heyrir hjá björtum
sópran á höfuðtónum; ugglaust
m.a. að þakka norðlenzkum upp-
vexti. Eftir fínlega Vögguvísu
Páls ísólfssonar söng hún Eg lít í
anda liðna tíð Kaldalóns með fal-
lega veikum söng, einnig á hæm
nótum sem er fágætt hjá m.a.s.
sjóaðri sóprönum hérlendis. Im-
pressjónísk rómantík Árna
Björnssonar í Horfinn dagur skil-
aði sér aðallega í glæsilegum pí-
anóleik Kristins Amar, sem aftur
brilleraði í Fuglinn í fjörunni e.
Jón Þórarinsson, þar sem Hulda
söng með laufléttum lýrískum
spintó, þó að bæri á smá-lafi í tón-
hæð í næsta lagi Jóns, Jeg elsker
dig, þar sem dökku dönsku sér-
hljóðin voru ögn of framstæð að
hætti flestra íslenzkra söngvara.
En Svane eftir Edward [aftur sic;
dæmi um enskulap?] Grieg tókst
hins vegar framúrskarandi vel,
með áhrifamiklum misterioso
sléttum söng í inngangi, gegn-
músíkalskri mótun og hnitmiðuð-
um styrkbreytingum.
Dove sono, aríu greifynjunnar
úr Figaro í seinni hálfleik, söng
Hulda að undangengnu resitatífi
af öryggi með tilheyrandi göfug-
lyndi, og dapurleg aría Juliettu úr
I Capuleti e i Montecchi eftir
Bellini var flutt með sannkölluð-
um glæsibrag, sem gaf vísbend-
ingu um að hér færi ein af björt-
ustu vonum okkar á sópransviði á
síðustu árum. Líkt og Sigríður í
einu gamanlagi Atla Heimis sló
Hulda á léttari strengi í aukalög-
um með Síðasta dansinn Jórunn-
ar Viðar af lipurð og heillandi
sviðsframkomu.
Kristinn Öm Kristinsson sá um
píanósamleik af þeim kalíber að
fátt var að skotspæni nöldur-
gjörnum umfjallanda. Leikur
hans var í tveimur orðum sagt til
fyrirmyndar, stuðningur og sam-
stilling við söngvarána eins og
bezt verður á kosið, og fer greini-
lega að hraðskerpást samkeppnin
milli íslenzkra undirleikara í úr-
valsflokki.
Ríkarður Ö. Pálsson
Tríó Jóels Páls-
sonar á Jómfrúnni
e;
i
i
t
&
i
.
f
»
i
L
»
!
!
I
f
D
I
L
»
»
Stöðlakot verður opið frá kl. 14
og eins lengi og gesti ber að garði.
Ásdís Guðjónsdóttir, myndlistar-
maður, sýnir verk sin.
Gallerí Hornið verður opið kl.
15-03. Opnun ljósmyndasýningar
með myndum Einars Sebastians
Ólafssonar.
Gallerí 20 fermetrar verður opið
frá kl. 15-23. Síðasta sýningarhelgi
síðustu sýningarinnar í þessu gall-
eríi. Myndlistarmaðurinn Helgi
Hjaltalín Eyjólfsson sýnir, en hann
er jafnframt stofnandi og rekandi
gallerísins.
Vinnustofur, listmunasölur og
listhandverk
Snegla - listhús verður opið kl.
11-15 og kl. 18-24. Lifandi list-
handverk. Unnið í leir og textil á
staðnum. Kl. 19-20 málar Ingunn
Ema Stefánsdóttir á leirskálar. Kl.
20-21 málar Erna Guðmarsdóttir á
silkislæður. Kl. 21-22 mótar Am-
fríður Lára Guðnadóttir engla í
leir. Kl. 22-23 mótar Auðbjörg
Bergsveinsdóttir álfakirkjur í leir.
Grafíkverkstæðið Áfram veginn
verður opið kl. 17-24. Grafíklista-
menn þrykkja stafrófið og fólk get-
ur eignast sinn eigin bókstaf og
sjálft skreytt hann litum.
Gallerí Hnoss verður opið kl.
10-02. Bjarni Þór Kristjánsson,
eldsmiður, sýnir jámsmíði og Páll
Kristjánsson smíðar hnífskaft og
slíður.
Inga Elín-gallerí verður opið kl.
10-23. Listakonan Inga Elín sýnir
leir- og glermuni í versluninni.
Ríkey-gallerí verður opið frá kl.
12 og fram eftir kvöldi. Listakonan
Ríkey Ingimundardóttir verður á
vinnustofu sinni.
African Gallery verður opið kl.
10-01. Nýtt gallerí með handunna
afríska listmuni, vefnað og skart-
gripi. Trumbusláttur og dans um
kvöldið.
Smíðar og skart verður opið kl.
18-01. Leirlistakonan Hrafnhildur
Eiðsdóttir er listamaður mánaðar-
ins.
Gallerí List verður opið kl.
10-23.
Krít-leirgallerí Hlaðvarpanum
verður opið kl. 14-24. Leirlista-
menn við vinnu og renna leirmuni á
verkstæðinu.
Kogga - listhús verður opið frá
kl. 10 og fram á nótt. Leirlistarkon-
an Kogga verður á verkstæði sínu
og tekur á móti gestum.
Kirsuberjatréð hefur opið frá kl.
10.00 og fram á nótt. Listhandverk í
fjölbreyttu úrvali. Spáð í sauðarvölu
og ýmislegt fleira til skemmtunar.
Kirkjur
Á léttum nótum, helgistund með
léttri tónlist, verður í Dómkirkj-
unni frá 23-23.40.
Biskup kaþólska safnaðarins á
íslandi, Jóhannes Gijsen, les
messu á þýsku í Dómkirkju Krists
konungs kl. 18.
Dagskrá verður í Hallgríms-
kirkju frá kl. 17-24. Fjölbreytt
dagskrá allt kvöldið, sem hefst með
setningu Menningamætur kl. 17.
Kl. 18.30-19.50 verður orgeltónlist
leikin af Douglas A. Brotchie og
Herði Áskelssyni. Kl. 20-20.45
verða kórtónleikar, Schola cantor-
um, undir stjóm Harðar Áskels-
sonar. Kl. 21-21.50 verður dag-
skráin Pallíettur og píanó. Þrjár
söngkonur og undirleikari við nýja
Bösendörfer-flygilinn og Viri
cantates karlakvartett. Báðir hóp-
amir em skipaðir liðsmönnum úr
Mótettukór Hallgrímskirkju og
flytja létta efnisskrá í suðursal
kirkjunnar. Kl. 22-22.50 verða kór-
-tónleikar Mótettukórs Hallgríms-
kirkju undir stjórn Harðar Askels-
sonar. 23.00-23.45 verður miðnæt-
urguðþjónusta í umsjá presta Hall-
grímskirkju. Mótettukórinn tekur
þátt í guðþjónustunni. Dagskráin
er í umsjón Harðar Áskelssonar,
kantors Hallgrímskirkju.
Sýningar í Hallgrímskirkju em
eftirfarandi: Heilög ritning: Prent-
aðar biblíur úr safni séra Ragnars
Fjalars Lámssonar í norðursal.
Teikningar eftir Guðjón Samúels-
son í suðursal. Málverk eftir
Tryggva Ólafsson í anddyri. Stúlk-
an í tuminum, Berglind Ágústs-
dóttir tekur sér bólsetu í tumher-
bergi og tekur þar á móti gestum
milli kl. 17-21 og á sunnudaginn
23. ágúst kl. 13-18.
Fríkirkjan í Reykjavík verður
opin milli kl. 20 og 23.30. Kyrrðar-
og tónlistarstund við kertaljós.
Dagskrá milli kl. 21-22.30.
Strengjakvartettinn Anima leikur
klassíska tónlist og Margrét Ama-
dótth-, sellóleikari, leikur svítu nr.
2 í d-moll eftir Baeh.
Leikhús
Borgarleikhúsið stendur fyrir mið-
nætursýningu á söngleiknum Gre-
ase kl. 23.30.
Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum
sýnir leikritið Líf manns eftir Le-
oníd Andrejev í uppsetningu Stef-
aníu Thors og David Maj kl. 22. Kl.
23-23.45 leikur kvennaband Harm-
ónikkufélags Reykjavíkur í Hlað-
varpanum. Kl. 00.30 les Erlingur
Gíslason leikari draugasögur.
Lófalestur, sem er nýtt kaffi-
húsaleikrit eftir Jónínu Leósdótt-
ur, verður sýnt í Sölvasal, efri hæð
veitingahússins Sólon Islandus kl.
22. Leikritið fjallar um tvær systur
sem fara á fund spákonu. Leikend-
ur era Saga Jónsdóttir, Soffía Jak-
obsdóttir og Erla Rut Harðardótt-
ir. Leikritið verður einnig sýnt í
Ráðhúskaffi kl. 20.30.
Annað
Sundhöll Reykjavíkur verður op-
in frá kl. 8-19.30. Létt Reykjavík-
urlög verða leikin fyrir sundhallar-
gesti. Einnig verður leikin létt tón-
list fyrir gesti í sundlaugunum í
Laugardal og í Árbæjarlaug.
Icelandic experience, Saga Is-
lands í 1000 ár, verður sýnd í
Tjamarbíói. Heimildarmynd þessi
fjallar um þróun og sögu íslensku
þjóðarinnar frá Landnámi til okkar
tíma. Myndin verður bæði sýnd
með ensku og íslensku tali. Is-
lenskt tal kl. 16, 18, 23 og 24.30 og
enskt tal kl 17 og 19.
Hitt húsið verður opið kl. 18-01.
Opið hús og starfsemin kynnt með
ýmsum uppákomum. VISA Island
verður með myndasamkeppni fyrir
böm á 2. hæð kl. 14-17.
Hitt húsið í samvinnu við Hans
Petersen býður líka upp á ljós-
myndatöku í sérstakri umgjörð. Kl.
19.30 mun Listsmiðja Bahá’í ung-
menna sýna Vímudans og Steppd-
ans. Kl. 23-23.40 munu ungir höf-
undar smásagna, prósa og ljóða
lesa úr verkum sínum. Tónlistar-
flutningur.
Harmónikkufélag Reykjavíkur
verður á ferðinni víðsvegar um
miðborgina kl. 20-23.45 og leikur
lög fyrir alla þá sem vaka af list.
Að vanda tekur Hjálpræðisher-
inn þátt í Menningamótt með tón-
list og söng.
Leikhópurinn Hugleikur tekur
þátt í Menningarnótt og setur svip
á bæinn og er aldrei að vita hvar
hann mun skjóta upp kollinum.
Landsbanki íslands býður gest-
um og gangandi að skoða listaverk í
Aðalbanka, Austurstræti 11, kl.
18-21 þar á meðal veggmyndir Jóns
Stefánssonar og Jóhannesar Kjar-
val, undir leiðsögn Aðalsteins Ing-
ólfssonar, listfræðings. Lagt af stað
kl. 18,19 og 20. Mókollur skemmtir
bömunum á meðan foreldramir
skoða ljstaverkin. I aðalsal verða
sýnd nokkur verk eftir myndlistar-
manninn Guðjón Ketilsson.
Veitingastaðir og kaffihús
Sólon Islandus: Kl. 13 leikur
strengjakvartettinn Anima klass-
íska tónlist. Kl. 15 segir Pétur Pét-
ursson, fyrrverandi þulur, frá
Reykjavík fyrr og nú. Kl. 18 leikur
strengjakvartettinn Anima klass-
íska tónlist. Kl. 22 Lófalestur, nýtt
kaffihúsaleikrit eftir Jónínu Leós-
dóttur.
Ráðhúskaffi, Ráðhúsi Reykja-
víkur, verður opið kl. 10-24. Kl. 16
verður leikþátturinn Frátekið borð
eftir Jónínu Leósdóttur fluttur fyr-
ir gesti. Leikendur em Saga Jóns-
dóttir, Soffía Jakobsdóttir og
Hildigunnur Þráinsdóttir. Kl. 20.30
verður leikþátturinn Lófalestur,
einnig eftir Jónínu Leósdóttur,
fluttur fyrir gesti. Gunnar Öm sýn-
ir málverk.
Grái kötturinn verður opinn kl.
9- 24. Ljóðaupplestur um kvöldið i
tengslum við ljóðadagskrá í Iðnó.
A næstu grösum verður opið kl.
10- 22. Kl. 20.30 kemur Zirkus
Ziemsen í heimsókn.
Lifandi tónlist verður leikin á
Ara í Ögri frá kl. 22 og fram eftir
nóttu. Sigfús E. Arnþórsson, pí-
anóleikari, leikur og syngur líflega
tónlist frá ýmsum heimshornum
fyiúr gesti. Búast má við óvæntum
uppákomum.
Jazz verður leikinn á Jómfrúnni í
tilefni dagsins.
Ljóðskáld troða upp á Kaffi
Frank.
Við Tjörnina býður upp á fjöl-
breytta listadagskrá um kvöldið.
Hljómsveitin Sixties spilar frá
kl. 23-03 á Kaffi Reykjavík.
Verslanir og þjónusta
Nælon og jarðarber verður opið kl.
20-24 en það er saumaverkstæði
og verslun. Gestir og gjörningar.
Skóverslunin 38 þrep verður op-
in frá kl. 11.30. Um kvöldið leikur
Lilja Valdimarsdóttir létt Reykja-
víkurlög á horn.
Gleraugnaverslunin Sjáðu verð-
ur opin kl. 10-23. Málverk eftir
Pétur Gaut.
í Máli og menningu verður boðið
upp á fjölbreytta menningardag-
skrá frá kl. 17-01. Skemmtunin fer
fram á kaffihúsinu Súfistanum á 2.
hæð. Kl. 17-19: Kristján Eldjárn
leikur á gítar. Rithöfundar Máls og
menningar og Forlagsins lesa úr
verkum sínum. Hljómsveit Súfist-
ans leikur fyrir gesti. Hljómsveit-
ina skipa Szymon Kuran á fiðlu,
Steingrímur Guðmundsson á
trommur, Ástvaldur Traustason á
píanó og Birgir Bragason á bassa.
Atriði úr Hellisbúanum; Bjami
Haukur Þórsson leikur. 20-22:
Hljómsveit Súfistans kemur aftur
og leikur fyrir gesti. Rithöfundar
Máls og menningar og Forlagsins
lesa úr verkum sínum. Strengjatvf-
leikur; Auður Hafsteinsdóttir fiðlu-
leikari og Bryndís Halla Gylfadótt-
ir sellóleikari. Teater sport
leikatriði. Kl. 23-01: Hjörleifur
Valsson leikur á fiðlu og Havard
Öieroset leikur á gítar. Rithöfund-
ar Máls og menningar og Forlags-
ins lesa úr verkum sínum.
Strengjatvíleikur; Auður Haf-
steinsdóttir fiðluleikari og Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari.
Hljómsveitin Canada leikur fyrir
gesti.
Fóa Feykirófa verður opin kl.
10-24. Leikföng fyrir unga sem
aldna. Ymislegt verður sér til gam-
ans gert um kvöldið.
Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar verður opin kl. 10-24.
Harmónikkutónlist, hljómsveitin
Hringir og hljómsveitin Canada
leika og eins mun gítarleikarinn
Kristján Eldjárn slá á strengi.
María Lovísa, fatahönnuður hef-
ur opið kl. 10-24. í tilefni af Menn-
ingamótt verður haldin tískusýn-
ing kl. 20 og er fyrirhugað að halda
sýninguna utandyra.
Spútnik verður opið kl. 10-24.
Vakað af list og ýmislegt til
skemmtunar.
Flex verður opið kl. 10-23.30.
Sérstæðir skartgripir eftir þekkta
hönnuði. Kl. 16 og kl. 22.30 flytja
Tena Palmer og Hilmar Jensson
jazz.
Kaffitár verður opið kl. 10-24.
Boðið upp á kaffismökkun.
Hans Petersen Bankastræti 4,
verður opið kl. 20-24. Örvar Árdal
Árnason sýnir málverk í verslun-
inni.
Upplýsingamiðstöð ferðamála
verður opin kl. 8.30 - 20. Upplýs-
ingar veittar um Reykjavík og Is-
land almennt.
íslenska handverkshúsið verður
opið kl. 10-14 og 19.30-23.30. ís-
lenskt handverk og listmunir.
Eymundsson Austurstræti verð-
ur opið kl. 10-24. Jazztríó Guð-
mundar Steingrímssonar leikur í
versluninni um kvöldið.
TÓLFTU sumardjasstónleikar veit-
ingahússins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu verða laugardaginn 22.
ágúst og hefjast þeir kl. 16.
Að þessu sinni leika Jóel Pálsson
saxafónleikari, Gunnlaugur Guð-
mundsson kontrabassaleikari og
Matthías Hemstock trommuleikari.
Tónleikarnir fara fram á Jóm-
frúrtorginu, milli Lækjargötu, Póst- p
hússtrætis og Austurstrætis, ef veð- £
ur leyfir, annars inni á Jómfrúnni.