Morgunblaðið - 21.08.1998, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Ástkær eiginmaður minn, sonur, tengdasonur,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JENS ÓLAFSSON
verslunarstjóri,
Hlíðartúni 1,
Hornafirði,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 24. ágúst kl. 13.30.
Jarðsett verður í Stærri-Árskógskirkjugarði.
Helga Steinunn Ólafsdóttir
Sigrún Jensdóttir,
Sveinbjörg Baldvinsdóttir,
Ólafur Jensson,
Guðný Björg Jensdóttir,
Sigrún Jensdóttir,
Halldór Jensson,
Eygló Jensdóttir,
Ólafur Guðmundsson,
Hanna M. Sigurðardóttir,
Gunnar Þór Þórarnarson,
Torfi Geir Torfason,
Margrét Ármann,
Björn Austfjörð
og barnabörn.
+
Maðurinn minn,
MARTEINN KRISTJÁN EINARSSON,
Laugavegi 157,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag,
föstudaginn 21. ágúst, kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á ávís-
anareikning nr. 4490 í Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis, Skólavörðustíg, í nafni hans.
Ragnheiður Þorsteinsdóttir,
Þorsteinn Rúnar Stefánsson,
Þorbergur Svavar Stefánsson,
Guðrún Jónsdóttir.
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför
SIGURSTEINS ÁRNASONAR,
Hringbraut 61.
Sigríður Ólafsdóttir,
Margrét Sigursteinsdóttir,
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson,
Árni Sch. Thorsteinsson,
Anna Sigríður Kristjánsdóttir,
Ásta Kristjánsdóttir,
Áslaug Sigursteinsdóttir,
Kristján Egilsson.
Brynhildur Sch. Thorsteinsson,
Björk Ragnarsdóttir,
Tindur Hafsteinsson,
Aron P. Karlsson
og fjölskyldur.
t
Einlægar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug með blómum, kveöjum og
heimsóknum vegna andláts og útfarar ást-
kærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, systur og ömmu,
MARÍU KRISTÍNAR INGIBERGSDÓTTUR,
Túngötu 5,
Reyðarfirði.
Árni Valdór Elísson,
Elís Árnason, Sigríður Pálsdóttir,
Guðbjörg Árnadóttir, Samer Kudur,
Erla Bjarney Árnadóttir,
Elmar Ingibergsson, Unnur Lúðvíksdóttir,
Guðríður Ingibergsdóttir, Björn Egilsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu,
móður, tengdamóður, systur og ömmu,
LÁRU INGIBERGSDÓTTUR,
Daltúni 3,
Kópavogi.
Tómas Kristjánsson,
Arnfríður Tómasdóttir, Arnar Arinbjarnar,
Ásdís Ingibergsdóttir,
Gróa Ingibergsdóttir,
Sigursveinn Ingibergsson,
Ásdis Hafiiðadóttir
og Arnar Tómas Birgisson.
HELGA JÓHANNA
> *
JOHANNSDOTTIR
+ Helga Jóhanna
Jóhannsdóttir
fæddist í Reykjavík
12. apríl 1908. Hún
lést á Droplaugar-
stöðum 11. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Jóhann Pétursson
og Ingiríður Benja-
mínsdóttir. Systkini
Helgu: Margrét, f.
1906, látin, Sigur-
jóna Guðrún, f. 4.5.
1910, d. 1994,
Hulda Dagmar, f.
25.5 1914, d. 14.4.
1997, Jón, f. 12.12
1915, Sigrún Þor-
björg, f. 14.4. 1926,
d. 1936, Ólafía, f.
18.7. 1934, d. 20.10
1988. Eiginmaður
Helgu var Jónatan
Guðjónsson, f. 12.2.
1903, d. 12.8. 1965.
Fóstursonur þeirra
er Reynir Helgason.
títför Helgu fer
fram frá Fossvogs-
kirkju í dag klukkan
13.30.
+
Eiginmaður minn, fósturfaðir og faðir okkar,
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
framreiðslumaður
og umsjónarmaður hjá
Krabbameinsfélagi íslands,
Álfheimum 6,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 19. ágúst.
Gunnþórunn Sigurjónsdóttir,
Gunnar G. Kristjánsson,
Magnús Guðjónsson,
Indíana Guðjónsdóttir,
Þórarinn Guðjónsson,
Aðalheiður Guðjónsdóttir,
Svava Kristjana Guðjónsdóttir,
Margrét Ásta Guðjónsdóttir.
+
Móðir okkar,
ARNBJÖRG GUÐLAUGSDÓTTIR,
Mýrum 13,
Patreksfirði,
andaðist að kvöldi miðvikudagsins 19. ágúst.
Börnin.
+
Bróðir okkar og frændi,
GÍSLI ÞORKELSSON,
lést á heimili mínu miðvikudaginn 19. ágúst.
Hulda Þorkelsdóttir,
systkini og vandamenn.
+
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
HALLDÓR HÖRÐUR SIGTRYGGSSON,
sem lést af slysförum laugardaginn 15.
ágúst, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju,
Garði, laugardaginn 22. ágúst kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem
vildu minnast hans, er bent á Minningarsjóð
hins látna í Landsbanka Islands um land allt,
kjörbók nr. 64494.
Sigtryggur Hafsteinsson,
Jóhanna Halldórsdóttir,
Heiðar Logi Sigtryggsson,
Jóhanna Ótta Sigtryggsdóttir,
Janus Hafsteinn Sigtryggsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
SIGRÍÐAR M. OLSEN,
áður til heimilis
í Hvassaleiti 56.
Sendum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Eir
sérstakar þakkir fyrir einstaklega góða umönnun og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Haraidur Stefánsson
og fjölskyidur.
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðvilj-
aður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikur-
inn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki
síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langræk-
inn. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en
samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir
allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleik-
urinn fellur aldrei úr gildi.
Þegar ég tek mér nú penna í hönd
til að skrifa fáein kveðjuorð um elsku
Jóu mína verður mér efst í huga
kærleikur og vinátta hennar, sem er
orðin löng.
Tengdamóðir mín, Magdalena Sig-
urðardóttir, og Jóa voru vinkonur
frá unga aldri, áttu báðar sín æsku-
spor í vesturbænum í Reykjavík, og
hélst sú vinátta alla tíð. Hún sýndi
tengdamóður minni og hennar
manni alltaf mikla ræktarsemi og
elskulegheit, ekki síst þegar þau
voru bæði orðin lasburða og fór að
halla undan fæti hjá þeim. Lét Jóa
mín það ekki aftra sér frá að koma til
þeirra um hverja helgi og dvelja hjá
þeim, þeim til gleði og ánægju, og
þurfti hún alltaf að taka tvo strætis-
vagna til að komast til þeirra í Hafn-
arfjörð, en hún lét það ekki á sig fá.
Jóa var á heimili tengdaforeldra
minna þegar þau áttu öll börnin sín.
Öllum þessum börnum reyndist Jóa
eins og önnur móðir i gegnum öll
þessi ár, með ástúð sinni, kærleika
og væntumþykju. Jóa hefur ætíð
verið eins og önnur amma og
langamma barna og barnabarna í
þessari fjölskyldu. Hún var alltaf
með þegar börnin voru skírð, fermd
og síðan gift, því Jóa var aUtaf nefnd
fyrst ef eitthvað stóð til hjá fjöl-
skyldunum.
Jóa var mjög glöð og hláturmild
kona og hafði oft gaman af að segja
frá ýmsum viðburðum og skemmti-
ferðum sem farið var í á gömlum bíl-
um og þá voru boddý sett upp á bíl-
ana fyrir konur og börn og aðra far-
þega. Jóa mín hafði gaman af því að
gleðja aðra á afmælum og öðrum
tyllidögum. Hún var aldrei efnuð
kona, en hún vildi samt alltaf geta
glatt aðra ef svo stóð á. Hún var
sjálfri sér nóg, fór vel með allt sem
hún átti. Hún var mikið snyrti-
menni, alltaf fínt og fágað út úr dyr-
um hjá henni, hversu þröngt sem
búið var.
Jóa eignaðist yndislegan mann.
Hann hét Jónatan Guðjónsson. Hann
var mikið góðmenni og sá hugljúfasti
maður sem ég hef kynnst, með af-
brigðum bamgóður maður. Þessi
barngóðu hjón gátu ekki eignast
börn. Þau tóku í fóstur systurson
Jóu og ólu hann upp sem sinn eigin
son. Hann heitir Reynir Helgason,
er kvæntur og á fjögur börn. Þessi
drengur var alger augasteinn þeirra.
Jóa mín missti mann sinn í kringum
1960, að mig minnir, og varð það
henni mikið áfall, því þau voru svo
samrýnd og hamingjusöm.
Jóa átti marga og góða trygga vini
í gegnum árin, sem hún sýndi mikinn
kærleika og heimsótti þá á heimili
þeirra og líka eftir að sumt var kom-
ið inn á stofnanir sökum elli og sjúk-
leika. Hún hringdi alltaf reglulega til
okkar hjóna til að fá fréttir og fylgj-
ast með að öllum liði vel. Mér fannst
hálftómlegt þegai- Jóa mín hætti að
geta talað við mig i símann, en það
gat hún ekki nú síðasta árið, þegar
heilsu hennar fór að hraka.
Við hjónin heimsóttum Jóu í vor á
Droplaugarstaði. Vai' hún þá nokkuð
hress, þekkti okkur og gat sagt frá
hversu margir hefðu heimsótt sig
þegar hún varð 90 ára í apríl, en sök-
um veikinda minna gat ég ekki
glaðst með Jóu minni þennan dag.
Eg fer nú að enda þessi orð min um
Jóu okkar. Þakka henni allt í gegn-
um 45 árin sem ég, börnin mín og
barnabörn áttum með henni. Maður-
inn minn sendir ástar- og saknaðar-
kveðjur til Jóu sinnar fyrir alla um-
hyggjuna og kærleikann í gegnum
árin. Einnig senda Guðlaug og Sig-
urgunnar og fjölskyldur þeirra ást-
arþakkir fyrir öll árin sem hún gaf
þeim, börnum þeirra og fjölskyldum
þeirra.
Vertu nú Guði falin elsku Jóa mín.
Bið góðan Guð að blessa góða og
ógleymanlega ásjónu þína.
Reyni, syni Jóu, og fjölskyldu
sendum við innilegar samúðarkveðj-
ur. Guð veri með ykkur öllum á þess-
um sorgardögum.
Ingibjörg, Þórir og börn.