Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Náttúruverndarráð skorar á ríkisstjórn fslands að endurskoða virkjanaáform „Fela í sér umskipti á nátt- úru sem aldrei verða bætt“ NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ skorar á ríkisstjóm Islands að beita sér fyrir endurskoðun virkjanaá- forma og að leita leiða til að virkja vatnsföll og beisla orku, sem miða að verndun ósnortinna við- erna og náttúrugersema landsins. Náttúruverndarráð sendi forsætisráðherra fyrir skömmu ályktun og áskorun þar sem skorað er á hann, og ríkisstjórnina alla, að móta heild- stæða stefnu í virkjana- og umhverfismálum, með heill náttúru landsins að leiðarljósi. I greinargerð sem fylgir áskoruninni segir að nú þegar hafi vatnafari landsins verið breytt verulega án þess að vistfræðilegar langtímarannsóknir hafi verið gerðar á áhrifum breytinganna á náttúrufar landsins. Litið hafi verið fram hjá neikvæðri reynslu annarra þjóða af uppistöðulónum og stífl- um, og fáir Islendingar geri sér grein fyrir alvöru slíkra framkvæmda í vistfræðilegum og hagræn- um skilningi. Villandi að segja virkjanir vistvænar „Fyrirhugaðar virkjanaáætlanir Landsvirkjun- ar og annarra orkufyrirtækja sem byggja á uppi- stöðu- og miðlunarlónum fela í sér stórkostleg um- skipti á náttúru íslands, vatnafari og vistkerfi, sem aldrei verða bætt. Alþjóðleg umræða um um- hverfismál og stóraukin vitneskja um gildi ósnort- innar náttúru er í hámæli víða um heim. Aukinn skilningur og mikil áhersla á að vernda villt, ósnortin víðerni sem óvíða finnast lengur munu gefa náttúru á hálendi íslands hnattrænt gildi, skapa fjölmörg störf og auka verðmæti þess fyrii' íslendinga,“ segir í greinargerðinni. NáttúruverndaiTáð bendir á að stjómvöld hafi það í hendi sér hvort uppistöðulón sökkvi ómetan- legum náttúruauðlindum og hvort vatnafari ís- lands verði breytt frekar án fyrirhyggju. Stjórn- málamönnum beri skylda til að tryggja að nátt- úruverðmæti spillist ekki að óþörfu og ráðið telji villandi að halda því fram að vatnsaflsvirkjanir sem byggi á eyðileggingu vistkerfa, landslags- heilda og ósnortinna víðerna með ófyrirsjáanleg- um afleiðingum, séu vistvænar. Stjórnvöld móti nýja stefnu Ráðið leggur áherslu á að „nú þegar verði vernd- un helstu náttúrugersema þjóðarinnar ti-yggð til frambúðai'. Núverandi virkjanaáform ógna Þjórs- árverum, Langasjó, Eyjabökkum, Dimmugljúfrum við Kái-ahnúka, Amardal, Jökulsá á Fjöllum og Dettifossi. Því er það knýjandi nauðsyn að skoða valkosti til langs tíma svo sambúð okkai' við náttúru landsins verði sem best borgið. Þai' verðm' að gilda jafnræði á milli verndar og nýtingar sem nú er ekki fyrir hendi. Náttúruverndarráð treystir því að ríkisstjórn Islands finni sig knúna til að móta nýja stefnu gagnvart náttúruauðlindum Islendinga. Leitað verði nýrra leiða við orkuöflun sem byggja á vin- samlegu og skynsamlegu langtímaviðhorfi til náttúrufars landsins. Sérkenni íslenskrar nátt- úru, fjölbreytileiki lífríkis og landslags sem eru undirstaða vistkei'fis og ómetanleg atvinnu- og menningarverðmæti lands og þjóðar verði vernd- að.“ Hlutverk Náttúruverndarráðs er samkvæmt 12. gr. laga um náttúruvernd að stuðla að al- mennri náttúruvernd og fjalla um hvaðeina sem lýtur að náttúruvernd á íslandi. Ráðið er um- hverfisráðherra til ráðgjafar um náttúruvernd- armál og veitir Náttúruvernd ríkisins faglega ráðgjöf. Ráðið skal jafnframt taka mið af þró- un náttúruverndar á alþjóðavettvangi í störfum sínum. Níu menn skulu skipaðir í ráðið og skip- ar umhverfisráðherra sex þeirra, fimm að fengn- um tillögum Náttúrufræðistofnunar íslands, Há- skóla íslands, Bændasamtaka íslands, Ferða- málaráðs og skipulagsstjóra ríkisins. Einn er skipaður án tilnefningar og skal hann vera for- maður ráðsins. Ljósmynda- sýningin Landið og orkan opnuð LJÓSMYNDASÝNINGIN Landið og orkan, verður opnuð á 2. hæð Kringlunnar í dag. Myndirnar tók Ragnar Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, og er sýningin opnuð samhliða World Press Photo-ljósmyndasýningunni sem haldin hefur verið undanfarin ár í Kringlunni. Myndir Ragnars á sýningunni eru af svæðum sem hróflað mun verða við ef fyrirhugaðar virkjun- arframkvæmdir á hálendi Islands ná fram að ganga. Um er að ræða svæði eins og Dimmugljúfur, Arn- ardal, fossana Dynk og Dettifoss, og votlendisvinjarnar Þjórsárver og Eyjabakka. Myndirnar tók Ragnar í sumar á ferðum sínum um svæðin við undirbúning greinaflokksins Landið og orkan, sem birst hefur undanfarna sunnudaga í Morgunblaðinu. Á sýningunni eru 16 myndir og hafa þær verið stækkaðar tölu- vert, eru flestar um 120 sm á breidd og á bilinu 45-120 sm á hæð. Sýningin stendur til sunnudags- ins 8. nóvember nk. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Fyrirvari á rekstrar- sérleyfi í UMSÖGN Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga um frumvarp til laga um miðlægan gagnagrunn á heil- brigðissviði, segir að félagið geti fall- ist á gerð gagnagrunnsins með viss- um skilyrðum. Virkt eftirlit verði haft með að vísindasiðfræðilegum skilyrðum við rannsóknir á gagna- grunninum sé fullnægt. Þá skuli leita heimildar Tölvu- nefndar fyrir samkeyrslu miðlægs gagnagrunns við aðra gagnagrunna, óheimilt verði að samkeyra miðlæg- an gagnagrunn við aðra óskylda gagnagrunna, s.s. um félagslegar eða fjárhagslegar aðstæður, saka- skrá eða skrár tryggingafélaga. Sett verði ítarlegri skilgreining á því hvað séu heilsufarsupplýsingar og til- greint verði hvaða heilsufarsupplýs- ingar verða færðar í gagnagrunninn. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga setur allan fyrirvara á hugmyndir um sérleyfi til reksturs gagnagrunns. Félagið telur að tryggja verði aðgang vísindamanna á heilbrigðisstofnunum svo og menntastofnunum þeim tengd- um að gögnum gagnagrunnsins. Morgunblaðið/ÁRNI Sæberg Framboðsmál samfylkingar A-flokkanna og Kvennalistans f Reykjavík Samkomulag um jafnræði milli flokka SAMKOMULAG hefúr náðst milli fulltrúa A-flokkanna og Kvennalist- ans um að ákveðið jafnræði skuli ríkja milli flokkanna við röðun í örugg sæti á framboðslista samfylkingar- innar í Reykjavík fyrir alþingiskosn- ingarnar í vor. Að sögn talsmanna Kvennalistans er með jafnræði átt við það að hver flokkur geti verið sáttur við sinn hlut og túlka þeir það sem svo að vilji sé til þess að Kvennalist- inn fái tvö þingsæti á listanum. Enn hefur ekki náðst sátt mOli flokkanna um hvaða leið verði farin til að velja fulltrúa á framboðslista samfylking- arinnar. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er þó annars vegar rætt um að flokkamir fái úthlutað ákveðnum sætum á listanum og að þeir ákveði síðan sjálfir hvemig þeir kjósi að velja í þau sæti. Hins vegar er rætt um að efna til prófkjörs milli flokka og einstaklinga með svipuðum leikreglum og notaðar vora við val á framboðslista Reykjavikurlistans fyr- ir síðustu borgarstjómarkosningar. Galopið prófkjör í Reykjavík, án leik- reglna, kemur á hinn bóginn alls ekki til greina, að sögn heimildarmanna Morgunblaðsins. Samkomulagið um að jafnræði skuli ríkja milli flokkanna náðist á fundi níu manna nefndar flokkanna þriggja í Reykjavíkurkjördæmi á miðvikudagskvöld. Hulda Ólafsdóttir, einn þriggja fulltrúa Kvennalistans í nefndinni, segir að með samkomulag- inu verði hægt að koma með ákveðna tryggingu um hlut Kvennalistans í Reykjavík inn á landsfund Kvenna- listans um helgina, en þar er ætlunin að taka endanlega ákvörðun um hvort Kvennalistinn taki þátt í sameigin- legu framboði. „Það skiptir miklu máli fyrir okkur, fulltrúa Kvennalist- ans í nefndinni, að geta sagt við okkar konur á landsfundinum að við höfum eitthvað fast í hendi,“ segir hún. Hulda ítrekar hins vegai- að um munnlegt samkomulag hafi verið að ræða en telur að þrátt fyrir það verði hægt að treysta því að það standi. Steinunn V. Óskarsdóttii’, sem einnig er fulltrúi Kvennalistans í nefndinni, leggur áherslu á að um heiðursmannasamkomulag sé að ræða og að það snúist um að hlutur allra flokkanna sem taki þátt í sam- eiginlegu framboð verði tryggður í Reykjavík. „Þegar talað er um jafn- ræði er ekki átt við að allir flokkar eigi að vera með jafnmörg þingsæti á listanum heldur er átt við það að allir flokkar geti verið sáttir við sinn hlut. Það er auðvitað misjafnt hvað flokk- arnir geta sætt sig við,“ segir hún. Þegar Steinunn er spurð að því hvað Kvennalistinn geti sætt sig við segir hún: „Kvennalistinn hefur tvo þing- menn frá Reykjavíkurkjördæmi í dag og við viljum ekki færri en það. En við gætum líka hugsanlega viljað fleiri.“ Landsfundur Kvennalistans Landsfundur Kvennalistans hefst í Reykholti í kvöld og er gert ráð fyrir því að fulltrúar Kvennalistans í viðræðunefndum vegna sameigin- legs framboðs kynni stöðu mála fyr- ir hádegi á morgun. Hins vegar er búist við því að ákvörðun verði tekin um það síðdegis hvort Kvennalistinn taki þátt í sameiginlegu framboði með A-flokkunum fyrir alþingis- kosningarnar í vor. Þær kvenna- listakonur sem Morgunblaðið ræddi við sögðu erfitt að spá fyrir um það hver niðurstaðan yrði, en einni varð þó að orði að hugsanlega gæti farið svo að samþykkt yrði að fara í sam- eiginlegt framboð með ákveðnum skilyrðum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það með hvaða hætti verði valið á framboðslista samfylkingarinnar í öðmm kjördæmum landsins en að sögn Kvennalistakvenna skipta Reyk,javíkur- og Reykjaneskjör- dæmi mestu máli fyrir þær vegna þess að þar eigi þær þingkonur fyrir. Ása Richardsdóttir, fulltrúi Kvenna- listans í níu manna nefnd samfylk- ingarflokkanna í Reykjaneskjör- dæmi, vildi ekkert segja um þær við- ræður sem fram hefðu farið um framboðsmál í þeirri nefnd. Aðspurð um hugsanlega niðurstöðu lands- fundarins sagði hún hins vegar: „Ég tel ekkert því til fyrirstöðu að sam- fylkingin verði samþykkt á lands- fundinum um helgina í Ijósi niður- staðnanna í Reykjavík ef tryggt verður að fulltrúi Kvennalistans verði í einu af fyrstu fjóru sætum framboðslista samfylkingarinnar á Reykjanesi."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.