Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 17
LANDIÐ
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
FRÁ fundi leiðbeinenda.
Leiðbeinendur
aldraðra hittast
Reyðarfirði - Nýlega héldu leið-
beinendur í Félagsstarfi aldraðra á
Austurlandi samráðsfund á Nes-
kaupstað. Þar mættu konur með
sýnishorn af því sem þær eru að
láta vinna, skiptust á hugmyndum
og ræddu málin. Einnig heimsóttu
þær föndurbúðina Jenný og skoð-
uðu það sem þar er á boðstólnum.
Misjöfn aðstaða og framkvæmd
er á félagsstarfi aldraðra eftir
sveitarfélögum. Mikið er um
handavinnu ýmiskonar og föndur
en félagslega hliðin er ekki síður
mikilvæg þegar unnið er með öldr-
uðu fólki.
Leiðbeinendurnir hafa með sér
óformlegan félagsskap og hittast
þegar tækifæri gefast og haldin eru
námskeið. Þær eru félagar í lands-
samtökunum FAG sem er Félag
leiðbeinenda fatlaðra, aldraðra og
geðsjúkra, pósthólf 233, 202 Kópa-
vogur.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjamadóttir
Kveníelag'
Rey ðarfj ar ðar
gefur mjaltavél
Reyðarfirði - Fyrsta vetrardag hélt
Kvenfélag Reyðarfjarðar súpufund
og hófst þar með vetrarstarfið.
Byrjað verður á námskeiðinu Konur
eru konum bestar en síðan farið að
huga að jólum með námskeiðum í
kökuskreytingum og grænmetis- og
baunafæði.
Nýlega gaf félagið Medela-
mjaltavél á Heilsugæslustöðina.
Vélin er lánuð út með nauðsynleg-
ustu íylgihlutnum og hefur komið
að góðum notum. Einnig geta konur
keypt sér auka pela, frystipoka og
fleira. Þeir eru húðaðir að innan
sem kemur í veg fyrir að fitan í
mjólkinni verði eftir þegar umbúðir
eru tæmdar. Þórey Baldursdóttir
ljósmóðir kom á fundinn, sýndi vél-
ina og sagði frá notkun hennar.
Björgunarsveit SYFI
fær nýja bifreið
Neskaupstað - Björgunar-
sveitin Gerpir keypti ný-
lega nýja björgunarbifreið
af Ford Econoline-gerð.
Bifreiðin er mjög öfiug og
er búin öllum nýjasta bún-
aði sem völ er á í slíkum
bifreiðum.
Þá hefur sveitin einnig
fest kaup á notaðri bifreið
af gerðinni Toyota Hilux
sem ætluð er m.a. til nota
iyrir leitarhunda björgunar-
sveitarmanna.
Áætiaður kostnaður sveitin notið velvildar fyrirtækja og
björgunarsveitanna við bifreiða- einstaklinga við fjármögnun
kaupin er um 7Í4 milljón og hefur kaupanna.
FRAMTÍDARBÖRN
sími 553 3322
S ÍMIN Ninte r net^
Þekking á upplýsingatækni er ein af
undirstöðum nútímaþjóðfélags og
mun þáttur tölvutækni og fjarskipta
verða enn mikilvægari þegar fram
líða stundir.
Það er mikilvægt að undirbúa börn
okkar undir framtíðina og stuðla að
sem bestum uppvexti þeirra. Með
þetta að leiðarljósi hafa Síminn
Internet og tölvuskólinn Framtíðar-
börn stofnað til samstarfs sem ætlað
er að auðvelda börnum aðgang að
nytsamlegri og spennandi tölvu-
þekkingu.
Það er Símanum Internet mikill
heiður að fá að taka þátt í menntun
ungafólksins ásamt Framtíðar-
börnum og hefur Síminn ákveðið að
styrkja 10 börn til náms í tölvuskóla
Framtíðarbarna í vetur.
Síminn Internet gefur börnum
forskot á framtíðina