Morgunblaðið - 30.10.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 31
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sigrún Eðvaldsdóttir
„ „ Morgunblaðið/Árni Sæberg
SINFONIUHLJOMSVEIT áhugamanna, ásamt Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara
og stjórnandanum Oliver Kentish, æfir dagskrá sunnudagsins.
Útskriftar-
tónleikar
Birnu Þor-
steinsdóttur
TÓNLISTARSKÓLI Borg-
arfjarðar útskrifar nemanda
af 8. stigi í fyrsta sinn á
morgun, laugardag kl. 16.
Þetta eru útskriftartónleikar
Birnu Þor-
steinsdótt-
ur, en hún
lauk 8.
stigs prófi í
söng sl. vor
og verða
tónleikarn-
ir í Borgar-
neskirkju.
B i r n a
hóf tónlist-
arnám við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar og stundaði
nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og lauk þaðan tón-
menntakennaraprófi árið
1990. Birna hefur stundað
söngnám við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar með hléum frá
árinu 1991 og hefur Theodóra
Þorsteinsdóttir verið söng-
kennari hennar og Jerzy
Tosik-Warszawiak meðleik-
ari. Á tónleikunum munu þau
flytja m.a. þýsk, skandinavísk
og íslensk ljóð, ásamt aríum
eftir Haydn, Mozart, Puccini
og Dvorák. Tónleikarnir eru
öllum opnir.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT áhuga-
manna heldur tónleika í Neskirkju
sunnudaginn 1. nóvember kl. 17.
Stjórnandi á tónleikunum er Oliver
Kentish og einleikari á fiðlu er Sig-
rún Eðvaldsdóttir. Á efnisskránni
er fiðlukonsert eftir Max Bruch og
sinfónía nr. 2 eftir Brahms.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
var stofnuð 1990. Hana skipar
áhugafólk í hljóðfæraleik auk
nokkurra tónlistarkennara og
nemenda. Sveitin heldur að jafnaði
þrenna sjálfstæða tónleika á ári en
hefur auk þess komið fram við ým-
Tónleikar
í Nes-
kirkju
is tækifæri, m.a. leikið með fjölda
kóra. Ingvar Jónasson hefur verið
aðalsijórnandi hljómsveitarinnar
frá upphafi.
Oliver Kentish, hefur oft áður
komið við sögu hljómsveitarinnar,
bæði sem stjórnandi og sellóleikari.
Hann hlaut tónlistaruppeldi sitt í
Englandi, en hefur starfað á ís-
landi í tvo áratugi sem hljóðfæra-
leikari, kennari, stjórnandi, tón-
skáld, þýðandi og þulur.
Sigrún Eðvaldsdóttir nam tónlist
í Tónlistarskólanum í Reykjavík
hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og
gegnir nú stöðu konsertmeistara í
Sinfóníuhljómsveit Islands.
Aðgangseyrir að tónleikunum er
kr. 1.000, frítt fyrir börn og eldri
borgara.
Birna
Þorsteinsdóttir
Truflaður við
laxveiðar
ERLEJVDAR
BÆKUR
Spennusaga
VOÐAVERK í HÁLÖNDUNUM
„MALICE IN THE HIGHLANDS"
eftir Graham Thomas. Ivy Books
1998. 229 síður.
ÞEGAR nefndar eru sakamála-
sögur og Skotland í sömu andrá
kemur aðeins eitt nafn upp í hug-
ann: Taggart. Sjónvarpsáhorfendur
hafa nú í mörg ár fylgst með rann-
sóknarlögreglu Glasgow-borgar að
störfum og ekki verið sviknir um
frábæra skemmtun, spennu og
gamanmál, jafnvel þótt McManus
sé látinn og Taggart sjálfur ekki
Iengur til þess að halda utan um
hópinn með sínum eitniðu athuga-
semdum um náungann. En voða-
verkin eru framin víðar en í Glas-
gow. Sakamálasagan „Malice in the
Highlands", sem kannski má þýða
sem Voðaverk í hálöndunum og var
gefin út í vasabroti síðastliðið vor,
gerist nær Invemess og á svo sem
ekki margt sameiginlegt með sög-
unum um Glasgow-löggurnar annað
en það að morð er framið og fjöld-
inn allur af heimamönnum liggur
undir grun ásamt nokkrum gest-
komandi. Sagan er of fáguð og
snyrtileg og á sinn hátt gamaldags
til þess að höfða til Taggart-aðdá-
endanna, en þeir sem áhuga hafa á
skosku heiðunum og svolítilli lax-
veiði í bland við dularfulla en einkar
hófstillta morðgátu, ættu að geta
skemmt sér eitthvað við lesturinn.
Myrtur milljónamæringur
Höfundur sögunnar heitir Gra-
ham Thomas og er þetta hans
fyrsta sakamálasaga en væntanleg-
ar em fleiri um sama lögreglufor-
ingja, Erskine Powell að nafni, sem
starfar hjá The New Scotland Yard.
Graham þessi mun vera menntaður
líffræðingur sem býr í Bresku Kól-
umbíu en hefur áhuga á að leggja
fyrir sig spennubókarskrif. Þessi
fyrsta saga hans er gefm út í
Bandaríkjunum en höfundurinn
virðist hafa staðgóða þekkingu á
öllu því sem lýtur að Skotlandi.
Þannig er að Erskine Powell er í
nokkurra daga fríi við laxveiðar í
hálöndunum ásamt tveimur vinum
sínum þegar lík finnst í ánni þeirra.
Það er af kanadískum milljónamær-
ingi er keypt hafði gamalt skoskt
herrasetur í nágrenninu. Ljóst er að
hann hefur verið myrtur og Powell
til sárrar raunar er hann settur yfir
rannsókn málsins, hann hefði miklu
fremur viljað halda áfram að berja
ána með flugustönginni og setjast
niður að kveldi með viskísopa og
rifja upp lygasögur úr laxveiði.
Rannsókn málsins leiðir Powell á
vit fjölmargra þeirra sem skipt hafa
við milljónamæringinn bæði í hér-
aðinu en einnig utan þess, verð-
bréfamiðlara í London og hvað eina,
en millinn átti gullnámur í Kanda.
Dóttir millans hefur eitthvað verið
að slá sér upp með heimamönnum
honum til sárrar gremju og smátt
og smátt púslar Powell öllu dæminu
saman í heildstæða mynd og hring-
urinn þrengist um misindismann-
inn.
Vantar fyllingu
Erskine Powell þessi á eflaust
eftir að slípast meira eftir því sem
höfundurinn gerir um hann fleiri
bækur en fátt eitt er um hann sagt
persónulega utan að hann hefur
áhuga á laxveiði og gegnir vel sínu
starfi. Einkalífið er mjög í þoku.
Hjónabandið virðist á leið í
hundana. Hann á tvo syni sem hann
hugsar aldrei til. Hann hefur ein-
hvern minniháttar áhuga á matar-
gerð og virðist líða best einum á
ferð. Hann vantar ennþá einhverja
fyllingu til þess að verða verulega
áhugaverður.
Það sama má segja um söguna.
Hana vantar einhvem neista til þess
að halda manni við efnið. Hún er
skrifuð í þaulreyndri hefð Agöthu
Christie sagnanna og það er fátt í
henni sem kemur á óvart. Spennan
verður aldrei mikil eða eftirvænting-
in því Thomas á naumast til frum-
lega hugsun og frásögnin líður áfram
með mjög formlegum hætti og í
miklum rólegheitum. Kannski það
eigi allt eftir að slípast með tímanum
og fleiri sögum um Erskine Powell.
Arnaldur Indriðason
Harpa Björnsdóttir
sýnir á Mokka
HARPA Björnsdóttir opnar
sýningu á ljósmyndaverkum í
dag, föstudag, og nefnir hún
sýninguna Foldarskart (sweet
flowers). Ljósmyndaverkin eru
hugsuð sem hluti af stærra
verki, segir í fréttatilkynn-
ingu. Verkið snýst um gróður-
setningu, nýgræðinga og það
sem þrífst í harðræðinu, um
fegurð hins náttúrulega og
fegnrð hins manngerða, sam-
spil þarna á milli og mat okkar
á þessum hlutum jafnt í stóru
sem smáu.
Harpa Björnsdóttir er fædd
árið 1955 á Seyðisfirði. Hún
hefur stundað nám við
Menntaskólann í Reykjavík,
Iðnskóla Vestmannaeyja, Há-
skóla íslands og Myndlista- og
handiðaskóla íslands, þaðan
sem hún lauk námi árið 1982
úr nýlistadeild. Harpa hefur
dvalið á vinnustofum víða í
Evrópu og í Balí.
Þetta er 19. einkasýning
Hörpu en hún hefur m.a. liald-
ið sýningar á Kjarvalsstöðum,
í Galleríi Borg, Hafnarborg og
Galleríi Sævars Karls. Einnig
hefur hún tekið þátt í fjölda
samsýninga hér á landi og er-
lendis og tekið þátt í alþjóð-
legu snjóhöggsmóti í Svíþjóð
og alþjóðlegu tréskúlptúrmóti
á Ítalíu. Hún hefur hlotið
starfslaun listamanna árin
LJÓSMYNDAVERK Hörpu Björnsdóttur á Mokka.
1985, 1988, 1992 og 1998 og
verk eftir hana eru í eigu
safna og stofnana.
Ennfremur segir að Harpa
hefur unnið mest að málverki
og grafík, einnig notað þann
efnivið sem hentugur er hveiju
sinni og hæfir viðfangsefninu.
Sýningunni lýkur fimmtu-
daginn 19. nóvember.
Nýjar bækur
• HUGARFAR og hagvöxtur.
Menning, þjóðfélag og framfarir á
Vesturlöndum er eftir Stefán
Ólafsson og er endurútgefin í kilju.
I þessari bók er fjallað um hug-
arfar nútíma-
manna. Höfund-
ur rekur þætti
úr hugmynda-
sögu þjóðfélags-
fræðanna frá
miðöldum til nú-
tímans og sýnir
hvernig verald-
leg lífsskoðun
varð smám sam-
an ríkjandi í
menningu Evrópumanna. Þá sýnir
höfundur hvernig breytt hugarfar
tengdist þjóðfélagsbreytingum,
einkum tilkomu kapítalisma, lýð-
ræðisskipulags og iðnvæðingar.
Markmið höfundar er að þróa
kenningu er getur skýrt helstu
þjóðfélagslegu forsendur efna-
hagsframfara, segir í kynningu.
I seinni hluta bókarinnar fjallar
höfundur um hugarfar og hagsæld
meðal fimmtán aðildarríkja
OECD-samtakanna. Sérstaklega
er fjallað um vinnumenningu, við-
skiptamenningu, framfarahyggju
og samfélagsmenningu. Þar er
fjallað jöfnum höndum um ísland
og önnur nútímaþjóðfélög.
Stefán Olafsson lauk MA-prófi í
þjóðfélagsfræðum frá Edinborgar-
háskóla og D.Phil.-prófí frá Há-
skólanum í Oxford (Nuffield Col-
lege). Hann er prófessor við Há-
skóla Islands og hefur verið for-
stöðumaður Félagsvísindastofnun-
ar háskólans frá því hún var stofn-
sett árið 1986.
Utgefandi er Háskólaútgáfan og
Félagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands. Verð: kr. 2.750. Háskólaút-
gáfan sér um dreifingu.
• Á MEÐAN hann horfir á þig
ert þú María mey er fyrsta bók
Guðrúnar Evu Mínervudóttur og
hefur að geyma 20 smásögur.
í kynningu segir: „Þetta smá-
sagnasafn gefur
góða hugmynd
um sagnaheim
Guðrúnar Evu.
Þar ríkir ein-
stök, titrandi
stemmning. Þótt
ekkert sérstakt
beri til tíðinda
hvílir munúðar-
fullur blær yfir
hversdagslífinu
og gæðir sögumar kitlandi
spennu.“
Útgefandi er Bjartur. Bókin er
100 bls., prentuð hjá Gutenberg.
Bókin kemur út í nýjum bókaflokki
neonbóka og fá áskrifendur bókina
heimsenda á 1.180 kr. Kápugerð
annaðist Snæbjörn Arngrímsson.
Verð: 1.680 kr.
Stefán
Ólafsson
Guðmundur Rafn
Geírdal
skólastjóri og fólagsfræ óingur
Allír skulu vera jafnír
fyrir lögum,
cinnig kosningalögum.
Ég legg til að landið
verðí eitt kjördæmí.