Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 53 ^
Málþing um áhrif
virkjana norðan
Vatnajökuls
FRÁ vígslu Breiðavíkurskála í sumar.
Myndakvöld Ferðafé-
lagsins frá Austfjörðum
MÁLPING um áhrif virkjana norð-
an Vatnajökuls verður haldið á
morgun, laugardag, í Hátíðarsal
Aðalbyggingar Háskóla íslands.
Þorvarður Árnason frá Siðfræði-
stofnun HÍ setur málþingið kl. 13
og að þri loknu hefst eftirfarandi
dagski-á sem stendur til kl. 17.
13.10: Umfjöllun um mat á um-
hverfisáhrifum. Elín Smáradóttir,
lögfræðingur hjá Skipulagsstofn-
un.
13.40: Kynning á virkjanasvæð-
inu og virkjanaáætlunum - hver
verða umhverfisáhrifin? Skarphéð-
inn Þórisson líffræðingur.
14.10: Eyjabakkar, fuglalíf. Krist-
inn Haukur Skarphéðinsson, fugla-
fræðingur Náttúrufræðistofnunar
Islands.
14.25: Rannsóknir Landsvh-kjun-
ar á umhverfisþáttum fyrirhugaðra
virkjana norðan Vatnajökuls. Helgi
Bjarnason, deildarstjóri umhverfis-
deildar Landsvirkjunar.
14.55 Kaffihlé.
15.15: Stóriðja og Rammasamn-
ingur Sameinuðu þjóðanna um
Aðalfundur
Landverndar
AÐALFUNDUR Landverndar
verður haldinn í gistihúsinu Staðar-
flöt í Hrútafirði 30. og 31. október
nk. Fundurinn hefst kl. 19.30 á
föstudagskvöld með kvöldverði og
kvöldvöku. Þar mun Steingrímur
Hermannsson, fyi-rverandi ráð-
herra, flytja erindi um sjálfbæra
þróun á nýrri öld og einnig verður
héraðsþáttur úr Húnaþingi. Kvöld-
vakan er öllum opin. Á laugardag
verða hefðbundin aðalfundarstörf.
Landvernd, landgræðslu- og
náttúruverndarsamtök Islands, eru
landssamtök áhugamanna um land-
græðslu og umhverfisvernd. í sam-
tökunum eru um 60 félög og félaga-
samtök, þar á meðal nokkur fjöl-
mennustu félagasamtök í landinu.
í mars sl. stóð Landvernd fyrir
ráðstefnu um varnir gegn gróður-
húsaáhrifum, ásamt Framtíðar-
stofnun. Landvernd tekur þátt í
umfjöllun og stefnumótun um þetta
efni. Landvernd vinnur nú, í sam-
vinnu við fjölmarga aðila, að verk-
efni um hálendi Islands. Tilgangur
verkefnisins er að koma á samstarfi
áhuga- og hagsmunaaðila um að
afla og kynna sem víðtækasta þekk-
ingu um hálendið og skapa þannig
grundvöll fyrir rökstudda og mál-
efnalega umræðu um vernd og nýt-
ingu þess. Haldin verður ráðstefna
um þetta efni í janúar nk.
Landvernd rekur umhverfis-
fræðslusetur í Alviðru í Ölfusi. Þar
fer fram fjölbreytt fræðslustarf með
áherslu á náttúruskoðun og útivist.
Þetta fræðslustarf er einkum sótt af
skólafólki og félagasamtökum.
Stofnun Þjóð-
fræðingafélags
FUNDUR verður haldinn í Skóla-
bæ í kvöld, föstudagskvöldið 30.
október, kl. 20.30, þar sem þjóð-
fræðingar og þjóðfræðinemar ætla
að hittast og eiga saman kvöld-
stund. Dagskránni er skipt í tvennt.
í fyrsta lagi stendur til að stofna
þjóðfræðingafélag, sem verður sam-
starfs- og umræðuvettvangur
þeirra sem lokið hafa námi í grein-
inni eða leggja stund á rannsóknir í
þjóðfræði.
í annan stað verður þjóðfræðing-
urinn Bo Almqvist með framsögu á
fundinum og talar hann um þjóð-
fræði á Irlandi. Prófessor Bo
Almqvist er íslendingum að góðu
kunnur fyrir rannsóknir sínar á ís-
lenskum fornsögum og samanburð-
arrannsóknir á íslensku og írsku
þjóðfræðaefni.
loftslagsbreytingar. Tryggvi Felix-
son hagfræðingur.
15.45: Efnahagslegir þættir stór-
iðjustefnu. Stefán Gíslason um-
hverfisfræðingur, umhverfisstjórn-
un MSc.
16.15: Pallborðsumræður. Þátt-
takendur: Þorvaldur Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Samtaka sveit-
arfélaga á Austurlandi (SSA), dr.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir líffræð-
ingur, Bjarnheiður Hallsdóttir
ferðamálafræðingur og Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar.
Fundarstjóri er Ámi Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Heilsuhælis
NLFÍ. Með stjórn pallborðs og um-
ræðna fer Stefán Jón Hafstein rit-
stjóri og Guðríður Helgadóttir, fag-
deildarstjóri Garðyrkjuskóla Is-
lands.
Að málþinginu standa Náttúru-
verndarsamtök Islands, Félag um
verndun hálendis Austmdands,
Náttúruverndarsamtök Austur-
lands og Fuglaverndarfélag ís-
lands.
Opinn
fundur um
hvalveiðimálið
SJÁVARNYTJAR halda opinn
fund um hvalveiðimálið á Grand
Hóteli laugardaginn 31. október nk.
og hefst fundurinn kl. 13. Fundur-
inn er öllum opinn.
„Á fundinum munu koma fram
nýjar upplýsingar um stöðu hvala-
mála, bæði hvað varðar ástand
hvalastofna við ísland, reynslu
Norðmanna af hvalveiðum og bar-
áttu við hvalfriðunarsamtök og
stöðu þingsályktunartillögu um
hvalveiðar sem nú liggur fyrir Al-
þingi. Þá kemur fram, hvort og þá
hvaða áhrif hvalveiðar íslendinga
geti haft á alþjóðaviðskipti og þýð-
ingu alþjóða viðskiptasamninga í
því samhengi. Einnig verður fjallað
um þá stöðu sem hvalveiðimálið
virðist vera í; stjórnvöld fást ekki til
að taka ákvörðun um veiðar, þrátt
fyrir að 80% þjóðarinnar séu því
fylgjandi. Fundurinn ber yfirskrift-
ina: Á þjóðin engu að ráða um nýt-
ingu hvalastofna?" segir í fréttatil-
kynningu.
Á fundinum flytja ávörp þeir Gísli
Víkingsson frá Hafrannsóknastofn-
un, Arnar Þór Júlíusson lögfræð-
ingur, Guðjón Guðmundsson alþing-
ismaður, Steinar Bastesen, stór-
þingsmaður í Noregi, og Jón Gunn-
arsson, formaður Sjávarnytja.
Fyrirlestur um
samspil plantna
og plöntusjúk-
dómavalda
STEFÁN Þór Pálsson, sérfræðing-
ur á rannsóknastofu Islenski-ar
erfðagreiningar, mun halda erindi
um sameindalíffræðilegar hliðar á
samspili plantna og plöntusjúk-
dómavalda á morgun, laugardag, á
Lynghálsi 1. Erindið hefst kl. 14 og
að því loknu verður opið hús þar
sem gestum gefst kostur á að skoða
rannsóknastofur Islenskrar erfða-
greiningar. Öllum er heimill að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
í erindi sínu mun Stefán Þór
ræða um þá sérstöku eiginleika sem
plöntur hafa til að verja sig gegn
ýmsum skakkafóllum og árásum ör-
vera sem valda plöntusjúkdómum,
segir í fréttatilkynningu.
Stefán Þór Pálsson stundaði nám
í búvísindum við Konunglega dýra-
lækna- og landbúnaðarháskólanum
í Kaupmannahöfn og lauk þaðan
BSc-prófi.
MYNDAKVÖLD Ferðafélagisns
verður í kvöld kl. 20.30 í Mörk-
inni 6. Þar munu þær Inga Rósa
Þórðardóttir, formaður Ferðafé-
lags Fljótsdaíshéraðs og ína D.
Gísladóttir, formaður Ferðafé-
lags Fjarðamanna, sýna myndir
og segja frá gönguleiðum á Aust-
fjörðum á svæðinu frá Borgar-
firði eystra til Reyðaríjarðar þar
sem Víknasvæðið og Gerpissvæð-
ið koma helst við sögu frá Borg-
arfirði eystra til Seyðisfjarðar.
Borgfirðingar hafa undanfarin
ár lagt áherslu á að kynna svæð-
ið sem gönguland, hafa stikað
Föstudagsfyrir-
lestur Líffræði-
stofnunar
í FÖSTUDAGSFYRIRLESTRI Líf-
fræðistofnunar í dag, 30. október,
mun Emma Eyþórsdóttir, búfjár-
erfðafræðingur við Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins (RALA), flytja er-
indi um rannsóknarverkefni sitt. Er-
indið nefnist Erfðabreytileiki ullar-
og skinnaeiginleika í íslensku sauðfé.
Erindið verður haldið á Grensás-
vegi 12, stofu G-6, og hefst klukkan
12.20. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Norrænar
barnamyndir
í TILEFNI af Norrænu barna-
myndahátíðinni sem er nýlokið hefur
Norræna húsið fengið leyfi til að
sýna nokkrar myndanna sem sýndar
voru í Regnboganum meðan á hátíð-
inni stóð. Sýningar verða á laugar-
daginn 31. október. Þær hefjast kl.
10 að morgni og standa fram til
klukkan 15 og eru sýningar í sal
Norræna hússins.
gönguleiðir og gefíð út gott
göngukort, segir í fréttatilkynn-
ingu. Ferðafélag Fljótsdalshér-
aðs reisti í sumar nýjan skála á
Víknasvæðinu í Breiðavík.
Ferðafélag Fjarðarmanna hef-
ur aftur á móti lagt áherslu á
Gerpissvæðið og annað umhverfi
Norðfjarðar og Reyðarfjarðar.
Félagið vinnur að opnun Gerpis-
svæðisins sem göngulands með
stikun og í sigtinu er að gefa út
göngukort af þessu landsvæði,
segir í tilkynningunni.
Kaffiveitingar eru í hléi og að-
gangseyrir er 500 kr.
Kl. 10 verða finnsku stuttmyndirn-
ar Þraukaðu og brostu, Skvettur og
Urpo og Turbo sýndar.
Kl. 11 eru það sænsku stuttmynd-
irnar Binke getur ekki flogið, Snati
er svangur og Tígurhjarta.
Kl. 13 verður sýnd norska kvik-
myndindin Maja Steinandlit.
Kl. 14.20 eru síðan sýndar dönsku
stuttmyndh-nar Upp með hendur og
Fanny litlausa.
Myndirnar hæfa öllum aldri og er
öllum heimill ókeypis aðgangur með-
an húsrúm leyfir. Nánari upplýsing-
ar eru gefnar á bókasafni Norræna
hússins.
Opiö hús Félags
áhugafólks um
Downs-heilkenni
FÉLAG áhugafólks um Downs-heil-
kenni hefur opið hús laugardaginn
31. október kl. 16 í húsnæði Lands-
samtakanna Þroskahjálpar, Suður-
landsbraut 22.
í framhaldi af heimsókn Irene Jo-
hannson sl. sumar vill stjórn félags-
ins ræða frekar um gagnsemi „tákn
með tali“, um aðferðir Irene, hver
tilgangurinn er með þeim og hvað
má betur fara.
Hið uppruna-
lega Kriya-jéga
á Islandi
HINGAÐ til lands er væntanlegur
jógi sem mun leiðbeina fólki í Kriya-
jóga hugleiðslu. Kriya-jóga er hug-
leiðslutækni sem var kennd í fyrsta
sinn á Islandi í sinni upprunalegu
mynd vorið 1996, að því er segir í
fréttatilkynningu. Jóginn sem mun
kenna tæknina er Peter van Breu-
kelen.
Hann er nemandi Paramahansa
Hariharananda Giri, en hann er tal-
inn einn mesti jógi sem uppi er í dag,
segh' í tilkynningunni. Hariharan-
anda er eini núlifandi lærisveinn Sri -
Yukteswars, sem var andlegur fræð-
ari Paramahansa Yogananda. Yog-
ananda þekkja margir, því hann
stofnaði einn þekktasta bréfaskóla í
jógafræðum í heiminum í dag, Self-
Realization Fellowship í Bandaríkj-
unum og Yogoda Satsanga félagið á
Indlandi. Þess má geta að í Self-
Realization Fellowship eru allmai'gir
íslendingar.
Kennslan í Kriya-jóga fer fram
dagana 30. október til 3. nóvember í
sal Mannspekifélagsins á Klappar-
stíg 26, 2. hæð. Fyrst verður ókeypis
kynningarfyrirlestur en sjálft nám-
skeiðið kostar 5.000 krónur. Skrán-
ing er ekki nauðsynleg, en fólk ætti
að tilkynna þátttöku sína í lok fyrir-
lestrarins. Fyrirlesturinn verðm-
haldinn fóstudagskvöldið 30. október
klukkan 21 í sal Mannspekifélagsins
en námskeiðið hefst morguninn eftir
klukkan 9 og stendur fram á þriðju-
dagskvöld.
Vélsleðasýning
hjá Merkúr
UM helgina kynnir Merkúr hf. 1999-
árgerðirnar af vélsleðum frá
Yamaha. Auk nýrra sleða verða .
sýndir nokkrir notaðh- sleðar, úrval
-af fylgihlutum, fatnaði, hjálmum og
fleiru fyrir vélsleðafólk.
I fréttatilkynningu segir: „Yamaha
gjörbylti vélasleðaheiminum árið
1997 þegar kynnt var alveg ný léttari
og sterkari grindarbygging, ný fjöðr-
un og vél. Helsta nýjungin núna er
Ventura 600 tveggja manna sleði
með nýrri 3 strokka vél.“
Sýningin er opin laugardaginn 31.
október frá kl. 10-17 og sunnudaginn
1. nóvember frá kl. 13-17.
„Tundurskeyta-
flugsveitin“ í
bíésal MÍR
KVIKMYNDIN „Tundurskeyta-
flugsveitin" verður sýnd í bíósal
MIR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 1.
nóvember kl. 15.
Mynd þessi var gerð í Sovétríkj-
unum fyrir 30-40 árum og lýsir bar-
áttu sovéskra liðssveita á norður-
slóðum við flug- og herskipaflota
Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
LEIÐRÉTT
Rangur fæðingarstaður
í FORMÁLA minningargreinar um
Sólveigu Elínu Pálsdóttur í Morgun-
blaðinu þriðjudaginn 27. október var
missagt að Sólveig Elín væri fædd í
Neskaupstað, en hið rétta er að hún
fæddist í Reykjavík. Hlutaðeigendur
era beðnir velvirðingai- á þessum
mistökum.
Rangt föðurnafn
GREIN eftir Ragnar A. Þórsson
birtist í Morgunblaðinu í gær á bls.
41. Nafn höfundar, sem starfar við
ferðaþjónustu, misritaðist og er hann
beðinn afsökunar á mistökunum.
Viljinn ekki elsta skólablaðið
í GREIN um tvöfalt níræðisafmæli í
Verzlunarskóla íslands er sagt að
Viljinn sé elsta skólablað á íslandi.
Það er víst rangt, því Skinfaxi blað
Framtíðarinnar, en svo nefnist mál-
fundafélag Menntaskólans í Reykja-
vík, var fyrst gefið út árið 1898, og er
því hundrað ára í ár, eða tíu árum /
eldri en Viljinn.
Stýrimannaskélinn í Reykjavík
Þorsteins Valdi-
marssonar minnst
ÞORSTEINN Valdimarsson,
skáld og kennari við Stýrimanna-
skólann í Reykjavík til margra
ára, hefði orðið áttræður 31. októ-
ber hefði hann lifað. Starfsfólk
skólans með stuðningi velunnara
ætla að minnast Þorsteins á þess-
um tímamótum með samkomu í
Hátíðasal Stýrimannaskólans
laugardaginn 31. október kl. 14.
Þar mun Eysteinn Þorvaldsson,
prófessor, flytja erindi um skáldið
og Sigríður Ella Magnúsdóttir og
Ólafur Vignir Albertsson flytja
lög úr Carmen. Lög eftir skáldið
verða flutt, Gunnar Stefánsson les
úr ljóðum skáldsins og Kári Valv-
esson fjallar um kennarann Þor-
stein Valdimarsson.
í fréttatilkynningu segir: „Þor-
steinn setti mark sitt á alla þá er
umgengust hann, ýmist sem
kennari, skáld eða ljúflingur með
sérstaka lífsýn. Þorsteinn var
mikill náttúruunnandi og birtist
það glögglega í mörgum af ljóðum
hans. Hann var einn af frum-
kvöðlum „limrunnar" á íslensku.
Hann kvað t.d.: Ég aðhefst það
eitt sem ég vil/og því aðeins að
mig langi til./En langi þig til/að
mig langi til/þá langar mig til svo
ég vil.
Þorsteinn þýddi einnig talsvert
og má þar nefna texta við söng-
leikinn Carmen sem sýndur var í
Þjóðleikhúsinu 1975 en þar söng
Sigríður Ella Magnúsdóttir titil-
hlutverkið. Frumsýningin var
reyndar 31. október 1975. Þor-
steinn var einnig tónlistarmennt-
aður og samdi tónlist.