Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 21
MORGUNB LAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 21
ERLENT
Hneyksli valda umróti í
finnskum stjórnmálum
Helsinki. Morgunblaðið.
FINNSKI Hægriflokkurinn er
stærsti flokkur Finnlands, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun sem
birt var á sjónvarpsstöðinni MTV3 í
gær. Er þetta í fyrsta skipti á þess-
um áratug sem flokkurinn nær jafn-
miklu fylgi í skoðanakönnun. Sam-
kvæmt könnuninni fengi flokkurinn
24% atkvæða ef nú yrði gengið til
atkvæða en Jafnaðarmannaflokkur-
inn og Miðflokkurinn um 22% hvor
fyrir sig. Jafnaðarmannaflokkurinn
hefur verið stærsti flokkur Finn-
lands undanfarin ár og fengu 28%
atkvæða í síðustu kosningum. Er
þessi niðurstaða í könnuni rekin til
hneykslismála er tengst hafa jafn-
aðarmönnum að undanförnu en
stjórn Paavo Lipponens, forsætis-
ráðherra Finnlands, hélt velli er
fínnska þingið greiddi atkvæði um
vantrauststillögu á hendur honum í
síðustu viku.
Stjórnarandstæðingar hafa haldið
því fram að Lipponen hafi logið að
þinginu þegar hann kvaðst ekki hafa
beitt sér fyrir umdeildri ákvörðun
skattamálaráðherrans á síðasta ári
er ákveðið var að fella að mestu nið-
ur næstum 140 millj. ísl. kr. sekt,
sem Ulf Sundqvist, fyrrverandi for-
maður Jafnaðarmannaflokksins,
hafði verið dæmdur til að greiða
vegna skattsvika.
Sundqvist var bankastjóri STS-
bankans áður en starfsemi hans var
hætt og hafði dómstóll komist að
þeirri niðurstöðu að hann bæri
ábyrgð á lánum er veitt voru án þess
að eðlilegra trygginga væri krafist.
Til dæmis lánaði bankinn litlu fyrir-
tæki, er rekið var af bróður banka-
stjórans, tugi milljóna. Fjrrirtækið
varð fljótlega eftir það gjaldþrota og
ekkert fékkst upp í skuldina.
Stjórnarskrárnefnd finnska
þingsins rannsakaði málið á sínum
tíma og komst að þeirri niðurstöðu
að sú ákvörðun að lækka sekt
Sundqvist stæðist lög þótt hún væri
siðferðilega vafasöm.
Sagði Lipponen viðriðinn
Petta mál kom aftur upp í síðasta
mánuði er Arja Alho, fyrrverandi
skattamálaráðherra, sem gaf
Sundqvist upp sektina, lét að því
liggja að Lipponen hefði komið að
málinu og í raun átt frumkvæði að
samningnum við Sundqvist. Sjálf
neyddist Alho til að segja af sér
vegna þessa máls. Lipponen sagðist
sjálfur ekki hafa haft aðra vitneskju
um málið en þá er Alho veitti hon-
um. Umræðuþættir í útvarpi og
sjónvarpi fyrri hluta októbermánað-
ar fjölluðu vart um annað en það,
hvor ráðherranna hefði sagt ósatt.
Upp úr miðjum mánuðinum lýsti Al-
ho því hins vegar skyndilega yfir að
ekkert ósamræmi væri á milli full-
yrðinga hennar og forsætisráðherr-
ans. I einkasamtali við dagskrár-
gerðarmann hjá finnska útvarpinu
sagðist hún hins vegar hafa fengið
skipun frá flokksformanni sínum um
að svíkja ekki lit. Urðu þessi um-
mæli Alhos opinber er annar dag-
skrárgerðarmaður veitti einkasjón-
varpsstöð og síðdegisblaði upptöku
af samtalinu.
Hægrimenn, sem eru í stjórn með
jafnaðarmönnum, stóðu með
Lipponen í atkvæðagreiðslunni en
hafa samt sem áður haft uppi efa-
semdir um gjörninginn. Samkvæmt
nýlegri skoðanakönnun trúir góður
meirihluti Finna eða 57% því ekki,
að Lipponen segi satt frá. Sagt er,
að Sauli Niinisto, fjármálaráðherra
Hægriflokksins, sem gagnrýndi
Sundqvist-málið harðlega í fyrra,
hafi staðið með Lipponen vegna
þess, að hann vilji starfa áfram með
jafnaðarmönnum eftir kosningarnar
í mars nk. en ekki með Miðflokkn-
um, sem sækir fylgi sitt til lands-
byggðarinnar og er andvígur Evr-
ópusambandinu.
Erkki Tuomioja, leiðtogi þing-
flokks jafnaðarmanna, sagði í gær
Ijóst að málið hefði haft áhrif á af-
stöðu Finna en aðrir stjórnmála-
skýrendur töldu að um tímabundnar
fylgissveiflu væri að ræða.
Sjóður til styrktar Louise Woodward
Asakanir um fjársvik
London. Reuters.
FORELDRAR Lou-
ise Woodward,
bresku au pair-
stúlkunnar sem á sín-
um tíma var ákærð
fyrir að hafa valdið
dauða kornabarns í
hennar umsjón á
meðan hún dvaldi í
Bandaríkjunum, sæt-
ir nú rannsókn vegna
meintra fjársvika í
tengslum við sjóð
sem stofnað var til í
því skyni að standa
straum af kostnaði af
dómsmáli hennar.
Sagði í frétt Sky-
sj ónvarpsfr éttastof-
unnar í gær að lögreglan í Che-
shire-sýslu á Bretlandi hefði hafið
rannsóknina eftir að Sky greindi
frá því í fréttatíma sínum að Sus-
an Woodwai'd, móðir Louise, hefði
afhent sjóðnum falsaðar nótur.
Hefur bandaríska al-
ríkislögreglan verið
fengin til að aðstoða
við rannsóknina og
mun þegar hafa yfír-
heyrt fólk vegna máls-
ins.
Að sögn dagblaðsins
The Guardian snýst
málið um nótu upp á
rúmlega 9.000 pund,
um níu hundruð þús-
undir ísl. króna, sem
Susan Woodward á að
hafa lagt inn vegna
hótelkostnaðar í
Bandaríkjunum en
eiginmaður Elaine
Whitfield Sharp, lög-
fræðings Louise Woodwards, hef-
ur sagt að Susan Woodward hafi
gist frítt hjá þeim hjónum er hún
dvaldi vestra vegna dómsmáls
dóttur sinnar.
Woodward rak Whitfleld Sharp
á sínum tíma eftir að lögfræðing-
urinn hafði lýst efasemdum um
sakleysi umbjóðanda síns.
I samtali við Sky í gærmorgun
sagði Susan Woodward að frétt-
imar væru henni mikið áfall enda
neitar hún ásökunum um bók-
haldsóreiðu. „Af hverju geta þess-
ir menn ekki látið okkur í friði?“
spurði hún.
Fyrir réttu ári síðan var Louise
Woodward dæmd fyrir annarar
gráðu morð á Matthew Eappen,
sem var átta mánaða gamall, en
dómarinn dæmdi Woodward ein-
ungis til refsivistar sem samsvar-
aði þeim tíma sem hún hafði þá
þegar setið í varðhaldi. A næstu
dögum mun síðan verða greint frá
úrskurði í einkamáli sem foreldrar
Matthews Eappens hafa sótt á
hendur Woodward fyrir dómstóli í
Boston í Bandaríkjunum til að
koma í veg fyrir að Woodward
hagnist á sögu sinni.
Louise
Woodward
KVARTCO ehf.
Umboós- og heildverslun
Nýbýiavegi 28, Dalbrekkumegin,
200 Kópavogi S. 564 3327
Opió 13-18 og 10-14 laugard.
0 niviimrrrj BIÖlKjllllBítSBkÍ
Eins handfangs blöndunartæki
Mora Mega eru lipur og létt í
notkun. Fást bæði í handlaugar
og eldhús, króm eða króm/gull.
Mora sænsk gæðavara.
Heildsöludreifing:
Smiðjuvegi II.Kópavogi
fCnQlehf sín,j554i088.ta*564 1089
Fæst í bvgpjngauöruuerslunum um land allt.
GÆLUDÝR
Verð aðeins kr. 980
Ármúla 40, sími 553 5320 og 568 8860
Alvöru sportverslun
bfersluninl
7I44RKID
íslenskur
leiðarvísir
Litir: Hvít,
rauð og blá
8 gæludýr
í einu
10% afsláttur
fóstud. oglaugard.
jyrir langeyga Burleigh-aðdáendur.
Kringlunni
www.mbl.is