Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ A Fjallað um list Sigríðar Asgeirsdóttur í bandarísku riti um glerlistamenn Búist aðeins við hinu óvænta FJALLAÐ er um Sigríði Asgeirsdóttur glerlista- mann í bók, sem kom út fyrr á þessu ári í Bandaríkjunum og ber nafnið „List hins steinda glers: Verk 21 glerlistamanns í fre_mstu röð“. I umsögn bókarinnar um Sigríði, sem um þessar mundir er að vinna glugga í Lang- holtskirkju, segir að hún brjóti reglurnar. „Þessi frumlegi íslenski glerlistamaður býður birginn þeirri hefð, sem þegar allt kemur til alls sker glerið úr: gagnsæ- j inu,“ segir Chris Peter- son, höfundur bókar- innar. „Hún notar dökkleitt gler og dökka liti til að beina athyglinni að hönnuninni, staðsetn- ingu verkanna og samspili skugga og SKÖPUNIN eftir Sig- ljóss á brúnum og yf- ríði Ásgeirsdóttur. irborði þeirra.“ I umsögninni segir að löngum hafí verið spenna í glerlist Sig- ríðar og nýleg sýningarverk hennar grafí undan öllum þeim hugmyndum, sem áhorfandinn kunni að hafa um gler. Hún hafi búið sér til tungumál úr hvössum hornum og ofsafengnum máln- ingarslettum. Hún leggi grunn að öldungis nýrri leið til að skoða efnið með því að nota endurtekn- ingu og stilla glerverk- unum upp hlið við hlið. „Listgagnrýnendur og starfssystkini henn- ar hafa bent á að þessi dramatík andstæðna og voldugrar fram- setningar sé endur- varp hrjóstrugrar náttúru og fegurðar föðurlands SigiTðar," skrifar Peterson. „Sú túlkun gerir hins veg- ar lítið úr frumleika innblásturs hennar og sköpunargleði. Hún laðaðist fyrst að gleri vegna mótsagna þess - spennunnar milli þess hvað efnið er við- kvæmt og kraftmikið." Sigríður segir nokk- ur orð um þá tækni, sem hún beitir, í bók- inni. Tekur hún þar fram að hún hafi hlotið góða tilsögn og því hafi hún ætíð í huga kröf- ur um tæknileg atriði og uppbyggingu, en í verkum sínum leiki hún sér að þeim. í bókinni er fjallað um gler- listamenn frá öllum heimshorn- um, þar á meðal Lutz Haufschild, Rachel Mesrahi, Kuni Kajiwara, David Wilson, Larry Zgoda, Shelley Jurs, Kenneth von Roenn, Carl Powell, Marie Foucault, Debora Coombs, Lindu Lichtman og Patrick Reyntiens. Erfið staða í kennaradeilu á Seltjarnarnesi NÆSTI samningafundur kennara í Valhúsaskóla og Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi og bæjaryfii’valda hefur ekki verið ákveðinn, en 30 kennarar hafa sagt upp störfum frá og með 1. febrúar. Að sögn Sigur- geirs Sigurðssonar, bæjarstjóra á Seltjarnarnesi, var kennurum boðin hækkun á launum, sem jafnast á við 9-13% hækkun á grunnlaunum eða hækkun, sem svarar mest 18 þús- und krónum. „Þessu tilboði höfnuðu kennarar og við erum mjög skúffuð yfir því vegna þess að við héldum okkur vera á réttri leið,“ sagði Sig- urgeir. Aðspurður hvort bæjar- stjóm myndi koma ennfrekar til móts við kennara og bjóða hærri yf- irborganir sagði Sigurgeir að það sem gerði samningaviðræður við kennarana erfiðar væri heildar- myndin á launakjörum starfsmanna sveitarfélagsins. Kennarar væra einungis hluti starfsmanna, þriðj- ungur eða fjórðungur, og líka þyrfti að hugsa um þá sem á eftir kæmu með kröfur um launahækkanir þar sem launahækkanir kennaranna hefðu fordæmisgildi. Sigurgeir sagðist vona að launadeilan leystist fljótt því hún bitnaði einna helst á nemendum skólans. Dregur sögulegan rétt til veiða í efa „SKAGSTRENDINGAR eiga ekki sögulegan rétt til skelfiskveiða við Hornstrandir, eins og Gunnar Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Norðurstrandar, heldur fram,“ segir Viggó J. Einarsson á Hofsósi, en hann hefur stundað tilraunaveiðar á skelfiski undan Hornströndum. „Sannleikurinn er sá að aðkomubátar hafa stundað mestai- veiðar á þessum slóðum og Skagstrendingar nánast engar.“ Viggó ítrekar þau ummæli sín að atvinna á Hofsósi standi eða falli með skelveiðunum. Atvinnuá- stand sé með allt öðram og betri hætti á Skagaströnd, m.a. vegna þess að þar eigi menn nógan kvóta. Viggó ber lof á Hafrannsókna- stofnun og segist hafa átt gott sam- starf við hana. „Hafrannsóknastofn- un hefur allar upplýsingar um til- raunaveiðarnar sem ég stundaði og þær staðfesta að þetta eru ný mið sem ég fann fyi-ir vestan,“ segir Viggó. „Þegar Hafró fór með upplýs- ingarnar frá mér og mældi svæðið ráðlögðu þeir veiðar á 500 tonnum af skelfiski, eftir að ég var búinn að taka á fjórða hundrað tonn. Þegar menn uppgötvuðu um hversu mikið magn er að ræða, vildu allir gripa gæsina.“ Harpa vann Eriksson ÚRSLIT í þriðju umferð á heimsmeistaramóti barna og unglinga, sem haldið er í Oropesa del Mar á Spáni urðu þessi: Einar Hjalti Jensson - Andras Toth (Ungverjalandi, 2330) V2-V2, Stefán Kristjáns- son - Michael Roiz (Israel, 2355) 1-0, Halldór B. Halldórs- son - A. Amidzic (Bosn.-Herz.) V2-V2, C. Mursabekov (Kaz- akstan) - Dagur Arngrímsson 0-1, Guðmundur Kjartansson - M. Tazbir (Póllandi) V2-V2, Harpa Ingólfsdóttir - S. Erics- son (Svíþjóð) 1-0, AJdís Rún Lárusdóttir - V. Breen (Sví- þjóð) 0-1 og Ingibjörg Edda Birgisdóttir - L. Krumina (Lettlandi) 0-1. Eftir þrjár umferðir er vinn- ingafjöldi Islendinganna þessi: Einar Hjalti Jensson I/2 v., Stefán KiTstjánsson 2% v., Halldór B. Halldórsson Vz v., Dagur Arngrímsson 2 v., Guð- mundur Kjartansson IV2 v., Harpa Ingólfsdóttir 1 v., Aldís Rún Lárusdóttir 0 v. og Ingi- björg Edda Birgisdóttir 0 v. í fjórðu umferð tefla saman: Petar Benkovic (Júgóslavía, 2310) - Einar Hjalti Jensson, Joan Fluvia Poyatos (Spánn, 2295) - Stefán Kristjánsson, Abdulla Abdulrahman (Sam. arab. furstad.) - Halldór B. Halldórsson, Dagur Ai-ngiTms- son - Dewald Niemandt (RSA), Paula Delai (Brasilía) - Harpa Ingólfsdóttir og Maya- gozel Gurbanova (Tui'kmenist- an) - Ingibjörg E. Birgisdóttir. Aldís Rún Lárusdóttir situr hjá í 4. umferð. Náttúruverndarsamtök skora á borgarstjórn Náttúruverndarsamtök, úti- vistarfélög og listafólk stóðu fyrir ljóðaupplestri við Ráðhús Reykjavíkur í gær. Anna Krist- ín Arngrímsdóttir leikkona las ljóð í um hálfa klukkustund og að því loknu var Árna Þór Sig- urðssyni, aðstoðarmanni borg- arstjóra, afhent áskorun þar sem skorað er á borgarstjórn að beita sér fyrir því að Lands- virkjun framfylgi ábyrgri stefnu í náttúruverndarmálum. Reykjavíkurborg á 45% eign- arhlut í Landsvirkjun og af því Abyrg stefna í málefnum hálendisins tilefni er skorað á fulltrúa borgarinnar í sljórn Lands- virkjunar, að þeir sjái að lág- marki til þess að fram fari lög- formlegt mat á umhverfisáhrif- um Fljótsdalsvirkjunar. Árni Þór þakkaði fyrir áskor- unina við afhendinguna og sagðist mundu koma henni til borgarstjóra, sem væri erlendis um þessar mundir. „Ég á von á því að borgarstjóri muni ræða við fulltrúa borgarinnar í stjórn Landsvirkjunar um framhald málsins og afstöðu borgarinnar. Á þessu stigi get ég hins vegar ekkert sagt um viðbrögð borg- arinnar við áskoruninni," sagði Árni Þór. Morgunblaðið/Ásdís ANNA Kristín Arngrímsdóttir leikkona las ljóð við Ráðhús Reykjavíkur í gær til varnar miðhálendi íslands. Að lestrinum loknum var Árna Þór Sigurðssyni, aðstoðarmanni borgarstjóra, afhent áskorun þar sem skor- að er á borgina að beita sér fyrir því að Landsvirkjun framfylgi ábyrgri stefnu í náttúruverndarmálum. Aflaverð- mæti 80 milljónir TOGARARNIR Baldvin Þor- steinsson og Sléttbakur öfl- uðu vel í síðustu veiðiferðum sínum en Baldvin kom til hafnar í gær og Sléttbakur fyrr í vikunni. Baldvin Þorsteinsson EA kom til hafnar í gærmorgun eftir 40 daga túr í grænlensku lögsöguna. Skipið var þar á karfaveiðum og er afli skips- ins um 255 tonn af frystum af- urðum, eða rám 1.000 tonn upp úr sjó og er aflaverðmæt- ið nálægt 80 milljónum króna. Sléttbakur EÁ kom einnig úr góðum 30 daga túr í vik- unni af heimamiðum. Aflinn var tæp 190 tonn af blönduð- um afla, eða um 350 tonn upp úr sjó og var uppistaðan þorskflök og heilfryst grálúða. Aflaverðmæti Sléttbaks var um 57 milljónir króna. Opið hús Prímu og Heimsklúbbs Ingólfs HEIMSKLÚBBUR Ingólfs og ferðaskrifstofan Príma hafa stækk- að og endurhannað húsnæði sitt í Austurstræti 17. Af því tilefni verð- ur opið hús á morgun, laugardag, milli kl. 14 og 16 þar sem m.a. verð- ur kynnt nýja félagsdeildin Edda, sem sér um sérþjónustu við ýmsa hópa og einstaklinga. Fulltráum Heimsklúbbsins, sem taka á móti farþegum fjölgar jafnt og þétt um heiminn, samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu frá Heimsklúbbi Ingólfs. Einnig segir að nýlega hafi Adda Steina Bjöms- dóttir verið ráðin til að annast far- þega í Malasíu, en hún er búsett í Kuala Lumpur ásamt manni sínum Þóri Guðmundssyni fyri'verandi fréttamanni. Þegar séu m.a. starf- andi fulltráarnir Sigrán Cline, sem býr í Flórída og annast farþega Heimsklúbbsins, sem fara í sigling- ar og dvelja í Flórída eða á eyjum Karíbahafs, Sigrán Sveinsson, sem tekur á móti farþegum á Bali og Miss Nui í Tælandi. Á opnu húsi verður veittur af- sláttur af öllum pöntunum í skipu- lagðar ferðir, sem gestir staðfesta á opnunardaginn. ---------------- Fjórar hljóm- sveitir á for- varnatónleikum STUÐ gegn vímu er slagorð for- varnatónleika sem haldnir verða á morgun milli klukkan 14 og 18 í Miðgarði í Skagafirði. Tónleikarnir eru ætlaðir nemendum í sjöunda til tíunda bekk nokkuira grunnskóla á Norðurlandi. Fjórar hljómsveitir koma fram á tónleikunum, Skítamórall, Sóldögg, Súrefni og Real Flavez og á milli þess sem skipt verður um hljóm- sveitir verða skemmtiatriði frá tveimur skólanna og happdrætti. Gefinn hefur verið út litprentaður bæklingur sem sendur hefur verið nemendum í þessum árgöngum en þar er að finna ávarpsorð frá for- seta íslands, menntamálaráðherra, heilbrigðisráðherra og vígslubisk- upi Hólastiftis ásamt fleirum. Yfirskrift tónleikanna er Ungt fólk í Evrópu - íslensk æska gegn vímu ásamt slagorðinu stuð gegn vímu og er með því bent á að hægt er að skemmta sér án efna og að með vímuefnalausri skemmtun eigi að vera hægt að draga úr notkun vímuefna í þessum aldurshópum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.