Morgunblaðið - 30.10.1998, Side 16

Morgunblaðið - 30.10.1998, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/KVM AÐALFUNDARFULLTRÚAR fyrir utan fundarstaðinn sem var samkomuhúsið í Grundarfirði. Hagsmunamál Vestur- lands rædd á aðalfundi SSV Grundarfírði - Aðalfundur Sam- taka sveitarfélaga á Vesturlandi var haldinn í Grundarfirði 23.-24. október. Fulltrúar frá öllum sveit- arfélögum í Vesturlandskjördæmi komu til fundarins og var fjallað um hin ýmsu sameiginlegu hags- munamál sveitarfélaganna á Vest- urlandi. Fyrri daginn voru fluttar skýrsl- ur hinna ýmsu nefnda SSV og einnig var fjallað um yfirfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga. Þar voru framsögumenn Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra, Magnús Þorgrímsson framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Vesturlands og Gísli Gíslason bæjarstjóri. Það sem þótti einna eftirtektarverðast var sú hugmynd félagsmálaráðherra að sveitarfélögin öll þyrftu ekki að yf- irtaka málaflokkinn, heldur gæti yf- irtakan orðið þannig að sum þeirra stæðu að henni en önnur ekki og ríkið sinnti einhverjum hluta þjón- ustunnar áfram. Nýjar áherslur í byggðamálum Egill Jónsson stjórnarformaður í Byggðastofnun flutti erindi um nýj- ar áherslur í byggðamálum. Til þess að snúa þeirri þróun við sem átt hefur sér stað með fólksfækkun á landsbyggðinni sagði hann það vera einkum fjórir þættir sem leggja bæri áherslu á úti á landsbyggðinni, þ.e. nýsköpun í atvinnulífi, aukin tækifæri til menntunar, jöfnun hit- unarkostnaðar og vöruverðs og betri samgöngur. Síðari dagurinn fór að mestu í nefndarstörf, ályktanagerð og sam- þykktir. Þær ályktanir sem sam- þykktar eru á þessum fundum eru alla jafnan niðurstaða málamiðlana. Náðu þær til samgöngumála og menntamála, en í þeim málaflokki var m.a. samþykkt að fela Atvinnu- ráðgjöf Vesturlands að vinna að því að auka möguleika vestlendinga til menntunar á háskólastigi. Einnig var gerð áskorun til ríkisstjómar um að daggjöld til dvalarheimila aldraðra í landinu verði hækkuð. Margt annað má telja, svo sem um- hverfismál o.fl. en hér verður staðar numið. Þess skal þó getið að Vest- lendingum þykir að þeir hafi borið skarðan hlut frá borði í vegamálum samanborið við önnur kjördæmi landsins. Að lokum var ný stjóm SSV kos- in og sitja í henni 7 aðalmenn. Framkvæmdastjóri SSV er Guðjón Ingvi Stefánsson og er skrifstofan í Borgamesi. Hocine, Alsír, Agence France Presse „Kona syrgir eftir fjöldamorðið í Bentalha, Alsír, 23. september. Sýning World Press Photo á bestu fréttaljósmyndum ársins 1997 stendur yfir í Kringlunni 30. október til 8. nóvember. Komið og sjáið heiminn með augum bestu fréttaljósmyndara heims. Skákþing Islands sett í Árborg Selfossi - Skákþing Islands var sett 27. október á Hótel Selfossi en skákþingið fer fram í nýja sveitarfé- laginu, Arborg, dagana 27. október til 7. nóvember. Alls eru 12 kepp- endur á mótinu og verður teflt á Selfossi, Stokkseyi’i og Eyrarbakka. Það kom fram í máli Karls Björnssonar, bæjarstjóra Arborgar, við setningu mótsins að Arborg hef- ur á veraldarvefnum heimasíðu og á þessari síðu er búið að koma upp sérstakri undirsíðu þar sem Skák- þingi íslands og keppendum era gerð sérstök skil og jafnóðum og úr- slit verða til munu þau birt þar. Þannig verður síðan uppfærð eftir hverja umferð mótsins. Karl vildi hvetja menn til að kynna sér þessar upplýsingar en þær er að finna und- ir http:/Avww.selfoss.is/skakmot. Margir hafa lagt hönd á plóginn svo Skákþing íslands 1998 verði hið glæsilegasta. Styrktaraðilar móts- ins eru fjölmargir og er framlag þeirra ein grannforsenda þess að Skákþing íslands er nú haldið í Ár- borg. Það vakti athygli viðstaddra að allir þingmenn Suðurlands mættu á setningu mótsins. Það var síðan Ingunn Guðmundsdótth’, forseti bæjarstjói'nar, sem lék fyrsta leik mótsins og framundan era spenn- andi dagar fyrir alla skákáhuga- menn. Morgunblaðið/Sig. Fannar INGUNN Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Árborgar, leikur fyrsta leik skákþingsins. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal FRÁ undirritun samnings Samvinnuferða-Landsýnar og Körfuknatt- leiksdeildar Keflavíkur. Frá vinstri til hægri í fremri röð eru: Egill Ólafsson, sölustjóri Samvinnuferða-Landsýnar í Reykjanesbæ, Þor- grímur Árnason, gjaldkeri Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og Birgir Bragason, formaður deildarinnar. Fyrir aftan standa stúlkurnar sem nú skipa meistaraflokk félagsins. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur fékk kærkominn styrk Keflavík - Körfúknattleiksdeild Keflavíkur og Samvinnuferðir- Landsýn hafa undirritað auglýs- inga- og styrktarsamning, sem gilda mun til eins árs. „Þessi samningur er afar þýð- ingarmikill og við erum Sam- vinnuferðum-Landsýn afar þakk- látir fyrir þann stuðning sem fyr- irtækið hefur sýnt kvennadeild- inni. Einnig vil ég nefna þátt Egils Ólafssonar sölustjóra í Reykjanesbæ, sem með framsýni og velvild hefur lagt þungt lóð á vogarskálarnar og gert körfubolt- ann að því veldi sem hann er í dag,“ sagði Þorgrímur Árnason, gjaldkeri Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. Þorgrímur sagði að Samvinnu- ferðir-Landsýn hefði verið aðal styrktaraðili meistaraflokks liðs kvenna í körfuknattleik á undan- förnum árum og hann vonaði svo sannarlega að áframhald yrði á því. Það væru því ánægjulegar fréttir að geta sagt að merki Sam- vinnuferða-Landsýnar myndu áfram prýða keppnisbúninga meistaraflokks kvenna sem nú væru bæði íslands- og bikarmeist- arar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.