Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.10.1998, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 UR VERINU MORGUNBLAÐIÐ Sjávarútvegsráðuneytið svarar umsókn Jóns Kristjánssonar um rannsóknaleyfi Lít á svarið sem synjun SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur svarað umsókn Jóns Kristjáns- sonar, fískifræðings, um heimild til fískifræðilegra rannsókna við ísland. Jón segist ekki geta stundað rann- sóknir eftir þeim skilyrðum sem sett eru í svarinu og telur að með því hafi ráðuneytið í raun sett sér stólinn fyr- ir dyrnai’. Jón sótti um leyfi til sjávarútvegs- ráðuneytisins fyrr í sumar til að rannsaka hvort þorskur á Vestfjarða- miðum væri af mörgum staðbundn- um stofnum. I svari ráðuneytisins, sem barst í síðustu viku, kemur fram að Hafrannsóknastofnunin telur að gagnagrunnur sem til er á stofnun- inni sé mun líklegri til að veita þær upplýsingar sem óskað sé eftir í rannsókninni en rannsókn Jóns. I svarinu segir ennfremur að telji Jón ástæðu til að afla gagna sem ekki liggi fyrir á Hafrannsóknastofnun geti ráðuneytið fallist á að veita hon- um leyfi tH sjálfstæðra rannsókna. Leyfið þurfi hins vegar að vera háð þeim skilyrðum að eftirlitsmaður verði um borð í skipi, sé talin nauð- syn á að nota veiðarfæri með minni möskvastærð en almennt er heimilað að nota eða taka sýni á svæðum þar sem veiðar eru bannaðar. Ennfremur að Hafrannsóknastofnunin fái ná- kvæmar upplýsingar um niðurstöður rannsókna þegar þær liggja fyrir. Hafnar beiðni um rannsókna- veiðar utan kvóta Sjávarútvegsráðuneytið hafnar hins vegar beiðni Jóns um að sá fisk- ur sem fæst við öflun nýrra gagna reiknist ekki til aflaheimilda þess skips sem hann veiðir. I svarinu segh- að í þeim tilvikum þar sem öflun sýna leiðir til slikra skemmda á fiski verði hann ekki hæfur til vinnslu, geti ráðuneytið fallist á að fiskurinn drag- ist ekki frá veiðiheimildum skipsins, enda yi’ði um óverulegt magn að ræða. Þá segir einnig í svarinu að ráðuneytinu sé Ijóst að sá tími sem Jón hugðist stunda rannsóknir sínar sé liðinn í ár en ýmsar ástæður hafi valdið því að mjög hafi dregist að svara umsókn hans. Er í rauninni synjun Jón Kristjánsson segist ekki í að- stöðu til að fara eftir þeim skilyrðum sem sett eru í svarinu og því líti hann þannig á að ráðuneytið sé í raun að synja honum um rannsóknaleyfið. „Ég get ekki kostað eftirlitsmann frá Hafrannsóknastofnun né veitt sýni án þess að aflinn sé undanþeginn kvóta. Ég get ekki farið fram á við nokkum mann að fá að vinna að vís- indarannsóknum í hans vinnutíma.“ Jón segist líta þannig á að Haf- rannsóknastofnun hafi ekki áhuga á auknum fiskirannsóknum við Island. „I framhaldinu má þá spyi’ja í hvaða stöðu stofnunin er þegar hún sækir um auknar fjárveitingar til meh'i rannsókna. Þeir telja gi'einilega að í gagnabanka stofnunarinnar séu til gögn um þá þætti sem ég vildi skoða.“ Hann segist ekki hafa ákveðið hvert næsta skref hans verður. Þróunin heldur áfram. Nú er mbl.is enn fjölbreyttari og ríkari að innihaldi. Á hverri stundu er ailtaf eitthvað nýtt að gerast á mörgum sviðum og það sérðu á mbl.is. Hraði, fjölbreytni, vandað efni. Komdu á mbl.is og upplifðu augnablikið á Netinu. mbl.is FRÉTTIR Innlent • Erlent • Athafnalíf • Tölvur og tækni • Veður og færð FflSTtlBNIR Eignaleit • Fasteignafréttir • Handbókin • Lánareiknir • Fasteignasalar • Gagnlegar slóðir , Iþróttafréttir • Meistaradeild kvenna • Landsslmadeildin • Enski boltinn • Handbolti DÆGRADVÖL Dilbert • Stjðrnuspá • Fréttagetraun • Leikir SÉRVEFIR Svipmyndir vikunnar • Laxness • HM '98 • Kosningar '98 UPPLÝSINGAR Morgunblaðið • Auglýsingar • Aðsent efni • Samskipti • Blaðberinn -ALLTA.f= ei7~rH\SA£} /VK/ / Loðnuveiðar Lítil veiði vegna brælu „ÞAÐ ERU flestir með bræluslatta, enda enginn kraftur verið í veiðun- um síðustu daga vegna veðurs," sagði Sveinn ísaksson, skipstjóri á Víkingi AK, í samtali við Morgun- blaðið í gær en skipið var þá á land- leið með um 700 tonn af loðnu. Eng- in loðnuveiði var á miðunum norð- austur af Langanesi í fyrrinótt og voru flest loðnuskipin á landleið í gær, með frá 200 og upp í 700 tonna afla. Skipin fengu aflann aðfaranótt miðvikudags, yfirleitt aðeins um 50 til 70 tonn í kasti. „Loðnan er ill- veiðanleg þessa dagana. Við fengum eitt 200 tonna kast en annars voru þetta bara smá slattar. Það virðist ekki vera mikið af loðnu á svæðinu og hún er auk þess mjög dreifð hér og hvar í Langaneskantinum. Ofan í allt saman hefur verið mikil ótíð síð- ustu daga og það er erfitt að eiga við þetta í brælum.“ Loðnan týnd norðvestur af Kolbeinsey Sveinn sagði nokkur skip nú hafa fikrað sig vestur á bóginn í leit að loðnu. „Vonandi förum við að finna stóru torfuna og þykjumst nokkuð vissir um að hún sé týnd einhvers- staðar norðvestur af Kolbeinsey. Þar sýndi hún sig um miðjan nóv- ember í fyrra,“ sagði Sveinn. Hvorki gengur né rekur í síldveið- unum. Flest skipin voru í gær í Hér- aðsflóadýpi en þar var lítið sem ekk- ert að sjá af sfld að sögn skipstjórn- armanna. Mjög dræm síldveiði hef- ur verið síðustu vikurnar og hafa skipin nú dreifst nokkuð við leit. -------------------- Kælitækni Samstarf við norsk fyrirtæki KÆLITÆKNI hefur tekið upp sam- starf við norska fyrirtækið Finsam Refrigeration AS um kynningu á Flo-Ice krapaísvélum sem eru sam- settar efth' forskrift frá Kælitækni, að því er kemur fram í fréttatilkynn- ingu. Finsam hefur m.a. þróað eigin aðferð við að blanda saman ferskvatnsís og vatni í ferskvatns- krapa, sem hægt er að dæla sjálf- virkt. Verksmiðjur Finsam Refriger- ation AS eru þær stærstu sinnar teg- undar í Noregi. Þá hefur einnig verið hafið sam- starf við norska fyrirtækið Teknotherm AS, sem sérhæfir sig í RSW-kerfum og kæli- og frystikerf- um fyrir fiski- og vöruflutningaskip. Teknotherm leitast sérstaklega við að finna heildarlausnir á kælingu og frystingu í fiski- og vöruflutninga- skipum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.