Morgunblaðið - 30.10.1998, Page 49

Morgunblaðið - 30.10.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 49 ^ laug og Sif, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Heru Newton. Ingibjörg Friðjónsdóttir. Hera Newton var glæsileg kona full af geislandi lífsorku og krafti. Við höfum mikið misst þegar hún nú kveður okkur langt um aldur fram. Mikill harmur kemur efst í hugann þegar ég sest niður til að skrifa þessi fátæklegu þakkar- og kveðjuorð. Hera og Birna kona mín kynnt- ust í æsku og voru þær ávallt síðan bundnar órjúfanlegum vináttu- böndum. I þau hartnær 40 ár sem ég fékk notið þeirrar vináttu bar þar aldrei skugga á og var það sannkölluð lífshamingja að fá að koma þar nærri. I tæp þrjú ár hefur Hera barist við erfiðan sjúkdóm. I þeirri bar- áttu undraðist maður oft hversu mikill kraftur og lífsgleði bjó í þess- ari fíngerðu konu. Það var einstök lífsreynsla að fá að umgangast Heru á þeim tíma og þrátt fyrir erf- iða baráttu þá studdi Hera ávallt og hvatti Birnu konu mína af einstök- um eldmóði þegar sami sjúkdómur herjaði á hana af fullum þunga. í langan tíma kom Hera nær daglega til að heimsækja og styrkja æskuvinkonu sína og saman fóru þær á kaffihús og mannamót og nutu þess að vera til. Það var sama hvemig viðraði, alltaf var Hera mætt og alltaf var sami krafturinn og eldmóðurinn í brjósti hennar. Saman skyldu þær njóta lífsins þar til yfir lyki. En nú er baráttu Heru lokið, baráttu sem ekki gat endað nema á einn veg. Við sem eftir sitjum sjá- um á bak góðum vini sem ávallt fylgdi kraftur og hlýja. Minning hennar mun áfram lifa. Stanley og dætrum þeirra hjóna sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Hrafn Sigurhansson. morgni dmkkum við morgunkaffi saman, og stundum skruppum við til Reykjavíkur eða í Borgarnes eða bara áttum rólega daga heima. Þetta var góður tími fyrir okkur báðar, að geta verið saman, en skil- ur nú eftir ljúfsárar minningar. Það verður dauflegt að koma heim á Akranes núna, engin Gústa á Mánabraut til að heimsækja og hlæja með eða gráta. Elsku Gústa, mín elskulega vin- kona, þakka þér fyrir allt sem við áttum saman. Mér finnst örlög þín grimm og köld, eins og reyndar mér fannst ævi þín oft vera, en ég trúi því að þér líði vel núna, að það hljóti að vera tilgangurinn með þessu. Guð veri með þér hvar sem þú ert. Elsku Þórey, Sævar, Þórdís, Heimir og Garðar, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ágústa. í dag kveð ég elskulega bróður- dóttur mína Agústu Sigmundsdótt- ur í hinsta sinn. Þegar ég kvaddi hana fyrir stuttu fann ég að þess yrði ekki langt að bíða að hennar þrautum lyki. Ekki bjóst ég þó við að jarðvist hennar lyki á þennan hátt. Það er erfitt að skilja hvernig henni tókst að ganga alla þess leið, eins veikbyggð og hún var orðin. Biðin er leitað var að henni var okkur öllum erfið, og getur maður ekki fullþakkað því fólki sem leitaði hennar, fórnfýsi þess er ómetanleg. Eg bið góðan guð að blessa börn hennar og ástvini alla. Ó, blessuð stund, er burtu þokan líður, sem blindar þessi dauðleg augu vor, en æðri dagur, dýrðarskær og bb'ður, með Drottins ljósi skín á öll vor spor. Ó, Guð minn, vek þá hugsun mér í huga við hveija neyð og sorg og reynslusár, þá styrldst ég og læt mig böl ei buga, og brosið skín í gegnum öll mín tár. (Þýð. M. Joch.) Olga. MINNINGAR SIGRÍÐUR ÓLÖF JÓNSDÓTTIR + Sigríður Ólöf Jónsdóttir fædd- ist á Höfðaströnd í Grunnavíkurhreppi 17. febrúar 1911. Hún lést 19. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Isafjarðarkirkju 24. október. Haustsólin er sezt til viðar á ísafirði. Öldruð kona hefur lokið lífs- göngu sinni. Með lífi sínu og starfi hafði hún mannbætandi áhrif á umhverfi sitt og þá, sem henni kynntust. Hún sleit barnsskónum við yzta haf í Furufirði á Ströndum. Þar lærði hún að takast á við óblíð náttúruöfl og lifa við einhver erfið- ustu skilyrði á byggðu íslenzku bóli. Hún varðveitti með sér dyggðir, sem fósturforeldrar hennar höfðu kennt henni að tileinka sér. Með það veganesti lagði hún upp í ör- lagaferð til Isafjarðar, sem upp frá því varð hennar heimili. Ekki þarf að ímynda sér, að það hafi verið auðvelt fyrir unga konu úr sveit að hefja nýtt líf í kaupstað, þegar heimskreppan stóð sem hæst. En uppeldið í Furufirði og trúin á hið góða í lífinu gaf henni þann kraft, sem þurfti til að standast raunina. Hún fór að vinna fyrir sér við fata- saum á klæðskeraverkstæði Einars og Ki-istjáns. Þetta varð síðar iðn- aður, sem hún stundaði á sínu heimili og fjölmargir Isfirðingar áttu eftir að njóta góðs af m.a. sá, er þessar línur ritar. Arið 1938 þegar heimurinn stóð á barmi eins mesta hildarleiks sög- unnar, var hamingjuár í lífi Sigríð- ar. Þá gengur hún í hjónaband með Guðbjarti Jónssyni skipstjóra frá Efstadal í Ögurhreppi. Hjóna- bandsheitið hlaut að halda til ævi- loka, þegar í hlut áttu tvær heil- indamanneskjur. Sigríðar beið nú hlutverk sjómannskonunnar að vera ein heima með syni þeirra á meðan eiginmaðurinn sótti síld, þorsk eða ýsu í greipar Ægis. Oft hafa sjómannskonur þurft að lifa í ótta um menn sína og skipsfélaga þeirra, en trú og æðruleysi Sigríðar létti henni róðurinn. Hún vissi einnig, að Guðbjartur var farsæll og jafnframt gætinn skiptjóri. Svo fór einnig, að hann lauk skipstjórn- arferli sínum með miklum sóma. Mér eldri og reyndari menn telja hann með merkustu skipstjórum ísfirðinga. Víst er, að mikil velvild áhafnar hans fylgdi honum í land. Eftir nálega tveggja áratuga sam- starf get ég sjálfur helst lýst Guð- bjarti með orðum Bólu-Hjálmars, „að Guð á margan gimstein þann, er glóir í mannsorpinu". Samstarfs- árin breyttust reyndar í samfellda vináttu. Ég á Guðbjarti það að þakka að mörg erfið og vandasöm mál leystust farsællega í þeim rekstri, sem við glímd- um við saman, enda var hann greindur vel og ráðsnjall. Auk þess var maðurinn afburða skemmtilegur og eng- um hef ég kynnzt fyrr eða síðar, sem gat beitt góðlátlegu háði af meiri list. Fáum var því betur ljóst en mér hver missir Sigríðar var, er Guðbjartur féll frá fyrir rösklega sjö árum. Það var alltaf ánægjuegt að koma á heimili þeiiTa Sigríðar og Guð- bjarts. Þau komu mér alltaf fyrir sjónir sem fólk, sem kunni að lifa lífinu og njóta þess. Þau voru gjör- samlega laus við byrði þess stress, sem lífsgæðakapphlaup leggur mörgum nútímamanninum á herð- ar. En þau gerðu allt það, sem var þeim til ánægju og uppskára inni- haldsríka gleði. Bæði voru þau sönn náttúrabörn, því nutu þau göngu- ferða og að tína ber og fjallagrös. Seinna fóru þau að stunda skíði og golf og taka þátt í félagsstarfi aldr- aða á Hlíf eftir að þau fluttu þang- að. Þau sáu mikið af okkar fagra landi og notuðu þá litla bflinn sinn, sem um árabil var Volkswagen bjalla. Fyrir tveimur til þremur áratugum var lítið um bundið slit- lag á íslenzkum þjóðvegum. Mörg- um fannst því lítið tfl um að keyra í rykmekki annarra bíla um þjóðveg- ina. Sigríður og Guðbjartur sáu við þessu. Þau vora alltaf komin á veg- inn löngu áður en aðrir ferðalangar vöknuðu, keyrðu drjúgan spöl í morgunsárið og tjölduðu síðan í guðsgrænni náttúranni um það leyti er aðrir vora að skreiðast á fætur. Eftir að synirnir þrír fóru að heiman og stofnuðu sín eigin heim- ili, færði lífið þeim nýja hamingju; barnabömin. Þau nutu þess að koma í heimsókn til afa og ömmu þar sem allt var í röð og reglu en yndislega afslappað og alltaf átti amma til bakstur, sem við ekkert varð jafnað. Börn, sem hafa átt slíka ömmu og afa taka með sér óviðjafnanlegan fjársjóð út í lífið. Isafjörður hefur auðgast á þess- ari öld af kjamafólki frá Djúpi og Ströndum. Sigríður og Guðbjartur vora verðugir fulltrúar þess góða fólks. Ég stend í meiri þakkarskuld við þessi hjón en hægt er að segja frá í stuttu minningargreinarkorni. Að lokum vil ég senda þeim Sveini, Benedikt, Jóni, eiginkonum þeirra og börnum innilegar samúðarkveð- ur. Ég bið þess að sá Guð, sem stýrir upphafi og endi lífs okkar, geri endurfundi þeirra Sigríðar Ölafar og Guðbjarts að samfelldri hamingjugöngu. Megi minning þessara heiðurshjóna lifa og vera okkur, sem eftir lifum, fyrirmynd. Ólafur B. Hallddrsson. Enginn með fullt hús á Skákþingi Islands SKAK Árborg SKÁKÞING ÍSLANDS LANDSLIÐSFLOKKUR Engum keppanda tókst að vinna tvær fyrstu skákirnar. Útlit er fyrir jafna og tvísýna keppni. 27. okt. - 8. ndv. KEPPNI er nú hafin í lands- liðsflokki á Skákþingi Islands. Að þessu sinni fer mótið fram í Ár- borg. Keppt er á þremur stöðum: Hótel Selfossi, Stað á Eyrar- bakka og í Iþróttahúsinu á Stokkseyri. í fyrstu umferð urðu úrslit þessi: Helgi Áss Grétarss. - Arnar E. Gunnarss. 1-0 Þröstur Þórhallss. - Róbert Harðars. 0-1 Þorsteinn Þorsteinss. - Sævar Bjamas. Vz-'h Bragi Þorfínnss. - Bergsteinn Einarss. 1-0 Jón V. Gunnarss. - Davíð Kjartanss. 1-0 Jón G. Viðarsson - Hannes H. Stefánss. Vz-Vt Óvæntustu úrslitin í fyrstu umferð voru tvímælalaust sigur Róberts Harðarsonar á stór- meistaranum Þresti Þórhalls- syni. Einnig vekur nokkra at- hygli að Jón Garðar Viðarsson nær jafntefli við Hannes Hlífar Stefánsson. Það er þó engin nýlunda að Jón Garðar standi í okkar sterkustu meisturam. Þannig gerði hann t.d. jafntefli við Jóhann Hjartarson á Skák- þingi íslands í Garðabæ 1996. Helgi Áss Grétarss. - Þröstur Þórhallss. Vi- Vz Róbert Harðars. - Þorsteinn Þorsteinss. Vi-Vi Sævar Bjarnas. - Bragi Þorfínnss. V2-V2 Bergsteinn Einarss. - Jón V. Gunnarss. Vz-Vi Amar E. Gunnarss. - Hannes H. Stefánss. 0-1 Davíð Kjartanss. - Jón G. Viðarss. 0-1 Eftir fyrstu tvær umferðirnar era sex skákmenn efstir og jafnir með F/2 vinning: 1-6 Helgi Áss Grétarsson IV2 v. 1-6 Bragi Þorfinnsson IV2 v. 1-6 Jón Viktor Gunnarsson IV2 v. 1-6 Jón Garðar Viðarsson l'Æ v. 1-6 Hannes H. Stefánsson V/i v. 1-6 Róbert Harðarson l'Æ v. 7-8 Þorsteinn Þorsteinsson 1 v. 7-8 Sævar Bjarnason 1 v. 9-10 Þröstur Þórhallsson V2 v. 9-10 Bergsteinn Einarsson Vi v. 11-12 Davíð Kjartansson 0 v. 11-12 Arnar E. Gunnarsson 0 v. Þriðja umferð var tefld í gær, fimmtudaginn 29. október. Heimsmeistaramdt barna og unglinga Úrslit í þriðju umferð á heimsmeistaramóti barna og unglinga, sem haldið er í Oropesa del Mar á Spáni urðu þessi: Einar Hjalti Jenss. - Andras Toth (Ung- verjal., 2330) V4-V4 Stefán Kristjánss. - Michael Roiz (ísrael, 2355)1-0 Halldór B. Halldórss. - A. Amidzic (Bosn.- Herz.) Vi-Vi C. Mursabekov (Kazakstan) - Dagur Am- grímss. 0-1 Guðmundur Kjartanss. - M. Tazbir (Póll.) VirVi Harpa Ingólfsd. - S. Ericsson (Svíþj.) 1-0 Aldís Rún Lámsd. - V. Breen (Svíþj.) 0-1 Ingibjörg E. Birgisd. - L. Kmmina (Lettl.) 0-1 Eftir þrjár umferðir er vinn- ingafjöldi Islendinganna þessi: Einar Hjalti Jensson IV2 v. Stefán Kristjánsson 2'A v. Halldór B. Halldórsson '/2 v. Dagur Arngn'msson 2 v. Guðmundur Kjartansson IV2 v. Harpa Ingólfsdóttir 1 v. Aldís Rún Lárusdóttir 0 v. Ingibjörg Edda Birgisdóttir 0 v. I fjórðu umferð tefla saman: Petar Benkovic (Júgósl., 2310) - Einar Hjalti Jenss. Joan Fluvia Poyatos (Spánn, 2295) - Stefán Kristjánss. Abdulla Abdulrahman (Sam. arab. fúrstad.) - Halldór B. Halldórss. Dagur Amgrímss. - Dewald Niemandt (RSA) Paula Deiai (Brasilía) - Harpa Ingólfsd. Mayagozel Gurbanova (Turkmenistan) - Ingibjörg E. Birgisd. Aldís Rún Lárasdóttir situr hjá í 4. umferð Meistaramót Hellis Meistaramót Taflfélagsins Hellis hófst miðvikudaginn 28. október. Teflt er á mánudögum, miðvikudögum og fostudögum. Úrslit fyrstu umferðar urðu sem hér segir: Gústaf Smári Björass. - Birkir Öra Hreinss. 0-1 Björn Þorfínnss. - Guðni Stefán Péturss. i-0 Kjartan Guðmundss. - Ólafur Kjartanss. 0-1 Jóhann H. Ragnarss. - Eiríkur Garðar Ein- arss. 1-0 Ragnar Már Stefánss. - Sigurjón Kjærne- stedt 1-0 Valdimar Leifss. - Vigfús Óðinn Vigfúss. 0-1 Atli Freyr Kristjánss. - Benedikt Öra Bjaraas. 0-1 Hjörtur Ingvi Jóhannss. - Hafliði Hafliðas. 0-1 Einar Kristinn Einarss. - Sigurður Daði Sigfúss. V2-V2 Sigimbjöra Björnss. - Ólafur í. Hanness. 1-0 Önnur umferð verður tefld föstudaginn 30. október kl. 19:30 og þá tefla saman: Birkir Öra Hreinss. - Björa Þorfinnss. Jóhann H. Ragnarss. - Kjartan Guð- mundss. Ragnar Már Stefánss. - Vigfús Óðinn Vig- fúss. Hafliði Hafliðas. - Benedikt Öra Bjaraas. Sigurður Daði Sigfúss. - Sigurbjöra Björass. Gústaf Smári Björass. - Einar Kristinn Einarss. Ólafur Kjartanss. - Guðni Stefán Péturss. Eiríkur Garðar Einarss. - Sigurjón Kjæraestedt Atli Freyr Kristjánss. - Valdimar Leifss. Ólafur Isberg Hanness. - Hjörtur Ingvi Jó- hannss. Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson ÁHORFENDUR eru velkomnir á Islandsmdtið um helgina. BRIDS úmsjón Arnór G. Ragnarsson íslandsmót í tvímenningi um helgina ÚRSLITIN verða spiluð nú um helgina. í úrslitunum spila 40 pör, allir við alla alls 117 spil. Spilað er á skermum. í undanúrslitum 10.—11. okt. spiluðu 33 pör sig inn í úrslitin. Að auki mæta sjö svæðameistarar, en Islandsmeistarar og Reykjavík- urmeistarar síðasta árs hafa til- kynnt forföll. Guðl. Bessas. - Stefán Garðarss. Vesturl. Sigríður Hrönn Eliasd. - Óskar Elíass. Vestf. Birkir Jónsson - Ari Már Arason N. vestra Anton Haraidss. - Sigurbjöm Haraldss.N. eystra Bemharð Bogas. - Stefán Kristmannss. Austurl. SigfinnurSnorras.-ÞrösturÁmas. Suðurland Þórður Bjömss. - Þröstur Ingimarss.Reykjanes Mótið byrjar kl. 11 á laugardag og lýkur um kl. 18.30 á sunnudag. íslandsmót (h)eldri og yngri spilara íslandsmót eldri og yngri spilara í tvímenningi verður spilað helgina 7.-8. nóv. Skráning er hafin á skrif- stofunni s. 587-9360 og isbridge@is- landia.is. Þátttaka fyrir yngri spil- ara (25 ára og yngri) er ókeypis. í flokki (h)eldri spilara er lágmarks- aldur 50 ár og samanlagður aldur beggja í parinu 110 ár skilyrði fyrir þátttöku. Bridsfélag Borgarfjarðar Vetrarstarfsemin hófst 19. októ- ber sl. með eins kvölds tvímenningi með þátttöku 8 para. Keppnin var hnífjöfn og má með sanni segja að^, hvert útspil hafi getað ráðið röð efstu para. Úrslit urðu annars sem hér segir: Sveinbjöm og Sigurður 73 Jón Þ. og Þorsteinn 72 Kristján og Öm 71 26. október var aftur spilaður eins kvölds tvímenningur og nú með þátttöku 10 para. Enn og aftur var spennan mögnuð og þrátt fyrir að Sveinbjöm og Þorvaldur hafi farið mjög illa með Borgnesingana Rún- ar og Jón í síðustu setu (22-2) þá dugði það ekki til. Örslit urðu: Rúnar og Jón E. 139 Sveinbjöm og Þorvaldur 138 Öm og Kristján 126 Kristján og Alda 112 Næsta keppni félagsins verður aðaltvimenningurinn og hefst hann 2. nóvember. Eins og undanfarin ár er spilað í Logalandi og hefst spila- T mennskan kl. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.