Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 13
Gunnlaugur M. Sigmundsson alþingismaður skrifar vestfírskum framsóknarmönnum bréf
FRETTIR
Vill víkja úr 1.
sæti ef réttur fram
bjóðandi finnst
GUNNLAUGUR M. Sigmundsson,
alþingismaður, hefur skrifað upp-
stillingarnefnd Framsóknarflokks-
ins á Vestfjörðum bréf og boðist til
að víkja úr efsta sæti framboðslista
flokksins ef í stað hans fínnst ung-
ur, vel menntaður frambjóðandi,
sem getur veitt forystu fram á
næstu öld.
„Eg hef skrifað uppstillingar-
nefnd og sagt að menn verði að
horfa til þess að það séu yfirgnæf-
andi líkur á að frumvarp um breytta
kjördæmaskipun fari í gegn og þá
þurfum við að horfa á taflborðið
eins og það lítur út þá,“ sagði Gunn-
laugur, aðspurður hvers vegna hann
hefur boðist til að víkja. „Það er
vegna þess að mér finnst mjög ólík-
legt í dag að ég vilji vera í pólitík
eftir 2003. Eg vil segja það strax en
ekki þegar menn standa frammi
fyrir því að þurfa að fara í prófkjör í
nýju, stóru kjördæmi þannig að
Vestfirðir þurfi að stilla fram nýj-
um, ókunnum manni til forystu."
Gunnlaugur sagði að ef uppstill-
ingarnefnd fellst ekki á rök hans og
hann verði áfram í efsta sæti listans
þá vildi hann hins vegar hafa þann
fyrirvara að sér kunni að h'ka það
vei í pólitík að hann vilji sitja þar
áfram. „En ég sé það ekki í dag og
þess vegna segi ég við þá: skoðið þið
það að finna mann, sem er ungur og
mun endast í allnokkurn tíma.“
Gunnlaugur sagðist ekki vera
með neinn ákveðinn mann í huga í
sinn stað enda væri það ekki sitt að
huga að því. Hins vegar kvaðst
hann hafa sagt uppstillingarnefnd-
inni að slíkur maður þurfi að vera
ungur, og þurfi fyrst og fremst að
búa yfir nokkuð góðri menntun
enda krefjist þingmennska sífellt
meiri erlendra samskipta.
Gunnlaugur sagðist sjálfur tilbú-
inn að skipa annað sæti listans ef
þessi framtíðarframbjóðandi fynd-
ist og kvaðst telja að með sterkum
framboðslista ætti flokkurinn
möguleika á að ná tveimur mönnum
inn á Vestfjörðum. „En aðalmálið er
að menn horfi til þess hverju þeir
standa frammi fyrir þegar stilla
þarf upp 2003.“
Gunnlaugur sagði að raddir hefðu
heyrst um að Vestfirðir ættu erfitt
með að koma að þingmönnum eftir
að núverandi þingmenn hætta, þar
sem nýir aðilar hafi ekki fengið færi
á að kynna sig og í nýju kjördæmi,
þar sem Vesturland, Vestfírðir og
Norðurland vestra sameinast, muni
vægið færast í þéttbýlissvæðin,
annars vegar til Akraness-Borgar-
ness og hins vegar til Sauðárki’óks.
Gunnlaugur var spurður hvort
Kristinn H. Gunnarsson, núverandi
þingmaður Alþýðubandalags á
Vestfjörðum, sem orðaður hefur
verið við Framsóknarflokkinn, væri
frambjóðandi sem hann mundi taka
sæti á eftir á lista. Gunnlaugur
sagðist nokkuð viss um að Fram-
sóknarflokkurinn á Vestfjörðum
vildi ekki stilla upp nýliða í flokkn-
um í 1. sæti og hann vildi líta til
þess að nýr maður gæti veitt for-
ystu fram á næstu öld. Hins vegar
kvaðst Gunnlaugur vel treysta sér
til að vinna með Kristni H. Gunn-
arssyni.
Morgunblaðið/Guðlaugur Tryggvi Karlsson
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, skoðar hér bókasafn Wallenberg-stofnunarinnar, sem er mikið
að vöxtum, ásamt Helga Agústssyni, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu, og á milli þeirra sést í Göran
Melander, sem kom stofnuninni á fót.
/
Forseti Islands hjá
W allenberg-stofnuninni
FORSETI fslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heim-
sótti Raoul Wallenberg-stofnunina í Lundi í lok
heimsóknar sinnar í Svíþjóð í síðustu viku. Stofnunin
annast rannsóknir, kennslu og ráðgjöf á sviði mann-
réttindamála og heldur einnig sjálfstæð námskeið
eftir því sem óskað er.
í heimsókn sinni í stofnunina flutti forsetinn fyi-ir-
lestur sem Ijallaði um lýðræði og mannréttindi, ekki
síst meðal lítilla þjóða í Evrópu, og flutti inngangs-
orð í umi-æðutíma í stofnuninni. Komu fram ýinsar
spurningar og urðu líflegar umræður í þessum tím-
um að sögn Komelíusar Sigmundssonar forsetarit-
ara. Göran Melander kom stofnuninni á fót og er
forstöðumaður liennar ásamt Guðmundi Alfreðssyni.
Utanríkisráðherra segir deilur um þróunarsjóð alvarlegar
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að deilan um greiðsl-
ur Islands og Noregs í þróunarsjóð
Evrópusambandsins sé farin að hafa
alvarlegar afleiðingar fyrir Island.
Erfitt sé að finna lausn á málinu m.a.
vegna þess að það sé prófmál i deil-
um innan ESB um greiðslur í
byggða- þróunarsjóði þess.
Spánverjar hafa hótað því að
hindra staðfestingu Schengen-sam-
komulagsins milli Evrópusambands-
ins og Islands og Noregs verði ekki
búið að ganga áður frá samkomulagi
um greiðslur landanna í þróunarsjóð
ESB.
Halldór sagðist gera sér grein fyr-
ir að það þyrftu að eiga sér stað
samningaviðræður um þróunarsjóð-
inn jafnvel þó að við værum þeirrar
skoðunar að við hefðum uppfyllt okk-
ar lagalegu skuldbindingar. Það væri
hins vegar mjög erfitt að eiga í samn-
ingaviðræðum þegar slíkar hótanir
væru uppi á borðinu. Hann sagðist
vænta þess að ESB tæki þær til baka
ef einhver von ætti að vera til þess að
Bland-
ast inn
í deilur
innan ESB
ná þessum samskiptum í lag.
„Þetta ástand er mjög alvarlegt.
Við blöndumst þai-na inn í ákvarðan-
ir um svo kallaða „cohesion-sjóði“
sem Evrópusambandið þarf að taka
ákvarðanir um núna alveg á næst-
unni. Meðaltekjur á Spáni eru 80%
af meðaltekjum í ESB og það hefur
komið fram hjá seridiherra Spánar
að þeir geti samþykkt að leggja sjóð-
ina niður þegar meðaltekjurnar ná
90%. Það eru uppi hugmyndir innan
ESB að draga úr þessum greiðslum.
Því miður er verið að reka þetta mál
með þróunarsjóðinn sem einhvers
konar prófmál’ í þeirri miklu deilu
sem á sér stað innan ESB um þessar
greiðslur."
Stöðva aðild að fimmtu
rammaáœtluninni
Halldór sagði að þessar deilur um
þróunarsjóðinn væru farnar að hafa
alvarlegar afleiðingar fyrir Island.
„Þessar deilur hafa þegar haft
áhrif á samstarf á sviði almanna-
varna og nú er því hótað að við get-
um ekki komið að fimmtu rammaá-
ætlunni um rannsóknir og vísindi,
sem skiptir okkur miklu máli. Eg tel
að á þessu stigi sé það langalvarleg-
asta málið sem er uppi á borðinu."
Halldór sagðist ekki sjá fyrir sér
lausn á þessu máli. Reynt yrði að
kanna leiðir til lausnar með óform-
legum hætti. Hann sagðist koma til
með að eiga fund með utanríkisráð-
herra Austurríkis um miðja næstu
viku. Hann sagðist einnig hafa beðið
um fund með utanríkismaráðherra
Spánar í tengslum við NATO-fund í
næstu viku.“
Fjármálaráðherra á fundi með
fulltrúum á fjármagnsmarkaði
Auka þarf sparn
að almennings
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
hélt fund með fulltrúum frá við-
skiptabönkum, verðbréfafyi-irtækj-
um, lífeyrissjóðum og tryggingafé-
lögum þar sem hann kynnti fyrir-
hugaðar lagabreytingar sem stuðla
eiga að aukningu þjóðhagslegs
sparnaðar.
„Mér þótti rétt að kynna þessum
aðilum breytingarnai' og hvetja þá til
samstarfs um að virkja almenning til
þátttöku í hinum nýja viðbótarlífeyr-
issparnaði,“ sagði fjármálaráðherra í
samtali við Morgunblaðið.
Breytingarnar eru annars vegar
framlenging skattaafsláttar vegna
hlutabréfakaupa í sama mæli og á
síðasta ári og hins vegar sú viðleitni
að auka frjálsan viðbótarlífeyris-
sparnað með 0,2% lækkun trygg-
ingagjalds launagreiðanda sem rynni
inn á séreignareikninga launþega.
Samkvæmt gildandi lögum eiga
launþegar frá næstu áramótum
möguleika á að leggja 2% launa
sinna skattfrjálst sem lífeyrissparn-
að á séreignareikninga.
„Það eru sameiginlegir hagsmunir
að ná fram meiri sparnaði í þjóðfé-
laginu, sem er efnahagsmál, meðal
einstaklinga, sem er hagsmunamál
almennings og fyrir fyrirtækin er
um mjög aukið fjármagn að ræða,“
sagði ráðhen-a.
„Um áramótin hækkar kaup yfir-
leitt um 3-4%, skattar lækka um 1%
og þannig kemur fram rúmlega
milljai'ður á mánuði í auknum ráð-
stöfunartekjum almennings. Mér
finnst mikið atriði að leita leiða til að
fanga strax hluta af þessu fjármagni
í sparnað og þess vegna hafði ég
frumkvæði að því að kalla þessa aðila
á fund. Þannig viljum við bæði leggja
áherslu á hversu stórt mál er hér um
að ræða og við ætlumst líka til þess
að þeir leggi eitthvað af mörkum,
það reynir á þá að gera sparnaðinn
aðlaðandi,“ sagði Geir H. Haarde að
lokum.
Enein ilmefni
1 í
j
4,r
' x- T 4 iiðUN ' r. salvt ■ \C,{ ■ r sV»ð tux 4 4 4 4íl ÁCÖ
raskcba AGO BARN htion fdpe IVí.N •• sHampó
*»*>*«* olje ' «< n »'■ ■ y « nmw *&»!* “■ «»»*■ rutswu
ACO BARN
Fæst í apótekinu þínu