Morgunblaðið - 02.12.1998, Blaðsíða 72
1 eflir
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Drögum nsst
10. d&ember
J0ZL happdrætti
fíytj) HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI569II00, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Utsvarstekjur Reykjavíkurborgar
Tveg’gja millj-
* arða hækkun
verður milli ára
ÚTSVARSTEKJUR Reykjavíkur- Veruleg hækkun útsvarstekna
borgar aukast um tæpa tvo milljarða
króna á næsta ári miðað við árið í ár
og er áætlað að þær nemi tæpum
15,4 milljörðum króna samanborið
við 13,4 milljarða króna I ár sam-
kvæmt endurskoðaðri fjái’hagsáætl-
un. Um helming aukningar útsvars-
teknanna má rekja til hækkunar út-
svarsprósentunnar úr 11,24% í
11,99%, en hinn helminginn til auk-
inna umsvifa í þjóðfélaginu og launa-
hækkana.
varð einnig milli áranna 1997 og 1998
vegna aukinna umsvifa í þjóðfélag-
inu og má því gera ráð fyrir að út-
svarstekjur borgarinnar aukist um
3,6 milljarða króna á tveggja ára
tímabili, úr 11,8 milljörðum 1997 í
15,4 milljarða króna á árinu 1999.
Á sama tímabili hafa rekstrarút-
gjöld borgarinnar einnig aukist
verulega og segja má að á næsta ári
sé áætlað að útgjöld aukist vegna
nærfellt allra málaflokka á vegum
borgarinnar.
titgjöld vegna fræðslumála
vaxa um 600 milljónir
Þannig er áætlað að á næsta ári
aukist rekstrarútgjöld vegna
fræðslumála um rúmar 600 milljónir
ki'óna og nemi samtals rúmum 5
milljörðum króna. Kostnaður vegna
skipulags- og byggingarmála hækk-
ar um 50 milljónir króna, útgjöld
vegna menningarmála aukast um
tæpar 150 milljónir króna og útgjöld
vegna æskulýðs- og tómstundamála
aukast um tæpar 80 milljónir ki'óna.
Útgjöld vegna Dagvistar barna
aukast um rúmar 185 milljónir króna
og framlag vegna SVR um rúmar 65
milljónir króna.
■ Tekjur af útsvari/36
Morgunblaðið/Kristinn
Saltfísk-
verð í
sögulegu
hámarki
VERÐ á saltfiski hefur hækkað jafnt
og þétt á fyi'stu 11 mánuðum þessa
árs og hefur verðmæti saltfískút-
flutnings aukist um nálega einn
milljarð króna, þrátt fyrir að útflutn-
ingurinn sé nánast sá sami. Fram-
kvæmdastjóri SÍF segir að ekki
megi búast við frekari hækkunum
þótt erfitt sé um slíkt að spá. Verð sé
almennt í sögulegu hámarki í dag og
hætt við að það leiti jafnvægis á
næstu misserum.
Langmest er flutt út af flöttum
saltfiski en þar hefur verð hækkað
frá 25,9% upp í 58,9% eftir stærðar-
flokkum, frá 1. janúar til dagsins í
dag. I saltfiskflökum nemur hækk-
unin á sama tímabili frá 16,8% upp í
21,7% og í spikfiski frá 18,7% upp í
34,1%. SÍF hefur frá áramótum flutt
út tæp 26 þúsund tonn af saltfiski
sem er nánast sami útflutningur og á
sama tíma á síðasta ári. Verðmæti
saltfiskafurðanna hefur hins vegar
aukist um rúm 14%, var á fyrstu 11
mánuðum síðasta árs um 7,2 millj-
arðar króna en er nú um 8,2 milljarð-
ar króna.
■ Verðmæti/Bl
Tíð innbrot
í bifreiðar í
Frestur til að sækja um starfslaun rann út í gær
Þröng á
- þingi í
ráðuneyti
FRESTUR til að skila umsóknum
um starfslaun listamanna rann út
í gær og höfðu um eða yfir 600
umsóknir borist þegar dyrum
menntamálaráðuneytisins var
iokað klukkan 16, að sögn Soffíu
Árnadóttur.
Soffía segir að straumur um-
sækjenda hafi verið stríður í gær
og seinasta klukkutímann fyrir
lokun hafi annríkið verið mest.
„Á seinasta degi umsóknar-
frestsins koma gríðarlega margir
enda margir seinir á sér. Það er
þröng á þingi seinasta klukku-
tímann og gjarnan myndast röð.
Ég myndi giska á að 50 til 60
manns hafí verið á ferðinni hér
skömmu fyrir klukkan fjögur."
Umsækjendur geta sótt um
starfslaun úr fjórum sjóðum,
launasjóði myndlistarmanna,
launasjóði tónskálda, launasjóði
rithöfunda og svokölluðum lista-
sjóði sem hefur meðal annars
veitt leikhúsfólki laun.
í fyrra barst ráðuneytinu 601
•imsókn og 635 umsóknir fyrir
* árið 1998.
„Fyrir árið 1999 sýnist okkur
stefna í svipaðan fjölda umsókna
og í fyrra, eða rúmlega 600. Síð-
an senda sumir umsókn sína á
faxi og fylgigögnin koma í kjöl-
farið í pósti, þannig að heilmikið
á eftir að bætast við næstu dag-
%na,“ segir Soffía.
Morgunblaðið/Kristinn
LISTAMENN skrifa umsóknir í gríð og erg.
Vætutíð í
Reykjavík
REGNHLÍFAR hafa komið að
góðum notum síðustu daga enda
hefur mikið rignt undanfarið hér
á landi. Tölur hafa ekki verið
teknar sainan um úrkomu í nóv-
ember, en flest bendir til að
hann hafi verið meðal vætusam-
ari nóvembermánaða. Lands-
menn eru þessu ekki óvanir því í
desember í fyrra vom mikil hlý-
indi svo að met voru slegin fyrir
norðan og austan og rigningar
miklar.
Breiðholti
LÖGGÆSLA í Fella- og Hólahverfi í
Breiðholti hefur verið hert mjög að
undanförnu, vegna innbrotafarald-
urs í bifreiðar í hverfunum.
Lögreglunni þykir líklegt að sami
hópurinn beri ábyrgð á innbrotunum
og hafa nokkrir aðilar verið hand-
teknir, en hvergi hefur þó verið slak-
að á gæslunni. Yfirleitt sækjast
þjófarnir eftir því sama, hljómtækj-
um, geisladiskum og öðrum lausleg-
um verðmætum, sem skilin eru eftir
í bifreiðunum.
Lögreglan hvetur eigendur bif-
reiða að skilja ekki eftir verðmæti í
bifreiðum sínum eða annað sem
freistað gæti þjófa.
Landsbankinn hefur selt 80% hlut í dótturfyrirtækjum sínum
Stofnun öfluffs lasteigria-
fyrirtækis verður könnuð
HÖMLUR hf., dótturfélag Landsbanka íslands,
og Islenskir aðalverktakar hf. undimtuðu í gær
samning um kaup íslenskra aðalverktaka á 80%
hlutabréfa í tveimur dóttm-félögum Hamla, Regin
hf. og Rekstrarfélaginu hf. Landsbankinn mun
áfram eiga 20% hlut í hvoru félagi.
Félögin tvö hafa til þessa haft með höndum um-
sýslu með fjölmörgum fasteignum og öðrum eign-
um á vegum Landsbankans. í eigu félaganna er
meðal annars meirihluti Holtagarða og hluti af
húseigninni Höfðabakki 9. Heildareignir félag-
anna eru nú að verðmæti um 1,8 milljarðar og hef-
ur Landsbankinn tryggt langtímafjármögnun fé-
laganna.
Þá hefur verið undirritaður samningur milli
Landsbankans og hluthafa í Þyrpingu, sem er í
eigu fjölskyldu Pálma heitins Jónssonar, stofn-
anda Hagkaups, um stofnun nýs fasteignafélags
um eignir Regins og Rekstrarfélagsins og er þar
stærsta eignin sá hluti Holtagarða sem Þyi-ping
hefur haft á leigu. Hluthafar í Þyrpingu munu eiga
80% í þessu félagi en Landsbankinn 20%. Heildar-
eignir þess félags verða í byrjun að verðmæti
u.þ.b. 1 milljarður og hefur Landsbankinn tryggt
langtímafjármögnun vegna kaupanna.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Lands-
banka Islands, segir að Landsbanki íslands, ís-
lenskii' aðalverktakar og hluthafar í Þyrpingu hafi
jafnframt ákveðið að kanna möguleika á að aðil-
amir sameini krafta sína og annarra í samstai-fi
um eignarhald og rekstur öflugs hlutafélags sem
hafi það að meginmarkmiði að eiga og reka stærri
fasteignir.
Halldór telur að þetta séu með stærstu fast-
eignaviðskiptum sem hafa átt sér stað á einum
degi á íslandi.
Halldór segir að með samningunum sé Lands-
bankinn að selja þær fasteignir sem bankinn tók
upp í skuldaskil Sambandsins og breyta þeim í
lán. „Við útvegum lánsfé vegna félaganna og end-
urskipuleggjum félögin þannig að þau hafi eðlilegt
eiginfjái'hlutfall. Þetta eru heildarviðskipti upp á
2,8 milljarða króna.“
■ 2,8 milljarða/20