Morgunblaðið - 02.12.1998, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Skíma ehf. býður símtöl til útlanda í gegnum Netið
Þjónustan 20-30% ódýrari
í mörgum tilvikum
Morgunblaðið/Kristinn
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra vígði Net-símann með því að
hringja í Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Wasliington. Dagný
Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Skímu, fylgist með.
Samanburður á verði talsímaþjónustu
hjá Landssímanum og NETsíma Skímu
Kostnaður við 5 mínútna símtal til nokkurra landa
Á dagtaxta_______Landssíminn NETsíminn Mismunur
Til Danmerkur 168,32 kr. 132,00 kr. 27,5%
Til Bandaríkjanna 238,32 kr. 188,00 kr. 26,8%
Til Mexíkó 603,32 kr. 456,00 kr. 32,3%
Til Indlands 903,32 kr. 657,00 kr. 37,5%
Til Kína 778,32 kr. 542,00 kr.43,6%
Heimild: Skima
SKÍMA ehf., dótturfyrirtæki Lands-
símans hf., hóf í gær símaþjónustu
um Netið til útlanda. Símnotendum
gefst þannig kostur á að velja á milli
tveggja kosta þegar þeir hringja
milli landa. Þjónustan, sem hefur
hlotið nafnið Net-síminn, er töluvert
ódýrai-i en þjónusta Landssímans og
munar 20-30% í mörgum tilvikum.
Tvö einkafyrirtæki, Islandssími og
Tal, vinna nú að því að hefja sam-
keppni við Landssímann á almenn-
um símamarkaði.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra vígði Net-símann og notaði
tækifærið til að hringja í Jón Bald-
vin Hannibalsson, sendiherj-a í
Washington.
Símnotendur geta nýtt sér þjón-
ustu Skímu með venjulegu símtæki.
I stað 00 er valið 1100 og síðan er-
lenda símanúmerið. Símtölin fara
öll um Netið með milligöngu Skímu.
Notendur þjónustunnar þurfa að
skrá sig hjá Skímu og greiða 300
króna stofngjald. Fyrir símtölin
sjálf er síðan hægt að velja á milli
tveggja greiðsluforma. Hægt er að
greiða sjálf símtölin með því að
gjaldfæra jafnóðum á greiðslukort
en einnig er hægt að kaupa sérstök
símakort með inneign hjá Skímu.
Kosta slík kort 1.000, 2.000 eða
5.000 krónur.
Sambærileg gæði
Dagný Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skímu, segir að þótt
um talsímaþjónustu en ekki tölvu-
þjónustu sé að ræða sé stórt skref
stigið í átt til samruna talsíma og
tölvunotkunar með þessari nýjung.
Hún segir að gæði símtala yfír Net-
ið séu að jafnaði sambærileg gæð-
um í hefðbundnu talsímakerfí og
betri þegar best lætur. Gæðin hafí
aukist jafnt og þétt með sérhæfðari
og betri búnaði eins og NET-síminn
noti. Þegar símtöl fari yfir Netið
geti álag, hvar sem er á Netinu, haft
áhrif á gæði símtalanna. Aftur á
móti megi benda á að afköst Nets-
ins hafí batnað mikið og fari sífellt
STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga
hefur ákveðið að ganga að tilboði
sem Brauðgerð Kr. Jónssonar &
Co á Akureyri hefur gert í rekstur
Brauðgerðar KEA. Brauðgerð Kr.
Jónssonar, sem jafnan nefnist Kri-
stjánsbakarí, mun taka við rekstr-
inum í loka mánaðarins, eða 28.
desember næstkomandi.
Ulfar Hauksson framkvæmda-
stjóri Iðnaðarsviðs KEA sagði að
fyrirsjáanlegt hefði verið að leggja
hefði þurft í fjárfrekar fram-
kvæmdir hefði rekstri Brauðgerðar
KEA verið haldið áfram, eða fjár-
festingar í vélum, tækjum og öðru
fyrir tugi milljóna króna. Að vand-
lega íhuguðu máli hefði niðurstaðan
orðið sú að selja reksturinn.
Tryggir neytendum
lægra vöruverð
Starfsemi Brauðgerðar KEA
hófst árið 1930, en hún hefur verið
til húsa í Grófargili frá 1981, í hús-
næði sem Akureyrarbær á. Starfs-
menn eru rúmlega 20 talsins. Ný-
legar kannanir sýna að viðskipta-
vinir eru ánægðir með framleiðslu-
vörur fyrirtækisins, en vegna vax-
batnandi í samræmi við þróunina og
kröfur frá notendum.
Skíma stefnir að því að bjóða not-
endum, fyrirtækjum jafnt sem
heimilum, eitt samband fyrir öll
fjarskipti, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Segir að opnun Net-símans sé
áfangi að því marki. „Á næsta ári
munum við sjá talsamböndin og
tölvusamböndin rugla enn frekar
saman reytum og nýja möguleika í
samskiptum yfír Netið opnast. Ef
litið er til baka yfir söguna, þá hefur
tölvutæknin jafnt og þétt aðlagað
sig talsímakerfum til fjarskipta.
Þetta er eðlilegt þar sem talsímanet
hafa átt meiri útbreiðslu að fagna
en tölvunet. Nú er þróunin að snú-
ast við og er Net-síminn dæmi um
það þar sem talsambönd færast yfír
á töívunet og munum við sjálfsagt
sjá frekari þróun í þá átt á næst-
unni.“
Netsambandið tvöfaldað
Utlandatenging Landssíma ís-
lands hf. við Netið verður tvöfólduð
í byrjun næstu viku. Það leiðir til
aukins hraða fyrir netnotendur,
sem tengjast netþjónustu Lands-
símans eða netþjónustufjrirtækj-
um, sem leigja millilandasamband,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá Landssímanum. Fram
kemur að Landssíminn muni á kom-
andi misserum auka við bandbreidd
sína til útlanda eftir þörfum, til að
fullnægja eftirspum.
Fleiri valkostir
væntanlegir
Islandssími er nýstofnað fjar-
skiptafyi-irtæki, sem hyggst bjóða
neytendum símtöl innan lands og til
útlanda. Arnar Sigurðsson, mark-
aðsstjóri Islandssíma, segir Ijóst að
með Net-símanum sé Landssíminn
að bregðast við væntanlegri sam-
keppni frá fyrirtækinu enda sé
Skíma að öllu leyti í eigu Landssím-
ans. „Islandssími mun hefja starf-
semi í febrúar og bjóða neytendum
andi samþjöppunar og kröfu um
hagræðingu í greininni þótti áhætta
nokkur að leggja í verulegar fjár-
festingar í brauðgerðinni.
Stjórnendur KEA telja að sam-
eining fyrirtækjanna tveggja auki
hagkvæmni í framleiðslu á brauði
og kökum og muni tryggja neyt-
endum lægra vöruverð þegar til
lengdar lætur. Þá benti Ulfar á að
stjórn félagsins hefði markað þá
stefnu að skerpa áherslur í starf-
seminni með það að markmiði að
efla reksturinn á þeim sviðum þar
sem hagkvæmni stærðarinnar nýtt-
ist best og væri sala bi'auðgerðar-
innar áfangi á þeirri leið.
Ulfar sagði að starfsemin yrði
með eðlilegum hætti í desember og
starfsfólki ekki sagt upp störfum
fyrr en 1. janúar næstkomandi.
Hann sagði kaupfélagið af heilum
hug kappkosta að aðstoða þá sem
ekki verða ráðnir við að fínna starf
við hæfí.
Styrkir samkeppnis-
stöðuna
Kjartan Snorrason fram-
kvæmdastjóri Brauðgerðar Kr.
innanbæjar- og millilandasímtöl,
bæði í almenna kerfínu og á Netinu.
Við ætlum ekki að treysta á Netið
til flutnings því að með þeim hætti
fara gæðin eftir álaginu hverju
sinni. Við munum því leigja sér-
staka fastlínutengingu til útlanda
en það er grundvallarmunur á
þessu tvennu. Með Net-símanum er
Landssíminn að bjóða lélegra sam-
band á lægra verði en við ætlum
Jónssonar sagði að starfsemin yrði
fyrst um sinn í núverandi húsnæði í
Grófargili en myndi smám saman á
nýju ári ílytjast í höfuðstöðvar fyr-
irtækisins við Hrísalund þar sem er
um 2.000 fermetra húsnæði. Benti
Kjartan á að mikil samþjöppun
hefði átt sér stað á smásölumark-
aðnum á síðustu misserum og jafn-
vel enn meiri á brauðgerðarsviðinu.
Markmiðið með kaupunum á
Brauðgerð KEA væri einfaldlega
að ná fram meiri hagi'æðingu í
rekstrinum og styrkja samkeppnis-
stöðu fyrirtækisins á stærri mark-
aði. Markaðssvæðið nær nú yfír
Norður- og Austurland en stefnt er
að því að stækka það.
okkur að bjóða betra samband á
lægra verði,“ segir Arnar.
Tal hf., sem rekur farsímakei-fí í
samkeppni við Landssímann, hyggst
auka umsvif sín og bjóða neytendum
símtöl til útlanda í gegnum almenna
talsímakerfið. Þórólfur Amason,
forstjóri Tals hf., sagði í gær að ver-
ið væri að vinna í málinu en vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um framgang
þess að svo stöddu.
„Þetta er mikið byggðamál fyrir
okkur Eyfírðinga, við verðum að
hafa yfir að ráða öflugum fyrir-
tækjum til að geta verið samkeppn-
isfærir við höfuðborgarsvæðið. Yið
verðum á þessu svæðið að geta boð-
ið sambærilegt verð og þjónustu og
þar,“ sagði Kjartan.
Brauðgerð Kr. Jónssonar var
stofnuð árið 1912 og hefur verið í
eigu sömu fjölskyldunnar frá upp-
hafí. Um 80 manns starfa hjá fyrir-
tækinu nú. „Við erum sífellt að leita
leiða til að reka fyrirtækið á sem
hagstæðastan hátt, bæði fyrir eig-
endur og viðskiptavini," sagði
Kjartan. „Við erum staðráðin í því
að halda áfram á sömu braut.“
Viðskipti fyiir 1,1 millj-
arð á Verðbréfaþingi
Hlutabréfa-
kaup í FBA
fyrir 75
milljónir
HEILDARVIÐSKIPTI á Verð-
bréfaþingi Islands námu 1,1 millj-
arði króna í gær. Mest voru við-
skipti með hlutabréf í Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins fyrh' 75
milljónir króna.
Mikil viðskipti voru með bréf í
Eimskipafélaginu, fyrir tæplega
18 milljónir króna, IS fyrir tæpar
17 milljónir króna en bréf í félag-
inu hækkuðu um 6,5% í gær.
Einnig voru talsverð viðskipti með
hlutabréf í Haraldi Böðvarssyni
hf., fyrir tæplega 15 milljónir
króna. Þá hækkuðu hlutabréf í
Eignarhaldsfélagi Alþýðubankans
hf. um 3,6%.
Urvalsvísitala Aðallista lækkaði
um 0,22% í gær. Mest var lækkun á
bréfum í Tanga hf., 9,1%, og Trygg-
ingamiðstöðvarinnar hf., um 5,6%.
Tólf félög voru í gær flutt af Að-
allista yfir á Vaxtarlista í samræmi
við ákvæði í reglum þingsins um
stærð, dreifingu og aldur skráðra
félaga.
-----+++------
Hlutafjárútboð ÍS
120 m.kr. á
almennum
markaði
ALLT hlutafé Islenskra sjávaraf-
urða, sem boðið var út í hlutafjár-
aukningu félagsins, seldist upp áð-
ur en útboðinu lauk á mánudag,
samkvæmt upplýsingum frá Við-
skiptastofu Landsbanka íslands
sem hafði umsjón með útboðinu.
A hluthafafundi, sem haldinn var
í desember á síðasta ári, var sam-
þykkt að auka hlutafé fyi’irtækisins
um allt að 200 milljónir króna á
þessu ári. Hlutafjárútboðið hófst í
byrjun nóvember. Forkaupsréttar-
hafar nýttu sér um 80 milljónir
króna að nafnverði á genginu 1,75
en þær 120 milljónir sem eftir stóðu
voi-u boðnar út á almennum mai'k-
aði á genginu 1,80.
--------------
Búnaðarbankinn
býður út hlutafé
350 milljónir
seldar á
genginu 2,15
BANKARÁÐ Búnaðai'banka ís-
lands hf. hefur ákveðið að bjóða út
hlutabréf í bankanum í almennu út-
boði fyrir 350 milljónir ki'óna á
tímabilinu 8. til 11. desember nk.
Stefnt er að skráningu hlutabréf-
anna á Verðbréfaþingi íslands fyrir
þann tíma. Er tilgangur útboðsins
að styrkja eiginfjárstöðu bankans
vegna vaxandi umsvifa í stai'fsemi
hans.
Heildarhlutafé bankans
4,1 milljarður
Getur hver áskrifandi skrifað sig
fyrir 500 þúsund krónur að nafn-
verði eða 1.075.000 krónur á geng-
inu 2,15. Verði áskriftir meiri en
sem nemur 350 milljónum króna
verður hámarksfjárhæð hluta skert
þar til heildarfjárhæðin nemur 350
milljónum króna. Greiðsludagur
bréfanna verður 29. desember nk.
Að útboði loknu verður heildar-
hlutafé Búnaðarbankans 4,1 millj-
arður króna að nafnverði og eru 3,5
milljarðar króna í eigu ríkissjóðs,
eða um 85%.
Kristjánsbakarí kaupir Brauðgerð KEA
Hagkvæmni í
rekstri og sterkari
samkeppnisstaða
Morgunblaðið/Kristján
BRÆÐURNIR Birgir og Kjartan Snorrasynir við höfuðstöðvar Brauð-
gerðar Kr. Jónssonar við Hrísalund, en þangað munu þeir smám sam-
an flytja starfsemi Brauðgerðar KEA, sem þeir keyptu í gær.