Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 MORGUNBLADIÐ VIÐSKIPTI / Landsbankinn selur Islenskum aðalverktökum 80% í Regm og Rekstrarfélafflnu 2,8 milljarða fasteignaviðskipti Morgunblaðið/Þorkell STÓRSAMNINGAR í fasteignaviðskiptuin voru handsalaðir af Jóni Pálmasyni og Sigurði Gísla Pálmasyni, fyrir hönd hluthafa í Þyi-pingu, Halldóri J. Kristjánssyni, bankastjóra Landsbankans, Jakobi Bjarnasyni, stjórnarformanni Regins og Hamla, Jóni Sveinssyni, stjórnarformanni Islenskra aðalverktaka og Stefáni Friðfinnssyni, framkvæmdastjóra íslenskra aðalverktaka, í gær. Bankinn selur fasteignir sem teknar voru upp í skuldaskil Sambandsins HÖMLUR hf., dótturfélag Lands- banka Islands og Islenskir aðal- verktakar hf. undirrituðu í gær samning um kaup Islenskra aðal- verktaka á 80% hlutabréfa í tveim- ur dótturfélögum Hamla, Regin hf. og Rekstrarfélaginu hf. Lands- bankinn, mun áfram eiga 20% hlut í hvoru félagi. Félögin tvö hafa til þessa haft með höndum umsýslu með fjöl- mörgum fasteignum og öðrum eignum á vegum Landsbankans. I eigu félaganna er meðal annars meirihluti Holtagarða og hluti af húseigninni Höfðabakki 9. Auk þess á Reginn 11,3% hlutabréfa Sameinaðra verktaka hf. og 9,56% hlutabréfa í Islenskum aðalverk- tökum. Heildareignir félaganna eru nú að verðmæti um 1,8 millj- arðar og hefur Landsbankinn tryggt langtímafjármögnun félag- anna. Jafnframt hefur verið undirrit- aður samningur milli Landsbank- ans og hluthafa í Þyrpingu, sem er í eigu fjölskyldu Pálma Jónssonar, stofanda Hagkaups, um stofnun nýs fasteignafélags um eignir Reg- ins og Rekstrarfélagsins og er þar stærsta eignin sá hluti Holtagai-ða sem Þyrping hefur haft á leigu um árabil. Hluthafar í Þyrpingu munu eiga 80% í þessu félagi en Lands- bankinn 20%. Heildareignir þess félags verða í byrjun að verðmæti u.þ.b. 1 milljarður og hefur Lands- bankinn tryggt langtímafjármögn- un vegna kaupanna. Nýtt fasteignafélag í mótun Halldór J. Kristjánsson, aðal- bankastjóri Landsbanka Islands, segir að að Landsbanki Islands, Is- lenskir aðalverktakar og hluthafai' í Þyrpingu hafi jafnframt ákveðið að kanna möguleika á að aðilarnir sameini krafta sína og annarra í samstarfi um eignarhald og rekst- ur öflugs hlutafélags sem hafi það að meginmarkmiði að eiga og reka stærri fasteignir. „Þau viðskipti sem nú hafa átt sér stað eru í samræmi við stefnu- mörkun allra félaganna sem að þeim koma. Þau hafa öll komið að og vilja hasla sér enn frekari völl á sviði fjármögnunar, eignarhalds og reksturs fasteigna og munu því kanna grundvöll frekara samstarfs á því sviði. Allir þátttakendurnir hafa víð- tæka þekkingu og reynslu af eign- arhaldi og rekstri fasteigna og fjár- mögnun fasteignakaupa. Aðilar eru sammála um að með því að sam- eina krafta sína sé grundvöllur til að byggja upp öflugt og arðvæn- legt félag á þessu sviði sem síðar yrði skráð á Verðbréfaþingi Is- lands,“ að því er fram kom í máli Halldórs við undimtun viljayfirlýs- ingarinnar í gær. Skuldaskilum Sambandsins breytt í lán Landsbankinn er meginlánveit- andi í þessum viðskiptum sem Halldór segist telja að séu með stærstu fasteignaviðskiptum sem hafa átt sér stað á einum degi á Is- landi. Segir hann að heildarumfang fjánnögnunar þeirrar sem bankinn hefur samið um vegna þessara fasteignakaupa og kaupa sé um tveir milljarðar króna, sem gerir þetta að einni stærstu lánveitingu sem hefur átt sér stað á innlendum markaði í einum viðskiptum. Halldór segir að með samning- unum sé Landsbankinn að selja þær fasteignir sem bankinn tók upp í skuldaskil Sambandsins og þeim breytt í lán. „Við útvegum lánsfjármögnun vegna félaganna og endurskipuleggjum félögin þannig að þau hafi eðlilegt eigin- ijárhlutfall. Og eru þetta heildar- viðskipti upp á 2,8 milljarða króna.“ Hagræðingar í rekstri Landsbankans Halldór segir að um góðar eignir sé að ræða sem rétt hafi verið að selja við núverandi aðstæður á markaði. Hann teljur að þessi við- skipti séu góð fýrir Landsbankann. „Eignimar eru traustar líkt og samstarfsaðilarnir og verðið viðun- andi.“ Að sögn Halldórs stendur yfir hagræðing í rekstri bankans og salan á 80% hlut í Regin og Rekstr- arfélaginu er liður í henni. Jafn- framt era seldar þrjár eignir sem hafa verið notaðar í rekstri Lands- bankans. „Við eram að reyna að bæta nýtingu fasteigna bankans á þann hátt að við munum minnka við okkur magn fasteigna sem nýttar era í rekstrinum. Það sem við eram að selja era þó aðallega eignir sem í raun hafa verið fulln- ustueignir hjá Landsbankanum sem hafa numið um 4% af heildar- eign hans. Með sölunni fer hlutur fullnustueigna bankans undir 2% af heildareignum hans. Þetta er því mikill áfangi íýrir Landsbankann, að hverfa frá því að vera rekandi og eigandi fast- eigna, í sitt eðlilega hlutverk, að lána til slíkrar starfsemi. Hitt er annað mál að Landsbankinn hefur mikinn hug á að verða til lengri tíma 20% hluthafi og fjánnögnun- araðili í hinu nýja félagi sem stofn- að verður á næstunni ef samningar takast. I fasteignafélagi sem hefur það eitt að markmiði að eiga og reka atvinnuhúsnæði," segir Hall- dór. Fyrsta skrefið á fasteignamarkaðinn Jón Sveinsson, stjórnarformaður íslenskra aðalverktaka, segir það eitt af langtímamarkmiðum ís- lenskra aðalverktaka að treysta stöðu sína á innlendum verktaka- og fasteignamarkaði og mikil ánægja sé með að samningarnir séu í höfn. Jón segir samninginn vera fyrsta skrefið hjá Islenskum aðal- verktökum inn á þennan mai’kað og félagið hafí miklar væntingar til þess að geta stækkað félagið og eflt það. Að sögn Sigurðar Gísla Pálma- sonar, eins af eigendum Þyrpingar, era þetta tímamót frá sjónarhóli eigenda Þyrpingai’. „Við höfum lengi sóst eftir því að eignast það húsnæði sem við höfum haft á leigu frá Landsbankanum um nokkurra ára skeið. Það er okkar markmið að vera í fasteignaumsýslu. Eins fögnum við því að komast í sam- starf við Landsbankann.“ Ekki breytingar í Holtagörðum Sigurður Gísli segir samninginn fela í sér að hið nýstofnaða fast- eignafélag, sem er í eigu eigenda Þyrpingar og Hamla, muni kaupa þann hluta Holtagarða þar sem verslanimar Ikea, Bónus, Rúm- fatalagerinn og ATVR era með starfsemi. Hins vegar muni Is- lenskir aðalverktakar eignast þann hluta sem Samskip er til húsa. Sigurður Gísli segir viðskiptin ekki breyta neinu um þá starfsemi sem nú er í Holtagörðum, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn. Hann segir að ekki liggi fyrir hve stóran hluta þetta nýstofnaða félag muni eiga í hlutafélaginu sem fyrir- hugað er að stofna á næstunni. Exxon kaupir Mobil fyr- ir 76,5 milljarða dala New York. Reuters. EXXON olíuiyrirtækið tilkynnti í gær að það hefði samþykkt að kaupa Mobil Corp. íyrir 76,5 millj- arða dollara, eða um 5.400 millj- arða íslenskra króna. Þar með verður komið á fót stærsta olíufé- lagi heims — um leið og komið verður til leiðar miklum umskipt- um í atvinnugreininni á sama tíma og olíuverð hefur ekki verið lægra í 25 ár. Exxon er stærsta olíufélag Bandaríkjanna og Mobil það annað stærsta. Hluthafar Exxon munu eiga 70% í hinu sameinaða fyrir- tæki. Samningurinn minnir á Standard Oil risaolíufyrirtæki Johns D. Rockefellers, sem stjóm- völd leystu upp 1911. Viðskiptin era þau mestu sem um getur í sögu bandarískra fyrir- tækja og skyggja á kaup Travelers Group á Citicorp. fyrir 72,6 millj- arða dollara fyrr á þessu ári. Hið sameinaða fyrirtæki mun einnig slaga upp í General Motors Corp. sem stærsta fyrirtæki heims. Gert var ráð fyrir að hlutabréf- um í Mobil yrði skipt fyrir 1,32015 hlutabréf í Exxon þegar samning- urinn var gerður á mánudag og þá var samningurinn um 80 milljarða dollara virði samkvæmt verði hlutabréfa þá. Síðan lækkaði verð bréfa í Exxon um 3,69 dollara í 71,375 í gærmorgun og heildar- verðmætið féll í 76,2 milljarða. Nýja fyrirtækið mun kallast Exxon Mobil Corp., og verður und- ir stjórn stjórnarformanns og aðal- framkvæmdastjóra Exxon, Lee Raymond, sem mun gegna stöðum formanns, aðalframkvæmdastjóra og forseta nýja fyrirtækisins. Stjórnarformaður og aðalfram- kvæmdastjóri Mobil, Lucio Noto, verður varastjórnarformaður. Báðum vöramerkjum verður haldið. Bækistöðvar nýja fyrirtæk- isins verða í heimabæ Exxons, Irv- ing í Texas. Aðalmiðstöð olíu- hreinsunar og markaðsaðgerða í heiminum verður í Fairfax, Virgin- íu, núverandi bækistöð Mobils. Að- almiðstöð olíuleitar og framleiðslu verður í Houston. Gert er ráð íyrir að samruninn spari 2,8 milljarða dollara fyrir skatta. Heimildir Reuters herma að 12.000 störf verði lögð niður. Olíubirgðir sameinaða fyrirtæk- isins verða 20.743 milljarðar tunna af olíu og gasi og framleiðsla á dag af olíu og gasi verður 1,631 milljón tunna á dag. Félagið mun einnig hafa greiðari aðgang að olíusvæðum í Norðursjó, arðvænlegum samningum við Saudi-Arabíu og sterkari aðstöðu í olíuhreinsunar- og markaðsmálum í Bandaríkjunum. Samningurinn er háður sam- þykki hluthafa og bandarískra eft- irlitsyfirvalda, sem munu fara rækilega ofan í saumana á honum. 10 stærstu olíufélögin Hlutabréf í Al- group hækka VERÐ á hlutabréfum í Viag lækkaði um 10% eftir að það fréttist að fyrir- tækið hygðist sameinast Algroup. Hlutabréf í Algroup hækkuðu hins vegar í verði. Höfundur Lex-dálksins í Financial Times tók þessa þróun með í reikninginn og komst að þeirri niðurstöðu að markaðsverðgildi fyr- irtækjanna eftir sameiningu verður 1,2 milljörðum dollara lægra, eða 84 milljörðum íslenskra króna, en það var áður en fréttist að þau yrðu sam- einuð. Wilhelm Simson var skipaður framkvæmdastjóri Viag síðastliðið sumar. Lex-dálkurinn segir hluthafa Viag mjög óánægða með ákvörðun hans að færa út kvíarnar á iðnaðar- sviði í stað þess að losa Viag við iðn- aðarframleiðslu og beina fyrirtækinu hnitmiðað inn á orku- og samskipta- braut. Dálkahöfundur segir að það hefði verið ódýrara og betra fyrir reksturinn, ef stórfyrirtækið vill endilega stækka, að kaupa heldur eitt og eitt fyrirtæki sem passar inn í reksturinn en að borga toppverð fyr- ir „margþætt ferlíki". Hann ráðlegg- ur hluthöfum Viag að greiða atkvæði gegn sameiningunni á næsta aðal- fundi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.