Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ DAVÍÐ Pétursson, oddviti Skorradalshrepps, Guðrdn Jónsdóttir arkitekt og Ríkharð Brynjólfsson oddviti. Svæðisskipulag sveitarfélaga norðan Skarðsheiðar komið út Atvinnumál í brenni- depli í Stykkishólmi Grund - í tilefni af útgáfu og dreif- ingu á Svæðisskipulag sveitarfélag- anna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 var boðið til veislu á Hvanneyri laugardaginn 28. nóv- ember sl. Til veislunnar var boðið öllum fulltrúum sem unnu við svæðisskipulagið auk núverandi hreppsnefndarmanna í hinum 2 sveitarfélögunum sem nú eru á svæðinu. í fréttatilkynningu sem dreift var sagði m.a: „Fulltrúar frá Andakílshreppi, Hálsahreppi, Lundarreykjadals- hreppi, Reykholtsdalshreppi (nú í sameinuðu sveitarfélagi „Borgar- fírði“), Skorradalshreppi og Skipu- lagsstjórn ríkisins (Skipulagsstofn- un) skipuðu samvinnunefnd er vann að verkinu. Formaður nefndarinnar var Margrét Heinreksdóttir. Árið 1993 var samþykkt beiðni sveitarfélaganna í Borgarfirði norð- an Skarðsheiðar þess efnis að ýtt yrði úr vör skipulagsáætlun fyrir svæðið og samvinnunefndin tók til starfa 20. júní 1994. Árið síðar var gengið frá samningi við Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt um gerð áætl- unarinnar. Skipulagsáætlunin sem nú er kynnt er til næstu tuttugu ára. Eitt meginmarkmiða með gerð skipu- lagsins er að marka meginstefnu um þróun byggðar og landnotkun á svæðinu til næstu tuttugu ára og koma þar með í veg fyrir tilviljana- kenndar ákvarðanir sem áhrif hafa á byggðaþróun og landnýtingu. Og að gera grein fyrir landgæðum og auðlindum svæðisins og gera áætl- un um hagkvæma nýtingu þeirra og áætlun um stærstu sameiginleg málefni. Ánægja með útgáfuna Þegar skipulagsáætlunin liggur nú fyrir er óhætt að fullyrða að vel hafí verið unnið og hún verði til „að auðga og bæta líf íbúanna á skipu- lagssvæðinu" í náinni framtíð. Guðrún Jónsdóttir fór yfir störf svæðisskipulagsnefndarinnar og taldi mikinn feng í að allir hefðu að- gang að tillögunum sem nú er út- kominn á 78 bls. í stóru broti. Marg- ir tóku til máls í hófinu og voru menn yfirleitt ánægðir með útgáf- una og fékk höfundurinn Guðrún Jónsdóttir ómælt hól fyrir verk sitt. Einnig þökkuðu heimamenn fyrir vinnu kvennanna frá Skipulags- stofnun, þeirra Guðrúnar Höllu Gunnarsdóttur og Margrétar Hein- reksdóttur formanns, auk frábærs framlags Gylfa Más Guðbergsson- ar, sem skilaði landakorti með öll- um hreppa- og landamerkjum á svæðinu, auk lýsingar. Þetta er með því síðasta sem frá hans hendi kom, því hann féll frá, langt fyrir aldur fram, snemma á þessu ári. Öll frumgögn varðandi vinnu við skipulag þetta verða nú varðveitt á Héraðsskjalasafninu í Borgarnesi og eru þar aðgengileg öllum sem áhuga hafa á að kynna sér þau. Stykkishólmi - Atvinnunefnd Stykkishólms boðaði til fundar um atvinnumál í Stykkishólmi 24. nóvember sl. Fjölmenni var á fundinum, en margir hafa haft áliyggjur af þróun þeirra mála. Olafur Hilmar Sverrisson bæjarstjóri fór yfir atvinnuá- stand í bænum árin 1995-1998. Þar kom fram að atvinnuá- standið sveiflast. Mikil vinna skapast af skelveiðum og vinnslu og stendur sú vertíð yfir frá því í ágúst og fram í febrú- ar. Þá er eftirspurn eftir vinnu- afli og undanfarin ár hefur þurft að flylja inn vinnuafl. Erf- iðast er atvinnuástandið í mars til maí og hefur verið atvinnu- leysi þá mánuði. Fram kom hjá Ólafi að atvinnuleysisdagar voru 4.510 árið 1995, árið 1996 voru þeir 4.421, í fyrra 2.338 dagar og fyrstu 10 mánuði þess árs voru þeir orðnir 2.067. Ólaf- ur lagði áherslu á að breyta þyrfti atvinnumunstrinu. Tryggja þarf fleiri heilsársstörf. Stykkishólmur ræður á auðveld- an hátt við að taka á móti fleiri íbúum. Sveitarfélagið er búið að byggja upp góða þjónustu við bæjarbúa á mörgum sviðum sem getur annað mun fleiri íbú- um. Þá gerði Guðrún Gísladóttir grein fyrir Atvinnuráðgjöf Vest- urlands. Stofnunin tók til starfa 1. október sl. Hún hefur aðsetur á Akranesi og eru nú þar 3 starfsmenn. Fram kom hjá Guð- rúnu að ætlunin er að reka virka vinnumiðlun og standa vel við bakið á þeim sem missa vinnu og hjálpa þeim að finna ný störf. Á fundinum ræddu Olafur Sveinsson og Sigríður Hrönn Theodórsdóttir um At- vinnuráðgjöf Vesturlands. Þar gefst þeim sem hafa hug á að stofna eigið fyrirtæki tækifæri á að fá leiðbeiningar til að meta hugmyndir og ráðgjöf til að yf- irstíga fyrstu þröskuldana. Líflegar umæður og fyrir- spurnir urðu að loknum fram- söguerindum. Með tilkomu hita- veitu ættu að skapast ný at- vinnutækifæri, en það þarf dug og þor til að Ieggja af stað. Olafur Sveinsson hefur gert út- tekt á arðsemi uppbyggingar á hótelinu. Niðurstöður er já- kvæðar og er verið að leita að íjárfestum til að taka þátt í verkefninu. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason FJOLMENNI var á almennum fundi í Stykkishólmi um atvinnumál og fiörugar umræður. Þar kom vel í ljós að atvinnumálin eru hornsteinn hvers byggðarlags og verður að treysta á frumkvæði heimamanna. Opinn fundur á Egilsstöðum um hálendismálin Framsóknarflokkurinn á Yesturlandi GESTIR á opnum fundi um verndun hálendis. Morgunblaðið/Anna Ingólfs Hvetja til málefnalegrar umræðu Egilsstaðir - Opinn fundur Félags um vemdun hálendis var haldinn í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Tilefnið var blaðaskrif Sveins Jóns- sonar, verkfræðings á Egilsstöðum, í Austurland sem gefið er út í Nes- kaupstað. Umræða um hálendis- og virkjunarmál er að verða hörð og óvægin á Austurlandi, að mati fé- lagsmanna. Fundurinn ályktaði svohljóðandi: „Fundur Félags um verndun há- lendis Austurlands hvetur til mál- efnanlegrar og drengilegrar um- ræðu um vemdun og nýtingu nátt- úruauðlinda á Austurlandi. Fundur- inn telur að lögformlegt mat á um- hverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar sé heppilegasti farvegurinn fyrir slíka umræðu þar sem sjónarmið verndunarsinna annars vegar og virkjunarsinna hins vegar fengju faglega umfjöllun. Fundurinn harmar blaðaskrif, þar sem ráðist er að einstökum per- sónum og starfsheiðri þeirra og heitir á stuðningsmenn félagsins að forðast þess konar orðræðu. Virð- um andstæð sjónarmið." Ingibjörg Pálmadóttir efst Borgarnesi - Aukakjördæmisþing Framsóknai-flokksins á Vesturlandi kom saman í Hótel Borgarnesi laug- ai'daginn 28. nóvember sl. til að velja fimm efstu sæti á framboðslista flokksins í kjördæminu til næstu al- þingiskosninga sem fram fara á næsta ári. Á kjördæmisþingi sem haldið var 14. nóvember sl. var samþykkt að kjósa fímm manna nefnd sem hefði það hlutverk að undirbúa val á fram- bjóðendum í fimm efstu sætunum. Til þessa aukakjördæmisþings var boð- aður þrefaldur fjöldi fulltrúa hvers íramsóknarfélags í kjördæminu. Alls gáfu átta einstaklingar kost á sér í þessi fimm sæti og var kosið á milli þeirra um hvert þein-a og skip- uðust þau þannig: 1. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðheiTa, Akranesi, 2. Magnús Stefánsson al- þingismaður, Ólafsvík, 3. Þorvaldur Tómas Jónsson bóndi, Hjarðarholti, Borgai-byggð, 4. Sigrún Ólafsdóttir bóndi, Hlíð, Kolbeinsstaðahreppi og 5. Sturlaugur Eyjólfsson bóndi, Efri- Brunná, Dalabyggð. Stjórn Kjördæmissambandsins var fengið það hlutverk að ljúka frá- gangi listans og á því verki að vera lokið í byrjun desember. Slasaður maður sóttur á haf út Raufarhöfn - Björgunarskip Slysavarnafélagsins á Raufar- höfn, Gunnbjörg, sótti slasað- an mann um borð í rækjuveiði- skipið Stakfell á mánudags- kvöld. Tildrög slyssins vora þau að grandari slóst í hné mannsins og brákaði það. Slysið varð um 25-30 mílur út frá Raufarhöfn. Gekk brösulega að ná mannin- um um borð því undiralda var mildl. Komið var með manninn í land í Raufarhöfn um kl. 23.30 og hann keyrður á sjúkrahúsið á Akureyri því enginn læknir er staðsettur á Raufarhöfn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.