Morgunblaðið - 02.12.1998, Side 25

Morgunblaðið - 02.12.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 25 ERLENT styi'kja stöðu Quebec gagnvart alrík- isstjórninni í Ottawa, en ekki til að rjúfa tengslin við Kanada. Það þykir ennfremur benda til þess að Bouchard kunni að vera til viðræðu um eitthvað annað en að- skilnað, að í ágúst sl. mætti hann óvænt til fundar allra fylkisstjóranna um svonefndan félagsmálasamning, er á að fela í sér aukið sjálfsforræði fylkjanna gagnvart alríkisstjórninni í félagsmálum. Roy Romanow, fylkisstjóri í Sa- skatchewan, sagði að kosningaúrslit- in sýndu að kominn væri tími til að fylkisstjórarnir tækju höndum sam- an og „sköpuðu betra [Kanada], sem Quebec-búar þurfa ekki að yfirgefa til þess að geta staðið vörð um hina fransk-menningarlegu sérstöðu sína“. Alexa McDonough, fonnaður Nýja Demókratafiokksins, tók í sama streng og sagði að Jean Chrétien forsætisráðherra yrði að bregðast við áskorun Bouchards og mæta til viðræðna um eiginlegt jafnrétti allra Kanadabúa. Mun ESB hervædast? Spurning sem rædd er í þessari bók Ómissandi rit fyrir áhugamenn um stjórnmál • • Oruggur sigur aðskilnaðarsinna í fylkiskosningunum í Quebec Bouchard fáorð- ur um aðskilnað Toronto. Morgunblaðið. FLOKKUR aðskilnaðarsinna í Quebec í Kanada, Parti Quebecois (PQ), hélt memhluta sínum á fylkis- þinginu i kosningum sem fram fóru á mánudag. Hlaut fiokkurinn 75 sæti af 125; Frjálslyndi flokkui'inn hlaut 48 sæti og Action Democratique Quebec (ADQ) eitt sæti. Kosningar í einu kjördæmi fai'a fram síðar í mán- uðinum. Sigur PQ var þó ekki eins afgerandi og spáð hafði verið. PQ og frjálslyndir hlutu um það bil jafnt atkvæðahlutfall í heild, hvor flokkur um sig fékk um 43%, en þar eð kosið er í einmenningskjördæm- um og stuðningur við frjálslynda er að mestu bundinn við tiltölulega fá kjördæmi í Montreal, þai’ sem enskumælandi íbúar eru í miklum meirihluta, er sætaskipting á þing- inu önnur en hlutfallsskipting allra greiddra atkvæða. Báðir flokkarnir hlutu fæiri atkvæði nú en í síðustu kosningum. Þegar Lucien Bouehard, formaður PQ, ávai-paði stuðningsfólk sitt á kosninganóttina minntist hann varla á aðskilnað frá Kanada. Hann sagði fylkisstjórnina myndu einbeita sér að því að ná hallalausum fjárlögum og auka pólitískan og efnahagslegan stöðugleika í fylkinu. Frétta- og stjórnmálaskýrendur, aðskilnaðai’sinna sem annarra, voru sammála um að skilaboðin frá kjós- endum til Bouchards væru skýr. Það væri ekki vilji kjósenda að efnt yrði til atkvæðagreiðslu um aðskilnað á næstunni og töldu stjórnmála- skýrendur ólíklegt að Bouchard myndi vhða þessi skilaboð að vettugi. Bouchard sagðist „virða þau skilaboð sem þið hafið sent með því að kjósa fulltrúa er endurspegla tengsl ykkar við Kanada“. Það dreg- ur úr líkunum á að efnt verði til at- kvæðagreiðslu um aðskilnað að Frjálslyndi flokkurinn hlaut eitt pró- sent fleiri atkvæði í heild en PQ, og bendir það eindregið til þess að að- skilnaðarsinnar yrðu undh í slíkri at- kvæðagreiðslu. Meira að segja Jacques Pai-izeau, fyrrverandi formaður PQ, er stóð fyi’ir aðskilnaðaratkvæðagreiðslunni fyrir þrem árum, var varkár í orðum á mánudagskvöld og sagði einungis að Bouchard hefði fengið „umboð er gerh honum kleift að hefja undh- búning fyrh næstu atkvæða- greiðslu“. Formaður frjálslyndra vígreifur Jean Charest, formaður Frjáls- lynda flokksins var vígreifur er hann ávarpaði stuðningsmenn sína er úr- slit lágu fyrh. Hann kvaðst myndu fara fyrh stjórnarandstöðunni á fylkisþinginu og veita PQ strangt að- hald. Hann sagði úrslitin sýna svo ekki yrði um villst að kjósendur vildu „fyrst og fremst tryggja árang- ur Quebec og árangur Kanada“. Fréttaskýrendur telja margh að hinn eiginlegi siguiwegari kosning- anna hafi þó verið þriðji flokkurinn, ADQ, sem jók fylgi sitt úr 6,5% í næsum því tólf af hundraði, en náði þó ekki að bæta manni á þing. For- maðurinn, Mario Dumont, verður áfram eini fulltrúi flokksins þar. Reuters LUCIEN Bouchard og eiginkona hans, Audrey Best, fagna sigri í fylk- iskosningunum í Quebec. Flokkurinn, er jók fylgi sitt mest á meðal frönskumælandi kjósenda í úthverfum Montreal, hefur lýst sig andvígan því að efnt verði til at- kvæðagreiðslu um aðskilnað næsta áratuginn. Skoðanakannanir höfðu bent til þess að Frjálslyndi flokkurinn myndi bíða mikið afhroð í kosningunum og var jafnvel talið að Charest myndi hverfa af vettvangi stjórnmálanna í kjölfarið. Urslitin á mánudag og við- brögðin við þeim sýna þó að hvorugt hefur gengið efth. Charest sagði m.a. í ávarpi sínu á kosninganóttina að þeh sem ekki þekktu sig myndu fá að kynnast formanni Frjálslynda flokksins á næstu fjórum árum. Fréttaskýrendur segja að kosn- ingarnar hafi í rauninni alls ekki snúist um aðskilnaðarmálið, heldur hafi Quebec-búar fyrst og fremst verið að kjósa sér fylkisstjóm. Bouchard hafi fengið umboð til að ^nDAGA T4.1 kO';>.vKENNU.\y1" KR500^ Jóladagafal Happaþrennunnar. ÞocJ eru spermondi moiYncxr framundon!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.