Morgunblaðið - 02.12.1998, Side 27

Morgunblaðið - 02.12.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 27 ERLENT PffSl __^ w Oánægja með Mugabe vex Harare. The Daily TelegTaph. VAXANDI ólga er nú í Zimbabve vegna gífurlegra verðhækkana og atvinnuleysis og hefur verið efnt til allsherjarverkfalla til að mótmæla ástandinu. Oánægjan beinist ekki síst að Robert Mugabe, forseta landsins, en hann lætur sér fátt um finnast og heldur áfram stöðugum ferðalögum sínum til útlanda. Er Mugabe nú staddur í Bretlandi í einkaerindum en landar hans hafa gefið honum viðurnefnið Vasco da Gama eftir sæfaranum fræga og krefjast þess að hann segi af sér. Hann hefur svarað kröfunum með því að banna allsherjarverkföll í hálft ár. Ibúar í Zimbabve segja forset- ann, sem er á 75. aldursári, hafa misst tengslin við þjóðina og þá erf- iðleika sem hún eigi við að etja. Unga kynslóðin man ekki frelsis- baráttuna og því síður þátt Muga- bes í henni en allir íbúar landsins hafa hins vegar orðið fyrir barðinu á afleiðingum uppstokkunar hagkerfís- ins, spillingar og óstjómar. Um helmingur þjóðarinnar er atvinnu- laus, verðbólga er yfir 40% og gengi dalsins, gjaldmiðils Zimbabve, hefur fallið um 80% á einu ári. Landsmenn era nær einhuga um að tími sé kominn til að „faðir þjóðai'- innar“, Mugabe, láti af embætti. íbú- ar landsins eru búnir að fá nóg af af- skiptaleysi hans og gríðarlegri spill- ingu sem viðgengst meðal embættis- manna, sem ganga um fjárhirslur hins opinbera eins og þær væru þeirra eigin og útdeila störfum og embættum til vina og vandamanna. Ovíst er þó hvort þrýstingurinn á Mugabe nægir til að koma honum úr embætti en síðar í þessum mán- uði verður ráðstefna Zanu-flokks- ins, sem fer með stjórn landsins. Eru vonir bundnar við að þá muni koma í ljós hvort óánægjan hafi skilað sér inn í raðir flokksmanna. Eitt skýrasta dæmi um óánægj- una er að æ fleiri íbúar Zimbabve, svartir og hvítir, hafa snúið sér til Ian Smith og beðið hann að velta Mugabe úr sessi en Smith var síð- asti hvíti forseti Ródesíu eins og landið hét áður en svartir íbúar þess komust til valda og breyttu í Zimbabve. Hitti Michael Jackson Efnt hefur verið til allsherjar- verkfalla til að mótmæla ástandinu, nú síðast til að mótmæla 75% hækk- un á bensínverði. Ekki var minnst einu orði á verkfallið í útvarpi og sjónvarpi ríkisins. Þess í stað horfðu menn á myndir af Mugabe, sem er þekktur fyrir óbeit sína á samkynhneigðum og vestrænni popptónlist, taka á móti bandaríska popptónlistarmanninum Michael Jackson. Var þetta talið léleg eftirlíking móttaknanna sem hljómsveitin Ki-yddstúlkurnar fengu hjá Nelson Mandela, forseta Suður-Afríku, fyr- ir skömmu, en Mandela er reyndar heldur ekki í neinu sérstöku uppá- haldi hjá Mugabe. Það á sér rætur í uppgangi Suður-Afríku og höfuð- borgarinnar Pretóríu sem hefur tekið við af Harare sem helsta efna- hags- xog stjórnmálamiðstöð suður- hluta Afríku. RÚSSAR björguðu í gær þremur kvikmyndagerðarmönnum sem verið höfðu veðurtepptir á af- skekktri eyju í Norður-Ishafi í sex vikur. Voru mennirnir að verða matarlausir er hjálpin barst. Kvikmyndagerðarmenn- irnir voru frá Rússiandi, Japan og Ástralíu og voru að gera heimildarmynd um ísbirni. Ekki er ljóst hverjir björguðu mönnunum, rússneski herinn fuliyrðir að hann hafi staðið að björguninni í leiguþyrlu en al- þjóðlegt björgunarfyrirtæki, AEA International SOS, segist eiga heiðurinn af henni, að því er Wrangel-eyju, 560 km norðvestur af Alaska, 2. september sl. og hugðust halda þaðan aftur 15. október. Það reyndist ekki hægt vegna veðurs og þá þegar hófust tilraunir til að ná í þá. Ráðuneyt- ið sem fer með björgunaraðgerð- ir í Rússlandi skipulagði björgun- arferðir en illa gekk að komast til mannanna, sem afþökkuðu m.a. björgun á snjósleðum vegna þess að þá hefðu þeir orðið að skilja nær allan búnað sinn eftir. Hafa þeir því mátt dúsa í kofa á eyjunni í hálfan annan mánuð. Frostið þar hefur að jafnaði ver- ið um 22 stig og hvassviðri. Bjargað eftir 6 vikur við N-íshaf fram kemur í frétt AP. Talsmað- ur AEA sagði í gær að mennirnir væru þokkalega á sig komnir en þeir hefðu aðeins átt eftir mat til þriggja daga er hjálp barst. Þremenningarnir komu til pcil Skeifunni 6 sím Skeifunni 6 sími: 568 7733 www.epal.is Stillanlegt heilsurúm meðáklæðum sem hægt er aðtakaaf og þvo við60° C! MeðLatex-yfirdýnu, pokagormum, flarstýringu og stillanlegum botni. Verð 125.200 kr. Gott verð hagnýt hönnun og sérviska Eyjólfs . í m i 'í 5 kg MEÐ TVÆR HITASTllIJNGAR, VELTIRIBAÐAR ÁTTIR, KRUMPUVÖRN, RYÐFRÍ STÁLTROMLA. (RÉTT VERÐ kr. 34.900.-) IH1EI.ECTRIC HEKLA LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 569 5770 /M63PE, 5,5 kg, 1000 SNÚNINGA, STIGLAUS VINDA, HRAÐÞVOTTAKERFI, SJÁLFVIRK VATNSSKÖMMTUN, HURÐIN OPNAST í 180", ULLARKERFI, ULLARVAGGA, STIGLAUS HITAROFI, FORÞVOTTAKERFI, ÞVOTTAKERFI FYRIR OFNÆMISSJÚKA, SKYNJAR ÞVOTTAMAC SPARAR ORKU. VERÐ kr. 63.950.- ÞÁ SEM KAUPA HOTPOINT PVOTTAVÉL WMÓ3PE ÞEIR SEM KAUPA HOTPOINT ÞVOTTAVÉL (WMÓ3PE ) Á KR. 63.950.- EIGA ÞESS KOST AÐ KAUPA ÞENNAN ÞURRKARA Á AÐEINS KR. 5.959.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.