Morgunblaðið - 02.12.1998, Síða 47

Morgunblaðið - 02.12.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 41% og fólki þykir lystug og hafa bæði grænmeti og ávexti sem hluta af mataræðinu, borða fitulitlar súpur og velja sér fitulítla fæðu reglu- bundið. Þessi ráð eru að sjálfsögðu ætluð fullorðnum. Börn í vexti þurfa óskerta málsverði. Ákveðið magn af fítu er líkaman- um nauðsynlegt, hann þarf 30 g af fitu á dag til að tryggja nauðsynleg næringarefni. Upptaka vítamína eins og A- og D-vítamína verður best þegar þeirra er neytt með fítu. Einnig er líkamanum nauðsynlegt að fá fitusýrur sem hann getur ekki framleitt sjálfur. í umfjöllun um mataræði og við- hald á kjörþyngd kemur alls staðar fram mikilvægi líkamsæfinga. í of- angreindri bók er því haldið fram, að matarkúr án líkamsæfinga setji fólk fljótlega í sömu þyngd og það var í áður eða jafnvel meiri. Avinn- ingur af líkamsæfíngum er tíma- bundin aukin orkubrennsla, æfingar setja hömlur á matarlysina, draga úr streitu og steitubundinni löngun í mat og þær auka ki'aft og líkam- lega vellíðan. Reglulegar líkamsæf- ingar styrkja líkamann og líkami í góðri þjálfun brennir meiri líkams- fitu en líkami í lélegri þjálfun. Ef til vill væri ráð að dusta í-ykið af aðgangskortinu að heilsuræktinni eða tækjasalnum sem keypt var í haust en stungið undir stól, þegar ákveðið vai' að púlið væri meira en ávinningurinn. Það er misskilning- ur, ei-fiðið skilar árangri til lengdar, með því að styrkja líkamann er ver- ið að vinna að ákveðnum forvömum. Við höfum aðeins einn líkama og viðhald hans er, þrátt fyrir tæknina, ódýrara og sársaukaminna en við- gerðir. Nú hafa ekki allir aðstöðu til að komast í heilsurækt eða tækjasal, því er mjög ánægjulegt að sjón- varpið eða Stöð 2 skuli sýna þætti í líkamsþjálfun. Þeir sem standa að þessum þáttum eiga einnig þakkir skilið fyrir framtakið. En það er ekki fyrir aðra en þá sem eru í topp- þjálfun að fylgja æfingunum eftir. Hraðinn er slíkur að æfingar verður að gera með íykkjum með átaki á liði fremur en vöðva, ef fylgja á æf- ingunum eftir. Það væri frábært ef farið væri ögn hægar í æfingarnar svo hægt sé að fylgja þeim eftir og hafa gagn af. Æfingarnar mættu vera fjölbreyttari. Megrunarkúrar hafa sjaldan reynst haldgóðir til langframa. Handhæg gullin regla er að hafa freistingar utan seilingar, baka mat fremur en steikja og borða í hófi. Matarkúrar einir og sér hafa sjald- an skilað árangri til langframa, aft- ur á móti virðast heilbrigðar matar- venjur jafnhliða reglubundinni lík- amsþjálfun skila bestum árangri, ekki tímabundið heldur til frambúð- ar. Höfunduv er blnðamaður. kirsuberjatréð vesturgötu 4 #! FLÍSASKERAR OG FLÍSASAGIR ; -it' 2 J; -«3 IILL . íit lis !5E: Stórhöfða 17, við GuUinbrú, sími 567 4844 BRIDS llmsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Breiðfirðinga AÐSÓKN að spilakvöldum hjá Bridsfélagi Breiðfirðinga hefur ver- ið þokkaieg að undanförnu, en síð- astliðinn fimmtudag var hún í dræmara lagi. Aðeins 8 pör mættu til leiks og má vera að jólabakstur- inn hafi átt einhvern þátt í aðsókn- inni. Mikil og jöfn keppni var um efsta sætið í riðlinum og enduðu leikar þannig að tvö pör enduðu jöfn í efsta sæti. Meðalskor var 84 stig: Jóna Magnúsd. - Jóhanna Sigurjónsd. 93 Jón V. Jónmundsson - Kristinn Karlsson 93 Einkur Guðmundsson - Geir Björnsson 91 Jón Stefánsson - Guðlaugur Sveinsson 88 Asmundur ðmólfss. - Gunnlaugur Karlss. 84 A fimmtudagskvöldum er ávallt spilaður eins kvölds tvímenningur með forgefnum spilum. Bridsfélag Suðurnesja Sveit Arnórs Ragnarssonar sigraði í meistaramóti félagsins, sem lauk sl. mánudagskvöld. Sveitin hlaut 101 stig en sveit Sigríðar Eyjólfsdóttui' varð í öðru sæti með 83 stig. I sveit Ai-nórs spiluðu auk hans Karl Hermannsson og feðgarnir Óli Þór Kjartansson og Kjartan Ólason. Með Sigríði spiluðu Gísli ísleifsson, Isleifur Gíslason, Hafsteinn Ög- mundsson og Þröstur Þorláksson. Dræm þátttaka var í mótinu, aðeins 6 sveitir. Lokastaðan: Amór Ragnarsson 101 Sigríður Eyjólfsdóttir 83 Pétur Júlíusson 78 Jón Erlingsson 76 Sveit Arnórs tapaði fyrsta leikn- um í mótinu en vann hina leikina nokkuð örugglega. Sveit Sigríðar tapaði hins vegar þremur leikjum og vann tvo en varð samt í öðru sæti. Næsta mót félagsins er tveggja kvölda jólatvímenningur sem hefst nk. mánudagskvöld. Afmælismót Bridsfélags Suðurnesja 5. desember Bridsfélag Suðurnesja er 50 ára á þessu ári og af því tilefni verður haldið eins dags tvímenningsmót í félagsheimilinu við Sandgerðisveg. Mjög veglega verður staðið að mótinu. M.a. verður boðið upp á kaffi í spilahléi og dregnir út a.m.k. fimm spilarar í mótslok þar sem glæsilegir aukavinningar eru í boði. Þeiira á meðal er ferðavinningur frá Utval- Útsýn að verðmæti 30 þúsund kr. og matarúttektir á þekktum veitinga- húsum. Heildarverðlaunin í mótinu eru að verðmæti a.m.k. 250 þúsund kr. Skráning í mótið stendur nú sem hæst og geta væntanlegir þátttak- endur ski'áð sig hjá Kristjáni í síma 4216156, hjá Kjartani í síma 421 2287 eða hjá Bridssambandinu. Lokafrestur til mætingar í mótið er kl. 10.45 en spilamennskan hefst kl. 11. Mótinu lýkur með verðlauna- afhendingu og í lokin verða auka- vinningarnir dregnir út. Allir spilar- arnir verða í pottinum en þeir verða líka að vera í húsi þegar dregið er, annai-s verður dregið aftur um vinn- ^ inginn. Bridsfélag Hreyfils Hafinn er barometer-tvímenning- ur hjá félaginu með þátttöku 26 gara. Flosi Ólafsson og Sigurður Ólafsson byrjuðu mótið mjög vel og náðu 65,5% skor fyrsta kvöldið en staða efstu para er þessi: Flosi Ólafsson - Sigurður Ólafsson 393 Friðbjörn Guðmundss. - Bjöm Stefánss. 360 HeimirTryggvason-ÁrniMárBjömsson 354 Gísli Tryggvason - Arni Már Bjömss. 350 Hlynur Vigfússon - Omar Óskarsson 34fc Smári G. Snædal - Asgrímur Aðalsteinss. 333 Mótinu verður fram haldið nk. mánudagskvöld. LIMDE ÁVALLT í FARARBRODDI Mú kynnum við frábæra nýjung frá Linde. Lyftari með „5ervo stýringu" . Linde hugsunin byggist á því að ef ökumanninum líður vel í starfi, næ5t hámarksframleiðni á lyftaranum. Þessu takmarki hafa þeir náð með E18 Linde lyftaranum. rWW^-- Ingvar | 1=| Helgason hf. ^ = ? Sœvarhöfða 2 Simi 525 8000 Rafmagnsstjórnbás vel einangraður frá bleytu og saltl en samt vel aðgengilegt til eftlrllts. Vökvafjaðrandi sætl með ótal stilllngum. 5ervo stýringln hentar hvaða stærð af ökumannl sem er. Linde hugsjónin: fætur stjórna aftur og fram, vinstri hönd öllum stundum á stýri og flngur hægrl handar stjórna öllum masturshreyflngum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.