Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 60
. ðO MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 " FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ í DAG Hönnuðir sýna prjónafatnað ELM er nýstofnað fyrirtæki þriggja hönnuða sem undanfarið hafa unnið að gerð kvenlegs prjónafatnaðar úr alpaca gæðaull frá Perú sem er einstök hvað varðar mýkt og léttleika, segir í fréttatilkynningu. Haldin verður sýning á þessari fyrstu framleiðslu ELM á Café Sóloni Isiandusi miðvikudags- kvöldið 2. desember kl. 20. Hönn- uðirnir eru þær Erna Steina Guðmunsdóttir, Lísbet Sveins- dóttir og Matthildur Halldórsdótt- ir. Einnig verða þessar vörur til sýnis og sölu í Sölvasal, Sóloni Is- landusi, föstudaga og laugardaga kl. 12-16, sunnudaga kl. 14-18, mánudaginn 21. des. kl. 16-22, þriðjudaginn 22. des. kl. 16-22 og miðvikudaginn 23. des. kl. 12-24. Skófatnaður á sýningunni er frá versluninni 38 þrep. Þjónustusamningur við Naust á Þórshöfn INGIBJÖRG Pálmadóttir, heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra, Isak Ólafsson, sveitarstjóri Þórs- hafnar, og Jóhann Sigfússon, odd- viti Svalbarðshrepps, hafa undirrit- að þjónustusamning vegna starf- semi stofnunarinnar. Samningurinn felur í sér að heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- ið kaupir fyrir hönd ríkissjóðs þjón- ustu af stofnuninni en hún selur 7 hjúkrunarrými og 2 dagvistunar- rými og eru ákvæði í samningnum um að nýting rýma verði ekki minni en 98 af hundraði á ári hverju. Að auki leggur stofnunin til 4 dvalar- rými sem lífeyristryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins greiðir fyi'ir. Skilgreindar eru í samningnum kröfur heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytis vegna aðbúnaðar og þjónustu við vistmenn, markmið með því að veita þjónustuna, um hjúkrunarþátt þjónustunnar og eft- irlit með framkvæmd samningsins. Ríkissjóður greiðir Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Nausti, Þórs- höfn, 21 milljón og 9 hundruð þús- und krónur árlega fyrir þjónustu sem vistmönnum er veitt á stofnun- inni. Verslunarferð til St. John's í Kanado* á aðeins kr. 19.200,- (Innifalið: Flug - gisting - skattar) Eigum enn nokkur sæti laus í þessa einstöku ferð til St. John’s, höfuðborg Nýfundnalands. Verslunarhús í St. John’s bjóða upp á frábæra þjónustu og flest opin til kl. 23.00. Góður afsláttur og tilboð, sérstaklega fyrir íslendinga. Lent er í Kanada kl. 6.40 8. des. eftir 3ja tíma flug frá Kef., flogið frá Kanada kl. 19.00 9. des., lent í Kef. kl. 1.55. Gist er eina nótt á Holiday Inn. Bókanir í síma 562-9950 Vestfjarðaleið - Ferðaskrifstofa, Skógarhlíð 10. íþróttir á Netinu ^mbl.is ALLTAf= €=ITTH\/ALD A/ÝT7 VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Stuðningnr við grein ÉG VIL lýsa yfir stuðn- ingi við grein, sem birtist sl. laugardag í Morgun- blaðinu, sem fjallar um ólöglega ríkisinnheimtu. Mér fínnst þessi inn- heimta Landmælinga Is- lands á birtingaleyfís- gjaldi forkastanleg, sér- staklega þar sem hér er um að ræða hiuti sem all- ur almenningur í landinu á og hefur borgað með skatti sínum. Þessi Land- mæiingastofnun minnir orðið óþægilega á Bifreiðaeftirlit ríkisins og þá „kommisera“ sem þar störfuðu. Ég var farinn að vona að þessi vondu ein- okunarfyrirtæki ríkisins væru liðin undir lok. Ég tek undir með greinarhöf- undi þar sem hann hvetur þá sem greitt hafa þetta ólöglega gjald að heimta fulla endurgreiðslu. Svona svívirða gengur bara ekki lengur. Kortaáhugamaður. Lánleysi Framsóknar VELVAKANDA barst eftirfarandi bréf: „Skammsýnir og lán- lausir voru framsóknar- menn á þingi sínu sunnu- daginn 22. nóvember að kjósa Siv Friðleifsdóttur ekki nýjan varaformann flokksins. Slíkur frísk- leiki er yfir henni, þrótt- ur, leiftrandi gáfur og málsnilld, að hún hefði sópað nýju fylgi að flokknum um lands- byggðina alla, ef þing þetta hefði borið gæfu til að leiða þessa frábæru konu til öndvegis í fiokknum við hlið for- mannsins. En, því miður, á þessum bæ eru menn oft seinheppnir og því mun nýtt fylgi við hinn gamla Framsóknarflokk ekki sópast að honum í komandi alþingiskosning- um. Ég, sem þessar línur sendi frá mér, vonsvikin, mun snúa mér að öðrum valkostum með atkvæði mitt - og svo munu marg- ir gera, veit ég. Finnur, hinn óvinsælasti meðal allra ráðherra ríkis- stjórnarinnar, segist ætla að snúa sér að því að efla innra starf flokksins. Flestum sýnist hann hafa meira en nóg að gera við að sinna öllum ráðherra- viðfangsefnunum, sem hann ræður þó ekki við sem skildi. Til þess skort- ir hann sitthvað, sem Siv býr yfír í ríkum mæli. Litlir kariar í valdastól- um eru oft lafhræddir við að fá nýtt hæfileikaríkt fóik í nálægð sína. Því fór nú sem fór. Bless, Fram- sókn. Helga R. Ingibjargardóttir. Tapað/fundið Gulur plastkassi datt af bfl NOKKUR vitni voru að því þegar gulur plast- kassi datt af bíl við um- ferðarljósin hjá Kolaport- inu sunnudaginn 23. nóv- ember kl. 18 og sáu bfl- stjóra á tvflitum Ford Econiline pallbfl taka hann upp. Ökumaður pallbílsins er vinsamlega beðinn að skila þessum plastkassa strax á skrif- stofu Kolaportsins alla virka daga kl. 10-16 (gengið inn í Tollhúsið að norðanverðu og hringt dyrabjöllu). Einnig er hægt að ná í kassann til viðkomandi ef hann hringir í síma 562 5030 á sama tíma og lætur vita hvar hann er niðurkom- inn. í kassanum voru peningar, gögn og áhöld sem eru eigandanum mikils virði. Gullhringur með blá- um steini týndist 14 karata gullhringur með bláum steini týndist sl. þriðjudag, 24. nóvember, sennilega fyrir utan Læknasetrið, Þöngla- bakka 6, eða innan dyra. Hringurinn er afar breið- ur. Eigandinn er gjörsam- lega miður sín og biður skilvísan fínnanda hafi samband í síma 552 0356. Barnagleraugu í óskilum BARNAGLERAUGU fundust sl. föstudag á lóð Breiðholtsskóla. Upplýs- ingar í síma 557 7913. Myndaalbúm týndist í Kringlunni ÉG týndi í Kringlunni svart/hvítu myndaalbúmi viku fyrir versiunar- mannahelgi með myndum síðan 1930. Þeir sem kannast við að hafa séð albúmið hafi vin- samlega samband í síma 568 7717. SKÁK Kfö 33. Hxf7 mát) 29. - g5 30. g4 og svartur gafst upp því 30. - gxf4 31. Dxg7+ - Kxg7 32. Hh7+ - Kg6 33. Bxf7+ - Kg5 34. Hh5 er mát. Ilin.sjón Miirgeir Pcturssnn STAÐAN kom upp á svæðamóti Úkraínu í nóvember. Gennadi Kuzmin (2.560) hafði hvítt og átti leik gegn S. Ovsejevitsj (2.500). 29. Be8! (Býr til máthótun- ina 30. Dh8+ - Bxh8 31. Hxh8 - Kg7 32. Hh7+ - HOGNI HREKKVISI nTJan/7 farsér i/arama/ms þegar hann/ i/er&ur ve/ kor." Yíkverji skrifar... VÍKVERJI var staddur í London á dögunum og lá leið hans þá sem oftar í bókaverzlun, að þessu sinni rétt fyrir lokun. Tilvilj- un olli því svo að Víkverji og af- greiðslumaður sá, sem afgreitt hafði hann í bókaverzluninni, hitt- ust handan götunnar og tóku tal saman. Þeim brezka þótti forvitni- legt að heyra af íslenzkum bók- menntum og bóksölu á Islandi. Hvorki hafði hann nafn neins rit- höfundar íslenzks á takteinum né sagðist hann reka minni til að hafa lesið bók af íslenzkum uppruna. En hann hafði Björk á hreinu. Englendingurinn sagði frásagnir af jólabókaflóði á Islandi og bóka- mörkuðum athyglisverðar, einkum það fyrrnefnda, en í Englandi er bókaútgáfa til þess að gera jöfn ár- ið um kring. En þá tók steininn úr, þegar Víkverki sagði þeim enska bókabúðarmanni frá því, að á ís- landi væru bækur á boðstólum í matvörumörkuðum. Fór honum reyndar sem Njáli að hann lét segja sér þrisvar áður en hann trúði. Sagði hann slíkt aldrei myndu gerast í Englandi; að menn myndu kaupa jólasteik og jólalesn- ingu í sömu verzlun. Fyrr myndi konungdæmið lagt af! XXX TERRY Pratchett heitir rithöf- undur sem hefur heillað enska lesendur upp úr skónum með bók- um sínum af ævintýrum í Discworld. Þegar Víkverji var í London sat Pratchett í tveimur efstu sætum lista yfír þær bækur, sem þá vikuna seldust mest í borg- inni. í efsta sætinu var nýjasta bókin (númer 23 að því er Víkverja minnir) og í öðru sæti sú, sem þar kom á undan, (númer 22). Seldust 7.888 eintök af þeirri fyrrnefndu og af hinni 7.599. XXX DAGARNIR 11, sem Agatha Christie lét sig hverfa 1926, hafa verið mönnum stöðugt tilefni alls kyns vangaveltna, var hún veik, átti hún í ástarævintýri, var hún þreytt á eiginmanninum, eða þurfti hún einfaldlega á einverunni að halda sjálfri sér til framdráttar. I sjónvarpi hérlendis var á dögun- um sýnd kvikmynd um þetta efni og í Englandi kom nýlega út enn ein bókin um þessa huldudaga skáldkonunnar. Höfundur hennar heitir Jared Cade og vill hann meina, að í eðli Agöthu hafí hefnigirnin ríkt og hún hafí með hjálp vinar falið sig til að ná sér niðri á eiginmanni sínum. Af dóm- um, sem Víkverji sá, að dæma hef- ur Cade þó farið í geitarhús að leita ullar. Hann er sagður hafa eytt sex árum til bókarinnar og einn rit- dómarinn sagði í lokin, að það væri sorglegt, þegar svo löngum tíma væri svo illa varið. En fráleitt er þetta síðasta orðið um þetta leyndarmál skáldkonunn- ar. Það virðist nefnilega freista manna ekki síður, en þau leyndar- mál, sem hún sjálf setti á bækur. Þó er sá munur á, að í bókarlok ganga menn jafnan í músagildruna meðan hún sjálf sleppur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.