Morgunblaðið - 02.12.1998, Page 63

Morgunblaðið - 02.12.1998, Page 63
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 63 MORGUNBLAÐIÐ________________________________________ FÓLK í FRÉTTUM Strokin og slegin Didda TÓJVLIST Geisladisknr STROKIN OG SLEGIN Strokin og slegin, tónlist ýmissa tónsmiða við ljóð Diddu. Lög eiga á diskinum Sigtryggur Baldursson, Magnús „Herb Legowitz" Guðmunds- son, Magrét Kristín Blöndal og Val- geir Sigurðsson, Margrét Örnólfs- dóttir, Sölvi Blöndal, Pétur Hall- grímsson, Hilmar Jensson, Sigur Rós og Óskar Guðjónsson. Smekkleysa s/m hf. gefur út. FÁTT FELLUR betur saman en ljóðlestur og tónlist; þegar vel tekst til undirstrikar tónlistin ljóðið, gef- ur því aukið vægi og dýpt alþjóð- legs tungumáls tónlistarinnar. Helst hafa menn fléttað saman ljóð- list og djass, enda er hvort tveggja persónleg upplifun og túlkun. Á vegum Smekkleysu kom fyrir skemmstu út diskur með tónlist ýmissa tónlistarmanna við ljóð Diddu, Strokið og slegið. Ekki kemur fram á umslagi hvernig plat- an var unnin, en framsögn Diddu er svo ólík milli laga að getur má að því leiða að hún hafí lesið inná eft- irá, til að mynda nánast syngur hún í Iaginu/ljóðinu Vitlaus í’ða. I sum- um tilfellum hafa tónsmiðirnir leik- ið sér með röddina og jafnvel nýtt sér hana eins og hvert annað áhrifshljóð; heyi' til að mynda ann- að lag disksins, Enginn, þar sem Herb Legowitz nýtir orðið enginn sem skraut og taktmerki. Eitt það skemmtilegasta við Strokið og slegið er hversu margir koma að verkinu, því platan er frá- bærlega fjölbreytt. Pegar við bæt- ist að á henni eru saman komnir margir skemmtilegustu tónsmiðir og tónmyndlistarmenn landsins hlýst eðlilega af öllu saman hin besta skemmtun. Einna skemmtilegustu lögin eru frá Margréti Örnólfsdóttur, það fyrra Augnablik þar sem strengir og leikhúslegur sprettur falla frá- bærlega að ljóðinu og síðar gjörólík breakbít-stemmning í laginu 1 gramm, þar sem píanómillispil ljær ljóðinu upphafna fegurð. Mikið væri gaman að fá að heyra frá Mar- gréti meira af slíku. Sigtryggur Baldursson á líka bráðskemmtileg lög og fékk við að eiga einna skemmtilegustu ljóðin á plötunni. Upphafslagið er verulega skemmtilegt en það síðara slær því við í fjöri og frumlegheitum. Það nýtur vissulega einnig þess að ljóðið Mjólkaðu mig er með þeim bestu á plötunni, litað myrkri kímni. Herb Legowitz á mjög góða spretti, sérstaklega er gaman að því hvernig hann notar nánast óbærileg hljóð í lok fyrra lags síns svona rétt til að undirstika tónlistina sjálfa, en í öðru laginu fær hann útrás fyrir reggí í skemmtilegu lagi. Magga Stína og Valgeir Jónsson eiga tvö lög líkt og þau sem talin eru og sérstaklega er það fyrra skemmtilegt þar sem þau leika sér með bi-othljóð og þunga undiröldu. í seinna laginu, Aldrei örið, eiga þau erfiðara með að halda athygli hlust- andans, enda er það alllangt, hálf tí- unda mínúta. Hilmar Jensson veltir upp spurn- ingum um tónlist með sérkennilegu undirspili undir áhrifamikið ljóð, Pað er ekki ósennilegt, þar sem bjögun og suð kallast á við mjúk- róma gítarundirspil. Seinna lag hans er á svipuðum slóðum utan að nú er röddin einnig bjöguð og fram- andleg. Bráðgott lag. Sigur Rós á eitt lag á plötunni, við ljóðið Dót, þar sem fagrir hljóm- ar nánast hverfa fyrir ásókn eyðing- araflanna, suðið hefst og hnígur þar til það hefur betur í lokin. Öskar Guðjónsson á lokaorð plöt- unnar og fléttar framandlegum blásturshljómum við röddina, sem er á köflum svo fjarri að varla er hægt að heyra orðaskil, eða að hún kastast á milli rása. Pétur Hall- grímsson á líka gott lag á diskinum við ljóðið Sómi íslands þar sem hann fer á kostum á fetilgítar. Einnig er lag Sölva Blöndals við ljóðið Kisa gott, hrátt slagverk og þungur bassi. Niðurröðun laga á diskinn er einkar vel heppnuð, sérstaklega hljóma vel saman lögin á loka- sprettinum. Strokið og slegið er vel heppnuð plata og skemmtileg. Vissulega eru sum ljóðanna erfið fyrir viðkvæm eyni og tónlistin sumstaðar líka, en það margborgar sig að leggja við hlustir. Umslag plötunnar er mjög gott að utan, en aftur á móti óaðlaðandi og litlaust þegar það er opnað. Gott hefði verið að fá ljóðin með, til að mynda í lokalaginu, þar sem oft er erfitt að greina hvað sagt er. Árni Matthíasson Draumkennt tölvupopp Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir BANG Gang kynnir skífu sína í lastabæli. JULIE Walters og Brenda Blet- hyn í Girl’s Night. Stórleikkon- ur í hjart- næmri mynd ►LEIKKONAN Brenda Blethyn hefur ekki sést. á hvíta tjaldinu hérlendis síðan hún sló í gegn í Secrets and Lies, fyrr en nú að Háskólabíó hefur tekið til sýn- inga myndina hinni hjartnæmu mynd Girl’s Night, þar sem Brenda er í aðalhlutverki ásamt Julie Walters. Báðar hafa aðalleikonurnar verið tilnefndar til óskarsverð- launa, Brenda fyrir Secrets and lies og Julie fyrir leik sinn í Ed- ucating Rita árið 1983. Leikstjóri þessarar bresku myndar er Nick Hurran en sagan er byggð á handriti eftir Kay Mellor. Julie og Brenda leika vin- konurnar Dawn og Jackie. Líf þeirra tekur miklum breyt- ingum þegar Dawn (Brenda Blet- hyn) vinnur stóra vinninginn í föstudagsbingóinu. Þær halda upp á vinninginn en þá segir Dawn vinkonu sinni að hún sé með krabbamein, eigi skammt eftir ólifað og ætli að afþakka læknismeðferð. Þær ákveða að njóta síðustu stundanna saman og skreppa til Las Vegas. TONLIST Geisladiskur YOU You, geisladiskur Bang Gang. Bang Gang skipa Barði Jóhannsson og Est- er Thalía Casey. Barði semur öll lög og texta og annast útsetningar, en Ester syngur. Ymsir komu við sögu í upptökunum. Sproti gefur út, Skífan dreifir. 42,33 mín. BARÐI Jóhannsson hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi og jafnan vakið athygli fyi'ir frumlega tónhugsun og skemmtilegar hug- myndh-. Ekki er ástæða til að tíunda fyrri sveitir hans, enda eru þær svo frábrugðnar því sem gefur að heyra á fyrstu breiðskífu samstarfsverk- efnis hans og Esterar Thalíu Casey, Bang Gang. Lög sveitarinnar hafa hljómað í útvarpi og notið vinsælda undanfarið, en í þeim er Barði að marka sér nýjar brautir í lagrænni danstónlist og um leið orðinn meðal frumherja í íslensku danspoppi. Aðal Bang Gang er grípandi lag- línur í hægfara draumkenndu tölvu- poppi með lágstemmdum söng Esterar. Textar eru mai-gir allmyrk- h' og útsetningar th þess fallnar að ýta undir stemmninguna í þeim. Þær eru reyhdar fjölbreyttar, þótt yfir- bragðið sé yfirleitt hið sama, heyi- þannig hve slagverk og tölvuhljómar falla vel saman í upphafslaginu, framúrstefnulegan trommutakt í öði-u laginu og íslensk-indverska strengi í því fjórða. Seint verða menn leiðir á að hlusta á You, slík er fjölbreytnin í útsetningum og hljóð- færaslætti. Lögin eru misgrípandi og sum til- raunakennd. Nefna má lög eins og Save Me, sem gengur vel upp í slitr- óttri útsetningu, Never Ever, sem er afskaplega gott lag með þykkum hrynhljómum, og Another You, þar sem gítarhljómar koma skemmtilega fyrh' og taktskiptin hálfa þriðju mín- útu inn í lagið og svo aftur 40 sek- úndum síðar vel af hendi leyst. Upphafslag plötunnar er bráðgott með skemmtilega lifandi slagverki. Ester syngur það líka vel og líkt og víðast á plötunni fer vel á því að Barði raddar. Ekki er raddsetning þó alltaf vel heppnuð, til að mynda eru raddinnskot í Hazing Out ekki til þess fallin að lyfta laginu. Groddaleg rödd Bai'ða kallast vel á við tæra og sakleysislega rödd Esterar og gefur nauðsynlega dýpt í lögin. Flestir þekkja lög eins og So Alone? og Sleep, sem hljómar alltaf jafn vel, afspyi-nugott popplag í skemmtilegri útsetningu, en bestu lög á plötunni eru þó Sacred Things, Liar, Falling Apart og Never Ever með frábærum bassainngangi og góðu slagverki. Bang Gang hefur hlotið athygli fyrir tónsmíðar sínar ytra og ekki nema von, sveitin á fullt erindi á er- lendan markað og lítur stíft þangað; umslag plötunnai’ er allt á ensku. Væntanlega þarf þó að herða á út- setningum og slípa eitthvað betur áðui' en sveitin verður alþjóðleg markaðsvara. Ester Talía þyrfti og að leggja meiri rækt við enskan framburð sinn og þjálfa betur áherslur, þær eru fullíslenskar eins og heyra má til að mynda í lokalagi plötunnar. Það er þó það eina sem telja má mínus á þessari skífu; Barði og Ester hafa náð að setja saman framúi'skarandi plötu sem er með því besta sem komið hefur út á árinu og markar módernísku íslensku poppi nýja stefnu. Árni Matthíasson MYNPBÖND Saga af smábæ Hver er Gummo? (Gummo)__________ Gaman il rama ★V4 Framleiðendur: Cary Woods. Leik- stjóri: Harmony Korine. Handritshöf- undur: Harmony Korine. Kvikmynda- taka: Jean Yves Escoffier. Tónlist: Randal Poster. Aðalhlutverk: Linda Manz, Max Perlich, Jacob Reynolds, Chloe Sevigny, Jacob Sewell, Nick Sutton. 90 mín. Bandaríkin. Mynd- form 1998. Myndin bönnuð börnum innan 16 ára. HARMONY Korine er aðeins 24 ára en honum skaut upp á stjörnu- himininn eftir að hann skrifaði hina umdeildu „Kids“. Hver er Gummo? er fyrsta mynd Korine sem leikstjóra og er hún að mörgu leyti merkileg en að litlu leyti góð. Korine sjálfur segist vera Wemer Herzog fyr- ir MTV-kynslóðina sem segir að annað- hvort sé eitthvað virkilega mikið að MTV-kynslóðinni eða Korine sjálfum. Myndin reynir merkilega mikið að hneyksla áhorfandann og sýna smá- bæinn Xenia í Ohiofylki uppfullan af heimsku, ógeðslegu og skemmdu fólki, sem hefur búið við innvensl um árabil. Það eru nokkrar sögur í gangi í myndinni og allar ganga þær ekki út á neitt og verður brátt hundleiðinlegt að fylgjast með þessu tilgangsleysi. Leikararnir standa sig prýðilega og eru nokkur þekkt andlit í myndinni og má benda á Max Perlich í hlut- verki hómangara, sem leigir van- skapaða konu út til allra sem hana vilja' og Chloe Sevigny úr „Kids“ er í hlutverki heimskrar ljósku. Á meðan John Waters gerði það að hneyksla fólk að umdeildri list þá tekst Har- mony Korine að gera merkilega leið- inlegt myndrænt hneyksli. Ottó Geir Borg Frekar þá dönsku Næturvaktin (Nightwatch)_____________ Sppiinuliro II ui' ★ Framleiðandi: Michael Obel. Leikstjóri: Ole Bornedal. Handrit: Ole Bornedal og Steven Soederberg. Kvikmyndataka: Dan Laustsen. Aðalhlutvcrk: Ewan McGregor, Patricia Arquette og Nick Nolte. (97 mín.) Bandarfsk. Skífan, nóvember 1998. Bönnuð innan 16 ára. DANSKA kvikmyndin „Nattevagt- en“ þótti vel heppnuð spennumynd sem færði hefðbundna raðmorðingja- frásögn í ferskan búning og danskt umhverfi. Með bandarísku endur- gerðinni sem hér um ræðir hefur morðsaga þessi e.t.v. verið færð nær upprunanum, þ.e. hinni sívinsælu bandarísku raðmorðingjamynd. Endurgerðin skilar spennu og ísmeygilegum hrylhngi án vand- kvæða en í henni eru smávægilegar breytingar til að myndin falli betur að formúlunni. Þannig er heildarútlit sótt í þá hryllingsmyndatísku sem „Seven” kom af stað auk þess sem Hollywood-útgáfan gefur sér meiri tíma í að nostra við líkamsmeiðingar og niðurlægingu kvenlíkamans sem er undirstaða þessarar hrollvekju líkt og margra annarra. Þá myndar klisjukennd persónan, sem Nick Nolte leikur, veikan hlekk sem ekki var til staðar í dönsku myndinni. Þó svo að bandaríska Næturvaktin sé sæmileg hrollvekja, mæh ég með að fólk leigi sér frekar dönsku frummyndina, því þessi hefur nákvæmlega engu við hana að bæta. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.