Morgunblaðið - 13.12.1998, Blaðsíða 1
285. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Leitað að látnum
TAÍLENSKIR hermenn unnu að því í gær
að ná burt líkum þeirra, sem fórust þegar
Airbus A310-200-farþegaflugvél frá Thai
Air brotlenti á akri við Surat Thani í
Taílandi í fyrradag. 146 manns voru með
vélinni, farþegar og áhöfn, og komust 46
Jerúsalem. Reuters.
MIKILL viðbúnaður var í ísrael og á sjálf-
stjórnarsvæðum Palestínumanna í gær vegna
heimsóknar Bills Clintons, forseta Bandaríkj-
anna, en hann var væntanlegur þangað seint í
gærkvöld. Upphaflega var fórinni heitið til að
halda upp á Wye-samkomulagið, sem Clinton
átti stóran þátt í, en ljóst er, að verkefni hans
verður fyrst og fremst að reyna að bjarga því,
sem bjargað verður.
„Forseti Bandaríkjanna vogar sér nú í
fyrsta sinn inn á svæði, sem kalla má miðstöð
hryðjuverkastarfseminnar," sagði Joe
LaSorsa, einn þein-a leyniþjónustumanna,
sem gæta munu Clintons í þriggja daga heim-
sókn hans en hann mun meðal annars ávarpa
Þjóðarráð Paiestínumanna á Gaza á morgun.
Búist er við, að þá muni Þjóðarráðið fallast á
þá yfirlýsingu Yassers Arafats, leiðtoga Pal-
estínumanna, að það ákvæði í eins konar
lífs af. Flugmennirnir reyndu í 20
mínútur að lenda vélinni í myrkri og
úrhellisrigningu og er það haft eftir þeim,
sem lifðu af, að undir það síðasta hafi
mikil skelfing gripið um sig meðal
farþeganna.
stjórnarskrá Palestínumanna, sem kveður á
um eyðingu Israels, hafi verið fellt burt.
Hóta að hætta brottflutningi
Israelska ríkisstjórnin krefst þess, að fram
fari sérstök atkvæðagreiðsla um ógildingu
ákvæðisins á morgun og hún hefur lýst yfir, að
verði það ekki gert, muni brottflutningi ísra-
elsks herliðs frá hernumdu svæðunum verða
hætt. Talsmenn Palestínumanna segja, að
engin atkvæði verði greidd um það nú. Þess sé
ekki krafist í Wye-samningnum og auk þess
hafi það verið samþykkt í formlegri atkvæða-
gréiðslu 1996 að fella burt ákvæðin.
Bandarískir embættismenn hafa verið að
reyna að koma á fundi með Clinton, Arafat og
Netanyahu, forsætisráðherra Israels, en Net-
anyahu vill ekki ákveða neitt um það fyrr en
að loknum fundi Þjóðarráðs Palestínumanna.
Leiðtogafundur ESB
Aukið aðhald
en umbætur
látnar bíða
Vín. Reuters.
LEIÐTOGAFUNDUR Evrópusambandsins,
ESB, samþykkti í gær að auka fjárlagaaðhald
nú þegar til stendur að fjölga aðUdarríkjunum
en engar ákvarðanir voru teknar í mesta
ágreiningsmálinu, fjármálum sambandsins.
Niðurstaða fundarins var sú, að leiðtog-
arnir 15 voru sammála um brýnustu úrlausn-
arefnin án þess þó að taka á þeim. Þeir ítrek-
uðu hins vegar, að tillögur til umbóta skyldu
liggja fyrir ekki síðar en í mars.
Agi-einingurinn innan ESB snýst um pen-
inga. Þýskaland og önnur velmegandi ríki
vilja lækka framlög sín en snauðari ríkin
mega ekki heyra á það minnst.
Ekki samræmd skattalöggjöf
Þjóðverjai- hafa að undanfómu beitt sér
fyrir samræmdri skattalöggjöf innan ESB en
Bretar hafa verið því andsnúnir. I samþykkt
fundarins segir, að í skattamálum sé ekki
stefnt að samræmingu með þehri undantekn-
ingu þó, að reynt verði að haga skattlagningu
sparifjár með sama hætti alls staðar.
Fyrirhugað var að hætta fríhafnarverslun
innan ESB á sumri komanda en hugsanlega
verður því frestað um sinn vegna þeirra af-
leiðinga, sem það hefði fyrir atvinnu margra
manna.
Bill Clinton í heimsókn á Gaza og í ísrael
Reynir að bjarga
Wye-samningnum
Verðlaun
fyrir bull og
þvaður
London. Reuters.
TVÖ bresk ráðuneyti fengu nú fyrir
helgi Gullna bullið, verðlaun, sem veitt
eru árlega fyrir óskiljanlegt bull og vit-
leysu. Standa að þeim samtök, sem kall-
ast „Eðlileg enska“, og hafa nú starfað í
20 ár.
Chrissie Maher, sem lærði ekki að
lesa og skrifa fyrr en hún var orðin 14
ára gömul, stofnaði samtökin árið 1979.
Hafa þau fyrst og fremst beint spjótum
sfnum að málfari opinberra embættis-
manna, algerlega óskiljanlegu stofnana-
máli, og raunar boðið upp á námskeið í
einföldu og eðlilegu máli fyrir skrif-
finna, bankamenn og lögfræðinga.
Að þessu sinni voru það innanríkis-
og viðskiptaráðuneytið, sem til verð-
launanna unnu. Kvaðst Jack Straw inn-
anríkisráðherra játa það fullkomlega,
að margt af því, sem frá ráðuneytinu
kæmi, ætti ekkert skyit við skýra hugs-
un. Hann tók þó fram, að verðlauna-
málsgreinarnar að þessu sinni hefðu
verið sérstaklega stflaðar á fólk, sem
hefði fyrstu einkunn í bulli og þvaðri.
Það væri þó engin afsökun.
Maher segir, að Englendingar eða
Bretar séu ekki einir um að misþyrma
enskri tungu. Sendi hún tvo menn til
Indlands, Suður-Afríku og Bandaríkj-
anna og höfðu þeir ýmislegt forvitnilegt
í farangrinum þegar þeir sneru heim.
Skemmtileg þótti til dæmis sú skilgrein-
ing á atvinnulausu fólki vestra, að það
væri í „nauðungarfríi11. Maher segir, að
þótt oft megi skemmta sér vel yfir hinu
opinbera bulli þá sé önnur hlið og alvar-
legri á því máli. Sú þokukennda hugs-
un, sem einkenni það, geri stjórnar-
stofnanir, heilbrigðis- og dómskerfið
óskilvirkari en ella væri.
Of kalt á
Gardermoen
LIKUR benda til þess að loka verði hin-
um nýja flugvelli á Gardermoen í Nor-
egi þegar kalt er í veðri. Astæðan er sú
að landgönguranarnir á vellinum eru
hvorki einangraðir né upphitaðir.
Um síðustu helgi var leiðindaveður
í Ósló, frost og snjókoma og segir
Nina Sudmann, aðalöryggisfulltrúi
SAS-flugfélagsins á vellinum, að að-
stæður hafi verið óþolandi fyrir far-
þega og starfsfólk. „Það snjóaði inn í
nokkra landgönguranana. Farþegar
kvörtuðu yfir kulda og starfsfólkið
var helblátt af kulda,“ sagði Sudmann
í samtali við NRK. Telur hún ljóst að
næst þegar geri norðanátt, verði að
loka vellinum.
10
GAGNAGRUNNUR
- ÞJÓÐARLÍKAN
Y tt undir
fyrirhyggjuna
STUNDUM
GEFIÐ Á BÁTINN